04. nóv. 2011 - 19:00Bubbi Morthens
Undirheimar
Jakob Frímann Magnússon fékk bágt fyrir að tala um að um áramótin gæti fólk frá Rúmeníu og Búlgaríu komið hingað til lands og í kjölfarið myndu jafnvel glæpamenn fylgja með. Er það útlendingahatur að tala þannig? Nei alls ekki, hann er bara að lýsa yfir áhyggjum sínum.
Eins og hefur sýnt sig í öllum samfélögum þá verða alltaf til glæpamenn. Undirheimar Íslands eru fullir af íslenskum glæpamönnum, en veist þú lesandi góður að fíkniefnamarkaði Íslands er stjórnað af Litháum, Pólverjum og Rússum. Þetta hef ég eftir háttsettum manni í undirheimum Reykjavíkur.
Hann er vinur minn frá því gamla daga Ég ákvað að hafa samband við hann og spyrja hreint út hvernig staðan væri á þessum markaði hér á landi. Ég hef enga ástæðu til þess að rengja hann. Hann fullyrðir að ef glæpamenn frá Rúmeníu komast inn á markaðinn hér á landi, þá fyrst geta menn farið að tala um helvíti.
Þetta eru hans orð. Íslenskir glæpamenn eru logandi hræddir. Ef þeir eru hræddir, hvað þá um okkur hin sem teljast til hins almenna borgara?! Eigum við ekki að óttast? Jú, sagði hann og bætti við: Þið vitið ekkert hvað bíður ykkar, en ég veit það, lýsti hann yfir.
Hann sagði einnig að vinir hans í Evrópu hafi öfundað okkur að hér hafi ekki verið erlendar glæpaklíkur. Ég kvaddi hann og hann kallaði á eftir mér: Hvað ætlar þú að gera með þetta? Ég svaraði: Ég ætla skrifa um þetta á Pressunni.
Hvernig stendur á því að hér er ekki vegabréfseftirlit, þannig við getum séð hvort viðkomandi er á sakaská eða ekki? Jakob Frímann hefur búið erlendis, hann er víðsýnn maður og hann er síðasti maðurinn sem ég þekki til að vera með fordóma út í fólk af erlendu bergi. En staðreyndin er sú að menn sögðu á sínum tíma að Litháar myndu koma inn á undirheimamarkaðinn. Þá sögðu menn: Þetta eru fordómar. Það gerðist, en auðvitað er meirihluti allra manna af erlendu bergi sómafólk.
En það er staðreynd að Pólverjar frömdu vopnað rán hér um daginn ef ég kalla þá Pólverja og segi þá glæpamenn, eru það þá fordómar?
Þessi vinur minn sem ég vitna í hér að ofan, hefur lifað og starfað í undirheimi, Reykjavíkur í meira en tvo áratugi, ef hann segir þetta vera svona, þá er það svona.
Ríkisstjórn Íslands sker niður og sveltir löggæslu eins og enginn sé morgundagurinn. Fordómar út í útlendinga? Nei ég er ekki með fordóma. Mamma var dönsk. Þannig að ég er hálfur Dani. Pabbi var hálf norskur þannig að ég er einn fjórði norskur og svo má finna Skota, Rússa og Spánverja í blóði mínu.
Nafn þessa vinar míns get ég ekki nefnt, skiljanlega.
16.maí 2012 - 14:11
Bubbi Morthens
Hvernig má það vera að endalaust er verið að reyna að gera eignarhald á 365 tortryggilegt?
12.maí 2012 - 07:00
Bubbi Morthens
Hversu sterk getur konan verið? Hversu mikinn sársauka getur hún þolað? Hversu falleg getur hún verið, uppljómuð í mesta undri lífsins, fæðingunni sjálfri?
26.apr. 2012 - 08:40
Bubbi Morthens
Sumarið er tíminn minn og verður alltaf sá tími sem ég elska hvað mest.
10.apr. 2012 - 18:20
Bubbi Morthens
Ólafur Ragnar lagði nýjan tón inn í þjóðmálin. Pólitískur forseti? Já, kannski en fyrst og fremst maður sem þorði þegar aðrir skriðu í felur.
08.apr. 2012 - 11:21
Bubbi Morthens
Er gaman að vera edrú?, er spurning sem ég fæ oft! Mér þótti gaman í byrjun að vera dópaður, þangað til einn daginn það hætti að vera gaman. Þá tók við langt tímabil þar sem kvöl og pína réði ríkjum.
27.mar. 2012 - 18:00
Bubbi Morthens
"Hvað gerir þú á þínu heimili?" Spurði vinur minn um daginn.
20.mar. 2012 - 20:00
Bubbi Morthens
Sumir menn eru þannig að maður getur ekki annað en dáðst af þeim og borið fyrir þeim virðingu. Þetta eru menn sem yfirstíga þröskulda og láta drauma sína rætast.
15.mar. 2012 - 20:00
Bubbi Morthens
Ég spila mikið í jarðarförum. Undanfarin tvö ár hef ég spilað í alltof mörgum jarðarförum þar sem fólk hefur tekið líf sitt þar sem það sá ekki hvernig það gæti bjargað sér út úr fjárhagsvandræðum eftir hrun. Það má ekki tala um þetta.
13.mar. 2012 - 15:00
Bubbi Morthens
Þá er það byrjað sem varað var við í upphafi þegar gjaldeyrishöftin voru sett á! Það yrði hringlað með þau fram og tilbaka og traust manna á Íslandi fer ekki bara þverrandi, það er að hverfa.
09.mar. 2012 - 16:00
Bubbi Morthens
Landsdómsmálið "súmmerar" ákveðna hluti upp. Þeir sem þar hafa komið í vitnastólinn eru blindir og það virðist vera algjör skortur á gagnrýni, á eigin gjörðir og afneitun á svo háu stigi að þetta er líkt og hjá illa förnum drykkjumanni sem neitar að horfast í augu við sjálfan sig.
01.mar. 2012 - 14:00
Bubbi Morthens
Nú eru menn komnir á svartan lista fyrir það að tala um konur. Margir hverjir sér til minnkunar en það gera konur líka. Þær tala líka illa um karlmenn sem tala illa um konur. Karlmenn tala líka illa um menn. Allir upp með svartan lista. Konur sem hata konur, konur sem hata menn, menn sem hata menn, menn sem hata konur!!!
26.feb. 2012 - 08:00
Bubbi Morthens
Ég hef verið við upptökur undanfarið að taka upp lög fyrir plötu sem kemur út núna í vor. Platan mun heita „Þorpið“ og lögin á plötunni mörg hver fjalla að einhverju leiti um horfinn tíma og þá staðreynd að sum þorp eru að hverfa. Tónlistarstíllinn er afturhvarf í rótina þar sem þjóðlagahefðin svífur yfir vötnum. Sumir myndu jafnvel segja „Kántrý“ en þá myndi ég svara humm, kannski rótar kántrý alveg aftur í Woody Guthre. En þetta er smá bland í poka.
16.feb. 2012 - 15:00
Bubbi Morthens
Var að lesa á netinu að Landsbankinn væri að selja Iceland verslanirnar fyrir þrjú hundruð milljarða – já þrjú hundruð milljarða! Það er fínn peningur til að stoppa upp í Icesave gat þjóðarinnar. Ég held það sé full ástæða til að óska þeim Pálma Haraldssyni og Jóni Ásgeiri til hamingju með að hafa fært þjóðinni þessar verslanir. Ef þeirra hefði ekki notið við, værum við í skelfilegum Icesave vandræðum. Sennilega mun þetta mál leysa það í eitt skiptið fyrir öll.
28.jan. 2012 - 12:00
Bubbi Morthens
Á alþingi (nú skrifað með litlum staf) ríkir andrúmsloft svika, ótryggðar og ótta, litað af valdasýki í bland með réttlætingu um að flokkurinn sé að bjarga landinu þar sem fólk er brennimerkt sem er ekki höfðingjum ríkisstjórnarinnar þóknanlegt. Það er rekið með skömm úr embætti. Viðkomandi brottrekstrar ráðherra fylgja vanalega falleg orð um viðkomandi þingmann og dugnað hans.
26.jan. 2012 - 22:30
Bubbi Morthens
Laxveiði er dásamleg íþrótt og lífstíll. Hún hefur verið stunduð hér á landi líklega frá því um 1860 þegar erlendir veiðimenn komu hingað upp úr miðri nítjándu öldinni og kenndu landanum sannarlega að veiða á flugu. Allskonar kreddur og tiktúrar tilheyra þessu sporti sem og sérviska og þannig á það að vera.
23.jan. 2012 - 11:00
Bubbi Morthens
Hvernig getur það verið að þegar um 40 prósent íslenskra heimila eru með neikvæða eignastöðu sem þýðir um það bil að 60 þúsund fjölskyldur eru í verulegum vandræðum og þær skulda meira en þær eiga - þá hrópar Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. og berja sér á brjósti og segja:
Við höfum reddað fólkinu í landinu með 110 prósent leiðinni!
18.jan. 2012 - 10:15
Bubbi Morthens
Útvarp, sjónvarp og dagblöð. Allir fjölmiðlar fjölluðu gagnrýnislaust um útrásina og dásömuðu fyrir hrun. Eftir hrun kom upp umræða um að fjölmiðlar myndu nú bæta sig og rýna ofan í hvernig þeir hefðu brugðist fyrir hrun. Nýtt Ísland – nýir fjölmiðlar. Allir ætluðu að taka sig á! Þrátt fyrir það hefur ekkert gerst og ekkert breyst, ekki einu sinni lítill hósti til marks um að eitthvað sé að lagast. Fjölmiðlar forðast að gagnrýna sjálfa sig og svo þekkja jú allir alla. Öll umræða hefur nánast verið á einn veg.
29.des. 2011 - 14:00
Bubbi Morthens
Nýtt ár með væntingum er að renna upp með von í hjarta okkar.
27.des. 2011 - 12:00
Bubbi Morthens
Heilmildamyndin „Gargandi snilld“ er dásamlegur vitnisburður um ofmat Íslendinga á sjálfum sér dagana fyrir hrun. Tónlistin okkar er svo stórkostleg vegna þess að við erum náttúran, vegna Eddukvæðanna, vegna þess við erum svo fámenn.
Íslensk tónlist á ekki sinn líkan úti í heimi voru skilaboðin. Á sama tíma var fjármálaheimurinn að þylja sína möntru.
Við erum sjení vegna þess að við hugsum eins og víkingar, þess vegna erum við svona stórkostleg.
24.des. 2011 - 12:00
Bubbi Morthens
Mikið óska ég þess lesandi góður að allt sem þú takir þér fyrir hendur muni ganga upp og að allir þínir draumar rætist.
20.des. 2011 - 16:00
Bubbi Morthens
Jólin eru hátíð barnanna, hátíð fjölskyldunnar þar sem við sameinumst í kærleika. Borðum saman og hlæjum og tökum þátt í gleði barnanna og því er það þyngra en tárum tekur að vita um fólk sem notar áfengi á aðfangadag þannig að börnin sjái til.
12.des. 2011 - 20:30
Bubbi Morthens
Mikið lifandi skelfing getur sumt fólk verið stórt. Í raun birtist það manni sem fjall.
09.des. 2011 - 20:00
Bubbi Morthens
Dúkkuleikir voru ekki mín sterkasta hlið en nú er ég hinsvegar orðinn slyngur í því að láta Barbí tala og ganga. Dætur mínar eiga töluverðan slatta af hárfögrum leggjalöngum gyðjum. Dúkkuleikir okkar snúast um kaffihúsaferðir. Þegar dömurnar fara á kaffihús eru litlu börnin alltaf tekin með. Já, það eru nefnilega líka til dúkkur sem eru með lítið barn í maganum eða þá að litla barnið er orðið 3-4 ára. Sem sagt allir fara á kaffihús. Dögun París sem er að verða 3 ára segir með ekta dömu hreim: „Einn kaffi latte, takk fyrir“, og sú eldri hún Isabella biður um það sama með frönskum hreim sen hún vill köku með og mjólk fyrir litla barnið.
06.des. 2011 - 15:00
Bubbi Morthens
Ég kynntist honum árið 1978.
05.des. 2011 - 21:00
Bubbi Morthens
365 miðlar bjóða upp á frábæra skemmtun þessa dagana. Heimsmeistaramót kvenna í handbolta. Ég er alger sökker fyrir handbolta og nú vill svo til að ég er umkringdur stelpum á mínu heimili og hvílíkar fyrirmyndir sem þessar handboltastelpur eru.
02.des. 2011 - 14:30
Bubbi Morthens
„Hvað gengur á hér?“ sagði mamma stundum þegar við bræðurnir vorum komnir yfir strikið!
30.nóv. 2011 - 14:00
Bubbi Morthens
Hvað er slæmt við það að börnin okkar fari með bænir? Bænahald skerpir hugann og kallar fram það góða í hjarta okkar. Það er fólk sem trúir ekki, fínt mál. Það eru til önnur trúarbrögð en kristni og auðvitað á að sýna umburðarlyndi í trúmálum. Það er því miður ekki svo úti í hinum stóra heimi þar sem fólk drepur hvort annað vegna trúar. Engu að síður tel ég að trú geti kallað fram það fegursta í manneskjunni.
24.nóv. 2011 - 21:00
Bubbi Morthens
Jónas Jónasson útvarpsmaður með meiru er látinn. Umboðsmaður og tónlistarmaður sem samdi dásamlega falleg lög. Mannvinur og frumkvöðull í útvarpi. Leikritahöfundur og frábær spyrill. Skrifaði einnig bækur um fólk og hjálpaði mörgum drykkjumanninum inn í ljósið.
21.nóv. 2011 - 20:00
Bubbi Morthens
Ég var að lesa bókina „Með sumt á hreinu.“ Þórunn Erla Valdimarsdóttir skrásetur söguna um vin minn Jakob Frímann Magnússon.
17.nóv. 2011 - 09:30
Bubbi Morthens
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson hefur staðið sig að mínu mati frábærlega í embætti. Hann hefur forðað þjóðinni frá stórfelldum hremmingum, það er staðreynd.
11.nóv. 2011 - 20:00
Bubbi Morthens
Það var dagur eineltis núna um daginn. Átak sett í gang í skólum og merkilegir menn skrifuðu undir sáttmála sem er allt gott og blessað en hvað með netið þar sem fullorðnir fara hamförum?
01.nóv. 2011 - 17:00
Bubbi Morthens
Getur verið að við séum svo dofin að við séum hætt að taka eftir því hvernig fjölmiðlar fjalla grímulaust um ákveðna einstaklinga til þess að koma á þá höggi?
26.okt. 2011 - 14:30
Bubbi Morthens
Vinir eru guðs gjöf. Lífið er ekki alltaf eins og maður vill og ekki alltaf eins og maður heldur að það muni verða. Stundum er ég ekki viss um hvað ég ætla að skrifa en í pistli mínum í dag ætla ég að skrifa um vin minn.
17.okt. 2011 - 16:00
Bubbi Morthens
Það koma dagar í lífi mínu sem mér finnst erfiðir. Dagar sem mér finnst allskonar hlutir ekki vera eins og ég vil að þeir séu, það er ekki góður staður fyrir mig að vera á. Stundum er það konan, stundum börnin, stundum vinirnir, stundum tónlistarbransinn og svo má lengi telja. Þegar ég er komin í þann gírinn þá er eitthvað að hjá mér sjálfum og oftast er það egóið sem er að þvælast fyrir mér.
15.okt. 2011 - 10:00
Bubbi Morthens
Skiptir máli að lesa fyrir börnin sín? Já ég myndi svara því, gríðarlegu máli. Stelpurnar mínar eru sex ára og sú yngri að verða þriggja ára. Klukkan hálf átta öll virk kvöld vikunnar hefur verið lesið fyrir þær og skoðaðar myndabækur.
12.okt. 2011 - 12:00
Bubbi Morthens
Ástin mín er skiplögð kona sem þolir ekki óreiðu. Þannig er hún, ég er andstæðan. Ég tel mig vera sæmilega óskipulagðan sem þýðir auðvitað að ég er eins illa skipulagður og hugsast getur.
10.okt. 2011 - 16:00
Bubbi Morthens
Ljósið frá tölvunni er bjart. Á stólnum situr þú og skoðar heiminn, hittir vinina og spjallar við þá um allt sem þú ætlar að gera í dag og á morgun. Þú sendir SMS með þumalputta sem er orðinn einskonar ofurputti. Þumalputti sem er svo hraður að hann reykspólar á takkaborðinu.
07.okt. 2011 - 18:00
Bubbi Morthens
Sól
Þegar haustið kemur
verð ég grænn að innan.
Þegar sólin sígur bak við fjallið
og húmið með fingurlanga skugga
sópar ljósinu burt,
rís hún í hjarta mér
og vermir kossa mína.
04.okt. 2011 - 17:00
Bubbi Morthens
Græni Hatturinn er tónleikastaður á Akureyri í hjarta bæjarins og tekur kannski tæplega 140 manns í sæti. Þetta er staður sem hentar fullkomlega trúbador tónleikum.