13. jan. 2010 - 13:30Gunnar I. Birgisson

Kúlulánadrottning Steingríms J.

Hún vekur undrun, síðasta ráðning vinstri stjórnarinnar í mikilvæg embætti, þ.e. ráðning Elínar Jónsdóttur í stöðu forstjóra Bankasýslu ríkisins.

Elín er greinilega í miklu uppáhaldi hjá fjármálaráðherranum. Hann lét skipa hana sem tilsjónarmann þegar ráðuneyti hans tók yfir Lífeyrissjóð starfsmanna Kópavogsbæjar vegna þess að við, sem sátum í sjóðsstjórninni, vildum ekki tefla fjármunum sjóðsfélaga í tvísýnu í miðju efnahagshruni. Við björguðum fjármunum sjóðsins og tókst vel til.

Óvenjulegar aðstæður kalla á óvenjulegar aðgerðir. Það hefði verið óráð að geyma peningana í bönkunum eins og ástatt var. Þá hefði mátt gagnrýna stjórnina fyrir að taka óþarfa áhættu. Við geymdum þá í staðinn í öruggu skjóli bæjarsjóðs. Það var ekki bannað heldur er talið að lánveitingin hafi hugsanlega verið umfram hámark sem ákveðið var í útrásaræðinu.

Tilsjónarmaðurinn gerði ekki miklar rósir á skrifstofu Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar utan lélegar mætingar og ólund. Þá rak hún framkvæmdastjóra sjóðsins, sem ekkert hafði til saka unnið, nema að skrifa bréf í umboði stjórnar. Þetta mál er líka óskiljanlegt í ljósi þess að Kópavogsbær ber 100% ábyrgð á lífeyrissjóðnum.

Í fjölmiðlum undanfarið hafa komið fram þær fréttir að Elín þessi stundaði hlutabréfabrask og fékk til þess lánað fé, svonefnt kúlulán á annað hundrað milljónir króna, hjá bönkunum fyrir hrun. Þegar syrti í álinn og braskið gekk ekki upp, þá seldi hún fyrirtækið með einskis verðum hlutabréfum en kúlulánið stóð eftir ógreitt!

Löglegt en siðlaust – eða hvað?

Af þessum sökum er tilsjónarmaðurinn góði, yfirmaður Bankasýslunnar og sérlegur eftirlitsmaður fjármálaráðherra með bankaviðskiptum í landinu kölluð kúlulánadrottningin.

Siðaumvandanir vinstri manna eiga alltaf við alla aðra en þá sjálfa.



25.jan. 2010 - 16:00 Gunnar I. Birgisson

Prófkjör í Kópavogi

Prófkjör sjálfstæðismanna í Kópavogi fer fram 20. febrúar næstkomandi. Ég gef kost á mér í 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi við bæjarstjórnarkosningarnar í vor.
22.jan. 2010 - 13:00 Gunnar I. Birgisson

Það vantar framtíðarsýn

Nú er liðið vel á annað ár frá efnahagshruninu, sem dundi yfir okkur Íslendinga og raunar heimsbyggðina alla. Eftir hrunið upphófst pólitískur óróleiki og afleiðingarnar voru vinstri stjórn sem setið hefur við völd í landinu í tæpt ár.

Gunnar I. Birgisson

Fyrrverandi alþingismaður og bæjarstjóri og bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Kópavogi. Próf í verkfræði frá HÍ 1977, M.Sc.-próf í byggingaverkfræði frá Heriot-Watt University í Edinborg 1978 og doktorspróf í jarðvegsverkfræði frá University of Missouri 1983.

Varaformaður Verktakasambands Íslands 1985-1986 og formaður þess 1986-1991. Í framkvæmdastjórn VSÍ 1985-1992, varaformaður VSÍ 1989-1992.

Oddviti sjálfstæðismanna í Kópavogi frá 1990. Formaður bæjarráðs Kópavogs 1990-2005 og síðan bæjarstjóri til 2009. Formaður stjórnar LÍN frá 1991-2009. Í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis 1999-2005, umhverfisnefnd 1999-2005 og formaður menntamálanefndar 2002-2005.

Formaður Íslandsdeildar þingmannanefndar EFTA 2003-2005. Frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2010 og sækist eftir 1. sæti á framboðslista flokksins.

Gréta Ingþórsdóttir
Gréta Ingþórsdóttir - 16.5.2012
Lífið er dásamlegt – í minningu barns
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 14.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 5.hola - Myndband
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 18.5.2012
Einmana súkkulaðikaka- UPPSKRIFT
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 15.5.2012
Stoltir af steranotkun
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 15.5.2012
Grýttur jarðvegur
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 17.5.2012
Hvað skyldi Guðmundur Andri skrifa núna? Og Illugi?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 15.5.2012
Gott hjá Ólínu
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 15.5.2012
Dómur yfir hælisleitendum
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 17.5.2012
Hversu svöng erum við í raun?
Fannar Karvel
Fannar Karvel - 15.5.2012
Árangur í einu orði
Ólafur Margeirsson
Ólafur Margeirsson - 15.5.2012
Er vaxtahækkun svarið?
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 18.5.2012
Lýðræðislegt ofbeldi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2012
Rússagrýlan
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 16.5.2012
Við getum fækkað umferðarslysum
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Fleiri pressupennar