07. feb. 2010 - 15:26Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Greining Kristrúnar Heimisdóttur

Ólíkt hafast þeir að, núverandi og fyrrverandi aðstoðarmenn utanríkisráðherra.

Kristján Guy Burgess, núverandi aðstoðarmaður ráðherrans (Össurar Skarphéðinssonar), er í felum. Hann vill þrátt fyrir fögur orð ríkisstjórnarinnar um gagnsæi í vinnubrögðum ekkert segja um hið alþjóðlega hneyksli, þegar honum tókst með aðstoð forseta Íslands að véla röskar 60 milljónir króna út úr Carnegie-stofnuninni í New York til að rannsaka bráðnun jökla á Himalajafjöllum. Í ljós kom, að spár þær, sem hann hafði notað, voru getgátur einar, og hefur Loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna, sem gerði þær að sínum í nýjustu áfangaskýrslu sinni 2007, orðið að ógilda þær og biðjast afsökunar.

Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur, fyrrverandi aðstoðarmaður utanríkisráðherra (Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur), skrifar hins vegar skorinorða grein í Fréttablaðið í gær, þar sem hún viðurkennir, að samningamenn Íslands í Icesave-deilunni hafi gert stórkostleg mistök. Hún vitnar til dæmis í orð annars aðalsamningamannsins, Indriða H. Þorlákssonar, sem sagði, að Ísland hefði í raun „tekið lán í október 2008“. Þá ákváðu ríkisstjórnir Bretlands og Hollands einhliða að greiða eigendum Icesave-reikninga í þessum löndum innstæður þeirra upp að tilteknu hámarki. Síðan hafa þessar ríkisstjórnir reynt að neyða íslenska skattgreiðendur til að greiða reikninginn fyrir þessar gjörðir.

Ísland tók ekkert lán hjá Bretum og Hollendingum í október 2008. Eins og okkar færustu lögfræðingar hafa bent á, er hvergi neinn bókstafur fyrir því í lögum eða alþjóðasamningum, að ríkissjóður Íslands þurfi að hlaupa undir bagga, ef Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta (sem stofnaður var og rekinn samkvæmt reglum EES) getur ekki fullnægt skuldbindingum sínum.

Kristrún kemst að þeirri rökréttu niðurstöðu í grein sinni, að þjóðin verði að fella Icesave-samningana í þjóðaratkvæðagreiðslunni, sem fyrirhuguð er í marsbyrjun. Eftir það megi hefja nýjar samningaviðræður við Breta og Hollendinga. Hún minnir á það, sem sumir virðast hafa gleymt, að Ísland er fullvalda ríki, sem getur ekki látið bjóða sér hvað sem er. En þótt grein hennar sé áfellisdómur yfir Steingrími J. Sigfússyni, hittir hún ekki síður fyrir flokkssystkini hennar í Samfylkingunni, sem bera sömu ábyrgð á þessum samningum og Vinstri grænir. Munurinn var sá, að á þingi stóð Samfylkingin einhuga að samningunum, en Vinstri grænir klofnuðu.

Kjarni málsins er samt þessi: Því afdráttarlausari sem niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar verður, því skýrara verður umboð nýrra samningamanna.

 




29.júl. 2010 - 03:45 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

„Kanamellur“ og „ræflar og auðnuleysingjar“

Ég hef undanfarna daga gert nokkrar athugasemdir á spjallrás sagnfræðinga, Gammabrekku, um „dóma sögunnar“. Ég tel, að sagnfræðingar eigi að vera ófeimnir við að dæma þá, sem dæma þarf. Sumir hafa svarað mér efnislega, aðrir ekki, eins og gengur. Hér er síðasta framlag mitt, þar sem ég svara aðallega Torfa Stefánssyni, sem tekið hafði til máls á rásinni og ekki vandað mér kveðjur:
27.júl. 2010 - 15:45 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Tvískinnungur og hræsni

Nokkrar umræður hafa orðið um tölvubréf mitt í gær um „dóm sögunnar“ á spjallsvæði sagnfræðinga, og svaraði ég athugasemdum áðan. Hér er svar mitt:
26.júl. 2010 - 16:09 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Dómur sögunnar

Undanfarnar vikur hafa sagnfræðingar skipst á skoðunum á spjallsvæði sínu um dóm sögunnar. Upphafið var, að einn þeirra hélt erindi um það, að dómur sögunnar væri ætíð rangur. Aðrir voru ósammála honum. Ég leyfði mér í dag að leggja orð í belg og sendi svohljóðandi tölvubréf til þeirra, sem taka þátt í spjallinu:
21.júl. 2010 - 11:53 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Batnandi manni er best að skrifa

Ég get tekið undir sumt í pistli Guðmundar Andra Thorssonar í Fréttablaðinu í gær. Hann segir: „Eins og við vitum er frjáls samkeppni óbærilegt ástand fyrir kaupmenn. Enginn hagnast á frjálsri samkeppni nema kannski almenningur - og hverjum er ekki sama um hann?“ Ég svara: Mér er ekki sama um almenning og ekki heldur þeim Adam Smith og Milton Friedman, mínum gömlu, góðu lærimeisturum.
20.júl. 2010 - 14:33 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Engilsaxneskur kapítalismi?

Ein meginkenning Stefáns Ólafssonar prófessors er, að árin 1991–2004, á meðan Davíð Oddsson var forsætisráðherra, hafi hér á landi verið stofnað til kapítalisma í engilsaxneskum anda, en vikið af hinni norrænu leið, sem áður hafi verið farin. Gerir Stefán eins og fleiri fræðimenn greinarmun á tveimur afbrigðum af kapítalisma, engilsaxneskum (í Bretlandi og Bandaríkjunum, en einnig á Írlandi og í Kanada, Ástralíu og Nýja Sjálandi) og norrænum.
14.júl. 2010 - 09:12 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Ómerkilegar árásir Þorvaldar á Kjartan

Í stað þess að endurtaka óra og ímyndanir upp úr gömlum og beiskum manni, er hrökklaðist úr bankastjórastöðu sökum spillingar og var sjálfur sekur um þau trúnaðarbrot, sem hann sakar aðra ranglega um, hefði Þorvaldur Gylfason átt að deila á hin stórfurðuleg vinnubrögð sumra bankanna í málum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Hvað veldur því, að hann gerir það ekki?
09.júl. 2010 - 16:05 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Skattar hafa hegðunaráhrif

Ég var hissa á að lesa athugasemd Guðmundar Arnar Jónssonar fjármálaverkfræðings við blogg mitt hér á dögunum um styrki fyrirtækja til stjórnmálaflokka og stjórnmálamanna. Hann fullyrti, að fyrirtæki þyrftu ekki að gera ráðstafanir til að létta skattbyrði sína, því að þau gætu ætíð velt sköttum á sig út í verðlag.
08.júl. 2010 - 15:18 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Fáránleg skrif Egils Helgasonar

Þegar ég sá þessi fáránlegu skrif Egils, var ég raunar efins um, hvort ég ætti að svara þeim. Ég hef um annað að hugsa í rannsóknarleyfi mínu erlendis, þar sem ég sit við að ljúka miklu verki, sem ég hef unnið að í fimmtán ár. En sennilega er það rétt, sem Bjarni Benediktsson sagði Matthíasi Johannessen: „Alltaf að svara, alltaf að svara.“
05.júl. 2010 - 18:26 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Þjóðareðli Brasilíumanna

Á vormisseri 2010 hef ég verið í rannsóknarleyfi frá Háskóla Íslands. Hef ég meðal annars ferðast talsvert um Vesturheim. Síðastliðna helgi, dagana 1.–4. júlí, sótti ég fróðlega málstofu í borginni Petrópolis í Brasilíu. Hún var um kenningar brasilíska fjölfræðingsins Gilbertos Freyres, en hann skrifaði flestar bækur sínar á fyrra helmingi tuttugustu aldar.
01.júl. 2010 - 11:38 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Sagan komin hringinn

Fræg er sagan af Baldvini skálda Jónatanssyni, sem skráði þjóðsögur fyrir Odd Björnsson. Einhvern tímann grunaði Odd, að Baldvin ætti sjálfur meiri þátt í sögunum en hann vildi vera láta, og bað hann að geta heimilda. „Dýrleif í Parti sagði mér, og hafði ég sjálfur sagt henni fyrir ári,“ svaraði Baldvin skáldi.
30.jún. 2010 - 13:06 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Krónan og umheimurinn

Mark Flanagan hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum bendir á það, að krónan auðveldaði Íslendingum að komast út úr kreppunni. Þetta blasir við, og sjálfur benti ég á það fyrir skömmu, að hin stórfellda gengisfelling krónunnar eftir bankahrunið var friðsamleg leið til að lækka laun. Hinn kosturinn, að lækka laun beint, hefði sennilega kostað blóðsúthellingar.
29.jún. 2010 - 11:03 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Evrópa, Evrópa

Ég er Evrópusinni í þeim skilningi, að ég tel Ísland tvímælalaust Evrópuríki, þótt sjálfur vilji ég ekki síður horfa vestur um haf, eins og Jónas Jónsson frá Hriflu, sem skírði stefnu varnarsamstarfs við Bandaríkin „Leifslínuna“ eftir Leifi heppna Eiríkssyni, en hann fann sem kunnugt er Vesturheim. Hvað sem því líður, er menning okkar evrópsk. Við erum Evrópumenn. Þar eigum við heima, og þar viljum við vera.
27.jún. 2010 - 14:43 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Góður landsfundur

Bjarni Benediktsson fékk endurnýjað umboð til að leiða Sjálfstæðisflokkinn á landsfundinum um helgina. Bjarni tók við flokknum við afar erfiðar aðstæður, raunar í rústum, og hefur ásamt samstarfsfólki sínu unnið gott starf við að endurreisa hann.
22.jún. 2010 - 19:07 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Missögn Páls Baugsvins

Fróðlegt verður að vita, hvort Páll Baldvin leiðréttir villu sína og biður Björn afsökunar. Ég býst síður við því, enda hef ég reynt hann að öðru.
21.jún. 2010 - 15:21 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Erum við að missa fótfestuna?

Ef tveir kunnir menningarvitar þekkja íslenskar bókmenntir (og það frá nítjándu öld) ekki betur en þetta, hvað þá um okkur minni spámennina?
17.jún. 2010 - 10:46 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Hann hefur enst

Fræg er fyndni Davíðs Oddssonar, á meðan hann var bankastjóri Seðlabankans, eftir að Jón Sigurðsson framsóknarmaður lét þar af embætti eftir stutta viðdvöl: „Eini Jón Sigurðssonurinn, sem hefur eitthvað enst í Seðla­­bankanum, er sá á fimmhundruðkallinum.“ Áður hafði Jón Sigurðsson Alþýðuflokksmaður aðeins haft stutta viðdvöl í bankanum. Þessi orð eiga þó ekki aðeins við sem fyndni. Þjóðhetjan Jón Sigurðsson forseti, sem á afmæli í dag og mynd er af á fimm hundruð króna seðlinum, hefur enst furðuvel. Skoðanir hans eiga jafnvel við nú og fyrir hálfri annarri öld. Hann er einn hinna örfáu sígildu höfunda, sem höfðu nægilega trausta þekkingu, dómgreind og yfirsýn til að standast tímans tönn.
16.jún. 2010 - 13:51 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

„Sótt að sannleikanum“

Stefán Ólafsson prófessor var einn þeirra, sem fluttu fyrirlestra um bankahrunið, aðdraganda þess og afleiðingar, í fundaröð Háskóla Íslands. Hann kallaði fyrirlestur sinn „Sótt að sannleikanum. Um tíðaranda hroka, siðleysis og hótana“. Allur er lesturinn ein samfelld árás á frjálshyggju. Mér finnst hins vegar Stefán sýna nokkurn hroka með því að tala í nafni sannleikans með ákveðnum greini. Auðvitað á hver maður sitt sannleiksbrot, Stefán líka. En hann hefur ekki sýnt staðreyndum þá virðingu, sem vísindamenn eiga að gera, eins og ég sýni fram á í bók minni, Áhrif skattahækkana á hagvöxt og lífskjör.
12.jún. 2010 - 22:18 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Baugsmálin í heimsbókmenntunum

Baugsmálið var ekki eitt mál, heldur mörg. Það var ekki aðeins málið, sem Jón Ásgeir Jóhannesson var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir, heldur öll þau mál, sem síðan hafa komist upp og eru nú til meðferðar, svo sem mál slitastjórnar Glitnis í New York og rannsókn sérstaks saksóknara á gjörningum Baugsfeðga og viðskiptafélaga þeirra.
11.jún. 2010 - 15:58 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Jóhannes kvartari

Jóhannes Jónsson, sem kenndur er við Bónus (þótt hann eigi ekki eina einustu krónu lengur í því fyrirtæki), skrifar enn eina kvörtunargreinina í dag og nú á Pressuna. Að þessu sinni er kvörtunarefnið, að fyrirtækið Hagar, sem reka Hagkaup og Bónus, sé í Morgunblaðinu sagt gjaldþrota. Það fyrirtæki gangi vel.
10.jún. 2010 - 13:57 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Tolkien um Baugsmálið

Jafnframt því sem íslensk fortíð hafði áhrif á Tolkien, varpar hann í verki sínu ljósi á íslenska samtíð. Engu er líkara en Tolkien hafi séð Baug fyrir, sem réð mörgum fjölmiðlamönnum, stjórnmálamönnum (og jafnvel dómurum?) á Íslandi um og eftir 2002, þegar hann átti morð fjár, sem hann hafði sótt  til Bretlands. Þessi Baugur, þessi Hringur, reyndi svo sannarlega að spinna fjötur sinn um Íslendinga. Margir voru í „föruneyti hringsins“.
09.jún. 2010 - 17:26 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Sósíalismi andskotans

Vilmundur Jónsson landlæknir mun hafa smíðað orðasambandið „sósíalisma andskotans“. Hann átti við það, þegar ríkisafskipti hafa þveröfugar afleiðingar við það, sem þeim er ætlað að hafa, til dæmis þegar ráðstafanir til að hjálpa bágstöddum verða auðmönnum einum til góðs. Ótal dæmi eru til um það, að ríkisafskipti gagnist öðrum á borði en í orði.
08.jún. 2010 - 16:22 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Jóhönnu ber að víkja

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir bersýnilega ósatt um aðdragandann að ráðningu Más Guðmundssonar seðlabankastjóra. Hún lætur trúnaðarmenn sína, Láru V. Júlíusdóttur í bankaráði Seðlabankans og Ragnheiði Arnljótsdóttur í forsætisráðuneytinu, hins vegar hylma yfir með sér. Það er óhugsandi, að ráðuneytisstjórinn í forsætisráðuneytinu hafi gengið frá ráðningarkjörum Más án samráðs við Jóhönnu. Því trúir enginn.
07.jún. 2010 - 15:52 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Fyrirsjáanleg niðurstaða saksóknara

Mér kemur ekki á óvart, að ríkissaksóknari telji ástæðulaust að hefja sakamálarannsókn á hendur þremur bankastjórum Seðlabankans fyrir hrun, þeim Davíð Oddssyni, Eiríki Guðnasyni og Ingimundi Friðrikssyni. Um hvaða lögbrot áttu þeir að vera sekir?
07.jún. 2010 - 00:57 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Enn um Ísraelsmenn og vændiskaupendur

Ég benti hér í gær á sjónarmið tveggja óvinsælla minnihlutahópa, sem eiga sér formælendur fáa, Ísraelsmanna og vændiskaupenda. Ég ætlaði ekki nauðsynlega að taka undir þessi sjónarmið, en taldi rétt að vekja athygli á þeim. Fjölmiðlar gera þeim lítil sem engin skil, ekki heldur þeir fjölmiðlar, sem á hvílir lagaskylda um óhlutdrægni (og ef til vill síst þeir).
05.jún. 2010 - 12:53 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Ísraelsmenn og vændiskaupendur

Tveir hópar njóta bersýnilega ekki sannmælis í fjölmiðlum þessa dagana og raunar ekki þessi misserin. Er sú skoðun mín vitanlega óháð því, hvort ég hafi sjálfur samúð með þessum hópum eða ekki.
01.jún. 2010 - 16:25 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Styrkir fyrirtækja til stjórnmálaflokka

Er eðlilegt, að fyrirtæki styrki stjórnmálaflokka eða stjórnmálamenn? Svarið hlýtur að fara eftir eðli hvers fyrirtækis. Ef það er í eigu einstaklings, þá er ekkert því til fyrirstöðu. Eigandinn fer með eigið fé, ekki annarra, og það er þáttur í almennum mannréttindum að eiga þess kost að afla hugmyndum brautargengis, meðal annars með fjárframlögum.
31.maí 2010 - 15:21 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Skilaboð til Jóhönnu

Ef þú hefur gengist undir hlutverk, sem þér er ofvaxið, er þér ekki aðeins vansi að því, heldur hefur þú einnig vanrækt hitt, sem þér hæfði.

30.maí 2010 - 23:13 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Sjálfstæðisflokkurinn hjarnar við

Sumir spekingar spá endalokum „fjórflokksins“. Það er fljótfærni. Ástæðan til þess, að kjósendur á Íslandi hafa í aðalatriðum skipt sér í fjóra flokka í áttatíu ár, er, að fjórar stjórnmálahugmyndir hafa átt hér djúpar rætur.

29.maí 2010 - 02:37 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Hanna Birna ber af

Ég er því miður erlendis, svo að ég gat ekki horft á þessa þætti, en þessar umsagnir koma mér ekki á óvart. Hanna Birna Kristjánsdóttir ber af fulltrúum annarra framboða eins og gull af eiri.
27.maí 2010 - 11:57 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Gluggi eða spegill?

En til eru þeir menn, sem kenna sig við vísindi, en horfa ekki út um glugga, heldur inn í spegil. Þeir hafa bitið í sig einhverjar hugmyndir, sem eru með því orðnar að grillum í kollinum á þeim, og síðan nota þeir hvert tækifæri sem gefst til að endurtaka þessar grillur. Þeir horfa í raun og veru ekki á veruleikann út um gluggann, heldur á sjálfa sig í spegli.

Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson er prófessor í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands og hefur verið gistifræðimaður við fjölmarga erlenda háskóla, þar á meðal Stanford-háskóla og UCLA. Hann fæddist 1953, lauk doktorsprófi í stjórnmálafræði frá Oxford-háskóla 1985 og er höfundur fjölmargra bóka um stjórnmál, sögu og heimspeki á íslensku, ensku og sænsku.

Nýjustu verk hans eru 828 blaðsíðna þýðing á Svartbók kommúnismans (Livre noir du communisme) haustið 2009 og 160 bls. bók, Áhrif skattahækkana á hagvöxt og lífskjör, í árslok 2009.

Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 29.8.2010
Viðbjóðurinn blasir allstaðar við
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 29.8.2010
Opið bréf til Hæstaréttar
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 30.8.2010
Bestu kylfingar Íslands frá upphafi
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 29.8.2010
Móeiður í keppni Samúels
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 31.8.2010
Sjálftökuliðið færist í aukana
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 01.9.2010
Björk litla í Samúel fyrir aldarfjórðungi
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 31.8.2010
Kemur tæplega á óvart
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 30.8.2010
ESB - undanþágur
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 01.9.2010
Er Hæstiréttur bara gúmmístimpill?
Ester Ósk Hilmarsdóttir
Ester Ósk Hilmarsdóttir - 01.9.2010
Kannt þú að vera góður gestur?
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 31.8.2010
Að læra að elska - eða bara elska
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 01.9.2010
Of margir háskólar?
Björg Magnúsdóttir
Björg Magnúsdóttir - 02.9.2010
DV, þú stöðvar mig ekki!
Jón Magnússon
Jón Magnússon - 30.8.2010
Hvað kostar kílóvattstundin?
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir - 30.8.2010
Verjum menntun
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 29.8.2010
Venesúela, Kúba... Ísland?
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 02.9.2010
Trúverðugleikinn fer líka
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit