24. feb. 2011 - 07:00Brynjar Eldon Geirsson
Að leggja grunn að góðu golfsumri.

Mynd: Progolf.is
Nú þegar vorið fer að banka á dyrnar fara íslenskir kylfingar að vakna til lífsins og fara að æfa sveifluna og dusta af henni rykið fyrir sumarið. Það er mikilvægt að fara að æfa reglulega og enn mikilvægara að gera það með markvissum hætti þannig að æfingarnar skili sér í sumar á vellinum. Ég mun hér að neðan gefa ykkur góð ráð með hvernig þið ættuð að haga góðum undirbúningi ykkar fyrir sumarið.
1. Sveiflan.
Byrjið á að æfa sveifluna reglulega á æfingasvæðinu og farið markvisst yfir grunnatriðin því að ef þau eru í lagi mun annað fylgja í kjölfarið. Hvað eru grunnatriði? Jú grunnatriði eru gripið – staðan – boltastaða – og að miða vel. Þessi atriði þurfa að vera í forgangi og í lagi áður en önnur atriði eru athuguð. Mjög sniðugt er að taka 1-2 kennslutíma hjá kennaranum ykkar og láta hann koma þessum atriðum á réttan kjöl og þá getið þið farið og unnið markvisst á æfingarsvæðinu fram að sumri.
2.
Stutt spil. Hvað er stutt spil?
Stutt spil eru pútt – vipp – há innáhögg – flatarglompuhögg osfr (oft talað um högg sem eru 100 m og styttri), þeir sem hafa kost á því að æfa stutta spilið innandyra ættu að sinna því vel nú annars er bara að taka vel á því við æfingar um leið og vellirnir opna í vor þannig að þetta sé orðið gott þegar alvaran á vellinum tekur við í sumar. Þið getið gert kraftaverk með því að kaupa ykkur púttmottu og hafa hana heima í stofu og pútta reglulega heima, þetta hjálpar ykkur mikið þegar á völlinn er komið. Muna að byrja á að koma grunnatriðunum í lag áður en lengra er haldið.
3. Leikform.
Um leið og vellirnir opna þurfið þið að vera dugleg að spila golf á vellinum og að leik loknum fara yfir hringinn og sjá hvað þarf að bæta og síðan fara á æfingarsvæðið og æfa það upp. Margir fara einnig í þessar hefðbundnu vikuferðir til útlanda þar sem leikið er golf stíft í viku og komast kylfingar þannig í leikform fyrir sumarið. Það tekur nefnilega alltaf tíma að koma hlutunum í réttar skorður á vellinum eftir æfingar vetrarins. Muna að nota tölfræði og gott leikskipulag til þess að lækka skorið markvisst.
4. Útbúnaður.
Fáið aðstoð fagmanna (golfkennarar / golfbúðir) til þess að leggja mat á búnaðinn ykkar því að það skiptir mjög miklu máli að græjurnar henti viðkomandi leikmanni og það kostar ekkert að fá slíkt mat.
5. Líkamsrækt.
Stundið reglulega líkamsrækt ásamt því að vanda mataræðið. Að vera í góðu líkamlegu formi með liðleikann og létta lund í fararbroddi skilar betri árangri á vellinum.
Áður en við höldum lengra þá bið ég ykkur um að byrja á þessu og þið munið sjá framfarir
Með golfkveðju
Brynjar Eldon Geirsson
PGA golfkennari hjá golfskóla www.progolf.is
13.maí 2013 - 00:41
Brynjar Eldon Geirsson
Sergio Garcia fór ansi illa að ráði sýnu á 71 holu Players meistaramótsins sem lauk í gær. Garcia var jafn í Tiger Woods í fyrsta sæti fyrir þessa frábæru par 3 holu sem hann lék á sjö höggum.
08.maí 2013 - 10:30
Brynjar Eldon Geirsson
Margir sem eru í leit að áhugamáli við sitt hæfi gætu verið að velta fyrir sér spurningunni: ,,Hvers vegna golf? Við skulum aðeins fara yfir nokkur atriði sem golfíþróttin hefur fram að færa fyrir þá sem hana stunda.
28.apr. 2013 - 11:00
Brynjar Eldon Geirsson
Nú styttist í golftímabilið og hver vill ekki leika vel í sumar og vinna félagana? En árangurinn á vellinum endurspeglar það sem þú hefur lagt á þig við æfingar á síðustu mánuðum og golfið er ekki undanskilið þeirri reglu að þú þarft að æfa þig til þess að geta eitthvað. Ekki láta ykkur dreyma um það að hlutirnir komi að sjálfu sér og að allt í einu detti leikurinn til þín og skorið verði betra en nokkru sinni fyrr. Hvort sem þú lesandi góður ert byrjandi eða lengra kominn að þá er enginn leið framhjá því að þurfa að æfa sig ef að þú vilt bætingu.
24.apr. 2013 - 00:00
Brynjar Eldon Geirsson
Nú geta áhugasamir komið í Bása á sumardaginn fyrsta á milli 11:00 og 13:00 og skoðað nýjustu kylfurnar í golflínunni frá Nike golf. Eins og flestir kylfingar vita eru þetta kylfur sem að Tiger Woods og Rory Macilroy leika með og því sjón sögu ríkari.
15.apr. 2013 - 08:45
Brynjar Eldon Geirsson
Adam Scott varð í kvöld fyrsti ástralski kylfingurinn sem tekst að sigra Mastersmótið, á Augusta National. Þessi 33 ára gamli leikmaður lék stórkostlega á lokahringnum í gær þó svo að púttin hefðu verið að svíkja hann framan af hringnum.
11.apr. 2013 - 10:21
Brynjar Eldon Geirsson
Í dag hefst Us Masters mótið í golfi og spennan mun ná hámarki á sunnudag þegar að úrslitin ráðast í þessu magnaða golfmóti sem er það fyrsta af risamótunum fjórum á þessu ári.
09.apr. 2013 - 12:33
Brynjar Eldon Geirsson
Á fimmtudaginn næstkomandi hefst US Masters á Augusta golfvellinum í Georgíu og er þetta annar eftirsóttasti titillinn af risamótunum fjórum sem haldin eru á hverju ári. Sigurvegarinn fær græna jakkann auk þess að fá gríðarlega hátt verðlaunafé en ekki hvað síst að stimpla sig inn í hóp þeirra sem hafa unnið risamót og á spjöld sögunnar.
18.mar. 2013 - 00:07
Brynjar Eldon Geirsson
Hver þekkir ekki vandamálin sem berja að dyrum þegar slegin eru högg úr hærra grasi heldur en við þekkjum þegar að boltinn liggur á vel sleginni braut. Hafið í huga eftirtalin atriði þegar að þig sláið högg úr háu grasi.
07.mar. 2013 - 09:10
Brynjar Eldon Geirsson
Eitt af því sem vantar hjá mörgum af áhugamönnum í golfi er góð upphitun fyrir leikinn hring eða æfingu. Nú hafa félagarnir hjá TPI (Titlest Performance Institut) sett saman frábærar æfingar með golfkylfu sem ætti að geta nýst öllum sem vilja byrja hringinn heitir eða minnka meiðsla áhættu.
01.mar. 2013 - 11:33
Brynjar Eldon Geirsson
Þá styttist í sumarið og að átökin hefjist á golfvöllum landsins. Nú býðst öllum kylfingum frábært tækifæri á að koma sér í form og fara á námskeið í hinu geysivinsæla TRX æfingakerfi. Æfingarnar eru sniðnar að kylfingum á öllum aldri og við hjá Progolf mælum eindregið með þessu fyrir alla kylfinga.
20.feb. 2013 - 09:31
Brynjar Eldon Geirsson
Svíar framleiða atvinnumenn í golfi á færibandi miðað við aðrar nágrannaþjóðir sínar og margir frábærir heimsklassa leikmenn hafa litið dagsins ljós eftir að hafa farið í gegnum kerfið hjá þeim. Hvernig fara Svíar að þessu og hverjir eru hornsteinarnir í þessari velgengi þeirra.
14.feb. 2013 - 16:16
Brynjar Eldon Geirsson
Atvinnumennirnir Birgir Leifur Hafþórsson og Ólafur Björn Loftsson hefja leik á E-golfmótarröðinni í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum nú í dag. Mótið ber nafnið Palmetto Hall Championship og hægt er að fylgjast með strákunum okkar á heimasíðu mótaraðarinnar.
01.feb. 2013 - 01:02
Brynjar Eldon Geirsson
Phil Michelson lét heldur betur til sín taka á fyrsta keppnisdegi Phoenix Open sem hófst í gær. Kappinn gerði sér lítið fyrir og lék við hvern sinn fingur og endaði á 60 höggum.
18.des. 2012 - 12:26
Brynjar Eldon Geirsson
Meðaltals tölfræði af PGA mótaröðinni í Bandaríkjunum ef tekin eru pútt sem eru frá 3 fetum til 10 feta. Á þessum tölum má sjá hversu flókin fræði púttin eru, jafnvel hjá þeim allra bestu í heimi.
13.des. 2012 - 09:15
Brynjar Eldon Geirsson
Á Evrópumótaröðinni leika flestir bestu leikmenn heims mjög reglulega. Ef litið er yfir almenna tölfræði í hinum ýmsu þáttum geta kylfingar borið sinn eigin leik saman við það sem best gerist. Þar með geta leikmenn sett sér háleit markmið og geta reynt að færa sinn leik að tölum þeirra allra bestu.
25.sep. 2012 - 01:18
Brynjar Eldon Geirsson
Birgir Leifur Hafþórsson hefur leik á fyrsta stigi af þremur í dag og freistar með því að endurheimta sæti sitt á Evrópumótaröðinni í golfi. 25% leikmanna af þeim sem hefja leik munu komast áfram á annað stigið sem haldið verður á Spáni
20.sep. 2012 - 21:57
Brynjar Eldon Geirsson
Nú hefur sérstök nefnd skilað af sér skýrslu um það hvernig hún vill sjá breytingar gerðar á Grafarholtsvelli. Grafarholtsvöllur er án efa einn fallegasti og eftirsóttasti golfvöllur landsins og telja menn þessar breytingar nauðsynlegar svo að völlurinn standist álag og sómi sérvel í framtíðinni.
10.sep. 2012 - 02:14
Brynjar Eldon Geirsson
Það er fátt sem stöðvar Rory McIlroy þessa dagana en þessi ungi Norður-Íri sigraði á BMW meistaramótinu nú í kvöld. McIlroy spilaði lokahringinn á Crooked Stick vellinum í Indiana á 67 höggum eða fimm höggum undir pari og sigraði með tveimur höggum en Phil Mickelson og Lee Westwood deildu öðru sætinu á 18 höggum undir. Tiger Woods endaði svo í þriðja sæti á 17 höggum undir pari eftir lokahring upp á 68 högg eða fjóra undir pari.
06.sep. 2012 - 21:54
Brynjar Eldon Geirsson
Veðrið hefur farið kólnandi undanfarnar tvær vikur og það sést best á umferðinni á golfvöllum landsins. Nú fara kylfingar að huga að vetraæfingunum og golfferðum suður á bóginn. Golfskóli Progolf í Básum býður nú upp á sín vinsælu vetrarnámskeið þar sem kylfingar geta æft einu sinni í viku á sínum fasta tíma í allan vetur og þannig komið sterkari til leiks á nýju golfsumri 2013.
26.ágú. 2012 - 22:25
Brynjar Eldon Geirsson
Bandaríkjamaðurinn Nick Watney fór með sigur að hólmi á Barclays mótinu sem fram fór á Bethpage vellinum í New York. Mótið er fyrsta mót FedEx mótaraðarinnar sem er hluti af bandarísku mótaröðinni. Watney lék hringina fjóra á samtals tíu höggum undir pari, þremur höggum betur en landi sinn Brandt Snedeker sem endaði á sjö höggum undir pari. Sergio Garcia sem hafði leitt nánast allt mótið átti mjög slæman hring í dag, kom inn á 75 höggum eða fjórum höggum yfir pari og endaði jafn í þriðja sæti ásamt Dustin Johnson sem lék á sex höggum undir pari í heildina.
14.ágú. 2012 - 14:47
Brynjar Eldon Geirsson
Ben Hogan var langt á undan sinni samtíð í öllu sem kom að golftækni, tæknin hans hefur orðið mörgum öðrum leikmönnum til eftirbreytni á seinni árum. Frábær kylfingur sem hefur hjálpað golftækninni á hærra plan með sinni ástríðu fyrir leiknum.
02.ágú. 2012 - 11:43
Brynjar Eldon Geirsson
Hér má sjá kylfinginn John Daly slá upptíuðum bolta af höfði golf - sjónvarpsþáttar stjórnandans Feherty. John Daly er einn litríkasti kylfingur samtímans og reglulega koma upp vandræði í kringum hann.
25.júl. 2012 - 08:35
Brynjar Eldon Geirsson
Á morgun fimmtudag hefst íslandsmótið í höggleik á Strandarvelli á Hellu. Leiknar verða 72 holur og eru allir okkar bestu leikmenn meðal keppenda að þessu sinni. Þau Axel Bóasson GK og Ólafía Þ. Kristinsdóttir eiga titil að verða frá því í fyrra þar sem þau sigruðu á mótinu sem haldið var á golfklúbbi Suðurnesja.
Áhugamenn um golf eru hvattir til þess að mæta á Strandarvöll og fylgjast með bestu leikmönnum landsins berjast um eftirsóttasta titilinn hér á landi í golfi.
15.júl. 2012 - 13:34
Brynjar Eldon Geirsson
Árið 2016 mun golf verða tekin inn á Ólympíuleikana sem íþróttagrein í fyrsta skipti í sögu þeirra leika. Leikarnir 2016 verða haldnir í Brasilíu, nánar tiltekið í Rio de Janeiro. Það verður því virkilega áhugavert að fylgjast með leikunum fyrir golfáhugamenn um víða veröld og sjá hver hlítur titilinn í fyrsta skipti.
01.júl. 2012 - 11:40
Brynjar Eldon Geirsson
John Daly er án efa einn litríkasti leikmaður heims. Daly hefur verið mjög umdeildur á velli og utan en enginn getur sagt annað en að hann sé frábær leikmaður og hefur hann meðal annars unnið British Open sem er stæðsti og eftirsóttasti titill atvinnumanna.