01. feb. 2012 - 18:56Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Breytti NASA tölum veðurstofunnar?
Enginn getur neitað því, að veður hefur hlýnað síðustu áratugi. Ég man vel eftir því, þegar ég var drengur á sjötta áratug tuttugustu aldar, að stundum var ófært í barnaskóla sökum snjókomu, og afabróðir minn, dr. Halldór Pálsson búnaðarmálastjóri, var reglulegur gestur í útvarpinu til að tala um kal í túnum. Enginn getur heldur neitað því, að einhver gróðurhúsaáhrif verki á veðrið. Ágreiningur hugsandi manna hlýtur að vera um tvennt annað: hvort önnur áhrif á loftslag séu jafnmikilvæg eða mikilvægari (til dæmis áhrif sólar eða hafstrauma) og hvernig (og hvort) eigi að bregðast við því, ef hlýnunin reynist að mjög miklu leyti vera af mannavöldum.
Í þessu sambandi vekja tvær nýlegar fréttir athygli mína. Önnur er, að sextán vísindamenn skrifuðu undir opið bréf, sem birtist í Wall Street Journal 27. janúar 2012. Þar fullyrða þeir, að ástæðulaust sé að fyllast ótta vegna hlýnunar jarðar. Þeir benda einnig á þá athyglisverðu staðreynd, að jörðin hefur ekki hlýnað að ráði síðustu tíu ár. Sú tilgáta, að hlýnun jarðar stafi af losun koltvísýrings út í andrúmsloftið, hefur því að minnsta kosti veikst. Miklu meiri koltvísýringur er nú losaður út í andrúmsloftið en fyrir tíu árum, en samt hefur jörðin ekki hlýnað að ráði.
Vísindamennirnir sextán rifja upp, að í tölvuskeyti frá 2009, sem laumað var í Netið, sagði ákafur stuðningsmaður tilgátunnar um hlýnun af mannavöldum, Kevin Trenberth: „Sannleikurinn er sá, að við getum ekki skýrt, hvers vegna ekki hlýnar um þessar mundir, og það er fáránlegt.“ Höfundar opna bréfsins í Wall Street Journal telja, að margir vísindamenn ekki síður en stjórnmálamenn hafi veðjað á tilgátuna um hlýnun jarðar af mannavöldum. Hún auðveldar þeim að útvega sér styrki og fá áheyrn og áhrif. Vísindamenn eru um það líkir öðru fólki, að þeir vita oftast betur af eigin hag en annarra.
Hin fréttin er, að bandaríska geimferðastofnunin, NASA, virðist hafa breytt tölum frá veðurstofunni um hitastig í Reykjavík á tuttugustu öld. Þetta er skilmerkilega rakið á heimasíðu Ágústs H. Bjarnasonar verkfræðings. Þar eru nokkur fróðleg línurit. Eitt er frá veðurstofunni og sýnir hitafar í Reykjavík 1866–2009. Þar sést til dæmis, að langtímaþróunin (meðaltöl síðustu þrjátíu ára á hverjum tíma) hefur ekki verið í átt til mikillar hlýnunar á tuttugustu öld. Einnig sjást vel á línuritinu frostaveturinn mikli 1918 og hlýindaskeiðið á Íslandi um 1940.
Á heimasíðu NASA eru birt ýmis línurit um hitafar í Reykjavík á tuttugustu öld. Eitt er svipað og línurit veðurstofunnar. Þar er hlýnun óveruleg. En annað línurit er „leiðrétt“. Þar hefur tölum veðurstofunnar verið breytt, en afleiðingin er, að talsverð hlýnun birtist skyndilega frá upphafi til loka tuttugustu aldar. Hvort tveggja hverfur, frostaveturinn mikli 1918 og hlýindaskeiðið um 1940.
Hvað veldur því, að vísindamennirnir hjá NASA, sem margir styðja dyggilega tilgátuna um hlýnun jarðar af mannavöldum, breyta svo tölum veðurstofunnar? Með hvaða rökum? Og er við því að búast, að þeir hafi á sama veg breytt tölum frá öðrum aðilum?
21.maí 2012 - 12:30
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Sjálfur hef ég haft tvíræða afstöðu til Evrópusambandsins. Mér finnst það æskilegt, ef það verður opinn markaður, þar sem menn geta skipst á vöru og þjónustu yfir landamæri í frjálsri samkeppni. Mér finnst sambandið hins vegar óæskilegt, ef það verður lokað ríki, girt tollmúrum, virkið Evrópa.
17.maí 2012 - 21:07
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Fróðleg er sú frétt, sem mun vera rétt, að meiri hlutinn, þrír af fimm, í stjórn Hörpu hafi viljað ráða Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, fyrrverandi menntamálaráðherra, framkvæmdastjóra hússins. Af einhverjum ástæðum gerðist það þó ekki.
16.maí 2012 - 21:23
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
En til var önnur grýla, sem sömu menn hæddust óspart að: „Rússagrýlan,“ sem ætti sér enga stoð í veruleikanum, enda aðeins Morgunblaðslygi.
12.maí 2012 - 13:26
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Ég spurði Gunnar Smára sömu spurningar og Össur: Hvar hefur þróunaraðstoð tekist? Hvaða land hefur blómgast á því að þiggja ölmusur og bætur? Þá fékk ég reiðilestur yfir mig.
11.maí 2012 - 16:38
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Ég spyr Össur: Hvar hefur þróunaraðstoð tekist?
07.maí 2012 - 00:58
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hverju skyldu þeir Jón Steinsson, Gauti Eggertsson og Már Guðmundsson nú svara Óðni? Hvort höfðu þeir heldur í huga hagsmuni íslensku þjóðarinnar eða kröfuhafa bankanna?
03.maí 2012 - 19:07
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Og það var ekki nóg með, að Helga gabbaði forvitið fólk til að sækja fyrirlestur sinn, heldur lék hún sér líka að því.
01.maí 2012 - 17:19
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Jóhanna og Stefán hafa hins vegar engar áhyggjur af hinum fátæku. Þeim er sama, þótt kjör þeirra hafi versnað. Þau hafa aðeins áhyggjur af hinum ríku. Mikið skal til vinna, svo að kjör þeirra versni.
30.apr. 2012 - 20:41
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Þótt Steinn væri manna stríðnastur, þoldi hann illa stríðni annarra. Eftir að vísan komst á kreik, rak hann Leif með þjósti burt.
28.apr. 2012 - 11:21
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Steinn lét þess þá ekki getið, að þetta var lausleg þýðing á kvæði Sandburgs. Það er efni í annan pistil að rekja eftirmálin.
24.apr. 2012 - 22:03
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Miðvikudaginn 25. apríl 2012 birtist eftir mig
grein í
Wall Street Journal um nýgenginn dóm yfir Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. Þar bendi ég á, hversu fáránlegur dómurinn virðist vera: Geir H. Haarde hélt ekki nógu marga fundi með ráðherrum sínum.
23.apr. 2012 - 15:52
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Í þessu máli tóku fjöllin jóðsótt, og hlægileg lítil mús fæddist. En þótt dómurinn sé furðulegur, er hann líka fróðlegur.
21.apr. 2012 - 21:12
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Vita þeir, sem krefjast til dæmis stighækkandi tekjuskatts og upptöku allrar auðlindarentu, að þeir bergmála aðeins það, sem segir í
Kommúnistaávarpinu eftir Marx og Engels? Vofur hafa vaknað hér upp og ganga enn ljósum logum.
17.apr. 2012 - 22:51
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
En frjáls viðskipti merkja ekki, að við eigum að lúta valdboði stórra ríkja. Þess vegna áttum við ekki að láta kínversku leyniþjónustuna kaupa víðlendi á Íslandi.
13.apr. 2012 - 20:54
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
… um það, að Gordon Brown, fyrrverandi forsætisráðherra og leiðtogi systurflokks Samfylkingarinnar í Bretlandi, ætti að minnsta kosti að biðja Íslendinga afsökunar á því, hvernig hann og flokksbræður hans höguðu sér í hinni alþjóðlegu lánsfjárkreppu haustið 2008.
12.apr. 2012 - 18:16
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Til er orðskviður um þetta: Heiðra skaltu skálkinn, svo að hann skaði þig ekki. En ekki er það stórmannlegur málatilbúnaður.
08.apr. 2012 - 22:46
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Ég ræði nokkuð um þau hjón í ritgerð í nýjasta hefti
Þjóðmála. Bróðir Harrys og Hennýar, Siegbert, lét lífið á hroðalegan hátt í fangabúðum nasista í Natzweiler. Kona Siegberts og sonur voru myrt í Auschwitz. Er af þessu mikil saga.
03.apr. 2012 - 23:35
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Þar sem eftirvæntingin skein af svip hvers einasta nemanda þegar Björn birtist loks í kennslustund hóf hann mál sitt á að segja: „Eins og það geti ekki komið fyrir alla að detta í Tjörnina!“
01.apr. 2012 - 10:46
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Þar kvað hann hafa hlakkað í sumum þar á bæ yfir falli íslensku bankanna: Nú yrðu Íslendingar að leita á náðir Evrópusambandsins.
30.mar. 2012 - 12:13
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Ferðalangur til Rússlands sagði eitt sinn: Klóraðu Rússanum, og þá kemur villimaðurinn í ljós. Hér mætti segja: Klóraðu Má Guðmundssyni, og þá kemur gamli trotskistinn í ljós.
26.mar. 2012 - 09:45
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Nokkra athygli vakti, að kunnir bókmenntamenn
tóku við krossi á Bessastöðum á nýársdag 2012.
22.mar. 2012 - 14:19
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Nú er ég að hugsa um að bjóða upp á námskeið næsta vetur, líklega á haustmisseri 2012, um BRIK-löndin fjögur. Þau eru Brasilía, Rússland, Indland og Kína.
17.mar. 2012 - 10:29
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Mér finnst mál Gunnars Þ. Andersens, fyrrverandi forstöðumanns Fjármálaeftirlitsins, Ársæls Valfells lektors og þeirra félaga allt hið furðulegasta. Eitthvað býr að baki, og veit ég ekki, hvað það er. Lét Gunnar ekki að stjórn?
16.mar. 2012 - 15:32
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Síðustu daga hef ég flutt þrjú erindi.
15.mar. 2012 - 09:50
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
„Hamingjusnautt er það land, sem þarf á hetjum að halda.“
13.mar. 2012 - 06:40
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Bloomberg-fréttaveitan, sem sérhæfir sig í viðskiptafréttum, bað mig að blogga fyrir sig um landsdómsmálið, og er bloggið
hér á ensku, en það birtist fyrst að kvöldi 12. mars 2012.
11.mar. 2012 - 21:54
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Spurði Egill Jensen af þekkingu og skilningi.
09.mar. 2012 - 07:04
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Lýsingar ungverska rithöfundarins Arthurs Koestlers og íslenska ritskýrandans Kristins E. Andréssonar á því, hvernig þeir tóku ungir menn trú á kommúnisma upp úr 1930, eru mjög svipaðar.
07.mar. 2012 - 10:20
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Ég sat í réttarsal í landsdómsmálinu síðdegis 6. mars 2012. Hlustaði ég á framburð Arnórs Sighvatssonar, fyrrverandi aðalhagfræðings Seðlabankans (núverandi aðstoðarseðlabankastjóra), og Davíðs Oddssonar, fyrrverandi seðlabankastjóra.
06.mar. 2012 - 23:31
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
„Ef hann verður sýknaður, sem mér finnst eðlilegast, þá eiga þeir að víkja af þingi og hætta stjórnmálaafskiptum.“