27. feb. 2012 - 12:48Brynjar Eldon Geirsson

Lokaútkall fyrir sumar 2012

Nú eru einungis rétt um 10 vikur í íslenska golftímabilið og tíminn er fljótur að líða. Ef við miðum við að tímabilið hefjist með hinu árlega 1. maí móti á Hellu þar sem Íslandsmótið í höggleik fer einnig fram síðla sumars. Þeir sem eru ekki búnir að taka golfsettið úr bílskúrnum, pússa golfskóna og byrjaðir að æfa fyrir sumarið þá er þetta lokaútkall. Ef ykkur dettur í hug að geta mætt beint á völlinn 1.maí eða við opnun valla án þess að æfa ykkur og undirbúa þá eruð þið að misskilja eitthvað.

Ekki láta sumarið enda í fýlu og forgjafarhækkun, nú er bara að drífa sig í Bása eða Hraunkot og byrja að æfa og ekki skemmir fyrir að taka svona eins og 2 tíma hjá golfkennara til þess að geta æft rétt fram að sumri.

Setjið ykkur markmið í öllum þáttum og byrjið að vinna í áttina að góðri spilamennsku. Einnig mæli ég með fara í keppni við félagana um hver nær mestum árangri í sumar og hann verður verðlaunaður í haust af hinum í vinahópnum.

Eins og einhver sagði "Af engu kemur ekkert" og það er svo sannarlega rétt.

Munið að skipta æfingatímanum jafnt á milli löngu höggana og stutta spilsins.

 

 Með bestu kveðju

Brynjar Eldon Geirsson PGA golfkennari

 

 

 




13.maí 2013 - 00:41 Brynjar Eldon Geirsson

Óskiljanleg ákvörðun hjá Garcia á Players

Sergio Garcia fór ansi illa að ráði sýnu á 71 holu Players meistaramótsins sem lauk í gær. Garcia var jafn í Tiger Woods í fyrsta sæti fyrir þessa frábæru par 3 holu sem hann lék á sjö höggum.
08.maí 2013 - 10:30 Brynjar Eldon Geirsson

Hvers vegna golf?

Margir sem eru í leit að áhugamáli við sitt hæfi gætu verið að velta fyrir sér spurningunni: ,,Hvers vegna golf?  Við skulum aðeins fara yfir nokkur atriði sem golfíþróttin hefur fram að færa fyrir þá sem hana stunda.

 

 

28.apr. 2013 - 11:00 Brynjar Eldon Geirsson

Hversu góð/ur ætlar þú að verða í sumar?

Nú styttist í golftímabilið og hver vill ekki leika vel í sumar og vinna félagana? En árangurinn á vellinum endurspeglar það sem þú hefur lagt á þig við æfingar á síðustu mánuðum og golfið er ekki undanskilið þeirri reglu að þú þarft að æfa þig til þess að geta eitthvað. Ekki láta ykkur dreyma um það að hlutirnir komi að sjálfu sér og að allt í einu detti leikurinn til þín og skorið verði betra en nokkru sinni fyrr. Hvort sem þú lesandi góður ert byrjandi eða lengra kominn að þá er enginn leið framhjá því að þurfa að æfa sig ef að þú vilt bætingu.
24.apr. 2013 - 00:00 Brynjar Eldon Geirsson

Nike Demo dagur í Básum

Nú geta áhugasamir komið í Bása á sumardaginn fyrsta á milli 11:00 og 13:00 og skoðað nýjustu kylfurnar í golflínunni frá Nike golf. Eins og flestir kylfingar vita eru þetta kylfur sem að Tiger Woods og Rory Macilroy leika með og því sjón sögu ríkari.
15.apr. 2013 - 08:45 Brynjar Eldon Geirsson

Adam Scott sigraði í bráðabana

Adam Scott varð í kvöld fyrsti ástralski kylfingurinn sem tekst að sigra Mastersmótið, á Augusta National. Þessi 33 ára gamli leikmaður lék stórkostlega á lokahringnum í gær þó svo að púttin hefðu verið að svíkja hann framan af hringnum.
11.apr. 2013 - 10:21 Brynjar Eldon Geirsson

Bubba Watson fellir tár

Í dag hefst Us Masters mótið í golfi og spennan mun ná hámarki á sunnudag þegar að úrslitin ráðast í þessu magnaða golfmóti sem er það fyrsta af risamótunum fjórum á þessu ári.
09.apr. 2013 - 12:33 Brynjar Eldon Geirsson

Hver vinnur US Masters?

Á fimmtudaginn næstkomandi hefst US Masters á Augusta golfvellinum í Georgíu og er þetta annar eftirsóttasti titillinn af risamótunum fjórum sem haldin eru á hverju ári. Sigurvegarinn fær græna jakkann auk þess að fá gríðarlega hátt verðlaunafé en ekki hvað síst að stimpla sig inn í hóp þeirra sem hafa unnið risamót og á spjöld sögunnar.
18.mar. 2013 - 00:07 Brynjar Eldon Geirsson

Högg úr hærra grasi

Hver þekkir ekki vandamálin sem berja að dyrum þegar slegin eru högg úr hærra grasi heldur en við þekkjum þegar að boltinn liggur á vel sleginni braut. Hafið í huga eftirtalin atriði þegar að þig sláið högg úr háu grasi.

07.mar. 2013 - 09:10 Brynjar Eldon Geirsson

Frábær upphitun fyrir kylfinga

Eitt af því sem vantar hjá mörgum af áhugamönnum í golfi er góð upphitun fyrir leikinn hring eða æfingu. Nú hafa félagarnir hjá TPI (Titlest Performance Institut) sett saman frábærar æfingar með golfkylfu sem ætti að geta nýst öllum sem vilja byrja hringinn heitir eða minnka meiðsla áhættu.
01.mar. 2013 - 11:33 Brynjar Eldon Geirsson

Í form fyrir golfsumarið

Þá styttist í sumarið og að átökin hefjist á golfvöllum landsins. Nú býðst öllum kylfingum frábært tækifæri á að koma sér í form og fara á námskeið í hinu geysivinsæla TRX æfingakerfi. Æfingarnar eru sniðnar að kylfingum á öllum aldri og við hjá Progolf mælum eindregið með þessu fyrir alla kylfinga.
20.feb. 2013 - 09:31 Brynjar Eldon Geirsson

Sænska kerfið: Atvinnumenn á færibandi

Svíar framleiða atvinnumenn í golfi á færibandi miðað við aðrar nágrannaþjóðir sínar og margir frábærir heimsklassa leikmenn hafa litið dagsins ljós eftir að hafa farið í gegnum kerfið hjá þeim. Hvernig fara Svíar að þessu og hverjir eru hornsteinarnir í þessari velgengi þeirra.
14.feb. 2013 - 16:16 Brynjar Eldon Geirsson

Birgir Leifur og Ólafur Björn hefja leik í dag

Atvinnumennirnir Birgir Leifur Hafþórsson og Ólafur Björn Loftsson hefja leik á E-golfmótarröðinni í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum nú í dag. Mótið ber nafnið Palmetto Hall Championship og hægt er að fylgjast með strákunum okkar á heimasíðu mótaraðarinnar.
01.feb. 2013 - 01:02 Brynjar Eldon Geirsson

Phil Michelson á 60 höggum

Phil Michelson lét heldur betur til sín taka á fyrsta keppnisdegi Phoenix Open sem hófst í gær. Kappinn gerði sér lítið fyrir og lék við hvern sinn fingur og endaði á 60 höggum.
18.des. 2012 - 12:26 Brynjar Eldon Geirsson

Tölfræði af flötunum

Meðaltals tölfræði af  PGA mótaröðinni í Bandaríkjunum ef tekin eru pútt sem eru frá 3 fetum til 10 feta. Á þessum tölum má sjá hversu flókin fræði púttin eru, jafnvel hjá þeim allra bestu í heimi.
13.des. 2012 - 09:15 Brynjar Eldon Geirsson

Tölfræði þeirra bestu

Á Evrópumótaröðinni leika flestir bestu leikmenn heims mjög reglulega. Ef litið er yfir almenna tölfræði í hinum ýmsu þáttum geta kylfingar borið sinn eigin leik saman við það sem best gerist. Þar með geta leikmenn sett sér háleit markmið og geta reynt að færa sinn leik að tölum þeirra allra bestu.

25.sep. 2012 - 01:18 Brynjar Eldon Geirsson

Birgir Leifur hefur leik á fyrsta stigi í dag

Birgir Leifur Hafþórsson hefur leik á fyrsta stigi af þremur í dag og freistar með því að endurheimta sæti sitt á Evrópumótaröðinni í golfi. 25% leikmanna af þeim sem hefja leik munu komast áfram á annað stigið sem haldið verður á Spáni
20.sep. 2012 - 21:57 Brynjar Eldon Geirsson

Framtíðar áætlanir í Grafarholti

Nú hefur sérstök nefnd skilað af sér skýrslu um það hvernig hún vill sjá breytingar gerðar á Grafarholtsvelli. Grafarholtsvöllur er án efa einn fallegasti og eftirsóttasti golfvöllur landsins og telja menn þessar breytingar nauðsynlegar svo að völlurinn standist álag og sómi sérvel í framtíðinni.
10.sep. 2012 - 02:14 Brynjar Eldon Geirsson

Rory einfaldlega sá besti um þessar mundir

Það er fátt sem stöðvar Rory McIlroy þessa dagana en þessi ungi Norður-Íri sigraði á BMW meistaramótinu nú í kvöld. McIlroy spilaði lokahringinn á Crooked Stick vellinum í Indiana á 67 höggum eða fimm höggum undir pari og sigraði með tveimur höggum en Phil Mickelson og Lee Westwood deildu öðru sætinu á 18 höggum undir. Tiger Woods endaði svo í þriðja sæti á 17 höggum undir pari eftir lokahring upp á 68 högg eða fjóra undir pari.
06.sep. 2012 - 21:54 Brynjar Eldon Geirsson

Farið að hausta á völlum landsins

Veðrið hefur farið kólnandi undanfarnar tvær vikur og það sést best á umferðinni á golfvöllum landsins. Nú fara kylfingar að huga að vetraæfingunum og golfferðum suður á bóginn. Golfskóli Progolf í Básum býður nú upp á sín vinsælu vetrarnámskeið þar sem kylfingar geta æft einu sinni í viku á sínum fasta tíma í allan vetur og þannig komið sterkari til leiks á nýju golfsumri 2013.
26.ágú. 2012 - 22:25 Brynjar Eldon Geirsson

Nick Watney sigraði á Barclays

Bandaríkjamaðurinn Nick Watney fór með sigur að hólmi á Barclays mótinu sem fram fór á Bethpage vellinum í New York. Mótið er fyrsta mót FedEx mótaraðarinnar sem er hluti af bandarísku mótaröðinni. Watney lék hringina fjóra á samtals tíu höggum undir pari, þremur höggum betur en landi sinn Brandt Snedeker sem endaði á sjö höggum undir pari. Sergio Garcia sem hafði leitt nánast allt mótið átti mjög slæman hring í dag, kom inn á 75 höggum eða fjórum höggum yfir pari og endaði jafn í þriðja sæti ásamt Dustin Johnson sem lék á sex höggum undir pari í heildina.

14.ágú. 2012 - 14:47 Brynjar Eldon Geirsson

Svipmyndir af Ben Hogan

Ben Hogan var langt á undan sinni samtíð í öllu sem kom að golftækni, tæknin hans hefur orðið mörgum öðrum leikmönnum til eftirbreytni á seinni árum. Frábær kylfingur sem hefur  hjálpað golftækninni á hærra plan með sinni ástríðu fyrir leiknum.

02.ágú. 2012 - 11:43 Brynjar Eldon Geirsson

Ótrúlegt uppátæki

Hér má sjá kylfinginn John Daly slá upptíuðum bolta af höfði golf - sjónvarpsþáttar stjórnandans Feherty. John Daly er einn litríkasti kylfingur samtímans og reglulega koma upp vandræði í kringum hann.

25.júl. 2012 - 08:35 Brynjar Eldon Geirsson

Íslandsmótið í Höggleik að hefjast

Á morgun fimmtudag hefst íslandsmótið í höggleik á Strandarvelli á Hellu. Leiknar verða 72 holur og eru allir okkar bestu leikmenn meðal keppenda að þessu sinni. Þau Axel Bóasson GK og Ólafía Þ. Kristinsdóttir eiga titil að verða frá því í fyrra þar sem þau sigruðu á mótinu sem haldið var á golfklúbbi Suðurnesja.

Áhugamenn um golf eru hvattir til þess að mæta á Strandarvöll og fylgjast með bestu leikmönnum landsins berjast um eftirsóttasta titilinn hér á landi í golfi.

15.júl. 2012 - 13:34 Brynjar Eldon Geirsson

Golf verður verður Ólympíugrein

Árið 2016 mun golf verða tekin inn á Ólympíuleikana sem íþróttagrein í fyrsta skipti í sögu þeirra leika. Leikarnir 2016 verða haldnir í Brasilíu, nánar tiltekið í Rio de Janeiro. Það verður því virkilega áhugavert að fylgjast með leikunum fyrir golfáhugamenn um víða veröld og sjá hver hlítur titilinn í fyrsta skipti.
01.júl. 2012 - 11:40 Brynjar Eldon Geirsson

Á vellinum með John Daly

John Daly er án efa einn litríkasti leikmaður heims. Daly hefur verið mjög umdeildur á velli og utan en enginn getur sagt annað en að hann sé frábær leikmaður og hefur hann meðal annars unnið British Open sem er stæðsti og eftirsóttasti titill atvinnumanna.


Brynjar Eldon Geirsson

Golfkennari hjá ProGolf

Björn Jón Bragason
Björn Jón Bragason - 11.5.2013
Magnþrungin ræða
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 15.5.2013
Frekja?
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 14.5.2013
Hamast á Sigmundi Davíð
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 19.5.2013
Viktor Hólm
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 12.5.2013
Good old times are back
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 15.5.2013
Ógeðsleg pólitík
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 13.5.2013
Óskiljanleg ákvörðun hjá Garcia á Players
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 13.5.2013
Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 5. hola - Myndband
Þórhallur Heimisson
Þórhallur Heimisson - 12.5.2013
Fimmti hringur Vítis
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 13.5.2013
Grenningarhollráð Sverris
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 14.5.2013
Lærðu vipp úr háu grasi - Myndband
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 13.5.2013
Kúgun, flekun og nauðgun
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 15.5.2013
Rangfeðruð skammaskrif
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 14.5.2013
Árni Vilhjálmsson: Minningarorð
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2013
Pétur Pétursson
Fleiri pressupennar