07. feb. 2010 - 20:00Eiríkur Bergmann

Af hverju hata norrænir menn konur?

Úr kvikmyndinni Karlar sem hata konur.

Úr kvikmyndinni Karlar sem hata konur.

Á náttborðinu: Þúsaldarþríleikurinn og Konur Steinars Braga.

Eins og svo margir aðrir jarðarbúar hef ég legið yfir þúsaldarþríleik hins sænska Stiegs Larssons. Fyrstu tvær bækurnar las ég á íslensku en þá þriðju á ensku. Eftir á að hyggja sé eftir að hafa ekki lesið þær á sænsku. Meginvandinn við þessar bækur er að sagan verður ansi fljótt ávanabindandi, svo maður heldur lestrinum stöðugt áfram hvað svo sem gerist í kringum mann. Bálkurinn er mikill vöxtum, líkast til um fimmtán hundruð síður. Það felur því í sér töluverða tímaskuldbindingu að hefja lesturinn.

Tímans vegna er ég eiginlega dauðfeginn að bækurnar verða ekki fleiri en deilur standa enn yfir á milli fjölskyldu Stíegs og eftirlifandi konu hans, Evu Gabrielsson, sem lumar víst á hálfkláruðu handriti að fjórðu bókinni. Ég vona að hún verði ekki gefin út.

Kollegi Stiegs, Anders Hellberg, dregur raunar í efa að Stieg hafi skrifað bækurnar sjálfur því hann hafi verið svo slakur penni og gerir að því skóna að bækurnar séu líkast til skrifaðar af Evu. Því vofir yfir sú ógn að bókunum fjölgi með tilheyrandi tímatapi við lesturinn en ómögulegt væri að láta framhaldið eiga sig.

Að vísu verður að segjast eins og er að stíllinn á þessum bókum er nú ekkert sérstakur, jafnvel slakur ef út í það er farið. Það er ekki stíllinn sem límir mann við lesturinn heldur eru það persónurnar og sagan sjálf sem heillar. Kvenpersónan, Lisbeth Salander, er líkast til einhver magnaðasta sögupersóna sem skrifuð hefur verið í seinni tíð. Það er hún sem dregur menn um allan heim að þessum bókum.

Undirliggjandi þema sögunnar er einhvers konar djúpstætt kvenhatur sumra norrænna karlmanna. Stíeg (eða Evu) tekst vel að koma því upp á yfirborðið.

Í því samhengi má kannski nefna hér aðra bók eftir norrænan höfund um svipað þema sem ég datt nánast óvart inn í núna upp úr áramótum. Það er bókin Konur eftir Steinar Braga sem kom út á síðustu bókavertíð. Ef að þúsaldarþríleikurinn telst til spennusagna þá er saga Steinars hreinræktuð hrollvekja. Ungri konu er haldið fanginni í einum turninum við Skúlagötu þar sem hroðaleg voðaverk eru framin.

Hvað er eiginlega málið með norræna menn? Er kvenhatur í alvörunni svona landlægt í þessum heimshluta? Þessar spurningar verða ansi áleitnar við lestur þessara bóka. Raunar fannst mér saga Steinars svo hroðalega að í nálega heilan mánuð þorði ég ekki að lesa síðasta hluta bókarinnar, af ótta við að sagan myndi enda illa.



15.mar. 2010 - 09:30 Eiríkur Bergmann

Skussum bjargað – ráðdeildarsömum refsað

Samkvæmt nýlegum fréttum hefur komið í ljós að húsnæðislánið mitt – og annarra lántakanda – hjá Glitni var fært  niður um ríflega helming þegar það var fært yfir í Íslandsbanka.

12.mar. 2010 - 13:40 Eiríkur Bergmann

Lýsið yfir sjálfstæði!

Bandaríkin hafa um langt árabil fjármagnað hernað Ísraela á hendur Palestínumönnum. Greiða yfir þrjá milljarða bandaríkjadala á ári til stjórnarinnar í Tel Aviv – féð er að hluta til notað til að sölsa sífellt stærra landsvæði í Palestínu undir byggðir Gyðinga. Svo er aðskilnaðarmúrinn notaður til að halda palestínumönnum frá eigin landi.

11.mar. 2010 - 09:30 Eiríkur Bergmann

Nú er okkur alveg sama

Mér er skítsama!

Það ágæta fyrirtæki Hagkaup auglýsir nú af miklum móð danska daga sem verslunin heldur hátíðlega þessi dægrin.

08.mar. 2010 - 08:10 Eiríkur Bergmann

Úlfakreppa stjórnmálanna

Þegar við héldum að stjórnmálin gætu ekki sokkið dýpra mæta fimm fræknu í Silfur Egils og sanna með hnífilyrðum sínum það sem sumir hafa sagt, að hyldýpisgjá sé á milli stjórnmálastéttarinnar og þjóðarinnar.

06.mar. 2010 - 09:00 Eiríkur Bergmann

Innrammaður kjörseðill á vegg

Eins og fleiri Íslendingar er ég svolítið óviss yfir þessari atkvæðagreiðslu um Icesave-lögin sem nú er hafin.

Með því að segja já samþykki ég verri samning heldur Bretar og Hollendingar hafa í millitíðinni boðið. Þannig að það er eiginlega út í hött.

05.mar. 2010 - 08:10 Eiríkur Bergmann

Ljósu lokkarnir heilla

Frelsisflokkur ljóshærða fasistans, Geert Wilders, vann stórsigur í nýliðnum sveitarstjórnarkosningunum í Hollandi. Úrslitin gefa tóninn fyrir þingkosningarnar sem haldnar verða eftir þrjá mánuði, þann 9. júní nk.
Eftir að hafa legið í dvala í svolítinn tíma, eftir endalok seinni heimstyrjaldarinnar, fóru hægriöfgahreyfingar virkilega að láta á sér kræla á nýjan leik á tíunda áratugnum, þegar Frelsisflokkur Jörg Haiders tók við völdum í Austurríki og svokallaðir þjóðarflokkar fóru að sækja fram víða í Evrópu.

03.mar. 2010 - 15:10 Eiríkur Bergmann

Svarti Pétur Breta og Hollendinga

Vel kann að vera að kostnaðurinn sem nú þegar er orðinn vegna tafanna á Icesave-málinu vegi langleiðina upp í kostnaðinn við það samkomulag sem nú er til umræðu.

01.mar. 2010 - 11:40 Eiríkur Bergmann

Afturendi Sjálfstæðisflokksins

Bæjarstjórinn, Gísli S. Einarsson, galt afhroð í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akranesi. Gísli hafði áður verið þingmaður Alþýðuflokks og Samfylkingar. Fyrir fáeinum árum var hann borinn á gullstól inn í flokkinn en í gær var honum skilað aftast í enda listans – semsé í afturenda Sjálfstæðisflokksins.

28.feb. 2010 - 09:00 Eiríkur Bergmann

Frá Sigurlaugi Ingólfssyni: Nýtt Falklandseyjastríð

Dálkinum hefur borist bréf frá Sigurlaugi Ingólfssyni, sagnfræðingi, vegna pistilsins: Nýtt Falklandseyjastríð – bjargvættur eða banabiti Brown? Bréfið er birt hér að neðan með leyfi Sigurlaugs:

25.feb. 2010 - 12:01 Eiríkur Bergmann

Nýtt Falklandseyjastríð – bjargvættur eða banabiti Brown?

Nýtt Falklandseyjastríð á milli Bretlands og Argentínu gæti verið í uppsiglingu. Utanríkissáðherra Argentínu, Jorge Tiana, fór í gærkvöldi fram á það við Ban Ki-moon, aðalritara Sameinuðu Þjóðanna, að Falklandseyjum verði loks skilað til Argentínu. Fyrra stríðið sem hófst árið 1982 hófst einmitt með diplómatískri deilu eins og þeirri sem nú er skollin á.

23.feb. 2010 - 12:40 Eiríkur Bergmann

Bíðum bara róleg – Icesave fer ekki neitt

Staðan sem komin er upp í Icesave-málinu er vissulega snúin. Við vitum auðvitað að það gengur ekki til lengdar að vera upp á kant við þjóðirnar í kringum okkur. Einhvern tíman verður að ljúka málinu. En vendingarnar undanfarið hafa hins vegar snúið stöðunni Íslandi í vil. Því er engin ástæða til að hlaupa á eftir óskum Breta og Hollendinga nú.
22.feb. 2010 - 07:50 Eiríkur Bergmann

Hvers vegna trúir Brynjar ekki orðum Sigmundar Davíðs?

Ekki veit ég hvaðan Brynjar Níelsson fær þá hugmynd að ég vilji láta rannsaka hugarfylgsni eða skoðanir Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar vegna óskar hans um að reka Önnu Sibert úr peningastefnunefnd Seðlabankans. Ég hef hvergi lýst þeirri skoðun –  hvað þá að ég hafi viljað láta rannsaka hegðun Sigmundar eins og hér er haldið fram. Slíkt væri auðvitað út í hött.

21.feb. 2010 - 15:00 Eiríkur Bergmann

Hvað varð um stjórnlagaþingið, persónukjörið og allar þjóðaratkvæðagreiðslurnar?

Fyrir um ári, þegar byltingunni með krúttlega nafnið var lokið og pottarnir hljóðnaðir, sátu eftir fáein fögur fyrirheit sem nánast allir sem tóku til máls í þjóðfélaginu tóku undir. Við áttum að fá stjórnlagaþing þar sem stjórnarskráin yrði loksins endurskoðuð, persónukjör átti  að viðhafa í komandi kosningum og þjóðaratkvæðagreiðslur áttu nánast að verða hluti af daglegu lífi fólksins í landinu.
19.feb. 2010 - 11:57 Eiríkur Bergmann

Kæri Gunnlaugsson

Ágætur formaður Framsóknarflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, heldur áfram að veitast að fræðikonunni Ann Sibert, sem auk þess að vera prófessor við Birkbek háskóla í London, situr í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands. Hann vill láta reka hana vegna umfjöllunar um íslensk efnahagsmál.

17.feb. 2010 - 08:01 Eiríkur Bergmann

Skoðanakúgun í íslenskum stjórnmálum

Minn ágæti kunningi, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, fellur í þann grautfúla pytt að vilja láta reka Ann Sibert, prófessor í hagfræði við Birkbeck-háskóla í London, úr peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands, fyrir það eitt að lýsa áliti sínu á stöðu efnahagsmála á Íslandi á vefriti hagfræðinga, Vox.org. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur að hluta tekið undir gagnrýni Sigmundar og lýst því yfir að efni greinar fræðikonunnar væri óheppilegt.

15.feb. 2010 - 09:20 Eiríkur Bergmann

Góða ferð – ekki veitir af

Ný samninganefnd hefur verið skipuð í Icesave-málinu. Að sögn fjölmiðla heldur hún í dag til fundar við bresk og hollensk stjórnvöld.

12.feb. 2010 - 11:00 Eiríkur Bergmann

Sprengjan í sokkunum mínum

Tollgæslan að störfum

Hann var óneitanlega svolítið kindarlegur í framan, tollvörðurinn á Keflavíkurflugvelli, þegar hann byrjaði að raða sokkunum mínum og nærfötum aftur ofan í töskuna mína. Í eitt augnablik datt mér í hug, af einskærum kvikyndisskap, að láta hann bara um að endurraða í töskuna mína, en fékk það svo ekki af mér og bauðst til að sjá um það sjálfur. Hann virtist feginn.

09.feb. 2010 - 14:00 Eiríkur Bergmann

Hvað svo sem þú gerir – ekki vera berfættur í nálægð drottningar

Í gegnum tíðina hafa ýmis furðuleg lög verið sett á Íslandi, svo sem bjórbannið fræga og annað smálegt. Hér í Bretlandi, þar sem ég er staddur núna, er einnig að finna fjölmörg stórfurðuleg lög sem Daily mail segir að séu enn í gildi. Grípum niður í nokkur:
03.feb. 2010 - 18:00 Eiríkur Bergmann

Nýja Ísland – hvernig verður þú?

Ég heyrði í Spegli Ríkisútvarpsins í gærkvöldi að Ágúst Þór Árnason, aðjúnkt í lögum við Háskólann á Akureyri, andmælti mati mínu á breyttri stöðu forsetaembættisins sem ég lýsti hér á Pressunni og í sama útvarpsþætti í fyrrakvöld. Í greiningu minni benti ég á að með synjun á staðfestingu laga í annað sinn hafi forsteinn vakið úr dvala og fest í sessi 26. grein stjórnarskrárinnar sem kallaður hefur verið málskotsréttur  forsetans.


Eiríkur Bergmann
Doktor í stjórnmálafræði, dósent og forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst. Eftir hann liggur fjöldi bóka og greina um þjóðfélagsmál, sér í lagi um tengsl Íslands við umheiminn. Hann hefur um árabil ritað reglulega dálka í dagblöð, til að mynda í Helgarpóstinn, DV, Blaðið/24 stundir, Fréttablaðið og breska dagblaðið The Guardian. Sjá nánar á www.eirikur.bifrost.is
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 13.3.2010
Davíðssálmur númer 1
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 12.3.2010
Heit á Hótel Borg - Mynd vikunnar!
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 13.3.2010
Enn og aftur bullar Gylfi
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 15.3.2010
Skussum bjargað – ráðdeildarsömum refsað
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 14.3.2010
Tuttugu þúsund verða að tvöhundruð þúsund
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 15.3.2010
,,Þeir sem þola mig ekki verða svekktir"
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 11.3.2010
Díva mánaðarins - BrianX.com
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Opin spurning til nýju bankanna
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 10.3.2010
Hagsmunaárekstur eða vanhæfni?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Hvar eru afskriftirnar? - hvar er rannsóknin?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Stoppaði ríkisstjórnarfund fyrir Spaugstofuna
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Katrín Brynja Hermannsdóttir - 12.3.2010
Útbíuð í sýklum?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 14.3.2010
Mikilvægasta málið
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 12.3.2010
Ákvörðun forsetans breytti stöðunni
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 12.3.2010
Hvað kosta íslenskar konur?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 11.3.2010
VBS fallinn ári eftir ríkisstyrk
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 15.3.2010
Skvísuvaktin - Elín Kristjáns
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit