21.maí 2013 - 22:45
Brynjar Nielsson
Ég hef stundum velt því fyrir af hverju sumir eru sagðir umdeildir.
15.maí 2013 - 15:24
Brynjar Nielsson
Síðustu misseri og ár hef ég stundum gagnrýnt framgöngu ákveðinna baráttuhópa og lýst skoðunum mínum sem ekki fara saman við skoðanir þeirra.
30.apr. 2013 - 11:04
Brynjar Nielsson
Ég var svolítið brattur í viðtali á Harmageddon um náttúrvernd og náttúrverndarsinna.
29.apr. 2013 - 09:28
Brynjar Nielsson
Helsta niðurstaða kosninganna er sú að landsbyggðin er að refsa stjórnarflokkunum.
26.apr. 2013 - 16:00
Brynjar Nielsson
Á lokaspretti kosningabaráttunnar er frambjóðendum stjórnarflokkanna misboðið yfir heimsku kjósenda. Stjórnarflokkarnir eru ekki að njóta góðs árangurs að þeirra mati. Kjósendur eru ekki vitlausari en svo að þeir átta sig á því að stefna stjórnarflokkanna í efnahagsmálum er röng.
24.apr. 2013 - 08:31
Brynjar Nielsson
Einhverjir samflokksmenn mínir eru ósáttir við að ég skuli hafa lýst því yfir á kosningafundi að ég væri ósammála samþykkt Landsfundar um að loka ætti Evrópustofu.
23.apr. 2013 - 12:00
Brynjar Nielsson
Fréttir hafa borist af fundi okkar sjálfstæðismanna með starfsmönnum Reykjavíkurborgar í gær. Eins og oft vill verða verður umfjöllun ónákvæm og villandi. Haft er eftir mér i fyrirsögn að stjórnarsáttmáli B og D lista yrði marklaust plagg. Það er af og frá að slíkur sáttmáli þyrfti að vera marklaust plagg.
15.apr. 2013 - 20:43
Brynjar Nielsson
Við lestur pistla Stefáns Ólafssonar prófessors á Eyjunni veltir maður því fyrir sér hversu djúpstætt hatur er hægt að hafa á einum flokki.
11.apr. 2013 - 10:54
Brynjar Nielsson
Stundum ratast kjöftugum satt orð á munn.
09.apr. 2013 - 16:20
Brynjar Nielsson
Mér sýnist enn vera talsverð hrifning yfir tillögum Framsóknar um almenna niðurgreiðslu verðtryggðra lána um 20%. Virðist engu skipta hvort slíkt sé yfirhöfuð hægt eða skynsamlegt.
08.apr. 2013 - 10:10
Brynjar Nielsson
Þótt mér hugnist mjög hugmyndir okkar sjálfstæðismanna um skattalækkanir og skattaafslátt verður ekki hjá því komist fyrir fjármálastofnanir að afskrifa skuldir af einstaklingum í meira mæli en nú þegar hefur verið gert.
07.apr. 2013 - 09:37
Brynjar Nielsson
Fyrir ekki mörgum vikum síðan héldu margir því fram að liðinn væri tíma innhaldslausra loforða stjórnmálamanna. Krafa kjósenda væri núna sú að stjórnmálamenn þyrftu að segja sannleikann og lofa engu nema því sem hægt væri að standa við.
04.apr. 2013 - 21:37
Brynjar Nielsson
Hvað veldur 15% fylgistapi Sjálfstæðisflokksins á nokkrum vikum?
03.apr. 2013 - 13:25
Brynjar Nielsson
Endurupptökubeiðnir vegna Guðmundar- og Geirfinnsmála hafa þrívegis komið fram. Fyrst kom fram beiðni af hálfu Sævars Ciesielski 1997 og aftur í byrjun febrúar 1999. Þriðja beiðnin kom frá Erlu Bolladóttur á árinu 2000. Í kjölfar skýrslu starfshóps um Guðmundar-og Geirfinnsmálið nýverið hafa vaknað upp spurningar af hverju Hæstiréttur hafi hafnað þessum endurupptökubeiðnum og hvort einhver möguleiki sé á því að málin verði með einhverjum hætti endurupptekin.
09.mar. 2013 - 10:53
Brynjar Nielsson
Valdarán og þjóðarvilji eru vinsæl orð nú um stundir.
27.feb. 2013 - 14:16
Brynjar Nielsson
Stjórnarflokkarnir hreykja sér af því að hafa endurreist Ísland eftir valdatíð Sjálfstæðisflokksins. Við sem búum í landinu höfum að vísu ekki orðið vör við þessa endurreisn.
20.feb. 2013 - 12:14
Brynjar Nielsson
Í pistli mínum í fyrradag rifjaði ég upp ýmis embættisverk Gylfa Magnússonar í stóli viðskiptaráðherra þar sem honum tókst ekki vel til. Tilefnið var það að Gylfi baðst afsökunar á því að hafa sagt að Ísland yrði „Kúba norðursins“ samþykkti þjóðin ekki IceSave samninginn
18.feb. 2013 - 18:15
Brynjar Nielsson
Að undanförnu hafa verið rifjuð upp ýmis embættisverk Gylfa Magnússonar, sem á sínum tíma lýsti því yfir að íslenskir bankamenn væru þeir verstu í heimi. Gylfi brást við gagnrýninni á hefðbundinn íslenskan hátt með útúrsnúningum og afsökunum á aukaatriðum.
31.jan. 2013 - 13:50
Brynjar Nielsson
Í grein í Fréttablaðinu 25. júní 2009 taldi Þorvaldur Gylfason prófessor það einu gilda hvort Íslendingum bæri lagaleg skylda til að ábyrgjast greiðslu Icesave, það væri siðferðislega skylda. Þessi grein Þorvaldar er skrifuð í kjölfar Svavarssamningsins.
30.jan. 2013 - 13:17
Brynjar Nielsson
Rétt fyrir síðustu áramót var lagt fram frumvarp um breytingar á lögum um tekjuskatt. Í umræddu frumvarpi var gert ráð fyrir þeirri skynsamlegu breytingu á lögum um tekjuskatt að einstaklingum væri gert kleift að draga tap af afleiðusamningum frá hagnaði innan ársins. Breytingartillagan var byggð á þeim sanngirnissjónarmiðum að einstaklingur sem gerir tvo afleiðusamninga á sama ári og tapar 110 á öðrum þeirra en hagnast um 100 á hinum, geti dregið tapið frá hagnaðinum. Með því væri komið í veg fyrir að einstaklingurinn, auk þess að tapa 10% af eignum sínum, greiði fullan tekjuskatt að auki af „hagnaðinum.“ Um leið er tryggt jafnræði á milli einstaklinga og fyrirtækja, því slíkur frádráttur er heimilaður hjá félögum.
22.jan. 2013 - 09:39
Brynjar Nielsson
Nú hefur verið í landinu hrein vinstristjórn undanfarin 4 ár. Fyrir allnokkru síðan lá fyrir að flokkarnir sem að henni standa höfðu misst tiltrú og traust kjósenda. Iðulega þegar fyrirséð er fylgistap vinstri flokkanna hefst flókið ferli sem vel mætti kalla pólitískt kennitöluflakk.
13.des. 2012 - 21:11
Brynjar Nielsson
Þöggun er vinsælt orð í dag. Það var ákveðin þöggun fyrir bankahrun þegar gagnrýni á starfsemi banka og svokallaða útrásarvíkinga var afgreidd sem öfundsýki gamalla valdaklíkna í Sjálfstæðisflokknum sem höfðu misst völdin í viðskiptalífinu. Frægar ræður voru fluttar um það. Eftir hrun var Sjálfstæðisflokkurinn sökudólgurinn vegna meintrar frjálshyggju við einkavæðingu ríkisbankanna. Og það þótt að eini bankinn sem ekki var einkavæddur kosti skattgreiðendur meira en þrot allra einkavæddu bankanna.
02.des. 2012 - 10:10
Brynjar Nielsson
Fyrir Alþingi liggur frumvarp um breytingar á lögum um rannsóknarnefndir nr. 68/2011. Þar er m.a. gert ráð fyrir að nefndarmönnum verði tryggt skaðleysi í störfum sínum og jafnframt refsileysi undan ærumeiðinga- og friðhelgisákvæðum hegningarlaga. Þessi breyting, varðandi refsileysi er varhugaverð og efast má um að hún samræmist ákvæðum stjórnarskrárinnar.
24.nóv. 2012 - 10:53
Brynjar Nielsson
Löggjafarstarf varðar okkur öll. Til þess að geta sinnt því mikilvæga starfi af kostgæfni skipta öflugir stjórnmálaflokkar máli. Þar fer fram mikilvæg pólitísk umræða með þátttöku margra, þar sem grundvöllur er lagður að stefnumótun og hugmyndafræði sem stuðningsmenn flokksins telja að skipti máli. Þetta starf auðveldar kjósendum að gera sér grein fyrir því fyrir hvað stjórnamálaflokkarnir standa og hvaða umboð þeir eru að veita þeim einstaklingum sem veljast til þingstarfa. Um leið er hún mikilvægt veganesti fyrir þá sem taka þátt í löggjafastarfinu og til þess fallin að draga úr hentistefnu og tækifærismennsku.
21.nóv. 2012 - 13:24
Brynjar Nielsson
Sighvatur Björgvinsson fyrrverandi ráðherra hefur farið mikinn í fjölmiðlum undanfarið. Ekki er ég honum sammála um allt og fullyrðing hans um að „gamla gengið“ Jóhanna og Steingrímur hafi reist Ísland úr öskustónni er beinlínis röng.
14.nóv. 2012 - 15:01
Brynjar Nielsson
Fyrir Alþingi liggur frumvarp til laga um neytendalán sem ætlað er að innleiða tilskipun Evrópusambandsins um neytendavernd. Eins og stundum áður þegar kemur að málaflokki neytenda eru í hópi alþingismanna allmargir sem þekkja ekki einungis málefni neytenda betur en við hin heldur einnig mun betur en þeir sem sömdu umrædda tilskipun. Í frumvarpinu eru ýmis ákvæði sem ganga lengra en umrædd tilskipun allt í þeim tilgangi að auka vernd neytenda enn betur en almennt gengur og gerist í nágrannalöndunum.
24.okt. 2012 - 18:00
Brynjar Nielsson
Ragnar Önundarson sendir formanni Sjálfstæðisflokksins tóninn í grein í Mogganum og segir að enginn geti verið forsætisráðherra sem staðið hafi í forréttindabraski.
17.okt. 2012 - 14:47
Brynjar Nielsson
Nú er stutt í þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Fyrsta spurningin í atkvæðagreiðslunni og sú mikilvægasta er sú hvort kjósendur vilji að tillögur stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar að nýrri stjórnarskrá. Og hvað skyldi þessi spurning þýða? Hafi einhver verið í vafa um það hafa Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar-og eftirlitsnefndar alþingis, og einstakir stjórnlagaráðsmenn tekið af allan vafa um að JÁ þýði að alþingi beri að samþykkja tillögurnar efnislega óbreyttar. Ef það er raunin verða kjósendur að hafa eftirfarandi í huga
16.okt. 2012 - 12:30
Brynjar Nielsson
Guðrún Pétursdóttir, formaður stjórnlaganefndar, sem sá um framkvæmd þjóðfundarins, skrifaði grein í Fréttablaðið á föstudaginn síðastliðinn og sakar mig um ósannindi og illvilja í skrifum mínum um tillögur stjórnlagaráðs og framkvæmd þjóðfundarins. Í grein minni sagði ég orðrétt: „Á hverju borði voru leiðbeinendur á vegum stjórnvalda sem leiddu umræðurnar og auðvelt er að sjá af frumgögnum hvernig það hafði áhrif á umræðuna“. Ósannindin og illviljinn virðist hafa komið fram í þeim orðum mínum ef ég skil grein Guðrúnar rétt.
10.okt. 2012 - 14:51
Brynjar Nielsson
Þorvaldur Gylfason svarar grein minni „Um tillögur stjórnlagaráðs", í aðsendri grein á Pressunni, sem hann segist hafa verið hvattur til að skrifa og kallar „Að þræta fyrir staðreyndir". Aldrei verður af Þorvaldi tekið að hugarflug hans er hástemmt. Í grein sinni segir hann að stjórnarskráin hafi verið samin á þjóðfundinum og að hlutverk stjórnlagaráðs hafi verið að koma henni í frumvarpsbúning. Hafi þannig í reynd verið í pottinn búið, hefði þá ekki verið nær, að fá til verksins fólk með þekkingu og reynslu af slíkum frumvarpssmíðum? Óþarfi hefði verið að skipa 25 manna ráð til að semja texta um niðurstöðuna með mikilli fyrirhöfn og ærnum tilkostnaði. Sannleikurinn er auðvitað sá að Þorvaldur er nú á lokasprettinum að reyna að koma klúðri stjórnlagaráðsins yfir á þjóðfundinn. Verði honum að góðu.
08.okt. 2012 - 12:29
Brynjar Nielsson
Í kjölfar hruns bankanna haustið 2008 létu margir stuðningsmenn núverandi stjórnarflokka að því liggja, að gildandi stjórnarskrá ætti einhvern þátt í því hruni. Jafnframt var því haldið fram að lýðveldisstjórnarskráin frá 1944 hafi aðeins verið hugsuð til bráðabirgða. Hvorttveggja er rangt eins og alkunna er, þó svo að gert hafi verið ráð fyrir því við stofnun lýðveldisins að hún yrði endurskoðuð síðar. Stjórnarskránni hefur síðan verið breytt og hún bætt, eftir því sem almenn samstaða hefur verið um meðal þings og þjóðar.
20.sep. 2012 - 10:45
Brynjar Nielsson
Okkur er tíðrætt um það hvað virðing og traust er mikilvægt fyrir þá sem með vald fara.
20.ágú. 2012 - 10:25
Brynjar Nielsson
Í réttarríki leita menn til dómstóla en stjórnvöld grípa ekki inn í þegar gerða einkaréttarlega samninga. Slík vinnubrögð stjórnvalda myndu ekki einungis veikja réttarríkið heldur auka enn frekar en orðið er pólitíska áhættu á því að eiga viðskipti við Ísland eða vera í viðskiptum hérlendis.
23.júl. 2012 - 12:17
Brynjar Nielsson
Það hefur verið baráttumál Öryrkjabandalag Íslands að þeir skjólstæðingar þess sem þurfi að fá aðstoð til að greiða atkvæði í kosningum megi koma með sinn eigin aðstoðarmann. Það sé ekki bara réttlætismál heldur mikilvæg mannréttindi. Því hefur ÖBÍ stutt kröfur fólks, sem þannig er ástatt fyrir, til að kæra síðustu forsetakosningar og krefjast ógildingar á þeim.
11.júl. 2012 - 12:21
Brynjar Nielsson
Einkennandi er fyrir fjölmiðla í seinni tíð að reyna að grafa undan trausti og trúverðugleika dómstóla með ómálefnalegri gagnrýni og upphrópunum sem byggjast á misskilningi og vanþekkingu. Það er ekki gæfuleg framtíðin þegar menn, sem eiga að semja fyrir okkur nýja stjórnarskrá, gaspra um að rétt sé að reka dómara sem gerðir hafa verið afturreka með ranga dóma af æðri erlendum dómstóli.
05.júl. 2012 - 11:30
Brynjar Nielsson
Nýlega voru gerðar breytingar á innheimtulögum í þeim tilgangi að takmarka heimildir til vörslusviptinga. Byggist þessi löggjöf, eins og stundum áður, á því að hér sé um mikið réttlætismál að ræða.
27.jún. 2012 - 12:00
Brynjar Nielsson
Eigum við bara ekki að gleðjast yfir því að gögn málsins benda ekki til sektar Egils. Þá hefur stúlkunni kannski ekki verið nauðgað og saklaus maður ekki verið ákærður. Það er gleðiefni hefði maður haldið. En svo er ekki hjá mesta ofstækisfólkinu. Það skal djöflast í manninum fram í rauðan dauðann.
15.maí 2012 - 13:27
Brynjar Nielsson
Í Héraðsdómi Reykjaness þann 30. apríl s.l. voru tveir ungir menn sakfelldir fyrir skjalafals með því að hafa framvísað fölsuðum skilríkjum við komuna til landsins. Refsing var ákveðin 30 daga fangelsi fyrir brot sem varðar allt að 8 ára fangelsi. Eins og gjarnan vill verða þegar dómsniðurstaða samrýmist ekki pólitískri hugmyndafræði sumra vill umræðan leiðast á villigötur.
03.maí 2012 - 11:45
Brynjar Nielsson
Ég skrifaði grein í Moggann í síðustu viku þar sem gerði athugasemdir við sífelldar árásir fjölmiðla á Ólaf Börk Þorvaldsson, hæstaréttardómara þar sem látið er að því liggja að hann skorti hæfni til að vera hæstaréttardómari. Ég benti á í greininni að Ólafur Börkur hafi verið metinn hæfur til að gegna starfinu þótt okkur geti greint á hvort að hann hafi verið hæfastur umsækjenda. Hæstiréttur sjálfur gerði engan greinarmun á hæfni umsækjenda