11. maí 2010 - 19:30Guðmundur Steingrímsson
Nú bíða níu einstaklingar og fjölskyldur þeirra úrskurðar dómsyfirvalda um mögulega fangelsisvist vegna uppákomu sem varð á Alþingi í kjölfar hrunsins. Reitt fólk fór upp á þingpalla og lét bræði sína í ljós við þingheim. Stimpingar urðu í kjölfarið við verði.
Þessi uppákoma varð ekki að tilefnislausu. Ástæðurnar voru augljósar. Fjármálakerfið var nýhrunið. Allt var í klessu. Það sauð á fólki.
Lög um það að ekki megi trufla störf þingsins eru skiljanleg og nauðsynleg. Þau ættu til dæmis að koma í veg fyrir að fámennur byltingarflokkur freistaði þess að ræna völdum eða þingmenn verði fyrir einelti af þingpöllum vegna skoðana sinna. Til mikils er að vinna í þeim efnum. Lýðræðið verður að vernda.
Mér finnst það hins vegar ekki vera hugsunin með lögunum að þau eigi að koma í veg fyrir að hópur fólks í kjölfarið á hruni fjármálakerfis – og þetta verð ég að skrifa aftur: í kjölfarið á hruni heils fjármálakerfis – verði reitt á þingpöllum og hrópi jafnvel tiltölulega afdráttarlaus skilaboð til þingmanna í reiði sinni.
Hver gat ekki búist við því?
Ég finn til með þingvörðum og öðrum laganna vörðum. Ég held að þeir hafi reynt að gera sitt besta við mjög vandasamar aðstæður. Ég velti því hins vegar fyrir mér hvort ekki væri sanngjörn málsmeðferð að grípa til sáttamiðlunar milli mótmælenda og varða sem lenti saman. Mig grunar að verðirnir og mótmælendurnir yrðu fljótir að finna grunn til sáttar sín á milli, ef það yrði reynt.
Hitt væri verra, ef dómari liti svo á að slík sátt væri ekki lykilatriði málsins, heldur hitt að níumenningarnir þyrftu mjög nauðsynlega að þola refsingu fyrir það að hafa látið í ljós reiði sína á þingpöllum – fyrir að hafa hrópað, svo dæmi sé tekið, en ekki bara hugsað: „Drullið ykkur út.“
Þjóðfélag sem getur ekki séð í gegnum fingur sér og látið hjá líða að grípa til ýtrustu dómhörku þegar réttlát reiði fólks gýs upp af augljósum ástæðum á þingpöllum er gallað þjóðfélag.
Ég vona að níumenningarnir verði ekki dæmdir í fangelsi. Mér myndi finnast það rangur og ósanngjarn dómur. Samfélagið yrði verra á eftir.