Hannes Hólmsteinn Gissurarson
27. maí 2012 - 17:36Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Laxness og Shakespeare

Tómas Guðmundsson orti, að hjörtum mannanna svipaði saman í Súdan og Grímsnesinu. En líklega samdi William Shakespeare ein frægustu orðin um sameðli mannanna, þegar hann lét kaupmanninn í Feneyjum segja: „Hefur Gyðingur ekki augu? hefur Gyðingur ekki hendur, líffæri, sköpulag, skilningarvit, hvatir, ástríður, alinn á sömu fæðu, særður sömu vopnum, haldinn sömu sjúkdómum, græddur sömu lyfjum, vermdur og kalinn af sama vetri og sumri og kristinn maður? Blæðir okkur ekki af stungum? hlæjum við ekki af kitlum? deyjum við ekki af eitri? og hefnum við ekki ranglætis? Ef okkur svipar saman um annað, þá líkjumst við ykkur þar.“

Sænska skáldið August Strindberg notaði svipuð ummæli í leikritinu Föðurnum: „Já, ég græt þótt ég sé karlmaður. En hefur karlmaður ekki augu? Hefur hann ekki hendur, fætur, skilningarvit, smekk, ástríður? Nærist hann ekki sömu fæðu, særa hann ekki sömu vopn, hitnar honum ekki og kólnar í sama sumaryl og vetrarkulda og konu? Blæðir okkur ekki ef þið stingið okkur? Stöndum við ekki á öndinni ef þið kitlið okkur? Deyjum við ekki ef þið byrlið okkur eitur? Hvers vegna skyldi karlmaður ekki mega kvarta, hermaður ekki mega gráta? Af því að það er ókarlmannlegt! Hvers vegna er það ókarlmannlegt?“

Bergmálið frá Shakespeare er sterkt í leikriti Strindbergs, en daufur endurómur af því í leikriti norska skáldsins Henriks Ibsens, Brúðuheimilinu, þegar Nora mælir: „Ég trúi því ég sé fyrst og fremst manneskja, maður, ég alveg jafnt og þú — eða að minnsta kosti, að ég eigi að reyna að verða það. Ég veit vel, að flestum finnst þú hafa rétt fyrir þér, Þorvaldur, og áreiðanlega stendur eitthvað svoleiðis í bókum. En ég get ekki lengur látið mér nægja það sem flestir segja eða það sem stendur í bókum. Ég verð sjálf að hugsa málin og komast til skilnings um þau.“

Og nú hljóta aðdáendur Halldórs Kiljans Laxness á Íslandi að sjá, hvaðan ræða Uglu í Atómstöðinni er ættuð: „Ég vil verða maður. Maður, hvernig? Hvorki kauplaus ambátt einsog konur þeirra fátæku né keypt maddama einsog konur þeirra ríku; þaðanaf síður launuð hjákona; og ekki heldur fángi barns sem mannfélagið hefur svarið fyrir. Maður með mönnum: ég veit það er hlægilegt, fyrirlitlegt, svívirðilegt og byltíngarsinnað, að kvenmaður skuli ekki vilja vera einhver tegund ambáttar eða skækju. En ég er nú svona gerð.“

Það er skemmtileg tilviljun, að Laxness fæddist á dánardegi Shakespeares, 23. apríl.




20.maí 2013 - 10:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Myndband af mér í Brasilíu

Hin síðari misseri hef ég jafnan dvalist nokkra mánuði á ári í Rio de Janeiro í Brasilíu, þar sem ég er í rannsóknarsamstarfi við nokkrar stofnanir, meðal annars um grænan kapítalisma og um hagþróun í BRIK-löndunum.
18.maí 2013 - 09:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Ógleymanleg heimsókn

Einn dagskrárliðurinn var heimsókn í safnið um uppreisnina í Varsjá 1944. Sú heimsókn var ógleymanleg.
17.maí 2013 - 10:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Fjárhæli og andabú

Heimspekidoktorarnir Vilhjálmur Árnason og Salvör Nordal skrifuðu lærðar ritgerðir í rannsóknarskýrslu Alþingis um siðferði eða öllu heldur siðleysi íslenskra fjármálamanna fyrir bankahrunið 2008. Ein hneykslunarhella þeirra var hugmyndin um Ísland sem fjármálamiðstöð.


16.maí 2013 - 10:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Pétur Pétursson

Þrír nafnkunnir menn í Reykjavík hétu upp úr miðri 20. öld Pétur Pétursson.
15.maí 2013 - 10:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Rangfeðruð skammaskrif

Íslendingar hafa löngum skrifað skammir hver um annan og oft nafnlaust, en lesendur hafa þá reynt að geta sér til um höfunda, og hefur það gengið misjafnlega.
14.maí 2013 - 10:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Árni Vilhjálmsson: Minningarorð

Árni Vilhjálmsson bar ekki utan á sér, að hann var einn auðugasti útgerðarmaður landsins.
13.maí 2013 - 10:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Kúgun, flekun og nauðgun

En þær, sem reiðastar voru körlum fyrir fornar misgerðir og lengst gengu, sögðu með Andreu Dworkin: „Erfitt er að greina flekun frá nauðgun. Þegar ætlunin er að fleka, hefur nauðgarinn fyrir því að kaupa vínflösku.“
12.maí 2013 - 10:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Bókarheiti úr Biblíunni — og þó

Biblían er ekki aðeins merk í sjálfri sér, heldur líka vegna þess, hversu margt í vestrænni og þá um leið íslenskri menningu vísar í hana. Í þeim skilningi er hún þrungin menningarsögulegri merkingu, og væri mikill skaði að því að hætta að kenna kristin fræði í skólum.
10.maí 2013 - 12:04 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Myndband um starfsemi RNH

Hér er myndband um samstarfsverkefni AECR og RNH síðustu fimmtán mánuði:
09.maí 2013 - 10:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Alþýðuspeki um atvinnufrelsi

En oft hafa raddir úr þjóðardjúpinu orðað frelsishugmyndirnar betur en fræðimennirnir.
08.maí 2013 - 11:59 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Nokkrar bækur, sem ég er að lesa


05.maí 2013 - 19:59 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Silfrið: Myndband komið á Youtube

Ég var í viðtali við Egil Helgason sunnudaginn 5. maí 2013 um efnið í fyrirlestri þeim, sem ég flutti á félagsvísindaráðstefnu á Bifröst föstudaginn 3. maí. Það var gaman að því, að Egill kunni á latínu tilvitnunina í rómverska leikskáldið Júvenalis, sem ég vék að: Quis custodiet ipsos custodes?
04.maí 2013 - 14:29 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Hvernig ég skýri bankahrunið

Meðal annars vísaði ég á bug fjórum algengum skýringum á bankahruninu:
01.maí 2013 - 23:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Uppgjör mitt við bankahrunið: föstudaginn 3. maí

Ég flyt fyrirlestur á ráðstefnu um þjóðfélagsfræði í Háskólanum á Bifröst föstudaginn 3. maí. Ber fyrirlesturinn, sem fluttur verður á ensku, yfirskriftina „The International Financial Crisis and the Collapse of the Icelandic Banks“.
30.apr. 2013 - 08:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

30. apríl

Davíð Oddsson myndaði sína fyrstu ríkisstjórn 30. apríl 1991. Þá um kvöldið hittumst við Davíð ásamt tveimur öðrum vinum okkar og konum þeirra þriggja og skáluðum.
29.apr. 2013 - 11:23 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Athugasemdir mínar við frétt Aftenposten

There are several misleading or even wrong statements in the news item by Torbjørn Pedersen, NTB, on the Icelandic elections, published in Aftenposten 27 April 2013.
28.apr. 2013 - 10:31 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Jóhanna skilur við flokk sinn rjúkandi rúst

Nú þegar Jóhanna Sigurðardóttir dregur sig í hlé og heldur til Dýrafjarðar, en þangað renna öll vötn, sem kunnugt er, skilur hún flokk sinn eftir rjúkandi rúst.
25.apr. 2013 - 09:21 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Hlustað á Ólaf Þ. Harðarson og Kjartan Gunnarsson

Í hádeginu miðvikudaginn 24. apríl hlustaði ég á fyrirlestra Ólafs Þ. Harðarsonar og Evu Heiðu Önnudóttur um kosningarnar framundan. Voru þeir hinir fróðlegustu. Ég verð þó að gera athugasemd við eitt, sem Ólafur sagði.
23.apr. 2013 - 12:16 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Nokkrar leiðréttingar við málflutning Stefáns Ólafssonar

Allt þetta hefur komið fram opinberlega. Ég geri mér grein fyrir, að þetta mun ekki hafa nein áhrif á Stefán Ólafsson. Hann mun halda áfram að endurtaka missagnir sínar. En vonandi vilja einhverjir lesendur bloggs hans hafa það, sem sannara reynist.
18.apr. 2013 - 19:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Hvers vegna gjalda stjórnarflokkarnir afhroð?

Vinstri menn á Íslandi með þau Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrím J. Sigfússon hlustuðu ekki á Persson. Þeir voru fullir haturs á þeim, sem höfðu gersigrað þá í hverri orrustunni af annarri næstu fimmtán árin á undan.
17.apr. 2013 - 10:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Við Margrét Thatcher

Ég bendi á grein á heimasíðu Rannsóknarseturs um nýsköpun og hagvöxt, RNH, þar sem Margrétar Thatchers er minnst.
15.apr. 2013 - 19:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Fjármálahneyksli sem þarf að rannsaka

Þetta er fjármálahneyksli, sem þarf að rannsaka og fá skýringar á. Nýleg sala FIH-bankans sýnir, að núverandi yfirmenn Seðlabankans virðast ekki vera færir um að gæta hagsmuna Íslendinga gagnvart öðrum þjóðum (eins og þeir sýndu raunar með afskiptum sínum af Icesave-málinu og töku hins óþarfa láns með okurvöxtum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum).
14.apr. 2013 - 19:30 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Stefán Ólafsson viðrar sig upp við Framsóknarflokkinn

Sú var tíð, að skoðanakannanir voru Sjálfstæðisflokknum hagstæðar, og þá viðraði Stefán sig upp við Sjálfstæðisflokkinn. Hann gaf mér til dæmis 1999 bók sína Íslensku leiðina og skrifaði inn í eintakið, að íslenska leiðin væri bláa leiðin!
13.apr. 2013 - 13:22 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Karl Th. Birgisson staðinn að verki

Ég hef ekki átt nein slík samtöl. Og það, sem meira er: Ég hefði ekki getað átt nein slík samtöl, því að ég fór utan 21. mars og er ekki kominn heim.
11.apr. 2013 - 14:53 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Brasilíuför mín

Ég hef setið tvær afar fróðlegar ráðstefnur í Brasilíu í aprílbyrjun.
31.mar. 2013 - 15:05 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Stutt myndband: Prescott um áhrif skattalækkana

Hér er stutt myndband með mati Nóbelsverðlaunahafans Edwards Prescotts á áhrifum skattalækkana.
28.mar. 2013 - 12:08 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Ef það kvakar eins og önd ...

Stefán kvartar eins og sósíalisti, kveinar eins og sósíalisti, kveður eins og sósíalisti og tekur við verðlaunum fyrir að vera sósíalisti. Er þá ekki nærtækt, að hann sé sósíalisti?
26.mar. 2013 - 19:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Tveir með félagshyggjuverðlaun

Og verðlaunahafarnir voru ekki af lakara taginu. Þeir voru tveir samkennarar mínir í Háskóla Íslands, prófessorarnir Stefán Ólafsson og Þorvaldur Gylfason.
25.mar. 2013 - 12:50 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Stutt myndband: Friedman svarar íslenskum sósíalista

Það var gaman að orðaskiptum þeirra Stefáns Ólafssonar, síðar prófessors, og Miltons Friedmans í sjónvarpssal 31. ágúst 1984.
24.mar. 2013 - 21:56 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Stutt myndband: Friedman á Íslandi skilgreinir frjálshyggju

Fáir hafa skilgreint frjálshyggju skilmerkilegar en Milton Friedman í svari við spurningu Boga Ágústssonar í Sjónvarpinu 31. ágúst 1984.

Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson er prófessor í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands og hefur verið gistifræðimaður við fjölmarga erlenda háskóla, þar á meðal Stanford-háskóla og UCLA. Hann fæddist 1953, lauk doktorsprófi í stjórnmálafræði frá Oxford-háskóla 1985 og er höfundur fjölmargra bóka um stjórnmál, sögu og heimspeki á íslensku, ensku og sænsku.

Verk hans, Kjarni málsins. Fleyg orð á íslensku, 992 bls. tilvitnanasafn, var gefið út af Bókafélaginu í nóvemberbyrjun 2010. Árið 2009 komu út eftir hann 828 blaðsíðna þýðing á Svartbók kommúnismans (Livre noir du communisme) á vegum Háskólaútgáfunnar og 160 bls. bók, Áhrif skattahækkana á hagvöxt og lífskjör, sem Bókafélagið gaf út. 

Nýjasta verk hans er Íslenskir kommúnistar 1918–1998, sem er 624 bls. myndskreytt ágrip af sögu íslensku kommúnista- og sósíalistahreyfingarinnar allt til endaloka Alþýðubandalagsins, og gefur Almenna bókafélagið það út. 

LHÍ
Björn Jón Bragason
Björn Jón Bragason - 11.5.2013
Magnþrungin ræða
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 15.5.2013
Frekja?
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 14.5.2013
Hamast á Sigmundi Davíð
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 19.5.2013
Viktor Hólm
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 12.5.2013
Good old times are back
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 15.5.2013
Ógeðsleg pólitík
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 13.5.2013
Óskiljanleg ákvörðun hjá Garcia á Players
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 13.5.2013
Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 5. hola - Myndband
Þórhallur Heimisson
Þórhallur Heimisson - 12.5.2013
Fimmti hringur Vítis
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 13.5.2013
Grenningarhollráð Sverris
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 14.5.2013
Lærðu vipp úr háu grasi - Myndband
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 13.5.2013
Kúgun, flekun og nauðgun
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 15.5.2013
Rangfeðruð skammaskrif
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 14.5.2013
Árni Vilhjálmsson: Minningarorð
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2013
Pétur Pétursson
Fleiri pressupennar