09. nóv. 2009 - 09:50Egill Gillz Einarsson

Femínistar heilnudda salti í sárin

Það er alveg magnað hvað feministar haga sér alltaf eins og hálfvitar. Núna er allt vitlaust útaf því að Fjármálastjóri KSÍ var í góðum fíling í Sviss og ákvað að sippa aðeins í sig og fara á strippbúllu.  Það vantar alveg í umræðuna að þessi ágæti maður er fórnarlamb sviksamra kvenna og eigenda staðarins. Maðurinn er rændur og síðan vilja feminstarnir að hann missi vinnuna líka!

Auðvitað ættu allir að standa með blessuðum manninum. Hann var órétti beittur, kærði og fékk eigendur staðarins dæmda og staðnum lokað. Þetta var hugrakt framlag hans til bætts viðskiptasiðferðis í bankamannalandinu Sviss. Við getum því kallað hann Litla KSÍ-manninn, hann er ekki minni hetja en Litli Landssímamaðurinn í mínum huga.

En hvað gera Feministar? Jú þær verða sér enn og aftur til skammar með því að gefa út yfirlýsingu að hann og öll stjórn KSÍ eigi að segja af sér.

Eru þær eitthvað klikkaðar? Hvað gerði hann rangt? Eða stjórnin?

Það er ekkert eðlilegra en að skella sér aðeins á strippbúllu. Þessar rauðsokkur nýta þarna tækifærið til að sparka í liggjandi mann. Þurfa þessir feministar ekki bara .....?

Nú í lok mánaðarins kemur út bókin Mannasiðir Gillz. Það er synd að ég skuli ekki hafa skrifað svona mannasiðabók fyrr. Þá fullyrði ég að Litli KSÍ-maðurinn hefði ekki lent í þessari uppákomu. Það eru margir sem vita ekki hvernig þeir eiga að haga sér inn á strippbúllum en að sjálfsögðu er kafli í bókinni minni sem heitir „Hvernig áttu að haga þér á strippbúllu“.

Ég tek hérna smá hluta úr þeim kafla fyrir ykkur og set fyrir neðan:

Allir alvöru karlmenn fara einhvern tíma á lífsleiðinni á nektardansstað eða réttara sagt strippbúllu. Auðvitað eru til menn með leggöng eins og Steingrímur J. Sigfússon sem eru á móti strippbúllum en hann er ein af þessum risaeðlum sem eru að deyja út. Ég vona innilega að íslensk stjórnvöld fari ekki að taka uppá því rugli að loka þessum fáu strippbúllum sem eftir eru enda skapa þær drjúgar gjaldeyristekjur og eru nauðsynlegur liður í þroska hvers heimsborgara. ...

Ef staðurinn er fínn og þú ert ekki staddur í einhverri hliðargötu í Köben þar sem þrír blökkumenn standa fyrir utan að jóðla hvítu dufti í trýnið á sér er mjög ólíklegt að þú verðir rændur inni. Eigendur staðanna vilja halda orðsporinu góðu og það er fljótt að spyrjast ef menn eru teknir aftanfrá þarna inni. ...

Ef dansari biður þig að kaupa kampavínsflösku og gefa sér í glas, og það mun gerast, kannaðu þá verðlistann á flöskunum. Þú ert ekki dónalegur þó þú biðjir hana að koma með verðlista. Það er ekki töff að vera flottur gæi og segja bara já við öllu eins og api. Logga sig síðan inn í heimabankann daginn eftir og fá hjartaáfall.
 

Kv, Gillz




28.júl. 2010 - 10:00 Egill Gillz Einarsson

Hvernig á að haga sér á Þjóðhátíð í Eyjum

Þykki hefur farið 38 sinnum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Ég hef farið svo oft að ég þekki allar götur í Eyjum, þekki alla starfsmenn allra búða með nafni og er með símanúmerin hjá öllum gæjunum sem keyra bekkjabílana. Þykki hefur lyft sér upp útum allan heim: Í Brasilíu, New York, Vegas, Atlantic City, Köben, Osló, Benidorm, Portúgal, Ibiza ... bara nefna það. Hef partýjað mig í gang allsstaðar. En ég er ekki að ljúga neinu þegar ég segi að Þjóðhátíð í Eyjum er topp 3 skemmtilegasti staðurinn til að keyra þetta vel upp.
29.jan. 2010 - 15:00 Egill Gillz Einarsson

Strákarnir hans Þykka

Það eru nokkrir hlutir sem ég hef gaman að. Ég ríf í járn. Ég sippa stundum rautt með góðri steik. Ég horfi á United á Players og fer stundum á Old Trafford og öskra mig hásan. Þegar ég sippa ekki rautt á laugardegi þá passa ég stundum litlu frændsystkini mín á sunnudögum. Síðan horfi ég á íslenska landsliðið í handbolta á stórmótum og ELSKA ÞAÐ.

19.des. 2009 - 18:00 Egill Gillz Einarsson

Bókaþjóðin hefur kveðið upp sinn dóm!

