Bubbi Morthens
13. mar. 2010 - 09:20Bubbi Morthens

Davíðssálmur númer 1

Davíð Oddsson.

Davíð Oddsson.

Höldum því til Haga að Jón Ásgeir og Jóhannes í Bónus bera ekki ábyrgð á íslenska hruninu.  Þetta veit Hrunameistarinn sjálfur Davíð Oddsson.  Þeir sem bera ábyrgð á hruninu eru gjörspillt embættismannakerfi og ríkisstjórn Davíðs Oddssonar sem lagði grunninn með allsherjar spillingu sem og meðreiðarsveinarnir,  Framsóknarflokkurinn. Ríkisstjórn Geirs Haarde og meðreiðarsveinar hennar. Jarðvegurinn fyrir hrunið var löngu plægður.
 
Eftir að hafa gert allt klárt  fengu valdir gæðingar sáðkorn og var þeim sagt að sá að vild og allt í nafni frjálshyggju og frelsis.

Þegar þú hefur peningaröfl á bak við þig, sem eru tilbúin að henda milljónum í ónýtan rekstur, til þess eins að manni virðist, að verja kvótann og halda okkur frá Evrópu ,sem og níða skóinn af fólki sem Davíð þolir ekki, þá er ekki Frelsið haft að leiðarljósi.  Morgunblaðið er áróðurstæki og svo virðist sem þeir sem eiga Morgunblaðið séu sáttir við fórnarkostnaðinn sem eru örfáir áskrifendur.

Og nú er Davíð og hægri öfgamennirnir byrjaðir eina ferðina enn. Getur það verið þá dreymi um að komast yfir 365 miðla og láta gæðinga sína fá smásölumarkaðinn? Davíð er ekki lengur valdamikill maður líkt og hann var en ef hann kæmist yfir Fréttablaðið og Stöð 2. Þá yrði staðan nú önnur og guð hjálpi Íslandi.
 
Höldum því til Haga að það er verið að berjast um reiði fólks og sú reiði er geigvænlegt vopn, áhrif  Moggans eru þó hverfandi. Þó þú hafir fjölmiðil sem þú getur notað að eigin vild, blygðunarlaust. Ert tilbúinn að beita hvaða drullubragði sem er til þess að klekkja á andstæðingi þínum. Þess á milli sem þú endurskrifar söguna. Ef einhverntímann hefur verið til Baugsmiðill þá er það Morgunblaðið í dag.
 
Höldum því til Haga að það er verið að berjast um hverjir stjórna Íslandi
 
Ritstjórar Morgunblaðsins hrópa um siðferði. Annar þeirra setti Viðskiptablaðið í þrot. Skipti um kennitölu og keypti það til baka fyrir krónu.

Arion banki hefur ekki gert neitt ólöglegt né siðlaust. Hann gerir það sem hann á að gera en Davíð í Reykjavíkurbréfi sínu í Baugsmiðli sínum atar æru Finns Sveinbjörnssonar bankastjóra Arion banka drullu til þess eins að komast að Jóhannesi í Bónus.   

Bankastjóri Arion banka hefur útskýrt  vel þau atriði sem voru þess valdandi að ákveðið var að setja Haga á markað og leyfa núverandi stjórnendum að kaupa 15% hlut á sama verði og aðrir. Vandamál Haga eru ekki tilkomin vegna þess að fyrirtækið sé illa rekið heldur vegna þess að Seðlabanki Íslands rústaði krónunni.
 
Höldum því til Haga að Davíð setti Seðlabankann á hausinn.
 
Davíð hamast dag eftir dag. Vitandi það að reiði fólks þarf að fóðra.  Hvað er betra en að fela eigin mistök með stærstu smjörklípu sögumnar  og benda á Jóhannes í Bónus og alla hina?

Davíð glefsar einnig í hæla starfsmanna 365 miðla. Sennilega vegna þess að Ólafur Stephensen er orðin ritstjóri Fréttablaðsins. Enn og aftur sjáum við vinnubrögð sem Davíð hefur stundað opinberast fyrir augum okkar, þegar hann ætlar að starfsfólk 365 miðla gangi erinda eiganda sinna. 

Þannig er það kannski  á Mogganum og það er ekki ólíklegt að starfsfólkið  þar þurfi að búa við þau kjör. Skuggi Davíðs grúfir sig yfir öll borð þó svo hann sjáist ekki á göngunum.  

