15. mar. 2010 - 09:30Eiríkur Bergmann

Skussum bjargað – ráðdeildarsömum refsað

Samkvæmt nýlegum fréttum hefur komið í ljós að húsnæðislánið mitt – og annarra lántakanda – hjá Glitni var fært  niður um ríflega helming þegar það var fært yfir í Íslandsbanka.

Í sjálfu sér er ekkert óeðlilegt við það að lánin hafi verið færð niður eftir að höfuðstóllinn hafði rokið upp úr öllu valdi í verðbólgufellbylnum sem gekk yfir við hrunið. Þá varð einfaldlega forsendubrestur sem rétt er að leiðrétta.

Það eina sem er undarlegt er að við, hinir almennu skuldarar, höfum ekki enn fengið nokkurn hlut í niðurfærslunni. Samt eru þetta okkar peningar.  

Samkvæmt öðrum  fréttum sem nú berast innan úr bönkunum hefur niðurfærslan á almennum húsnæðislánum þvert á móti verið notuð til að fella niður skuldir óreiðumanna – fólksins sem tók alltof mikil lán til að kaupa allt of stór hús, bíla, sumarbústaði, vélsleða og glænýtt innbú.

Fyrir þetta eru almennir húsnæðislánaskuldarar látnir greiða. Og nú berast þær fréttir að afgangurinn af afslættinum sem Íslandsbanki fékk á láninu mínu eigi að nota til að færa niður bílalán.

Sjálfum datt mér aldrei hug að taka lán til bílakaupa eða önnur álíka neyslulán. Gat aldrei leyft mér slíkt. Og nú finnst mér eiginlega nóg komið. Er til of mikils mælst að ég – og aðrir almennir skuldarar húsnæðislána – fái kannski einhvern hluta af niðurfærslunni?

Ég sé ekki betur en að ég eigi þessa peninga, eða réttara sagt skuldi aðeins það sem var fært úr Glitni yfir í Íslandsbanka. Semsé helmingi minna heldur en nýi bankinn heldur samt sem áður áfram að rukka mig um. Heitir það ekki annars eitthvað þegar fé er svona freklega hrifsað af fólki? Nánast í skjóli nætur því allt fram að nýlegum fréttaflutningi vissum við ekkert um þetta.

Nú kann einhver að segja að maður verði að vera raunsær. Gott og vel. Í nafni endurreisnar Íslands skal ég sosum taka þátt í að fjármagna allsnægtarlíf skuldakónganna. Enn bara að hluta. Ég skal meira vera verulega rausnarlegur og gefa frá mér helminginn af afslættinum ef yfirvöld samþykkja að færa útbólginn höfuðstól lánsins míns niður um aðeins 25%.

Hinn helminginn af niðurfærslunni á láninu mína geta yfirvöld þá notað til að greiða fyrir skussana. Satt að segja þykir mér það ansi vel boðið.




02.sep. 2010 - 13:16 Eiríkur Bergmann

Trúverðugleikinn fer líka

Haltu vinum þínum nálægt þér en óvinum þó enn nærri, er herbragð sem stjórnmálaforingjum er kennt í bréfaskóla persónustjórnmálanna. Líkast til hafa þau Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon haft þessa amerísku morgunkornspakkaspeki í huga þegar þau véluðu um að fá Ögmund Jónason aftur inn í ríkisstjórnina.
31.ágú. 2010 - 10:23 Eiríkur Bergmann

Kemur tæplega á óvart

Ekki kemur það nú svo óskaplega og mjög á óvart að LÍÚ telji óþarft að festa í stjórnarskrá ákvæði um sameign þjóðarinnar á auðlindum sjávar, eins og fram kemur á forsíðu Fréttablaðsins í dag.
15.júl. 2010 - 08:00 Eiríkur Bergmann

Vandlifað

Mér eru gerðar upp hvatir og langanir [í leiðara Morgunblaðsins] sem ég ekki hef [um Evrópumálin] og svo lagt út af hinni afbökuðu túlkun. Niðurstaðan getur því ekki orðið annað en einhver þvæla út í loftið.
23.jún. 2010 - 13:30 Eiríkur Bergmann

Fótboltastríð

Fótbolti er ekki aðeins dásamlegasta íþrótt í heimi heldur er heimsmeistarakeppnin einnig einhver merkilegasti viðburður veraldar – eiginlega hátindur hnattvæðingarinnar. Hvort sem er í hreysum fátækrahverfanna í Ríó, útslitnum pöbb í Swindon, þorpstorgi í Ghana eða loftræstri glæsivillu í Seoul slá hjörtu mannanna í takt.
15.jún. 2010 - 16:40 Eiríkur Bergmann

Aukatekið orð

Nákvæmlega.

08.jún. 2010 - 14:00 Eiríkur Bergmann

Pönkararnir til valda

Uppákoman á þaki Æsufellsblokkarinnar í fellunum í Breiðholti er einhver sú súrrealískasta sem ég hef séð í stjórnmálum. Og er þó af ansi mörgu að taka. Læt duga að nefna hringdyrafarsann í ráðhúsinu á fyrri hluta síðasta kjörtímabils.
31.maí 2010 - 08:00 Eiríkur Bergmann

Viðskila við veruleikann

Hvað á eiginlega að kalla niðurstöðu borgarstjórnarkosninganna?: Rassskellingu fjórflokksins? Rafstuð niður mænu hefðbundinna stjórnmála? Stjórnmálastéttin hafið fengið að líta rauða spjaldið? Höggbylgja óánægju hafi skollið á værukærum pólitíkusum?
29.maí 2010 - 14:57 Eiríkur Bergmann

Ringlaðir reykvískir kjósendur

Fjórflokkurinn hagar sér eins og hrunið hafi aldrei átt sér stað. Hanna Birna heldur að hún sé drottning Reykjavíkur, Dagur brosir breitt og dreifir rósum, Sóley Tómasdóttir er upptekin við að endurskapa sjálfa sig og Einar Skúlason syndir yfir Nauthólsvíkina á meðan félagarnir góla; þú meinar Einar!
25.maí 2010 - 08:05 Eiríkur Bergmann

Fjöldi háskóla

Við skulum hafa eitt alveg á hreinu strax í upphafi. Háskóli Íslands er eini alvöru háskóli landsins, í merkingunni universitas – það er að segja skóli sem býður upp á allar hefðbundnar námsleiðir á háskólastigi. Ég hef hvergi heyrt nokkurn mótmæla þeirri staðreyndi, enda væri það út í hött. HÍ er vissulega hryggjarstykkið í íslenska háskólakerfinu.
21.maí 2010 - 13:40 Eiríkur Bergmann

Örvænting melamanna

Háskóli Íslands gerir nú örvæntingafulla tilraun til að sölsa undir sig alla háskólakennslu í landinu. Kannski er ályktun félags prófessora í þá veru, sem birtist í Fréttablaðinu í morgun, ætlað að breiða yfir þá staðreynd að Háskóla Íslands hefur mistekist svo hrapalega við að ná því markmiði sínu að verða einn af hundrað bestu háskólum heims.
20.maí 2010 - 11:00 Eiríkur Bergmann

Popparar í pólitík

Ef ekki væri fyrir Besta flokkinn í Reykjavík og þann næst besta í Kópavogi væri yfirstandandi kosningabarátta í aðdraganda sveitastjórnakosninga líkast til einhver sú leiðinlegasta sem háð hefur verið hér á landi um allnokkuð skeið.
17.maí 2010 - 10:09 Eiríkur Bergmann

Vald spillir – líka ráðherrum Vinstri grænna

Acton lávarður sagði eitt sinn að vald spillti og að gerræðisvald gerspillti (e. Power corrupts, absolute power corrupts absolutely). Athyglisvert hefur verið að fylgjast með einstaka ráðherrum ríkisstjórnarinnar engjast sífellt meira um eftir því sem stólaleikurinn harðnar.
14.maí 2010 - 11:06 Eiríkur Bergmann

Aumingjalegur flótti

Flótti Sigurðar Einarssonar undan réttvísinni kristallar þau sundurskil sem orðið hafa hér á landi undanfarin misseri. Auðmennirnir svokölluðu (þeir voru jú aldrei alvöru auðmenn) slitu sig sjálfir frá þjóðinni á sínum tíma með yfirgengilegu óhófslífi sem nú er komið í ljós að var allt saman á kostnað skattgreiðenda – hérlendis og ekki síst í Þýskalandi.
10.maí 2010 - 12:00 Eiríkur Bergmann

Vandi evrusvæðisins

Leiðtogar ríkja Evrópusambandsins hafa verið á stöðugum krísufundum við að reyna að leysa vanda þeirra evruríkja sem verst standa í efnahagskreppunni. Vandi Grikklands hefur verið efst á baugi fjölmiðlaumræðunnar en slæm staða ríkisfjármála á Spáni og í Portúgal veldur Brusselíngum jafnvel enn meiri áhyggjum.
07.maí 2010 - 13:00 Eiríkur Bergmann

Vonbrigði hins frjálslynda manns

Frjálslyndir demókratar náðu ekki þeim árangri sem þeir um tíma væntu í þingkosningunum í Bretlandi í gær. Flokkurinn fór á flug eftir góða frammistöðu Nicks Cleggs í fyrstu leiðtogakappræðunum af þremur. En stjórnmálaskýrendur í Bretlandi segja nú að frjálslynd stefna Nicks og félaga í málefnum innflytjenda hafi á endanum orðið til þess að Bretar treystu flokknum ekki fyrir atkvæði sínu.
06.maí 2010 - 13:06 Eiríkur Bergmann

Íslandshrunið í Eduskuntu

Íslandshrunið er nú viðfangsefni fræðimanna, stjórnmálamanna og fjölmiðlafólks víða um lönd.
Stappar nærri að það teljist sérstakur iðnaður – í það minnsta hefur maður tæpast undan við að svara fyrirspurnum og flytja erindi um ástand mála á Íslandi.
03.maí 2010 - 12:52 Eiríkur Bergmann

Landlæg vantrú

Landlæg vantrú á sérfræði og eiginlega fyrirlitning á sérfræðingum er ein af þeim meinsemdum íslensks samfélags sem skýrt birtist í skýrslu rannsóknanefndar Alþingis. Þegar blaðran byrjaði að blása út var Þjóðhagsstofnun lögð niður.
29.apr. 2010 - 09:00 Eiríkur Bergmann

Klíkuræði aftur á ný?

Hver um annan þveran keppast menn nú við að fordæma prófkjör stjórnmálaflokkanna. Stjórnmálafræðiprófessorinn Svanur Kristjánsson, minn gamli lærifaðir, sagði til að mynda í síðdegisútvarpi Rásar 2 í vikunni að þau væru rót flestra meina stjórnmálanna – sem nú eru vissulega í grafalvarlegri úlfakreppu.
27.apr. 2010 - 09:15 Eiríkur Bergmann

Yfirburðaþjóðin og umsátrið

Háskólarnir á Akureyri, Bifröst og í Reykjavík héldu nú um helgina sameiginlega ráðstefnu um efni rannsóknarskýrslunnar. Erindið sem hér fylgir á eftir byggir á mun ítarlegri grein sem ég mun birta á fræðilegum vettvangi síðar á árinu: Yfirburðaþjóðin og umsátrið – áhrif þjóðernisorðræðunnar á ákvarðanir í íslensku samfélagi.
26.apr. 2010 - 11:10 Eiríkur Bergmann

Kámugar þjóðsvikarahendur

Ég hef í fyrri pistlum rifjað upp eitt og annað úr umræðunum í aðdraganda NATO-aðildarinnar. Styttumálið svokallaða er ekki aðeins ein spaugilegasta hliðin á deilunum í Alþingi í tengslum við aðildina að Atlantshafsbandalaginu heldur sýnir það einnig með táknrænum hætti hvernig arfleið sjálfstæðisbaráttunnar birtist í umræðunum.

Eiríkur Bergmann
Doktor í stjórnmálafræði, dósent og forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst. Eftir hann liggur fjöldi bóka og greina um þjóðfélagsmál, sér í lagi um tengsl Íslands við umheiminn. Hann hefur um árabil ritað reglulega dálka í dagblöð, til að mynda í Helgarpóstinn, DV, Blaðið/24 stundir, Fréttablaðið og breska dagblaðið The Guardian. Sjá nánar á www.eirikur.bifrost.is
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 29.8.2010
Viðbjóðurinn blasir allstaðar við
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 29.8.2010
Opið bréf til Hæstaréttar
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 30.8.2010
Bestu kylfingar Íslands frá upphafi
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 29.8.2010
Móeiður í keppni Samúels
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 31.8.2010
Sjálftökuliðið færist í aukana
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 01.9.2010
Björk litla í Samúel fyrir aldarfjórðungi
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 31.8.2010
Kemur tæplega á óvart
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 30.8.2010
ESB - undanþágur
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 01.9.2010
Er Hæstiréttur bara gúmmístimpill?
Ester Ósk Hilmarsdóttir
Ester Ósk Hilmarsdóttir - 01.9.2010
Kannt þú að vera góður gestur?
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 31.8.2010
Að læra að elska - eða bara elska
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 01.9.2010
Of margir háskólar?
Jón Magnússon
Jón Magnússon - 30.8.2010
Hvað kostar kílóvattstundin?
Björg Magnúsdóttir
Björg Magnúsdóttir - 02.9.2010
DV, þú stöðvar mig ekki!
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir - 30.8.2010
Verjum menntun
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 29.8.2010
Venesúela, Kúba... Ísland?
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 02.9.2010
Trúverðugleikinn fer líka
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit