09. feb. 2012 - 23:53Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Ármann Þorvaldsson gestur í námskeiði mínu
Ármann Þorvaldsson, fyrrverandi forstjóri Singer & Friedlander, var fimmtudaginn 9. febrúar 2012 gestur í námskeiði mínu í stjórnmálahagfræði í Háskóla Íslands, þar sem farið er meðal annars yfir orsakir og afleiðingar falls bankanna haustið 2008. Hann skrifaði hina skemmtilegu bók
Ævintýraeyjuna um reynslu sína af hruninu.
Ármann taldi eina leikreglu á íslenska fjármálamarkaðnum hafa verið hæpna, en hún hefði ekki gilt erlendis, svo að hann vissi til. Hún væri, að bankar gætu lánað út á eigin hlutabréf (eða út á einhvern þann gerning, sem jafngilti því). Þannig virtist eigið fé bankanna vera meira en það var í raun og veru, svo að þeir tóku meiri áhættu en skynsamlegt var. Ég spyr eftir að hafa hlustað á Ármann: Væri ekki nær að leiðrétta þessa reglu nú en efna til stjórnlagaþings og annarra aðgerða, sem komu hruninu ekki hætis hót við?
Ármann vakti einnig athygli á, að markaðsmisnotkun fer venjulega fram svo, að beitt er brellum til að hækka í verði hlutabréf, sem brotamennirnir vilja selja, svo að þeir græði á sölunni, eða til að lækka í verði þau, sem þeir vilja kaupa. En í dæmi íslensku bankanna fyrir hrun var reynt að koma í veg fyrir, að hlutabréfin hröpuðu í verði, sem hefði þær hugsanlegu afleiðingar, að kerfið hryndi. Tilgangurinn var því ekki að skapa með brellum gróða, heldur að afstýra tapi og halda kerfinu gangandi. Á þessu tvennu er verulegur siðferðilegur munur, hvort sem sanna tekst lögbrot á einhverja bankamenn eða ekki í einstökum dæmum.
Um kvöldið var ég framsögumaður á fundi Heimdallar um lýðræði ásamt kosningasérfræðingnum Birni S. Stefánssyni, sem rannsakað hefur raðval og sjóðval, og tveimur fulltrúum lýðræðisfélagsins Öldu. Fólkið frá Öldu var kurteist og málefnalegt, en ekki þótti mér það hafa mjög raunhæfar hugmyndir um lýðræði.
Betra er að telja nef en höggva hálsa, svo að lýðræði er skársta fyrirkomulagið til að skipta um stjórnvöld, þegar þau verða óþolandi. En eigum við að gera okkur einhverjar frekari vonir um það? Er frelsi einstaklinganna til að velja ekki aðalleiðarstjarna okkar?
16.jún. 2013 - 11:42
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Margar skemmtisögur íslenskar eiga sér erlendar fyrirmyndir, og er erfitt að skera úr um það, hvort þær séu flökkusögur, sem borist hafi til Íslands, eða hvort íslenskum háðfuglum hafi dottið hið sama í hug við ýmis tækifæri og fyndnum útlendingum áður.
13.jún. 2013 - 14:44
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Skemmtilegt var að sjá formenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks kynna stjórn sína á Laugarvatni vorið 2013. Sá staður var ekki í miklu dálæti hjá sjálfstæðismönnum á fjórða áratug.
09.jún. 2013 - 16:17
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Nefndin telur, að svo virðist vera sem stjórnmálaandstæðingar Geirs hafi reynt að gera stefnu hans og lífsskoðun að glæp, en þau vinnubrögð tíðkuðust í alræðisríkjum tuttugustu aldar.
07.jún. 2013 - 23:05
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Skopstæling Kiljans á Faðirvorinu var til að hnykkja á meginboðskapnum í
Sjálfstæðu fólki, að íslenskir kotbændur létu kúga sig og sættu sig auðmjúklega við það. Útgáfa Préverts er hins vegar andvarp lífsnautnamannsins, sem vill fá frið fyrir trúarbrögðum.
02.jún. 2013 - 19:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Ég rakst á Facebook á ljósmynd, sem Runólfur Oddsson hafði sett þar, en Kjartan Gunnarsson tók. Hún er af okkur nokkrum í kvöldverðarboði á Þingvöllum í júlí 2004, ef ég man rétt mánudagskvöldið 19. júlí.
01.jún. 2013 - 20:05
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Halldór Laxness var ómyrkur í máli, þegar hann talaði um kosningar. Hann skrifaði í
Alþýðubókinni 1929: „Kosníngar eru borgarastríð þar sem nef eru talin í stað þess að höggva hálsa. Sá sem mestu lofar og lýgur nær flestum nefjum. … “
29.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Eitthvert besta dæmið, sem ég kann um vingjarnlega móðgun, er, þegar breski rithöfundurinn Barbara Cartland var í viðtali í breska ríkisútvarpinu við konu að nafni Söndru Harris.
28.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Thatcher sagði mér hins vegar eitt sinn í kvöldverði: „Gallinn við stjórnmálamennina á meginlandinu er, að þeir hafa aldrei skilið hina engilsaxnesku hugmynd um frelsi innan marka laganna.“
27.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Íslenskir stjórnmálaforingjar þurfa að berjast í þremur lotum, fyrst að komast á framboðslista, síðan að afla atkvæða í kosningum og loks að mynda stjórn.
26.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Komin er út stórfróðleg bók eftir Stefán Gunnar Sveinsson sagnfræðing,
Búsáhaldabyltingin: sjálfsprottin eða skipulögð? Kemst höfundur að þeirri niðurstöðu, að „búsáhaldabyltingin“, eins og óeirðirnar veturinn 2008–2009 eru oft kallaðar, hafi verið hvort tveggja, sjálfsprottin og skipulögð.
25.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Margt getur skemmtilegt gerst í kosningabaráttu.
23.maí 2013 - 08:01
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Erfiðasta verkefni hinnar nýju stjórnar verður að ná tökum á ríkisfjármálum, sem hafa farið gersamlega úrskeiðis síðustu fjögur árin.
22.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Jón Trausti hafði oft sætt árásum drýldinna skólamanna, enda sjálfmenntaður og vandaði ekki alltaf stíl sinn sem skyldi, þótt hann bæri af um sköpunarmátt og frásagnargleði.
20.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hin síðari misseri hef ég jafnan dvalist nokkra mánuði á ári í Rio de Janeiro í Brasilíu, þar sem ég er í rannsóknarsamstarfi við nokkrar stofnanir, meðal annars um grænan kapítalisma og um hagþróun í BRIK-löndunum.
18.maí 2013 - 09:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Einn dagskrárliðurinn var heimsókn í safnið um uppreisnina í Varsjá 1944. Sú heimsókn var ógleymanleg.
17.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Heimspekidoktorarnir Vilhjálmur Árnason og Salvör Nordal skrifuðu lærðar ritgerðir í rannsóknarskýrslu Alþingis um siðferði eða öllu heldur siðleysi íslenskra fjármálamanna fyrir bankahrunið 2008. Ein hneykslunarhella þeirra var hugmyndin um Ísland sem fjármálamiðstöð.
16.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Þrír nafnkunnir menn í Reykjavík hétu upp úr miðri 20. öld Pétur Pétursson.
15.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Íslendingar hafa löngum skrifað skammir hver um annan og oft nafnlaust, en lesendur hafa þá reynt að geta sér til um höfunda, og hefur það gengið misjafnlega.
14.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Árni Vilhjálmsson bar ekki utan á sér, að hann var einn auðugasti útgerðarmaður landsins.
13.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
En þær, sem reiðastar voru körlum fyrir fornar misgerðir og lengst gengu, sögðu með Andreu Dworkin: „Erfitt er að greina flekun frá nauðgun. Þegar ætlunin er að fleka, hefur nauðgarinn fyrir því að kaupa vínflösku.“
12.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Biblían er ekki aðeins merk í sjálfri sér, heldur líka vegna þess, hversu margt í vestrænni og þá um leið íslenskri menningu vísar í hana. Í þeim skilningi er hún þrungin menningarsögulegri merkingu, og væri mikill skaði að því að hætta að kenna kristin fræði í skólum.
10.maí 2013 - 12:04
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hér er myndband um samstarfsverkefni AECR og RNH síðustu fimmtán mánuði:
09.maí 2013 - 10:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
En oft hafa raddir úr þjóðardjúpinu orðað frelsishugmyndirnar betur en fræðimennirnir.
08.maí 2013 - 11:59
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
05.maí 2013 - 19:59
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Ég var í viðtali við Egil Helgason sunnudaginn 5. maí 2013 um efnið í fyrirlestri þeim, sem ég flutti á félagsvísindaráðstefnu á Bifröst föstudaginn 3. maí. Það var gaman að því, að Egill kunni á latínu tilvitnunina í rómverska leikskáldið Júvenalis, sem ég vék að:
Quis custodiet ipsos custodes?
04.maí 2013 - 14:29
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Meðal annars vísaði ég á bug fjórum algengum skýringum á bankahruninu:
01.maí 2013 - 23:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Ég flyt fyrirlestur á ráðstefnu um þjóðfélagsfræði í Háskólanum á Bifröst föstudaginn 3. maí. Ber fyrirlesturinn, sem fluttur verður á ensku, yfirskriftina „The International Financial Crisis and the Collapse of the Icelandic Banks“.
30.apr. 2013 - 08:00
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Davíð Oddsson myndaði sína fyrstu ríkisstjórn 30. apríl 1991. Þá um kvöldið hittumst við Davíð ásamt tveimur öðrum vinum okkar og konum þeirra þriggja og skáluðum.
29.apr. 2013 - 11:23
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
There are several misleading or even wrong statements in the news item by Torbjørn Pedersen, NTB, on the Icelandic elections, published in
Aftenposten 27 April 2013.
28.apr. 2013 - 10:31
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Nú þegar Jóhanna Sigurðardóttir dregur sig í hlé og heldur til Dýrafjarðar, en þangað renna öll vötn, sem kunnugt er, skilur hún flokk sinn eftir rjúkandi rúst.