Skoðanakúgun voru og eru hans ær og kýr. Hann breytti Sjálfstæðisflokknum í einskonar fangelsi skoðana sinna og enn þora menn þar á bæ ekki að gera upp við harðstjórann.

Sjálfstæðisflokkurinn er enn í sárum eftir uppákomuna á Flokksþinginu þar sem Davíð hæddi eigin flokksmenn og ældi yfir allt og alla. Það þarf sérstaka manngerð sem gerir slíka hluti. Nú hrópar hann sjálfur, konungur hrunsins hæðst allra...úlfur...úlfur.

Höldum því til Haga að nánasti ráðgjafi hans og vinur, Kjartan Gunnarsson, var lykilmaður í Landsbankanum.
 
Bankanum sem ber ábyrgð á Icesave og alveg frá þeim tíma sem Davíð kom bankanum í hendur Björgúlfsfeðga. 

Davíð Oddsson hefur skaðað Ísland meira en nokkur annar einstaklingur í  íslenskri pólitík frá stríðslokum.  Það gerði hann með því að undirbúa jarðveginn fyrir  einkavæðingu bankanna og gjaldþroti Seðlabanka Íslands. Og með þeim gjörningi að knýja  Glitni í þrot setti hann sig í fyrsta sætið í kepnisgreininni að setja Seðlabanka á hausinn með glans og meira að segja herra Google getur vitnað til um það að Davíð Oddsson er Evrópumestari í Hruni.  

Maður spyr sig hvenær fer hann að gera það sem hann er góður í að gera?  Skrifa snotrar smásögur og semja dægurlagatexta.
 
Svo við höldum því til Haga þá er Davíð snjall textahöfundur og mjög svo frambærilegur rithöfundur  
 
Þetta er maður sem keyrði Glitni í þrot út af blindum hefndarþorsta.  Líkt og miðlungs skákmaður sem sá ekki nema einn leik fram í tímann og þar af leiðandi hrönnuðust upp afleikirnir. Sagan segir að menn hafi varað  hann við og sagt kerfishrun; það verður kerfishrun og allsherjar upplausn.

Hann á að hafa svarað: Það verður að stoppa þessa menn.

En hvað með fólkið í landinu? var þá spurt. Hann á að hafa svarað: Það reddar sér.

Helgina sem hann keyrði Glitni í þrot felldi hann íslenska hagkerfið.



29.ágú. 2010 - 10:04 Bubbi Morthens

Viðbjóðurinn blasir allstaðar við

Fyrstu dagana eftir hrun fengum við kennslu í hvernig PR maskínurnar vinna; lygi, hálfsannleikur og þöggun var dreift með munnvatninu sem sáldraðist yfir okkur, gerði okkur mjúk og rök. Síðan komu spunameistararnir og mótuðu okkur.
20.ágú. 2010 - 11:52 Bubbi Morthens

Björk Guðmundsdóttir

Mér hefur alltaf þótt Björk Guðmundsdóttir vera dularfull, mild og pínkulítið eins og fallegur vikivaki aftur úr öldum.
12.ágú. 2010 - 13:30 Bubbi Morthens

Gylfi er Baron Munchausen

Kjörin sem alþýða manna hefur í löndum í kringum okkur þykja sjálfsögð. Hér heima eru þau draumur sem fólkið dreymir. Krónan er meginástæða þess að Gylfi Magnússon í farabroddi ríkisstjórnar Íslands ver bankaerfið með kjafti og klóm. Krónan skal halda velli. Með henni er svo auðvelt að skerða kjör almennings.
08.ágú. 2010 - 18:01 Bubbi Morthens

Gunguherinn

Er eitthvað rangt við það að hagnast  á viðskiptum? Er eitthvað rangt við það að hafa góð laun? Er eitthvað rangt við það að vera góður í því sem þú vinnur við? Er eitthvað rangt við það að vera góður listamaður og fá borgað fyrir það? Er eitthvað rangt við að hafa menntað sig í 10 ár og fá laun í samræmi við það?
03.ágú. 2010 - 14:10 Bubbi Morthens

Slitastjórnir - skilanefndir

Hvernig má það vera að það sé hægt að gera samninga við hvern eiganda stórfyrirtækja á eftir öðrum?
22.júl. 2010 - 08:00 Bubbi Morthens

Sagan

Sögur eru út um allt hvernig slitastjórnir og skilanefndir bankanna moka eignum í hendur vina og klíkubræðra. Sögur eru á reiki líkt og svipir þeirra sem tóku líf sitt vegna skulda við bankanna. Sumir vilja kveða þær
sögur niður, segja jafnvel þær séu ekki sannar og enginn hafi svipt sig lífi. Það er hinsvegar lygi, hræðileg lygi. Sjálfsmorðin eru staðreynd, þau eru fleiri en eitt.
14.júl. 2010 - 10:54 Bubbi Morthens

Hálfsannleikur í orrustunni um Ísland

Fjölmiðlaumræðan er einsleit og fylgir meginstraumnum! Fyrir hrun var hún þannig líka. Gagnrýni á bankana, útrásarvíkingana eða ríkjandi stjórnvöld var engin og ef einhver sagði að þetta væri ekki allt svona frábært og spurði gagnrýninna spurninga var hann úthrópaður. Allir voru meðvirkir og þöggunin var allsráðandi, hvort sem var hjá fjölmiðlum eða stjórnvöldum.
07.júl. 2010 - 09:20 Bubbi Morthens

Ríkistjórnin slær skjaldborg um erlenda hausaveiðara!

Ríkistjórn sem fer með hernað gegn eigin fólki til þess að vernda erlenda vogunarsjóði á ekki og má ekki sitja, hún verður að víkja. Það er kristaltært þegar skuldir heimilanna voru færðar yfir í nýju bankanna, sem voru stofnaðir á rústum þeirra gömlu, var tekin rækileg varúðarfærsla. Menn innan bankageirans segja að hún dugi og meira en það til þess að heimilin njóti dóms Hæstaréttar til fulls en leyfi ekki hýenum í jakkafötum sem kallast embættismenn að ræna fólki réttindum þess.
02.júl. 2010 - 09:58 Bubbi Morthens

Hernaður gegn fólkinu í landinu

Ég hvet alla skuldara með gengistryggð lán að rífa innheimtuseðilinn sem það mun fá sendan frá ofbeldisfyrirtækjum og greiða samkvæmt dóm Hæstaréttar og láta bankana og fjármálafyrirtækin sækja sig fyrir dómstólum.
24.jún. 2010 - 21:57 Bubbi Morthens

Óhæf og svikul ríkisstjórn

Hæstiréttur Íslands gerði það sem vanhæf ríkistjórn hefði átt að vera búin að gera fyrir langa löngu. Nú er það á tæru að gengistryggðu lánin er ólögleg. Starfsmenn fjármögnunarfyrirtækjanna gera allt sem í þeirra valdi stendur til að þyrla upp gruggi meira segja menn sem sitja á þingi skrifa og segja verðtryggingu á lánin. Sjáið nú hvar hjartað slær. Lánin voru dæmd ólögleg...punktur eins og þau komu af kúnni.

Bubbi Morthens
Tónlistarmaður
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 29.8.2010
Viðbjóðurinn blasir allstaðar við
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 29.8.2010
Opið bréf til Hæstaréttar
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 30.8.2010
Bestu kylfingar Íslands frá upphafi
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 29.8.2010
Móeiður í keppni Samúels
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 31.8.2010
Sjálftökuliðið færist í aukana
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 01.9.2010
Björk litla í Samúel fyrir aldarfjórðungi
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 31.8.2010
Kemur tæplega á óvart
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 30.8.2010
ESB - undanþágur
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 01.9.2010
Er Hæstiréttur bara gúmmístimpill?
Ester Ósk Hilmarsdóttir
Ester Ósk Hilmarsdóttir - 01.9.2010
Kannt þú að vera góður gestur?
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 31.8.2010
Að læra að elska - eða bara elska
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 01.9.2010
Of margir háskólar?
Jón Magnússon
Jón Magnússon - 30.8.2010
Hvað kostar kílóvattstundin?
Björg Magnúsdóttir
Björg Magnúsdóttir - 02.9.2010
DV, þú stöðvar mig ekki!
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir - 30.8.2010
Verjum menntun
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 29.8.2010
Venesúela, Kúba... Ísland?
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 02.9.2010
Trúverðugleikinn fer líka
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit