26. jún. 2012 - 08:11Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Undarleg orðsending um forsetakjörið
Þegar ég kom til vinnu minnar uppi í Háskóla laust eftir klukkan sjö á þriðjudagsmorgun, opnaði ég tölvupóst minn að venju. Þar kom í ljós, að ég hafði fengið sendingu á Facebook. Svavar Halldórsson, sambýlismaður Þóru Arnórsdóttur forsetaframbjóðanda, hafði skrifað fimm klukkustundum áður, um klukkan hálfþrjú að nóttu:
Sæll. Er það rétt sem menn segja að þú berir ábýrgð á lygunum sem birtast undir fuglahvísli á AMX?
Ég svaraði honum að bragði:
Sæll. Ég hef verið erlendis og kom til landsins á laugardagskvöld. Ég hef hvergi látið í ljós neina skoðun á þessu forsetakjöri og því síður skrifað neitt um það á amx.is. Ég kann satt að segja ekki við þann tón, sem er í þessari orðsendingu þinni, þótt send sé klukkan hálfþrjú um nótt.
Eftir að ég hafði skoðað málið lauslega, bætti ég við:
Ég fór, eftir að ég fékk orðsendinguna frá þér, inn á amx.is og skoðaði nýlega pistla þar um framboð minnar ágætu kunningjakonu Þóru Arnórsdóttur, sem er einnig dóttir góðs vinar míns. Smáfuglarnir þar láta vissulega í ljós sterkar skoðanir á kosningabaráttu Þóru, sem þú rekur af miklum krafti, jafnvel langt fram eftir nóttu. En hvar eru lygarnar? Að Þóra hafi verið í Alþýðuflokknum eins og segir á amx.is? Eða kennt í stjórnmálaskóla Samfylkingarinnar eins og þar segir líka? Hið fyrra hefur ekki verið vefengt. Og í auglýsingu í fjölmiðlum um stjórnmálaskóla Samfylkingarinnar 2002 var Þóra sögð kennari þar. Eru það ósannindi? Hver ber þá ábyrgð á þeim? Helgi Hjörvar, skólastjórinn? Munuð þið Þóra fordæma slík vinnubrögð Samfylkingarinnar?
Úr því að Svavar Halldórsson vill ólmur draga mig inn í kosningabaráttuna, hef ég þetta að segja um forsetakjörið: Ég hef enn ekki ákveðið, hvað ég kýs á laugardaginn, þótt sennilega fari ég á kjörstað og nýti með því rétt minn. Hugsanlega skila ég auðu, en ég get líka hugsað mér að kjósa Ólaf Ragnar Grímsson þrátt fyrir fyrri væringar, af því að mér fannst hann standa sig vel í Icesave-málinu. (Minnist ég þá frægra ummæla Indros Montanellis, þegar hann hvatti Ítali eitt sinn til að kjósa Kristilega lýðræðisflokkinn, því að hann væri skársti kosturinn: „Turatevi il naso e votate Democrazia Cristiana.“) Ég get líka hugsað mér að kjósa Þóru Arnórsdóttur, því að ég þekki hana að góðu einu og læt mig þá engu skipta, ef hún á sér fortíð í Alþýðuflokknum eða Samfylkingunni. Hina frambjóðendurna tel ég alla óframbærilega.
Í forsetakjörinu er eitt sjónarmið mikilvægt, þótt margt annað verði einnig að hafa í huga. Framundan eru óvissutímar. Úrskurður ESA-dómstólsins í Icesave-málinu í haust verður líklega voldugri aðilanum í hag, Bretum og Hollendingum, þótt ekki sé það fullvíst, enda eru rök Íslendinga sterkari. Verði sú raunin á, mun Evrópusambandið eflaust reyna einhver bolabrögð. Þá skiptir máli, að trúnaðarmenn þjóðarinnar muni, að við erum fullvalda þjóð, sem látum ekki kúga okkur í lífshagsmunamáli. Þá varðar miklu, að málsvarar Íslandi komi fram erlendis af festu og fimi í senn. Það gera núverandi ráðherrar ekki og geta ekki, eins og dæmin sanna. Þá reynir þess vegna sérstaklega á forseta Íslands.
18.maí 2013 - 09:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Einn dagskrárliðurinn var heimsókn í safnið um uppreisnina í Varsjá 1944. Sú heimsókn var ógleymanleg.
17.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Heimspekidoktorarnir Vilhjálmur Árnason og Salvör Nordal skrifuðu lærðar ritgerðir í rannsóknarskýrslu Alþingis um siðferði eða öllu heldur siðleysi íslenskra fjármálamanna fyrir bankahrunið 2008. Ein hneykslunarhella þeirra var hugmyndin um Ísland sem fjármálamiðstöð.
16.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Þrír nafnkunnir menn í Reykjavík hétu upp úr miðri 20. öld Pétur Pétursson.
15.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Íslendingar hafa löngum skrifað skammir hver um annan og oft nafnlaust, en lesendur hafa þá reynt að geta sér til um höfunda, og hefur það gengið misjafnlega.
14.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Árni Vilhjálmsson bar ekki utan á sér, að hann var einn auðugasti útgerðarmaður landsins.
13.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
En þær, sem reiðastar voru körlum fyrir fornar misgerðir og lengst gengu, sögðu með Andreu Dworkin: „Erfitt er að greina flekun frá nauðgun. Þegar ætlunin er að fleka, hefur nauðgarinn fyrir því að kaupa vínflösku.“
12.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Biblían er ekki aðeins merk í sjálfri sér, heldur líka vegna þess, hversu margt í vestrænni og þá um leið íslenskri menningu vísar í hana. Í þeim skilningi er hún þrungin menningarsögulegri merkingu, og væri mikill skaði að því að hætta að kenna kristin fræði í skólum.
10.maí 2013 - 12:04
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hér er myndband um samstarfsverkefni AECR og RNH síðustu fimmtán mánuði:
09.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
En oft hafa raddir úr þjóðardjúpinu orðað frelsishugmyndirnar betur en fræðimennirnir.
08.maí 2013 - 11:59
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
05.maí 2013 - 19:59
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Ég var í viðtali við Egil Helgason sunnudaginn 5. maí 2013 um efnið í fyrirlestri þeim, sem ég flutti á félagsvísindaráðstefnu á Bifröst föstudaginn 3. maí. Það var gaman að því, að Egill kunni á latínu tilvitnunina í rómverska leikskáldið Júvenalis, sem ég vék að:
Quis custodiet ipsos custodes?
04.maí 2013 - 14:29
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Meðal annars vísaði ég á bug fjórum algengum skýringum á bankahruninu:
01.maí 2013 - 23:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Ég flyt fyrirlestur á ráðstefnu um þjóðfélagsfræði í Háskólanum á Bifröst föstudaginn 3. maí. Ber fyrirlesturinn, sem fluttur verður á ensku, yfirskriftina „The International Financial Crisis and the Collapse of the Icelandic Banks“.
30.apr. 2013 - 08:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Davíð Oddsson myndaði sína fyrstu ríkisstjórn 30. apríl 1991. Þá um kvöldið hittumst við Davíð ásamt tveimur öðrum vinum okkar og konum þeirra þriggja og skáluðum.
29.apr. 2013 - 11:23
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
There are several misleading or even wrong statements in the news item by Torbjørn Pedersen, NTB, on the Icelandic elections, published in
Aftenposten 27 April 2013.
28.apr. 2013 - 10:31
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Nú þegar Jóhanna Sigurðardóttir dregur sig í hlé og heldur til Dýrafjarðar, en þangað renna öll vötn, sem kunnugt er, skilur hún flokk sinn eftir rjúkandi rúst.
25.apr. 2013 - 09:21
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Í hádeginu miðvikudaginn 24. apríl hlustaði ég á fyrirlestra Ólafs Þ. Harðarsonar og Evu Heiðu Önnudóttur um kosningarnar framundan. Voru þeir hinir fróðlegustu. Ég verð þó að gera athugasemd við eitt, sem Ólafur sagði.
23.apr. 2013 - 12:16
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Allt þetta hefur komið fram opinberlega. Ég geri mér grein fyrir, að þetta mun ekki hafa nein áhrif á Stefán Ólafsson. Hann mun halda áfram að endurtaka missagnir sínar. En vonandi vilja einhverjir lesendur bloggs hans hafa það, sem sannara reynist.
18.apr. 2013 - 19:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Vinstri menn á Íslandi með þau Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrím J. Sigfússon hlustuðu ekki á Persson. Þeir voru fullir haturs á þeim, sem höfðu gersigrað þá í hverri orrustunni af annarri næstu fimmtán árin á undan.
17.apr. 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Ég bendi á grein á heimasíðu Rannsóknarseturs um nýsköpun og hagvöxt, RNH, þar sem Margrétar Thatchers er minnst.
15.apr. 2013 - 19:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Þetta er fjármálahneyksli, sem þarf að rannsaka og fá skýringar á. Nýleg sala FIH-bankans sýnir, að núverandi yfirmenn Seðlabankans virðast ekki vera færir um að gæta hagsmuna Íslendinga gagnvart öðrum þjóðum (eins og þeir sýndu raunar með afskiptum sínum af Icesave-málinu og töku hins óþarfa láns með okurvöxtum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum).
14.apr. 2013 - 19:30
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Sú var tíð, að skoðanakannanir voru Sjálfstæðisflokknum hagstæðar, og þá viðraði Stefán sig upp við Sjálfstæðisflokkinn. Hann gaf mér til dæmis 1999 bók sína
Íslensku leiðina og skrifaði inn í eintakið, að íslenska leiðin væri bláa leiðin!
13.apr. 2013 - 13:22
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Ég hef ekki átt nein slík samtöl. Og það, sem meira er: Ég hefði ekki getað átt nein slík samtöl, því að ég fór utan 21. mars og er ekki kominn heim.
11.apr. 2013 - 14:53
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Ég hef setið tvær afar fróðlegar ráðstefnur í Brasilíu í aprílbyrjun.
31.mar. 2013 - 15:05
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hér er stutt myndband með mati Nóbelsverðlaunahafans Edwards Prescotts á áhrifum skattalækkana.
28.mar. 2013 - 12:08
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Stefán
kvartar eins og sósíalisti,
kveinar eins og sósíalisti,
kveður eins og sósíalisti og
tekur við verðlaunum fyrir að vera sósíalisti. Er þá ekki nærtækt, að hann sé sósíalisti?
26.mar. 2013 - 19:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Og verðlaunahafarnir voru ekki af lakara taginu. Þeir voru tveir samkennarar mínir í Háskóla Íslands, prófessorarnir Stefán Ólafsson og Þorvaldur Gylfason.
25.mar. 2013 - 12:50
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Það var gaman að orðaskiptum þeirra Stefáns Ólafssonar, síðar prófessors, og Miltons Friedmans í sjónvarpssal 31. ágúst 1984.
24.mar. 2013 - 21:56
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Fáir hafa skilgreint frjálshyggju skilmerkilegar en Milton Friedman í svari við spurningu Boga Ágústssonar í Sjónvarpinu 31. ágúst 1984.
22.mar. 2013 - 11:33
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Kjarninn í boðskap hans í þessu stutta myndbandi frá fyrirlestrinum stendur óhaggaður: Við gerum ekki hina fátækari ríkari með því að gera hina ríku fátækari.