13. apr. 2012 - 06:00Brynjar Eldon Geirsson

Í heimsókn hjá Brian Davis og Anniku Sörenstam

Það er alltaf gaman að fá að sjá hvernig bestu kylfingar heims hafa það utan vallar og hjá þessum einstaklingum þeim Brian Davis og Anniku Sörenstam virðist lífið leika við þau á öllum sviðum. Brian er á hraðri leið upp heimslistann en Annika hætti keppni 2008 og starfar nú sem golfkennari og við hönnun golfvalla. Lítum við í heimsókn hjá þeim með Golfing World í þættinum "Golfing Cribs".

 

 




07.jún. 2013 - 00:03 Brynjar Eldon Geirsson

18 bestu golfholur Íslands: 18. sæti

18 bestu golfholur landsins verða nú valdar í einn draumagolfvöll sem samanstendur af bestu 18 holum golfvalla landsins. Fyrsta holan sem varð fyrir valinu er 10 holan á Urriðavelli í landi Oddfellowa.
26.maí 2013 - 21:08 Brynjar Eldon Geirsson

Sergio Garcia og "Fried Chicken"

Nú lýtur allt út fyrir það að Sergio Garcia muni missa aðalstyrktaraðilann sinn Taylor Made / Adidas eftir að hann lét niðrandi ummæli falla í síðustu viku um Tiger Woods opinberlega eftir að þeim lenti saman í golfmóti fyrir um tveimur vikum síðan.
13.maí 2013 - 00:41 Brynjar Eldon Geirsson

Óskiljanleg ákvörðun hjá Garcia á Players

Sergio Garcia fór ansi illa að ráði sýnu á 71 holu Players meistaramótsins sem lauk í gær. Garcia var jafn í Tiger Woods í fyrsta sæti fyrir þessa frábæru par 3 holu sem hann lék á sjö höggum.
08.maí 2013 - 10:30 Brynjar Eldon Geirsson

Hvers vegna golf?

Margir sem eru í leit að áhugamáli við sitt hæfi gætu verið að velta fyrir sér spurningunni: ,,Hvers vegna golf?  Við skulum aðeins fara yfir nokkur atriði sem golfíþróttin hefur fram að færa fyrir þá sem hana stunda.

 

 

28.apr. 2013 - 11:00 Brynjar Eldon Geirsson

Hversu góð/ur ætlar þú að verða í sumar?

Nú styttist í golftímabilið og hver vill ekki leika vel í sumar og vinna félagana? En árangurinn á vellinum endurspeglar það sem þú hefur lagt á þig við æfingar á síðustu mánuðum og golfið er ekki undanskilið þeirri reglu að þú þarft að æfa þig til þess að geta eitthvað. Ekki láta ykkur dreyma um það að hlutirnir komi að sjálfu sér og að allt í einu detti leikurinn til þín og skorið verði betra en nokkru sinni fyrr. Hvort sem þú lesandi góður ert byrjandi eða lengra kominn að þá er enginn leið framhjá því að þurfa að æfa sig ef að þú vilt bætingu.
24.apr. 2013 - 00:00 Brynjar Eldon Geirsson

Nike Demo dagur í Básum

Nú geta áhugasamir komið í Bása á sumardaginn fyrsta á milli 11:00 og 13:00 og skoðað nýjustu kylfurnar í golflínunni frá Nike golf. Eins og flestir kylfingar vita eru þetta kylfur sem að Tiger Woods og Rory Macilroy leika með og því sjón sögu ríkari.
15.apr. 2013 - 08:45 Brynjar Eldon Geirsson

Adam Scott sigraði í bráðabana

Adam Scott varð í kvöld fyrsti ástralski kylfingurinn sem tekst að sigra Mastersmótið, á Augusta National. Þessi 33 ára gamli leikmaður lék stórkostlega á lokahringnum í gær þó svo að púttin hefðu verið að svíkja hann framan af hringnum.
11.apr. 2013 - 10:21 Brynjar Eldon Geirsson

Bubba Watson fellir tár

Í dag hefst Us Masters mótið í golfi og spennan mun ná hámarki á sunnudag þegar að úrslitin ráðast í þessu magnaða golfmóti sem er það fyrsta af risamótunum fjórum á þessu ári.
09.apr. 2013 - 12:33 Brynjar Eldon Geirsson

Hver vinnur US Masters?

