01. feb. 2012 - 16:32Finnur Árnason

Magnafsláttur skilar sér til viðskiptavina Bónus

Á árinu 1988, ári fyrir stofnun Bónus, fóru um 22% af ráðstöfunartekjum heimilanna til kaupa á mat- og drykkjarvöru. Þetta hlutfall hefur lækkað og er nú um 15%, en fór niður í um 12-13% á velmegunarárum okkar Íslendinga fyrir bankahrun. Þetta jafngildir því að af hverjum 100 þúsund krónum, sem heimili hefur til ráðstöfunar, fer nú 7.000 krónum minna í mat- og drykkjarvöru en fyrir tilkomu Bónus.

Bónus hefur bætt hag heimilanna. Matvöruverð á Vestfjörðum lækkaði t.a.m. um 30-40% með tilkomu einnar Bónusverslunar á Ísafirði, en Bónus hefur ávallt selt vörur sínar á sama verði um land allt. Hagur neytenda hefur því batnað, þegar horft er til þess að minna hlutfall ráðstöfunartekna fer nú til kaupa á nauðsynjum og að nú á stór hluti landsbyggðarinnar kost á að kaupa inn dagvöru á sama verði og höfuðborgarbúar.

Í síðustu viku kom út skýrsla Samkeppniseftirlitsins, „Verðþróun og samkeppni á dagvörumarkaði". Í skýrslunni kom fram að Bónus nýtur betri kjara og fær hærri magnafslætti en keppinautar, sem kaupa mun minna magn. Það kemur líka skýrt fram að sá magnafsláttur sem Bónus fær skilar sér í lægra verði til viðskiptavina Bónus. Skýrsla Samkeppniseftirlitsins staðfestir því í raun að heimilin í landinu njóta lægra vöruverðs í krafti magninnkaupa Bónus.

Nokkur umræða hefur verið um að 15% munur á stærsta kaupanda og þeim minnsta sé hugsanlega of mikill. Við nánari skoðun er augljóst að sá munur getur ekki verið óeðlilegur. Magnafslættir eru eðlilegir og ef aðili kaupir margfalt magn á við minni aðila eru 15% betri kjör á engan hátt óeðlileg. Í þessari umræðu er nauðsynlegt að horfa til þess að stærðarhagkvæmni og kaupendastyrkur Bónus skilar sér til viðskiptavina Bónus. Skýrslan staðfestir það og starfsfólk Bónus er stolt af þeirri staðreynd. Það er einnig mikilvægt að í skýrslu Samkeppniseftirlitsins er staðfest að lækkun á virðisaukaskatti árið 2007 skilaði sér að fullu í lægra vöruverði til neytenda. Þessir tveir þættir eru ótvíræð vísbending um virka samkeppni á dagvörumarkaði.


Frá aldamótum hefur vísitala dagvöru hækkað minna en vísitala neysluverðs þrátt fyrir verulegar hækkanir á hrávörumörkuðum á þessu tímabili og fall íslensku krónunnar. Hluti lágvöruverðsverslana hefur verið að aukast á meðan verslunum sem veita þjónustu og bjóða meira vöruúrval hefur verið að fækka. Það er rétt að benda á þá staðreynd, að á vef Hagstofunnar kemur fram að fjöldi fyrirtækja og félaga í flokknum stórmarkaðir og matvöruverslanir er 112. Umræða um matvörumarkað ber ekki með sér að það séu 112 fyrirtæki á þessum markaði. Samkeppnin er virk.

Ein megintillaga Samkeppniseftirlitsins til stjórnvalda í þessari nýjustu skýrslu, er að búvörulögin verði endurskoðuð, með aukið viðskiptafrelsi að leiðarljósi. Ég get ekki annað en tekið undir þetta sjónarmið, því eins og rakið er í skýrslunni tókst einstaklega vel til með breytingar á umgjörð íslenskrar garðyrkju fyrir nokkrum árum. Íslenskir garðyrkjubændur hafa aukið hlutdeild sína og sölu, auk þess sem neytendur eru að fá fjölbreyttari vöru í hæsta gæðaflokki.

Við viljum hvetja til umræðu um breytingar á búvörulögunum. Við leitum eftir samstarfi við stjórnvöld og bændur um breytingar á núverandi kerfi. Það er mitt mat að endurskoðun búvörulaga skapi fjölmörg tækifæri fyrir bændur, m.a. í vöruþróun, fjölbreytni og aukinni hagkvæmni sem muni leiða til aukinnar neyslu á innlendum landbúnaðarvörum. Við þurfum að hafa í huga að við lifum af útflutningi á fiski og eigum að vera sjálfum okkur samkvæm um gagnkvæmt viðskiptafrelsi.

Viðbrögð aðila við skýrslu Samkeppniseftirlitsins hafa einkennst af tækifærismennsku, þar sem neytendur eru enn sem fyrr afgangsstærð. Viðskiptavinir okkar njóta magnafslátta Bónus og það er lykilatriði. Það verður forvitnilegt að fylgjast með stjórnvöldum í kjölfar ábendinga Samkeppniseftirlitsins. Ætla stjórnvöld að hunsa ábendingar Samkeppniseftirlitsins enn einu sinni? Munum að hluti aðila á dagvörumarkaði þarf ekki að fara eftir samkeppnislögum, sem er auðvitað með öllu óeðlilegt og löngu tímabært að breyta.



13.júl. 2010 - 09:50 Finnur Árnason

Meirihluti þjóðarinnar er sammála um aðild að Evrópusambandinu

Íslenska þjóðin er í meginatriðum sammála í afstöðu sinni til aðildar að Evrópusambandinu. Í nýlegri könnun kom fram að 71% þjóðarinnar er fylgjandi aðild, svo fremi að við höldum yfirráðum yfir auðlindum okkar. Þetta er ákveðin afstaða og á sama hátt skýr skilaboð til stjórnvalda og samninganefndar okkar.
03.maí 2010 - 10:40 Finnur Árnason

Allar þínar gjafir lýsa þér

Ég vona að sólin okkar skíni líka á þá allra reiðustu.  Minni þá á að þeir búa með öðru fólki og geta haft áhrif á líðan þeirra.  Við erum lítið samfélag.  Hvað getum við gert til þess að hafa áhrif á fólkið í kringum okkur?  Láta því líða betur?  Við þurfum að minna okkur á að í gleðinni viljum við gefa gjafir en í reiðinni grýta grjóti. 
11.apr. 2010 - 15:30 Finnur Árnason

Sá yðar sem syndlaus er….

Í þröngu hugarfari hins framlága Íslendings í aprílbyrjun árið 2010 gæti verið hollt að staldra við.  Heimsendir er ekki í nánd, þó svo að út komi skýrsla um efnahagshrunið.  Sumarið er innan seilingar og leðjuslagur vetrarins gæti verið að baki áður en langt um líður.  Ef við viljum það sjálf.

Finnur Árnason

Forstjóri Haga.

Gréta Ingþórsdóttir
Gréta Ingþórsdóttir - 16.5.2012
Lífið er dásamlegt – í minningu barns
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 18.5.2012
Einmana súkkulaðikaka- UPPSKRIFT
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 17.5.2012
Hvað skyldi Guðmundur Andri skrifa núna? Og Illugi?
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 17.5.2012
Hversu svöng erum við í raun?
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Aðsend grein
Aðsend grein - 23.5.2012
Maltölsprósentuvirðing
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 22.5.2012
Rútínurask
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 18.5.2012
Lýðræðislegt ofbeldi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 22.5.2012
Golf í Vestmannaeyjum
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2012
Rússagrýlan
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 22.5.2012
Marx og Lenín í útgerð á Íslandi?
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 16.5.2012
Við getum fækkað umferðarslysum
Fannar Karvel
Fannar Karvel - 22.5.2012
Basic hnébeygja eða hvað...
Gunnar I. Birgisson
Gunnar I. Birgisson - 23.5.2012
Yfirlýsing
Fleiri pressupennar