11. sep. 2012 - 09:45Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Rosenfeldt um leynistarfsemi kommúnista
Dr. Niels Erik Rosenfeldt, prófessor emeritus í Kaupmannahafnarháskóla, hélt í Háskóla Íslands erindi um „leynistarfsemi kommúnista“ í hádeginu á mánudag, 10. september 2012, við góða aðsókn. Erindið var flutt í stofu 201 í Odda, og stóðu að því Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands,
Rannsóknarsetur um nýsköpun og hagvöxt og Varðberg, en formaður þess, Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, var fundarstjóri.
Rosenfeldt gaf út fyrir nokkrum árum mikla bók um þetta efni á ensku, Stalin’s Power Apparatus, og hefur hún hlotið góða dóma í alþjóðlegum sagnfræðiritum. Rekur hann þar í smáatriðum hinar strangleynilegu deildir, sem störfuðu í Komintern, alþjóðasambandi kommúnista 1919–1943, og raunar lengur, allt til dauða Stalíns. Voru þær þáttur í tilraunum kommúnista til að brjótast við valda um heim allan með undirróðri og ofbeldi.
Rosenfeldt hefur einnig gefið út bók um þetta efni á dönsku, Verdensrevolutionens generalstab, sem líka hefur hlotið góða dóma. Þar segir hann meðal annars nokkuð frá leyniskólum Kominterns í Moskvu, en í þeim stunduðu um tuttugu Íslendingar nám, þar á meðal Hallgrímur Hallgrímsson, sem síðar gerðist sjálfboðaliði í sveit kommúnista í spænska borgarastríðinu. Þetta nám í Moskvu var ekki síst í marxískum fræðum, en einnig var kenndur vopnaburður, skipulagning götuóeirða, skjalafölsun, dulmálssendingar og annað, sem talið var koma í góðar þarfir í byltingunni. Aðspurður kvaðst Rosenfeldt ekki telja neina ástæðu til að ætla, að Íslendingarnir hefðu stundað annars konar nám en aðrir Norðurlandabúar, til dæmis verið sleppt við hernaðarþjálfun, sem var hluti námsins.
Rosenfeldt kvaðst í rannsóknum sínum hafa rekist á þrjú dulmálsskeyti, sem enska leyniþjónustan gat náð og ráðið í, þar sem Ísland hefði komið við sögu. Fóru þau á milli aðalbækistöðvanna í Moskvu og deildarinnar í Kaupmannahöfn um miðjan fjórða áratug síðustu aldar. Spunnust nokkrar umræður um það, þar sem dr. Þór Whitehead prófessor kvaðst líka hafa fengið slík dulmálsskeyti frá breskum söfnum. Notaði ég nokkur þeirra í bók minni, Íslenskum kommúnistum 1918–1998, til dæmis beiðni um íslensk vegabréf, sem síðan mætti falsa og láta erindreka Kominterns nota. Rosenfeldt taldi mikið verk óunnið í skjalasöfnum, bæði í Rússlandi og annars staðar.
Allt það, sem Rosenfeldt sagði, renndi frekari stoðum undir það, sem við Þór Whitehead og Snorri G. Bergsson höfum haldið fram í bókum okkar og eru viðtekin sannindi í öðrum löndum, að kommúnistaflokkar höfðu algera sérstöðu í stjórnmálum. Kommúnistaflokkurinn íslenski var ekki venjulegur lýðræðisflokkur, heldur stefndi að byltingu og var í nánum tengslum við einræðisstjórn, sem studdi hann eftir megni með fjárframlögum og ráðgjöf. Þetta breyttist lítt, þótt íslenskum kommúnistum tækist 1938 að fá til liðs við sig nokkra hrekklausa jafnaðarmenn og stofna Sósíalistaflokkinn. Hið sama gerðu þeir í Finnlandi og Austur-Þýskalandi eftir stríð. Þar buðu kommúnistar ekki fram undir eigin nöfnum, heldur í finnska Lýðræðisbandalaginu og þýska Einingarflokknum. En úlfurinn leyndist áfram undir sauðargærunni.
Rosenfeldt er vandvirkur, yfirlætislaus fræðimaður, sem segir ekki meira en hann getur staðið við. Hann hlaut árið 2009 H. O. Lange verðlaun Konungsbókhlöðu í Kaupmannahöfn (Det Kongelige Bibliotek, svarar til Þjóðarbókhlöðu hér) fyrir bók um Lenín.
20.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hin síðari misseri hef ég jafnan dvalist nokkra mánuði á ári í Rio de Janeiro í Brasilíu, þar sem ég er í rannsóknarsamstarfi við nokkrar stofnanir, meðal annars um grænan kapítalisma og um hagþróun í BRIK-löndunum.
18.maí 2013 - 09:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Einn dagskrárliðurinn var heimsókn í safnið um uppreisnina í Varsjá 1944. Sú heimsókn var ógleymanleg.
17.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Heimspekidoktorarnir Vilhjálmur Árnason og Salvör Nordal skrifuðu lærðar ritgerðir í rannsóknarskýrslu Alþingis um siðferði eða öllu heldur siðleysi íslenskra fjármálamanna fyrir bankahrunið 2008. Ein hneykslunarhella þeirra var hugmyndin um Ísland sem fjármálamiðstöð.
16.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Þrír nafnkunnir menn í Reykjavík hétu upp úr miðri 20. öld Pétur Pétursson.
15.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Íslendingar hafa löngum skrifað skammir hver um annan og oft nafnlaust, en lesendur hafa þá reynt að geta sér til um höfunda, og hefur það gengið misjafnlega.
14.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Árni Vilhjálmsson bar ekki utan á sér, að hann var einn auðugasti útgerðarmaður landsins.
13.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
En þær, sem reiðastar voru körlum fyrir fornar misgerðir og lengst gengu, sögðu með Andreu Dworkin: „Erfitt er að greina flekun frá nauðgun. Þegar ætlunin er að fleka, hefur nauðgarinn fyrir því að kaupa vínflösku.“
12.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Biblían er ekki aðeins merk í sjálfri sér, heldur líka vegna þess, hversu margt í vestrænni og þá um leið íslenskri menningu vísar í hana. Í þeim skilningi er hún þrungin menningarsögulegri merkingu, og væri mikill skaði að því að hætta að kenna kristin fræði í skólum.
10.maí 2013 - 12:04
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hér er myndband um samstarfsverkefni AECR og RNH síðustu fimmtán mánuði:
09.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
En oft hafa raddir úr þjóðardjúpinu orðað frelsishugmyndirnar betur en fræðimennirnir.
08.maí 2013 - 11:59
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
05.maí 2013 - 19:59
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Ég var í viðtali við Egil Helgason sunnudaginn 5. maí 2013 um efnið í fyrirlestri þeim, sem ég flutti á félagsvísindaráðstefnu á Bifröst föstudaginn 3. maí. Það var gaman að því, að Egill kunni á latínu tilvitnunina í rómverska leikskáldið Júvenalis, sem ég vék að:
Quis custodiet ipsos custodes?
04.maí 2013 - 14:29
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Meðal annars vísaði ég á bug fjórum algengum skýringum á bankahruninu:
01.maí 2013 - 23:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Ég flyt fyrirlestur á ráðstefnu um þjóðfélagsfræði í Háskólanum á Bifröst föstudaginn 3. maí. Ber fyrirlesturinn, sem fluttur verður á ensku, yfirskriftina „The International Financial Crisis and the Collapse of the Icelandic Banks“.
30.apr. 2013 - 08:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Davíð Oddsson myndaði sína fyrstu ríkisstjórn 30. apríl 1991. Þá um kvöldið hittumst við Davíð ásamt tveimur öðrum vinum okkar og konum þeirra þriggja og skáluðum.
29.apr. 2013 - 11:23
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
There are several misleading or even wrong statements in the news item by Torbjørn Pedersen, NTB, on the Icelandic elections, published in
Aftenposten 27 April 2013.
28.apr. 2013 - 10:31
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Nú þegar Jóhanna Sigurðardóttir dregur sig í hlé og heldur til Dýrafjarðar, en þangað renna öll vötn, sem kunnugt er, skilur hún flokk sinn eftir rjúkandi rúst.
25.apr. 2013 - 09:21
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Í hádeginu miðvikudaginn 24. apríl hlustaði ég á fyrirlestra Ólafs Þ. Harðarsonar og Evu Heiðu Önnudóttur um kosningarnar framundan. Voru þeir hinir fróðlegustu. Ég verð þó að gera athugasemd við eitt, sem Ólafur sagði.
23.apr. 2013 - 12:16
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Allt þetta hefur komið fram opinberlega. Ég geri mér grein fyrir, að þetta mun ekki hafa nein áhrif á Stefán Ólafsson. Hann mun halda áfram að endurtaka missagnir sínar. En vonandi vilja einhverjir lesendur bloggs hans hafa það, sem sannara reynist.
18.apr. 2013 - 19:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Vinstri menn á Íslandi með þau Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrím J. Sigfússon hlustuðu ekki á Persson. Þeir voru fullir haturs á þeim, sem höfðu gersigrað þá í hverri orrustunni af annarri næstu fimmtán árin á undan.
17.apr. 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Ég bendi á grein á heimasíðu Rannsóknarseturs um nýsköpun og hagvöxt, RNH, þar sem Margrétar Thatchers er minnst.
15.apr. 2013 - 19:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Þetta er fjármálahneyksli, sem þarf að rannsaka og fá skýringar á. Nýleg sala FIH-bankans sýnir, að núverandi yfirmenn Seðlabankans virðast ekki vera færir um að gæta hagsmuna Íslendinga gagnvart öðrum þjóðum (eins og þeir sýndu raunar með afskiptum sínum af Icesave-málinu og töku hins óþarfa láns með okurvöxtum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum).
14.apr. 2013 - 19:30
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Sú var tíð, að skoðanakannanir voru Sjálfstæðisflokknum hagstæðar, og þá viðraði Stefán sig upp við Sjálfstæðisflokkinn. Hann gaf mér til dæmis 1999 bók sína
Íslensku leiðina og skrifaði inn í eintakið, að íslenska leiðin væri bláa leiðin!
13.apr. 2013 - 13:22
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Ég hef ekki átt nein slík samtöl. Og það, sem meira er: Ég hefði ekki getað átt nein slík samtöl, því að ég fór utan 21. mars og er ekki kominn heim.
11.apr. 2013 - 14:53
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Ég hef setið tvær afar fróðlegar ráðstefnur í Brasilíu í aprílbyrjun.
31.mar. 2013 - 15:05
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hér er stutt myndband með mati Nóbelsverðlaunahafans Edwards Prescotts á áhrifum skattalækkana.
28.mar. 2013 - 12:08
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Stefán
kvartar eins og sósíalisti,
kveinar eins og sósíalisti,
kveður eins og sósíalisti og
tekur við verðlaunum fyrir að vera sósíalisti. Er þá ekki nærtækt, að hann sé sósíalisti?
26.mar. 2013 - 19:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Og verðlaunahafarnir voru ekki af lakara taginu. Þeir voru tveir samkennarar mínir í Háskóla Íslands, prófessorarnir Stefán Ólafsson og Þorvaldur Gylfason.
25.mar. 2013 - 12:50
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Það var gaman að orðaskiptum þeirra Stefáns Ólafssonar, síðar prófessors, og Miltons Friedmans í sjónvarpssal 31. ágúst 1984.
24.mar. 2013 - 21:56
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Fáir hafa skilgreint frjálshyggju skilmerkilegar en Milton Friedman í svari við spurningu Boga Ágústssonar í Sjónvarpinu 31. ágúst 1984.