Á fimmtudaginn næstkomandi hefst US Masters á Augusta golfvellinum í Georgíu og er þetta annar eftirsóttasti titillinn af risamótunum fjórum sem haldin eru á hverju ári. Sigurvegarinn fær græna jakkann auk þess að fá gríðarlega hátt verðlaunafé en ekki hvað síst að stimpla sig inn í hóp þeirra sem hafa unnið risamót og á spjöld sögunnar.
18.mar. 2013 - 00:07 Brynjar Eldon Geirsson

Högg úr hærra grasi

Hver þekkir ekki vandamálin sem berja að dyrum þegar slegin eru högg úr hærra grasi heldur en við þekkjum þegar að boltinn liggur á vel sleginni braut. Hafið í huga eftirtalin atriði þegar að þig sláið högg úr háu grasi.

07.mar. 2013 - 09:10 Brynjar Eldon Geirsson

Frábær upphitun fyrir kylfinga

Eitt af því sem vantar hjá mörgum af áhugamönnum í golfi er góð upphitun fyrir leikinn hring eða æfingu. Nú hafa félagarnir hjá TPI (Titlest Performance Institut) sett saman frábærar æfingar með golfkylfu sem ætti að geta nýst öllum sem vilja byrja hringinn heitir eða minnka meiðsla áhættu.
01.mar. 2013 - 11:33 Brynjar Eldon Geirsson

Í form fyrir golfsumarið

Þá styttist í sumarið og að átökin hefjist á golfvöllum landsins. Nú býðst öllum kylfingum frábært tækifæri á að koma sér í form og fara á námskeið í hinu geysivinsæla TRX æfingakerfi. Æfingarnar eru sniðnar að kylfingum á öllum aldri og við hjá Progolf mælum eindregið með þessu fyrir alla kylfinga.
20.feb. 2013 - 09:31 Brynjar Eldon Geirsson

Sænska kerfið: Atvinnumenn á færibandi

Svíar framleiða atvinnumenn í golfi á færibandi miðað við aðrar nágrannaþjóðir sínar og margir frábærir heimsklassa leikmenn hafa litið dagsins ljós eftir að hafa farið í gegnum kerfið hjá þeim. Hvernig fara Svíar að þessu og hverjir eru hornsteinarnir í þessari velgengi þeirra.
14.feb. 2013 - 16:16 Brynjar Eldon Geirsson

Birgir Leifur og Ólafur Björn hefja leik í dag

Atvinnumennirnir Birgir Leifur Hafþórsson og Ólafur Björn Loftsson hefja leik á E-golfmótarröðinni í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum nú í dag. Mótið ber nafnið Palmetto Hall Championship og hægt er að fylgjast með strákunum okkar á heimasíðu mótaraðarinnar.
01.feb. 2013 - 01:02 Brynjar Eldon Geirsson

Phil Michelson á 60 höggum

Phil Michelson lét heldur betur til sín taka á fyrsta keppnisdegi Phoenix Open sem hófst í gær. Kappinn gerði sér lítið fyrir og lék við hvern sinn fingur og endaði á 60 höggum.
18.des. 2012 - 12:26 Brynjar Eldon Geirsson

Tölfræði af flötunum

Meðaltals tölfræði af  PGA mótaröðinni í Bandaríkjunum ef tekin eru pútt sem eru frá 3 fetum til 10 feta. Á þessum tölum má sjá hversu flókin fræði púttin eru, jafnvel hjá þeim allra bestu í heimi.
13.des. 2012 - 09:15 Brynjar Eldon Geirsson

Tölfræði þeirra bestu

Á Evrópumótaröðinni leika flestir bestu leikmenn heims mjög reglulega. Ef litið er yfir almenna tölfræði í hinum ýmsu þáttum geta kylfingar borið sinn eigin leik saman við það sem best gerist. Þar með geta leikmenn sett sér háleit markmið og geta reynt að færa sinn leik að tölum þeirra allra bestu.

25.sep. 2012 - 01:18 Brynjar Eldon Geirsson

Birgir Leifur hefur leik á fyrsta stigi í dag

Birgir Leifur Hafþórsson hefur leik á fyrsta stigi af þremur í dag og freistar með því að endurheimta sæti sitt á Evrópumótaröðinni í golfi. 25% leikmanna af þeim sem hefja leik munu komast áfram á annað stigið sem haldið verður á Spáni
20.sep. 2012 - 21:57 Brynjar Eldon Geirsson

Framtíðar áætlanir í Grafarholti

Nú hefur sérstök nefnd skilað af sér skýrslu um það hvernig hún vill sjá breytingar gerðar á Grafarholtsvelli. Grafarholtsvöllur er án efa einn fallegasti og eftirsóttasti golfvöllur landsins og telja menn þessar breytingar nauðsynlegar svo að völlurinn standist álag og sómi sérvel í framtíðinni.
10.sep. 2012 - 02:14 Brynjar Eldon Geirsson

Rory einfaldlega sá besti um þessar mundir

Það er fátt sem stöðvar Rory McIlroy þessa dagana en þessi ungi Norður-Íri sigraði á BMW meistaramótinu nú í kvöld. McIlroy spilaði lokahringinn á Crooked Stick vellinum í Indiana á 67 höggum eða fimm höggum undir pari og sigraði með tveimur höggum en Phil Mickelson og Lee Westwood deildu öðru sætinu á 18 höggum undir. Tiger Woods endaði svo í þriðja sæti á 17 höggum undir pari eftir lokahring upp á 68 högg eða fjóra undir pari.
06.sep. 2012 - 21:54 Brynjar Eldon Geirsson

Farið að hausta á völlum landsins

Veðrið hefur farið kólnandi undanfarnar tvær vikur og það sést best á umferðinni á golfvöllum landsins. Nú fara kylfingar að huga að vetraæfingunum og golfferðum suður á bóginn. Golfskóli Progolf í Básum býður nú upp á sín vinsælu vetrarnámskeið þar sem kylfingar geta æft einu sinni í viku á sínum fasta tíma í allan vetur og þannig komið sterkari til leiks á nýju golfsumri 2013.
26.ágú. 2012 - 22:25 Brynjar Eldon Geirsson

Nick Watney sigraði á Barclays

Bandaríkjamaðurinn Nick Watney fór með sigur að hólmi á Barclays mótinu sem fram fór á Bethpage vellinum í New York. Mótið er fyrsta mót FedEx mótaraðarinnar sem er hluti af bandarísku mótaröðinni. Watney lék hringina fjóra á samtals tíu höggum undir pari, þremur höggum betur en landi sinn Brandt Snedeker sem endaði á sjö höggum undir pari. Sergio Garcia sem hafði leitt nánast allt mótið átti mjög slæman hring í dag, kom inn á 75 höggum eða fjórum höggum yfir pari og endaði jafn í þriðja sæti ásamt Dustin Johnson sem lék á sex höggum undir pari í heildina.

14.ágú. 2012 - 14:47 Brynjar Eldon Geirsson

Svipmyndir af Ben Hogan

Ben Hogan var langt á undan sinni samtíð í öllu sem kom að golftækni, tæknin hans hefur orðið mörgum öðrum leikmönnum til eftirbreytni á seinni árum. Frábær kylfingur sem hefur  hjálpað golftækninni á hærra plan með sinni ástríðu fyrir leiknum.

02.ágú. 2012 - 11:43 Brynjar Eldon Geirsson

Ótrúlegt uppátæki

Hér má sjá kylfinginn John Daly slá upptíuðum bolta af höfði golf - sjónvarpsþáttar stjórnandans Feherty. John Daly er einn litríkasti kylfingur samtímans og reglulega koma upp vandræði í kringum hann.

25.júl. 2012 - 08:35 Brynjar Eldon Geirsson

Íslandsmótið í Höggleik að hefjast

Á morgun fimmtudag hefst íslandsmótið í höggleik á Strandarvelli á Hellu. Leiknar verða 72 holur og eru allir okkar bestu leikmenn meðal keppenda að þessu sinni. Þau Axel Bóasson GK og Ólafía Þ. Kristinsdóttir eiga titil að verða frá því í fyrra þar sem þau sigruðu á mótinu sem haldið var á golfklúbbi Suðurnesja.

Áhugamenn um golf eru hvattir til þess að mæta á Strandarvöll og fylgjast með bestu leikmönnum landsins berjast um eftirsóttasta titilinn hér á landi í golfi.


Brynjar Eldon Geirsson

Golfkennari hjá ProGolf

Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 12.6.2013
Þegar hæfileikana vantar
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 17.6.2013
Af hverju ekki allan hagnaðinn?
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 10.6.2013
Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 9. hola - Myndband
Björn Jón Bragason
Björn Jón Bragason - 17.6.2013
Engin kvöldskemmtun á 17. júní?
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 11.6.2013
Stóriðjan borgar verkafólki betur
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 19.6.2013
365 miðlar í fararbroddi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 13.6.2013
Laugarvatn
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.6.2013
Íslensk fyndni eða erlend
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 17.6.2013
Útúrsnúningar
Fleiri pressupennar