03. feb. 2010 - 18:00Eiríkur Bergmann

Nýja Ísland – hvernig verður þú?

Ég heyrði í Spegli Ríkisútvarpsins í gærkvöldi að Ágúst Þór Árnason, aðjúnkt í lögum við Háskólann á Akureyri, andmælti mati mínu á breyttri stöðu forsetaembættisins sem ég lýsti hér á Pressunni og í sama útvarpsþætti í fyrrakvöld. Í greiningu minni benti ég á að með synjun á staðfestingu laga í annað sinn hafi forsteinn vakið úr dvala og fest í sessi 26. grein stjórnarskrárinnar sem kallaður hefur verið málskotsréttur  forsetans.

Til viðbótar því hefur forsetinn haldið fram örðum málflutningi á erlendum vettvangi heldur en ríkisstjórnin en lengst af var álitið að forsetinn ætti að halda sig innan þeirrar utanríkisstefnu sem ríkisstjórn landsins markaði. Nú er það breytt.

Lögfræði og stjórnmálafræði eru ólíkar fræðigreinar og hvað svo sem líður hinum lögformlega þætti málsins hefur klárlega orðið sú breyting á stjórnskipan landsins, semsé í stjórnmálalegum skilningi, að forsetinn er nú kominn inn á hið pólitíska svið. Þar með þurfa aðrar greinar ríkisvaldsins, Alþingi og ríkisstjórnin í það minnsta, hér eftir að meta mögulega aðkomu forsetans að málum og jafnvel, eftir atvikum, leita stuðnings hans í umdeildum álitaefnum áður en þau verða lögð fyrir þingið.

Ég skal ekki leggja mat á hina lögfræðilegu greiningu en út frá stjórnmálafræðinni blasir við okkur breytt mynd. Í pistli mínum hér á Pressunni benti ég á að valdahlutföll innan ríkisvaldsins hafa riðlast og að fyrir augum okkar eru að verða töluverðar breytingar á stjórnarháttum landsins.

Nú kann að vera að mönnum hugnist þessar breytingar ágætlega og að ánægja ríki með nýja stöðu forsetaembættisins. Ég ætla ekki að leggja mat á það – en vil gjarnar halda til haga rétti almennings, sjálfrar þjóðarinnar, á að hafa eitthvað um það að segja áður en við festum slíkar breytingar á stjórnskipan landsins í sessi.

Um það mun ég halda erindi á málþingi sem haldið verður um arfleið búsáhaldabyltinguna í Iðnó 12. febrúar næstkomandi. Erindi mitt verður flutt undir heitinu: Hvað varð um stjórnlagaþingið, persónukjörið og allar þjóðaratkvæðagreiðslurnar?

Lýsing fyrirlestrarins er svona:

Í búsáhaldabyltingunni fyrir ári komu fram háværar kröfur um endurskoðun á stjórnskipan landsins. Það átti að skipuleggja þjóðfélagið á nýjan leik, nánast frá grunni. Reisa átti nýtt Íslands á rústum þess sem hrundi með bönkunum. Til að mynda var rætt um stjórnlagaþing, persónukjör og þjóðaratkvæðagreiðslur en smám saman urðu þær hugmyndir að engu, - stjórnmálastéttin snæddi byltingu fólksins hægt og bítandi. Á sama tíma hefur forsetinn tekið sér stöðu fyrir miðju stjórnmálanna, án þess þó að þjóðin hafi fengið tækifæri til að segja skoðun sína á þeim breytingum sem við það hafa orðið á stjórnskipan landsins. Í fyrirlestrinum verður rætt um hvernig nota megi stjórnlagaþing, persónukjör og þjóðaratkvæði til að auka aðkomu almennings að grundvallarákvörðunum um skipulag þjóðfélagsins og framþróun íslensks samfélags.



11.mar. 2010 - 09:30 Eiríkur Bergmann

Nú er okkur alveg sama

Mér er skítsama!

Það ágæta fyrirtæki Hagkaup auglýsir nú af miklum móð danska daga sem verslunin heldur hátíðlega þessi dægrin.

08.mar. 2010 - 08:10 Eiríkur Bergmann

Úlfakreppa stjórnmálanna

Þegar við héldum að stjórnmálin gætu ekki sokkið dýpra mæta fimm fræknu í Silfur Egils og sanna með hnífilyrðum sínum það sem sumir hafa sagt, að hyldýpisgjá sé á milli stjórnmálastéttarinnar og þjóðarinnar.

06.mar. 2010 - 09:00 Eiríkur Bergmann

Innrammaður kjörseðill á vegg

Eins og fleiri Íslendingar er ég svolítið óviss yfir þessari atkvæðagreiðslu um Icesave-lögin sem nú er hafin.

Með því að segja já samþykki ég verri samning heldur Bretar og Hollendingar hafa í millitíðinni boðið. Þannig að það er eiginlega út í hött.

05.mar. 2010 - 08:10 Eiríkur Bergmann

Ljósu lokkarnir heilla

Frelsisflokkur ljóshærða fasistans, Geert Wilders, vann stórsigur í nýliðnum sveitarstjórnarkosningunum í Hollandi. Úrslitin gefa tóninn fyrir þingkosningarnar sem haldnar verða eftir þrjá mánuði, þann 9. júní nk.
Eftir að hafa legið í dvala í svolítinn tíma, eftir endalok seinni heimstyrjaldarinnar, fóru hægriöfgahreyfingar virkilega að láta á sér kræla á nýjan leik á tíunda áratugnum, þegar Frelsisflokkur Jörg Haiders tók við völdum í Austurríki og svokallaðir þjóðarflokkar fóru að sækja fram víða í Evrópu.

03.mar. 2010 - 15:10 Eiríkur Bergmann

Svarti Pétur Breta og Hollendinga

Vel kann að vera að kostnaðurinn sem nú þegar er orðinn vegna tafanna á Icesave-málinu vegi langleiðina upp í kostnaðinn við það samkomulag sem nú er til umræðu.

01.mar. 2010 - 11:40 Eiríkur Bergmann

Afturendi Sjálfstæðisflokksins

Bæjarstjórinn, Gísli S. Einarsson, galt afhroð í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akranesi. Gísli hafði áður verið þingmaður Alþýðuflokks og Samfylkingar. Fyrir fáeinum árum var hann borinn á gullstól inn í flokkinn en í gær var honum skilað aftast í enda listans – semsé í afturenda Sjálfstæðisflokksins.

28.feb. 2010 - 09:00 Eiríkur Bergmann

Frá Sigurlaugi Ingólfssyni: Nýtt Falklandseyjastríð

Dálkinum hefur borist bréf frá Sigurlaugi Ingólfssyni, sagnfræðingi, vegna pistilsins: Nýtt Falklandseyjastríð – bjargvættur eða banabiti Brown? Bréfið er birt hér að neðan með leyfi Sigurlaugs:

25.feb. 2010 - 12:01 Eiríkur Bergmann

Nýtt Falklandseyjastríð – bjargvættur eða banabiti Brown?

Nýtt Falklandseyjastríð á milli Bretlands og Argentínu gæti verið í uppsiglingu. Utanríkissáðherra Argentínu, Jorge Tiana, fór í gærkvöldi fram á það við Ban Ki-moon, aðalritara Sameinuðu Þjóðanna, að Falklandseyjum verði loks skilað til Argentínu. Fyrra stríðið sem hófst árið 1982 hófst einmitt með diplómatískri deilu eins og þeirri sem nú er skollin á.

23.feb. 2010 - 12:40 Eiríkur Bergmann

Bíðum bara róleg – Icesave fer ekki neitt

Staðan sem komin er upp í Icesave-málinu er vissulega snúin. Við vitum auðvitað að það gengur ekki til lengdar að vera upp á kant við þjóðirnar í kringum okkur. Einhvern tíman verður að ljúka málinu. En vendingarnar undanfarið hafa hins vegar snúið stöðunni Íslandi í vil. Því er engin ástæða til að hlaupa á eftir óskum Breta og Hollendinga nú.
22.feb. 2010 - 07:50 Eiríkur Bergmann

Hvers vegna trúir Brynjar ekki orðum Sigmundar Davíðs?

Ekki veit ég hvaðan Brynjar Níelsson fær þá hugmynd að ég vilji láta rannsaka hugarfylgsni eða skoðanir Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar vegna óskar hans um að reka Önnu Sibert úr peningastefnunefnd Seðlabankans. Ég hef hvergi lýst þeirri skoðun –  hvað þá að ég hafi viljað láta rannsaka hegðun Sigmundar eins og hér er haldið fram. Slíkt væri auðvitað út í hött.

21.feb. 2010 - 15:00 Eiríkur Bergmann

Hvað varð um stjórnlagaþingið, persónukjörið og allar þjóðaratkvæðagreiðslurnar?

Fyrir um ári, þegar byltingunni með krúttlega nafnið var lokið og pottarnir hljóðnaðir, sátu eftir fáein fögur fyrirheit sem nánast allir sem tóku til máls í þjóðfélaginu tóku undir. Við áttum að fá stjórnlagaþing þar sem stjórnarskráin yrði loksins endurskoðuð, persónukjör átti  að viðhafa í komandi kosningum og þjóðaratkvæðagreiðslur áttu nánast að verða hluti af daglegu lífi fólksins í landinu.
19.feb. 2010 - 11:57 Eiríkur Bergmann

Kæri Gunnlaugsson

Ágætur formaður Framsóknarflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, heldur áfram að veitast að fræðikonunni Ann Sibert, sem auk þess að vera prófessor við Birkbek háskóla í London, situr í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands. Hann vill láta reka hana vegna umfjöllunar um íslensk efnahagsmál.

17.feb. 2010 - 08:01 Eiríkur Bergmann

Skoðanakúgun í íslenskum stjórnmálum

Minn ágæti kunningi, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, fellur í þann grautfúla pytt að vilja láta reka Ann Sibert, prófessor í hagfræði við Birkbeck-háskóla í London, úr peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands, fyrir það eitt að lýsa áliti sínu á stöðu efnahagsmála á Íslandi á vefriti hagfræðinga, Vox.org. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur að hluta tekið undir gagnrýni Sigmundar og lýst því yfir að efni greinar fræðikonunnar væri óheppilegt.

15.feb. 2010 - 09:20 Eiríkur Bergmann

Góða ferð – ekki veitir af

Ný samninganefnd hefur verið skipuð í Icesave-málinu. Að sögn fjölmiðla heldur hún í dag til fundar við bresk og hollensk stjórnvöld.

12.feb. 2010 - 11:00 Eiríkur Bergmann

Sprengjan í sokkunum mínum

Tollgæslan að störfum

Hann var óneitanlega svolítið kindarlegur í framan, tollvörðurinn á Keflavíkurflugvelli, þegar hann byrjaði að raða sokkunum mínum og nærfötum aftur ofan í töskuna mína. Í eitt augnablik datt mér í hug, af einskærum kvikyndisskap, að láta hann bara um að endurraða í töskuna mína, en fékk það svo ekki af mér og bauðst til að sjá um það sjálfur. Hann virtist feginn.

09.feb. 2010 - 14:00 Eiríkur Bergmann

Hvað svo sem þú gerir – ekki vera berfættur í nálægð drottningar

Í gegnum tíðina hafa ýmis furðuleg lög verið sett á Íslandi, svo sem bjórbannið fræga og annað smálegt. Hér í Bretlandi, þar sem ég er staddur núna, er einnig að finna fjölmörg stórfurðuleg lög sem Daily mail segir að séu enn í gildi. Grípum niður í nokkur:
07.feb. 2010 - 20:00 Eiríkur Bergmann

Af hverju hata norrænir menn konur?

Úr kvikmyndinni Karlar sem hata konur.

Á náttborðinu: Þúsaldarþríleikurinn og Konur Steinars Braga.

Eins og svo margir aðrir jarðarbúar hef ég legið yfir þúsaldarþríleik hins sænska Stiegs Larssons. Fyrstu tvær bækurnar las ég á íslensku en þá þriðju á ensku. Eftir á að hyggja sé eftir að hafa ekki lesið þær á sænsku. Meginvandinn við þessar bækur er að sagan verður ansi fljótt ávanabindandi, svo maður heldur lestrinum stöðugt áfram hvað svo sem gerist í kringum mann. Bálkurinn er mikill vöxtum, líkast til um fimmtán hundruð síður. Það felur því í sér töluverða tímaskuldbindingu að hefja lesturinn.

01.feb. 2010 - 12:05 Eiríkur Bergmann

Valdahlutföll riðlast - forsetinn ræður för

Þann 5. janúar sl. breyttist stjórnskipan landsins, þegar forsetinn neitaði að skrifa undir lög frá Alþingi í annað sinn og festi þar með í sessi þá nýju skipan að forsetinn væri nú kominn í pólitík. Fráleitt er að halda því fram að með synjun sinni hafi hann í einhvers konar afstöðuleysi aðeins verið að færa málið til þjóðarinnar, því ef svo væri ættu ansi mörg önnur mál að fara þá leið – sem sami forseti hefur semsé kosið að veita ekki inn í allsherjaratkvæðagreiðslu. Með því að synja Icesave-lögunum staðfestingar tók forsetinn klárlega afstöðu gegn ríkisstjórninni í málinu. Réttast væri fyrir alla hlutaðeigendur að viðurkenna það. Óþarfi að deila um keisarans skegg.
31.jan. 2010 - 11:00 Eiríkur Bergmann

Sannkallað helvíti

Við höldum áfram að grípa niður i bunkann á náttborðinu. Ein áhrifamesta og um leið skemmtilegasta bókin sem orðið hefur á vegi mínum undanfarnar vikur er Þjófaborg eftir bandaríska höfundinn David Benioff. David er af rússneskum ættum og hér segir hann frá ævintýralegu verkefni sem afi hans, Lev Beníov,  þurfti að leysa í Leníngrad, nú Pétursborg, í Rússlandi þegar þýski herinn sat um borgina í seinni heimstyrjöldinni.


Eiríkur Bergmann
Doktor í stjórnmálafræði, dósent og forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst. Eftir hann liggur fjöldi bóka og greina um þjóðfélagsmál, sér í lagi um tengsl Íslands við umheiminn. Hann hefur um árabil ritað reglulega dálka í dagblöð, til að mynda í Helgarpóstinn, DV, Blaðið/24 stundir, Fréttablaðið og breska dagblaðið The Guardian. Sjá nánar á www.eirikur.bifrost.is
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 07.3.2010
Þegar mér stóð ekki
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 09.3.2010
Skvísukosningin hafin fyrir Miss febrúar!
Marta María
Marta María - 10.3.2010
Finnst ykkur þetta í lagi?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
,,Áttum bara helvítis helling af peningum"
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 09.3.2010
Steingrímur afhjúpar bjánaskap
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir - 09.3.2010
Þegar á reynir er ástin ekki sönn
Teitur Guðmundsson
Teitur Guðmundsson - 08.3.2010
Eitruð leikföng!
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 09.3.2010
,,Hot sex pills"
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 09.3.2010
Böðlar kerfisins
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 07.3.2010
Strákar, engan svona aumingjaskap!
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 07.3.2010
Ríkisstjórn án þjóðar
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 10.3.2010
Hagsmunaárekstur eða vanhæfni?
Magnús Geir Eyjólfsson
Magnús Geir Eyjólfsson - 08.3.2010
Ginningarfífl flokkanna
Gylfi Arnbjörnsson
Gylfi Arnbjörnsson - 09.3.2010
Getum við treyst brennuvarginum fyrir kyndlinum?
Ágústa Johnson
Ágústa Johnson - 09.3.2010
Ert þú „Allt eða ekkert” týpan?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 08.3.2010
Stjórnarkreppa
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Opin spurning til nýju bankanna
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
Rifið í lóðin
Róbert Trausti Árnason
Róbert Trausti Árnason - 08.3.2010
Hef ég misst af einhverju?
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit