18. ágú. 2010 - 15:00Brynjar Eldon Geirsson

Úttekt: Tíu bestu golfvellir á Íslandi

Mynd: Pro Golf

Ég ætla að setja hér fram topp 10 lista yfir þá golfvelli sem mér finnst skemmtilegast að leika á og ég tek það hér fram að þetta er bara mín skoðun á völlunum hér heima.

1. Grafarholtsvöllur, Það er eitthvað við þennan völl sem gerir hann að „Old Course“  og allir ættu að leika einhverntíma í holtinu.

2. Keilir, Hafnarfirði þessi völlur er alltaf í góðu standi og einstaklega gaman að leika þennan völl. Það sem einkennir þennan völl eru tveir gjörsamlega ólíkir 9 holu helmingar, annar í þröngu hrauninu og hinn á opnu svæði.

3. Vestmannaeyjar, glæsilegt umhverfi og gríðarlega skemmtilegar brautir og vindurinn erfiður í dalnum.

4. Urriðavöllur í landi Oddfellowa, þetta er í mínum huga skrúðgarður og umhverfið ótrúlega fallegt, þrátt fyrir að liggja ekki lengra frá höfuðborginni kemst maður í kyrrð og ró. Þröngar brautir og kannski ekki góður keppnisvöllur í þeim skilningi en frábær skemmtun.

5. Golfklúbbur Akureyrar, fallegur golfvöllur sem er yfirleitt seinn til á sumrin en þegar hann nær að sýna sitt besta er þetta frábær golfvöllur. Síðustu 10 ár hefur hann átt undir högg að sækja  en samt sem áður er þetta frábær skemmtun og enginn verður svikinn af því að leika völlinn.

6. Korpuvöllur Reykjavík, völlur sem er yfirleitt í fínu standi og er frábær keppnisvöllur. Virkilega gott „test“ á getu kylfinga.

7. Golfklúbbur Þorlákshafnar, án efa einn erfiðasti golfvöllur landsins en á móti minnst notaður af öllum 18. Holu völlunum og kannski er samhengi á milli þess að hann sé erfiður og að fólk forðist hann. Snilldar hönnun á brautum og vindurinn getur breytt þessum velli í „monster“

8. Golfklúbbur Suðurnesja, Flottur opinn golfvöllur sem er frekar einfaldur þegar veðrið er gott en á leirunni er nánast alltaf hvasst og því er alltaf barist við vindinn. En Leiran í gegnum árin hefur alltaf staðið fyrir sýnu í flottri umhirðu og góðum flötum.

9. GL Akranes, Virkilega skemmtilegur og um leið krefjandi völlur sem maður fær seint leið á. Það er vel þess virði að fara og leika á skaganum.

10. Golfklúbburinn Kiðjabergi, fær 10 sætið hjá mér einfaldlega af þeirri ástæðu að vallarstæðið er glæsilegt og virkilega gaman og krefjandi að leika þennan völl.

Aðrir golfvellir komast ekki inn á topp 10 hjá mér í bili og eins og þið sjáið eru fyrir utan þennan lista vellir eins og Hella – GKG – Grindavík – Setberg – Borgarnes – Nesvöllurinn – Sandgerði – Selfoss – Kjölur - Hveragerði og svo má lengi telja og sjálfsagt eru margir ósammála mér því að hverjum finnst sinn fugl .......

En allavega það gerir öllum gott að leika einhvern annan völl en sinn heimavöll og þannig verður maður líka betri og kynnist fjölbreyttari aðstæðum og lærir að takast á við nýjar áskoranir.

Ps. Farið og leikið Þorlákshöfn, þar lendið þið í mjög góðu testi á hvað þið standið virkilega getulega séð. Prufið að stíga út fyrir ramman sem er ykkar heimavöllur.

Kveðja Brynjar Eldon Geirsson PGA golfkennari




22.maí 2012 - 00:13 Brynjar Eldon Geirsson

Golf í Vestmannaeyjum

Það er fátt skemmtilegra en að fara til Vestmannaeyja og leika þar einn glæsilegasta golfvöll landsins. Golfvöllurinn í Eyjum er ávallt í góðu ásigkomulagi og vel hirtur og það er tilvalið að taka sig saman með félögunum og skjótast í dagsferð og njóta þess að leika golf í frábæru umhverfi á góðum golfvelli.
09.maí 2012 - 01:19 Brynjar Eldon Geirsson

Lykill að góðu skori

Kylfingar eru mjög uppteknir af sveiflunni sinni og það þarf enga rannsókn til þess að sjá það að æfingatími flestra áhugamanna fer í það að æfa sveifluna og helst að slá langt með driver. 

04.maí 2012 - 01:44 Brynjar Eldon Geirsson

Frábær heimasíða

Hér deila bestu leikmenn heims daglegu lífi sýnu á þessari frábæru heimasíðu.
02.maí 2012 - 22:49 Brynjar Eldon Geirsson

Að missa stjórn á sér á vellinum

Þeir bestu geta misst hausinn á vellinum og hér eru nokkur fræg dæmi um slíkt.
02.maí 2012 - 01:57 Brynjar Eldon Geirsson

Desktop - Wallpaper golfarans

Við félagarnir hjá Progolf höfum nú sett saman skemmtilega skjámynd á tölvuna fyrir alla golfara.
26.apr. 2012 - 23:47 Brynjar Eldon Geirsson

Glæsilegar heimasíður

Á næstuni munum við líta á flottustu heimasíður bestu atvinnumanna heims í golfi.
13.apr. 2012 - 10:06 Brynjar Eldon Geirsson

Íslandsmót 2012 á Hellu.

Íslandsmótið í höggleik 2012 fer fram á Strandarvelli á Hellu dagana 26-29 júlí.
13.apr. 2012 - 06:00 Brynjar Eldon Geirsson

Í heimsókn hjá Brian Davis og Anniku Sörenstam

Það er alltaf gaman að fá að sjá hvernig bestu kylfingar heims hafa það utan vallar.
01.apr. 2012 - 14:23 Brynjar Eldon Geirsson

Allir klárir í US Masters ?

US Masters hefst á fimmtudaginn.
19.mar. 2012 - 10:27 Brynjar Eldon Geirsson

Justin Rose gefur góð ráð

Það er mikilvægt að æfa sig markvisst á æfingarsvæðinu og nota æfingar sem gera eitthvað fyrir okkur.
13.mar. 2012 - 12:16 Brynjar Eldon Geirsson

Evrópumótaröð kvenna (LET) stórglæsileg

Það má með sanni segja að Evrópumótaröð kvenna í golfi sé orðin ein glæsilegasta mótaröð heims.

 

 

27.feb. 2012 - 12:48 Brynjar Eldon Geirsson

Lokaútkall fyrir sumar 2012

Nú eru einungis rétt um 10 vikur í íslenska golftímabilið og tíminn er fljótur að líða. Ef við miðum við að tímabilið hefjist með hinu árlega 1. maí móti á Hellu þar sem Íslandsmótið í höggleik fer einnig fram síðla sumars. Vonandi eru allir byrjaðir að undirbúa sig fyrir sumarið.
18.feb. 2012 - 07:16 Brynjar Eldon Geirsson

Miguel Angel Jimemez - Myndband

Hér sjáum við Miguel Angel Jimemez vinna með Trackman mælingar. Þeir bestu fara reglulega í gegnum vinnu með slík tæki til að mæla hin ýmsu atriði í sveiflunni. Og einnig sjáum við Jimenez taka sína víðfrægu upphitun.
23.jan. 2012 - 10:24 Brynjar Eldon Geirsson

Broslegt golf - Myndband

 Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera golfari.

10.jan. 2012 - 14:51 Brynjar Eldon Geirsson

Hættu að giska á brotið í flötunum

Nú þarf enginn að giska á brotin á flötunum lengur. Aim Point Golf er bylting fyrir kylfinga varðandi lestur á flötum.
04.jan. 2012 - 23:47 Brynjar Eldon Geirsson

Talandi um rakettur! - Myndband

Nú hefur Taylor Made komið fram með nýja línu af trékylfum sem fær frábæra dóma hjá þeim bestu.
20.des. 2011 - 10:00 Brynjar Eldon Geirsson

Draumur atvinnumennskunnar

Marga unga íslenska kylfinga dreymir um að geta haft viðurværi af því að leika atvinnumannagolf á einhverjum af stóru mótaröðunum. 

 

20.des. 2011 - 01:50 Brynjar Eldon Geirsson

Hugarþjálfun App - Iphone

Með því að sækja þetta forrit á snjallsímann gefst kylfingum á öllum stigum leiksins kostur á því að fá aðstoð með þennan mikilvæga þátt leiksins.

20.des. 2011 - 01:18 Brynjar Eldon Geirsson

Hættu að þrípútta - Myndband

Lærðu æfingu fyrir lengdarstjórnun í púttum og hættu um leið að þrípútta.

15.des. 2011 - 10:30 Brynjar Eldon Geirsson

Hvers vegna golf?

Margir sem eru í leit að áhugamáli við sitt hæfi gætu verið að velta fyrir sér spurningunni: ,,Hvers vegna golf?  Við skulum aðeins fara yfir nokkur atriði sem golfíþróttin hefur fram að færa fyrir þá sem hana stunda.

 

 

13.mar. 2011 - 21:44 Brynjar Eldon Geirsson

Hvernig er best að slá bolta úr háu grasi? - Myndband

Kylfan á það til að snúast í háu grasi og því þarf að opna kylfuna vel áður en bolti er sleginn úr háu grasi. Hér er sýnt í myndbandi hvað þarf að hafa í huga þegar slík högg eru slegin. 

11.mar. 2011 - 21:00 Brynjar Eldon Geirsson

Lykillinn í að verða góður kylfingur er að hafa góðan takt í sveiflunni - Myndband

Stórt leyndarmál í golfi er réttur taktur eða tempó í öllum höggum. Hér í myndbandinu er farið yfir það hvernig hægt að verða betri golfari með því að æfa jafnan takt í sveiflunni.
07.mar. 2011 - 21:31 Brynjar Eldon Geirsson

Ertu með gott jafnvægi í sveiflunni þinni?

Gott jafnvægi er mjög mikilvægt í golfsveiflunni og alveg jafn mikilvægt í upphafi og í lok sveiflunnar þegar búið er að slá boltann.
24.feb. 2011 - 07:00 Brynjar Eldon Geirsson

Að leggja grunn að góðu golfsumri.

Nú þegar vorið fer að banka á dyrnar fara íslenskir kylfingar að vakna til lífsins og fara að æfa sveifluna og dusta af henni rykið fyrir sumarið.  Það er mikilvægt að fara að æfa reglulega og enn mikilvægara að gera það með markvissum hætti þannig að æfingarnar skili sér í sumar á vellinum. Ég mun hér að neðan gefa ykkur góð ráð með hvernig þið ættuð að haga góðum undirbúningi ykkar fyrir sumarið.

Brynjar Eldon Geirsson

Golfkennari hjá ProGolf

Gréta Ingþórsdóttir
Gréta Ingþórsdóttir - 16.5.2012
Lífið er dásamlegt – í minningu barns
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 18.5.2012
Einmana súkkulaðikaka- UPPSKRIFT
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 17.5.2012
Hvað skyldi Guðmundur Andri skrifa núna? Og Illugi?
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 17.5.2012
Hversu svöng erum við í raun?
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Aðsend grein
Aðsend grein - 23.5.2012
Maltölsprósentuvirðing
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 22.5.2012
Rútínurask
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 18.5.2012
Lýðræðislegt ofbeldi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 22.5.2012
Golf í Vestmannaeyjum
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2012
Rússagrýlan
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 22.5.2012
Marx og Lenín í útgerð á Íslandi?
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 16.5.2012
Við getum fækkað umferðarslysum
Fannar Karvel
Fannar Karvel - 22.5.2012
Basic hnébeygja eða hvað...
Gunnar I. Birgisson
Gunnar I. Birgisson - 23.5.2012
Yfirlýsing
Fleiri pressupennar