Ég hef alltaf haldið því fram að Íslendingar séu mesta bókaþjóð í heimi. Það hefur verið hlegið að mér þegar ég hef skellt þessu fram á hátíðlegum stundum. Ekki þarf frekari vitnana við nú þegar það liggur fyrir að bók mín Mannasiðir Gillz er komin í hóp þriggja söluhæstu bóka þessa jólabókaflóðs. Bókaþjóðin hefur talað!
09.des. 2009 - 13:56 Egill Gillz Einarsson

„Kynferðislegt ójafnvægi“ skýrir hegðun Tigersins

Ég er eiginlega hálf miður mín yfir framkomu Tiger Woods sem eitt sinn var uppáhaldsíþróttamaðurinn minn. Maður getur fyrirgefið feilspor, þau eru mannleg. En nú þegar kellingar poppa upp eins og golfkúlfur með msn færslur og talhólfsupptökur frá kallinum þá verður maður að viðurkenna að maðurinn er ekkert annað en óforbetranlegur foleh. Það væri í góðu lagi mín vegna ef hann væri ekki nýkvæntur og með tvö kornung börn.
03.des. 2009 - 08:14 Egill Gillz Einarsson

Konur sem berja menn

Heimilisofbeldi er aldrei réttlætanlegt og ég fæ tár í augun þegar ég les um ófarir Tiger Woods sem er einn af mínum uppáhalds íþróttamönnum. Það að kona hans skuli hafa ráðist á hann með rándýrri golfkylfu er ekki verjanlegt. Hún hefði getað stórslaðað greyið manninn!
20.nóv. 2009 - 08:28 Egill Gillz Einarsson

Rauðhærðir hafa líka tilfinningar

Hræðilegar þessar fréttir sem ég les að rauðhærðir séu að lenda illa í óprúttnum aðilum. Maður vill varla trúa því að það sé til dagur sem sé kallaður „Berjum rauðhærða-dagurinn“. Þetta er víst mjög vinsælt í Bandaríkjunum. Samkvæmt facebook er dagurinn í dag 20.nóvember „Kick a ginger day“. Hvað hafa rauðhærðir gert til að eiga þetta skilið?
04.nóv. 2009 - 00:00 Egill Gillz Einarsson

Nýtt Lúkasar-mál í uppsiglingu?

Hver man ekki eftir Lúkasarmálinu þegar einhver ólánsamur strákur var hafður fyrir rangri sök að hafa sparkað til dauða krúttið og hundinn Lúkas? Svo var hann lagður í einelti á netinu í kjölfarið og sagan varð ýktari og ýktari. Svo virðist sem að annað Lúkasarmál sé í uppsiglingu eftir að sómapiltarnir Auddi og Sveppi ákváðu bregða sér í bústörfin fyrir næsta þátt að Audda og Sveppa.

Egill Gillz Einarsson
Egill Gillz Einarsson
Egill Einarsson er fæddur í Kópavogi 1980. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Kópavogi 2001, BS próf í íþróttafræðum frá Háskólanum í Reykjavík 2009.
Egill byrjaði með æfingakerfið sitt Fjarþjálfun.is árið 2007 sem hefur verið mjög vinsælt hér á landi. Hann er með aðstöðu í Sporthúsinu í Kópavogi.
Egill er einnig hluti af fyrstu íslensku umboðsskrifstofunni fyrir íþróttafólk. Heitir hún Sportic og sér Egill um að vinna í líkamlegu atgervi skjólstæðinga Sportic.
Egill skrifaði bókina Biblía Fallega Fólksins sem Edda gaf út árið 2005. Nýjasta verk hans heitir Mannasiðir Gillz sem Bókafélagið gefur út í Nóvember 2009.
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 29.8.2010
Viðbjóðurinn blasir allstaðar við
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 29.8.2010
Opið bréf til Hæstaréttar
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 30.8.2010
Bestu kylfingar Íslands frá upphafi
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 29.8.2010
Móeiður í keppni Samúels
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 31.8.2010
Sjálftökuliðið færist í aukana
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 01.9.2010
Björk litla í Samúel fyrir aldarfjórðungi
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 31.8.2010
Kemur tæplega á óvart
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 30.8.2010
ESB - undanþágur
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 01.9.2010
Er Hæstiréttur bara gúmmístimpill?
Ester Ósk Hilmarsdóttir
Ester Ósk Hilmarsdóttir - 01.9.2010
Kannt þú að vera góður gestur?
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 31.8.2010
Að læra að elska - eða bara elska
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 01.9.2010
Of margir háskólar?
Jón Magnússon
Jón Magnússon - 30.8.2010
Hvað kostar kílóvattstundin?
Björg Magnúsdóttir
Björg Magnúsdóttir - 02.9.2010
DV, þú stöðvar mig ekki!
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir - 30.8.2010
Verjum menntun
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 29.8.2010
Venesúela, Kúba... Ísland?
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 02.9.2010
Trúverðugleikinn fer líka
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit