09. feb. 2010 - 10:08Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Þrjár spurningar um Baugsfeðga

Allir eru sammála um það í orði kveðnu, að reglur eigi að vera gagnsæjar og mönnum skuli ekki mismunað að tilefnislausu. Mig langar þess vegna til að bera upp þrjár spurningar um Baugsfeðga annars vegar og Björgólfsfeðga hins vegar:

Baugsfeðgar þurftu ekki að ganga í persónulegar ábyrgðir fyrir lánum sínum úr íslensku bönkunum, eins og Jón Ásgeir Jóhannesson hreykir sér af opinberlega. Björgólfsfeðgar þurftu hins vegar að ganga í persónulegar ábyrgðir fyrir lánum sínum, og hefur Björgólfur eldri þess vegna misst allar eigur sínar. Hvers vegna gerðist þetta?

Bankar tóku fjölmiðla í eigu Björgólfsfeðga af þeim og seldu í opnu og gagnsæju útboði. Bankar leyfðu hins vegar Baugsfeðgum að halda fjölmiðlum sínum og flytja skuldir þeirra í önnur fyrirtæki. Baugsfeðgar stjórna enn fjölmiðlum sínum og nota þá miskunnarlaust gegn þeim, sem ekki sitja og standa eins og þeir vilja. Hvers vegna fengu þeir þetta?

Bankar hafa stefnt Björgólfi yngra og krafið hann um greiðslu ýmissa skulda þeirra feðga. Á sama tíma veita bankar Baugsfeðgum forkaupsrétt að fyrirtækjum sínum (Högum), en virðast ekki gera neinar ráðstafanir til að fá endurgreitt frá þeim, til dæmis með því að hafa upp á því fé, sem notað var í lystisnekkjur, einkaþotur og skrauthýsi. Hvers vegna var þetta látið eftir þeim?

Hvers vegna fá Baugsfeðgar miklu vægari meðferð en Björgólfsfeðgar? Nú hafði Jón Ásgeir við orð á sínum tíma, sem frægt er, þegar honum fannst forsætisráðherra þeirrar tíðar vera sér erfiður, að enginn maður stæðist 300 milljón króna mútur greiddar inn á erlendan bankareikning. Eiga orð hans enn við?




14.mar. 2010 - 11:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Kosningasprengja Stefáns 2007

Stefán Ólafsson Í bloggi mínu í gær lýsti ég kosningasprengju þeirri, sem Stefán Ólafsson varpaði fram fyrir Samfylkinguna vorið 2003, skömmu fyrir þingkosningar. Þá átti fátækt að vera meiri á Íslandi en annars staðar á Norðurlöndum. Sú sprengja sprakk framan í Samfylkinguna, en ég fer í nýútkominni bók minni, Áhrif skattahækkana á hagvöxt og lífskjör, yfir gögn um málið, meðal annars frá hagstofu Evrópusambandsins.
13.mar. 2010 - 09:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Kosningasprengja Stefáns 2003

Fyrir kosningarnar 2003 voru kosningamál Samfylkingarinnar tvö, eins og menn muna. Hið fyrra var, að Davíð Oddsson væri duttlungafullur harðstjóri (sumir gengu jafnvel lengra, til dæmis Hallgrímur Helgason, og sögðu, að hann væri ekki heill á geðsmunum), sem sigaði lögreglunni á Baugsfeðga og aðra óvini sína.
12.mar. 2010 - 11:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Hvar vegnar lítilmagnanum best?

Eftirlætisheimspekingur Samfylkingarinnar heitir John Rawls og var prófessor í Harvard-háskóla. Hann gaf 1971 út bókina Kenningu um réttlæti (A Theory of Justice), þar sem hann leiddi margvísleg rök að því, að réttlátt væri það skipulag, sem tryggði öllum hámarksfrelsi, en skipting gæðanna ætti að miðast við það, að hinir verst settu yrðu eins vel settir og framast væri unnt (þetta er stundum kallað hámörkun lágmarksins).
11.mar. 2010 - 10:40 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Áhrif skattahækkana

Nú er bók mín, Áhrif skattahækkana á hagvöxt og lífskjör, loks komin í bókabúðir. Ég ákvað að láta ekki dreifa henni fyrr en eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna 6. mars, enda hefði lágróma rödd mín drukknað í hávaðanum í kringum hana.
10.mar. 2010 - 12:26 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Útvarpsstöð á Jamaíku

Síðustu vikur hef ég því neyðst til að ræða við marga erlenda fjölmiðlamenn. En þrátt fyrr allt hafði ég gaman af því, þegar í morgun hringdi í mig útvarpsstöð alla leið frá Jamaíka til að forvitnast um ástand og horfur á Íslandi.
09.mar. 2010 - 13:17 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Breytingar á stjórnskipun?

Ég sé ekki betur en tvær breytingar séu að verða á stjórnskipun Íslands, sem var í tiltölulega föstum skorðum alla tuttugustu öld.
08.mar. 2010 - 15:36 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Úr Wall Street Journal í dag

Ég skrifaði grein í Wall Street Journal í dag, mánudaginn 8. mars 2010, undir heitinu „Iceland’s Message: Don’t Bail Them Out“ (Boðskapur Íslendinga: Greiðum ekki skuldir annarra). Tilefnið er hin sögulega þjóðaratkvæðagreiðsla á Íslandi 6. mars.
07.mar. 2010 - 12:54 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Icesave-málið úr höndum þeirra

Þjóðin hafnaði Icesave-samningi þeim, sem Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon gerðu, tóku ábyrgð á og keyrði af mikilli hörku í gegnum Alþingi með stuðningi margra fjölmiðla og álitsgjafa. Nú viðurkenna jafnvel Jóhanna og Steingrímur, að völ er á betri samningi, og hafa þau nefnt 70 milljarðar króna sparnað fyrir Íslendinga í því sambandi.
06.mar. 2010 - 15:46 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Hrunkóngurinn

Í Pressunni í dag kallar Ólafur Arnarson Davíð Oddsson „hrunkónginn“ í hundraðasta sinn. En það er mikill misskilningur, sem sumir halda fram, að Ólafur stjórnist af hatri í garð Davíðs. Hann hefur enga ástæðu til að hata Davíð og gerir það áreiðanlega ekki. Hins vegar hefur hann fyrirmæli um það frá gömlum og nýjum vinnuveitendum sínum að ráðast á Davíð, hvar og hvenær sem hann getur.
06.mar. 2010 - 11:43 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Rétturinn til að kjósa

Ég hef kosið í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Ég sagði nei við því, að lög þau, sem heimiluðu fjármálaráðherra að veita ríkisábyrgð á hugsanlegum skuldum Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta við bresk og hollensk stjórnvöld, héldu gildi sínu.
05.mar. 2010 - 11:06 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Samfylkingin bregst

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og leiðtogi Samfylkingarinnar, ætlar að sitja heima, en kjósa ekki gegn Icesave-samningnum, sem Bretar og Hollendingar þröngvuðu henni til að samþykkja, en eru nú reiðubúnir til að endurskoða Íslendingum í hag. Þetta eru mikil mistök.
04.mar. 2010 - 12:23 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Lækkar lánshæfismat?

Fluttar eru spekingslegar fréttir af því, að lánshæfismat íslenska ríkisins muni lækka, ef Icesave-samningarnir verði felldir í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn.

Ég skal engu spá um þetta sjálfur. En við örlitla umhugsun hljóta allir að sjá, að til langs tíma hlýtur lánshæfismat ríkisins að hækka við þetta, en ekki lækka.

03.mar. 2010 - 17:34 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Hertu upp hugann, Einar!

Kjarni málsins er sá, að ekki er og hefur aldrei verið ríkisábyrgð á hinum íslenska tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta. Fjárkröfur Breta og Hollendinga eru þess vegna óréttmætar.

Í Icesave-málinu þurfa Steingrímur og Jóhanna að herða upp hugann og þora að vera Íslendingar. Hið sama ætti Einar Kárason að gera.
02.mar. 2010 - 13:35 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Ráðlausir ráðherrar — stjórnlaust land

Afstaða ráðherra núverandi vinstristjórnar til þjóðaratkvæðagreiðslunnar næstkomandi laugardag sýnir, að þeir eru ráðlausir. Þau slá úr og í. Jóhanna segir koma til greina að fresta atkvæðagreiðslunni. Steingrímur segist ekki vera viss um, hvort hann taki þátt í henni.
01.mar. 2010 - 13:15 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni

Mér kemur helst á óvart áhugaleysi núverandi vinstristjórnar á að halda fram sjónarmiðum og hagsmunum Íslendinga, innan lands sem utan. Þegar Eva Joly skrifaði í ágúst 2009 skorinorða grein í erlend blöð Íslendingum til varnar, fann aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra beinlínis að því á Netinu.
28.feb. 2010 - 15:39 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Óráð að aflýsa þjóðaratkvæðagreiðslunni

Ég er sem kunnugt er ekki í hópi heitustu aðdáenda Ólafs Ragnars Grímssonar forseta. En því verður ekki neitað, að hann steig heillaspor, þegar hann synjaði staðfestingar lögunum um ríkisábyrgð á skuldum Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta, en hana höfðu Bretar og Hollendingar með hótunum (og misnotkun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og fleiri stofnana) knúið vinstristjórnina til að samþykkja.
27.feb. 2010 - 16:11 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Nú reynir á nýjan ritstjóra

En nú er nýtt mál komið til sögunnar, sem forvitnilegt verður að sjá, hvernig Fréttablaðið skrifar um á næstu dögum: Jóhannes í Bónus, faðir Jóns Ásgeirs, skaut eignum undan til Bandaríkjanna. Hann lét skrá tvö hundruð milljón króna hús á „The Johannes Jonsson Trust“. Þetta er maðurinn, sem sagðist ekki þurfa neinar afskriftir! Þeir Baugsfeðgar myndu greiða upp allar sínar skuldir!
26.feb. 2010 - 16:32 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Höldum ró okkar

Lánshæfismat Íslands lækkar eflaust til skamms tíma, vegna þess að deilan við Breta og Hollendinga er óleyst. En það hækkar til langs tíma, ef við komumst hjá því að greiða þessa skuld (sem enginn veit að vísu, hversu há er), því að þá skuldum við minna en ella og erum þess vegna lánshæfari.
25.feb. 2010 - 11:03 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Hvers vegna þjóðaratkvæðagreiðslu?

Spurt er, hvers vegna efna þurfi til þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-lögin 6. mars, ef allir stjórnmálaflokkar mæla með því að fella þau, eins og líkur eru á, svo að úrslit séu þegar ráðin. Hvers vegna eru lögin ekki frekar felld úr gildi? Svarið er einfalt: Vegna þess að samningamenn Íslendinga þurfa ótvírætt umboð þjóðarinnar, þegar þeir setjast niður með Bretum og Hollendingum til að ná sáttum í deilu Íslands við tvö grannríki.
23.feb. 2010 - 13:16 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Hvað stendur eftir?

Undanfarna daga hef ég skipst hér á Pressunni á skeytum við Hrein Loftsson, útgefanda DV og fyrrverandi vin og samverkamann okkar Davíðs Oddssonar. Jafnframt hefur Stefán Ólafsson prófessor látið ljós sitt skína af sérstöku tilefni. Hvað stendur eftir?
22.feb. 2010 - 16:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Sannleikurinn um tölvuskeytin

Ég hef hér rekið ofan í Hrein Loftsson, útgefanda DV, hvern lygaþvættinginn af öðrum.
22.feb. 2010 - 11:44 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Sá á Hrein, sem elur

Undanfarin misseri hefur Hreinn Loftsson hæstaréttarlögmaður gefið út DV. Það blað hefur helst unnið sér til frægðar að kaupa stolin tölvugögn af seytján ára brotamanni og notað þau til að birta óhróður um íslenska íþróttakappa. Hefur sjaldan verið lotið lægra í íslenskri blaðamennsku.
21.feb. 2010 - 15:17 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Sannleikurinn í málinu

Hreinn Loftsson, útgefandi DV, spinnur á Netinu upp fáránlega sögu, sem á að sýna, að ég hafi verið eitt versta fórnarlamb „þöggunar“ Davíðs Oddssonar.
20.feb. 2010 - 12:29 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Hreinn skáldskapur

Ég verð að gera smáathugasemd við frétt Pressunnar um skrif Hreins Loftssonar á Netinu. Hreinn velur afmælisdaginn minn (líklega þó frekar seint um kvöld) til að segja sögu um okkur tvo, sem er hreinn skáldskapur, eins og allir fullvita menn hljóta að sjá. Hún er ekki aðeins ósennileg, heldur líka fáránleg, og ætla ég ekki að hafa fleiri orð um hana hér.
19.feb. 2010 - 14:42 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Þjóðaratkvæðagreiðslan er nauðsynleg

Þótt Bretar og Hollendingar láti furðulíklega um þessar mundir, munu þeir ekki setjast í alvöru að samningaborði við Íslendinga, fyrr enþeir sannfærast um það við þjóðaratkvæðagreiðsluna 6. mars, að þjóðin sættir sig ekki við að greiða skuldir óreiðumanna.
18.feb. 2010 - 11:43 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Hlustum á Norðmanninn

Ég man eftir því í aðdraganda hrunsins og eftir það, hversu hart Davíð Oddsson gekk fram í því, að íslenska ríkið ætti ekki að taka á sig neins konar ábyrgð á Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta, sem hér hafði verið stofnaður eftir lögum og reglum EES. Í samtölum við mig lét hann í ljós þungar áhyggjur af því, að einstakir ráðherrar í fyrrverandi ríkisstjórn kynnu að ljá máls á einhverri slíkri ábyrgð.
17.feb. 2010 - 17:53 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Davíð þarf engan spuna

Einhverjir hafa látið að því liggja, að í hugleiðingum mínum um rannsóknarnefnd Alþingis hafi ég verið að spinna fyrir Davíð Oddsson. Því fer fjarri. Ég tel, að nefndin þurfi einmitt að vanda sig, til þess að Baugspennarnir og önnur leiguþý útrásaraðalsins geti ekki ómerkt skýrslu hennar. Og rækileg rannsókn leiðir ekki alltaf til þess, að menn séu fundnir sekir. Stundum kemur í ljós, að þeir eru saklausir.
16.feb. 2010 - 10:18 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Falleg kveðja

Stefán Snævarr heimspekingur minntist nýlátins föður síns, Ármanns Snævarrs, fallega á bloggsíðu sinni. Sagðist hann ekki ætla að skrifa um hann væmna grein, heldur ganga til vinnu sinnar. Þannig yrði föður síns best minnst, því að hann hefði verið með afbrigðum vinnusamur maður.
15.feb. 2010 - 11:32 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Rannsóknarnefnd Alþingis

Nefndarmennirnir eru allir virtir sérfræðingar. Þeir mega ekki vera hræddir við að kveða upp úr það, ef þeir telja sig einhvers staðar finna sök, en þeir verða líka að gæta þess að halla ekki á neinn, svo að skýrsla þeirra fái staðið.
13.feb. 2010 - 15:51 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Grein Lipietz

Í rauninni segir Lipietz ekki annað um Icesave-málið en Davíð Oddsson hefur haldið árum saman, en grein hans er ekki verri fyrir það: „An expert is somebody from out of town.“

Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson er prófessor í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands og hefur verið gistifræðimaður við fjölmarga erlenda háskóla, þar á meðal Stanford-háskóla og UCLA. Hann fæddist 1953, lauk doktorsprófi í stjórnmálafræði frá Oxford-háskóla 1985 og er höfundur fjölmargra bóka um stjórnmál, sögu og heimspeki á íslensku, ensku og sænsku.

Nýjustu verk hans eru 828 blaðsíðna þýðing á Svartbók kommúnismans (Livre noir du communisme) haustið 2009 og 160 bls. bók, Áhrif skattahækkana á hagvöxt og lífskjör, í árslok 2009.

Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 12.3.2010
Heit á Hótel Borg - Mynd vikunnar!
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 13.3.2010
Davíðssálmur númer 1
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 13.3.2010
Enn og aftur bullar Gylfi
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 15.3.2010
,,Þeir sem þola mig ekki verða svekktir"
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 15.3.2010
Skvísuvaktin - Elín Kristjáns
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 15.3.2010
Skussum bjargað – ráðdeildarsömum refsað
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 14.3.2010
Tuttugu þúsund verða að tvöhundruð þúsund
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 11.3.2010
Díva mánaðarins - BrianX.com
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Opin spurning til nýju bankanna
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Hvar eru afskriftirnar? - hvar er rannsóknin?
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Katrín Brynja Hermannsdóttir - 12.3.2010
Útbíuð í sýklum?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 14.3.2010
Mikilvægasta málið
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 15.3.2010
Hugleiðingar vegna orða Jurshevskis
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 12.3.2010
Ákvörðun forsetans breytti stöðunni
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 12.3.2010
Hvað kosta íslenskar konur?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 11.3.2010
VBS fallinn ári eftir ríkisstyrk
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit