31. jan. 2012 - 12:00Brynjar Nielsson
Í vefútgáfu DV í gær var merkileg frétt þess efnis að heldur betur hafi hlaupið á snærið hjá Baldri Guðlaugssyni í saksókninni gegn honum þar sem Ólafur Börkur Þorvaldsson, einn dómara Hæstaréttar í máli Baldurs, væri náfrændi Davíðs Oddssonar góðvinar Baldurs. Full ástæða væri því fyrir Baldur að fyllast bjartsýni.
Frjálsi og óháði miðillinn, sem leggur mikið upp úr sannleikanum, taldi ekki þörf á því að geta þess í fréttinni að Hæstiréttur hefur tvisvar kveðið upp dóma í kærumálum Baldurs, annars vegar hafnaði dómurinn því að rannsókn á máli hans væri ólögmæt og felld niður og hins vegar staðfesti dómurinn kyrrsetningu ákæruvaldsins í eignum Baldurs og í báðum þessum málum var Ólafur Börkur Þorvaldsson einn af þremur dómurum Hæstaréttar. Vandséð er því af hverju Baldur ætti að vera í bjartsýniskasti yfir setu Ólafs Barkar í dóminum nú. Raunar var Baldur ekki ánægðari en svo að hann krafðist þess Ólafur
Börkur viki sæti þar sem hann væri vanhæfur vegna setu í þessum tveimur málum.
Hver skyldi nú tilgangurinn vera með svona frétt hjá hlutlausum blaðamanni sem vinnur á frjálsum og óháðum miðli? Er verið að ýja að því að Ólafur Börkur sé spilltur dómari sem dæmi eftir annarlegum sjónarmiðum eða pólitískum tengslum skyldmenna sinna við ákærða eða er svona fréttaflutningur dulbúin hótun hvers verður að vænta fyrir dómarana ef ekki verður dæmt „rétt“ í málinu? Eða er þetta kannski bara venjuleg illkvittni og mannvonska?
Einstaka fjölmiðlum og fjölmiðlamönnum er tíðrætt um hvað þeir eru hlutlausir, sanngjarnir og annt um sannleikann. Þar eru DV menn kannski fremstir flokki ásamt fyrrum blaðamanni þar, Jóhanni Haukssyni, sem lýsti því fjálglega í viðtali á RUV fyrir helgi í tilefni að nýju starfi hans sem upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, hvað hann væri þjakaður af heiðarleika og sannleiksást í störfum sínum og það myndi ekkert breytast í hina nýja starfi. Ekki er víst að allir aðrir hafi sömu sýn á ágæti Jóhanns og hann sjálfur. En ástæða er til að óska Jóhanni Haukssyni til hamingju með það að fá loksins greidd laun úr ríkissjóði fyrir starf sem hann er búinn að sinna í bráðum þrjú ár án endurgjalds.
Frétt DV sem hér er til umfjöllunar er hvorki heiðarleg né sanngjörn, ekkert frekar margar greinar verðlaunablaðamannsins um icesave eða ógildingu Hæstaréttar á kosningu til stjórnlagaþings. Fjölmiðill sem leggur ákveðna einstaklinga í einelti misserum saman, á milli þess sem skrifaðar eru langar greinar um alvarlegar afleiðingar eineltis í okkar samfélagi, er auðvitað hvorki heiðarlegur né sanngjarn. Þá verður ekki séð að sannleikurinn sé mikið að þvælast fyrir þótt svo sé látið í veðri vaka.