05. feb. 2010 - 20:00Bryndís Gyða Grímsdóttir

Lokakvöldið, var valin Miss Photogenic. Myndir: Einkasafn
Dagur 5, ræs klukkan 7. Reyndar voru margar stelpur að vakna klukkan 5 um morguninn eða jafnvel fyrr til þess að gera sig til, ég skil það ekki ? Well, ég vaknaði allavegana alltaf bara hálftíma fyrr, fannst það alveg nóg, gat ekki hugsað mér að fórna þeim litla svefni sem við fengum til þess að krulla á mér allt hárið eða hvað það nú var, fyrir morgunmatinn. Við tókum farangurinn okkar og lögðum af stað til stórborgarinnar Izmir þar sem við fórum í skoðunarferð um bæinn, fengum að fara að versla. Ég og Belgía fengum sérstaka fylgd með okkur þar sem tyrknensku mennirnir höfðu ekki látið okkur í friði síðan við komum til Tyrklands og það var einn sem beið fyrir utan hótelið og kallaði á okkur þangað til honum var fylgt í burtu greyinu. Ég verslaði mér slatta, finnst svo gaman að eiga allskonar hluti allsstaðar að úr heiminum. Gaman seinna meir.
Við stoppuðum í nammibúð og ég og Slovakía sem var ein af mínum bestu vinkonum úti, skemmtileg stelpa en það var eiginlega rosalega fyndið hvað við vorum líkir persónuleikar, þrátt fyrir að við búum svona langt frá hvor annarri þá var það eins og við hefðum þekkst forever. En við alveg fylltum tvo poka af nammi og súkkulaði, við fengum aldrei að fara í svona búð til að kaupa okkar eigið svo að við nýttum okkur þetta eins og við gátum og keyptum heilan helling af nammi, súkkulaði, kex og gos, ohhh það var svooo gott að fá loksins eitthvað gott. Næst fórum við í flotta brúðakjólabúð og mátuðum kjóla fyrir lokakvöldið. Eftir það var farið á Hilton hótelið í Izmir og á fréttastofu sem er stærsta fréttastöðin og blaðið í Izmir. Þar fórum við í myndatöku fyrir blaðið og fengum svo að skoða aðstöðuna innanhúss, þar sem þau skrifa og prenta blöðin ofl. Eftir frábæran dag tók við tveggja tíma keyrsla uppá fjall, þar var hótelið sem við áttum að gista á en okkur var sagt að þetta væri 5 stjörnu spa hótel með flottu spa-i.
Daginn eftir voru 5 stelpur sem unnu titillinn „Flottastar í Bikiní", það var ég, Venezuela, Brasilía, Belgía og Holland, eftir það fórum við í myndatöku niðri í spa-inu fyrir sjónvarpsstöð og fyrir stærsta blaðið i Izmir sem er stórborg í Tyrklandi. Það var mjög gaman og eftir myndatökuna var valin ein stelpa þar sem þeir vildu fá sérstaka mynd af, bara af henni einni og ég var valin í það, sem var bara gaman, bjóst ekkert endilega við þvi þar sem mér fannst þær allar mjög fallegar og flottar. Æfingin fyrir lokakvöldið skall á eftir þessa skemmtilegu bikiní-uppákomu, en áður fengum við loksins mat: hamborgara og franskar, sem var reyndar ekki upp á marga fiska en það var ágætt að fá eitthvað sem hægt var að borða, organizerinn minn var ekki ánægður með matinn frekar en við. Eftir lokaæfinguna fórum við í hárgreiðslu og svo í myndatöku fyrir tyrknensku pressuna. Við fengum að eiga eitthvað af blöðunum sem var mynd af okkur í. Ég tók nokkur með mér bara að gamni.
Ein stelpa hérna i keppninni frá Tyrklandi benti mér á að það væru myndir af mér á nokkrum tyrknenskum fréttasíðum, bæði persónulegar myndir og svo model myndir sem mér fannst ofboðslega fyndið. Ég gat reyndar ekki skilið neitt sem stóð en það var eitthvað um keppnina, ég fékk linka á einhverjar þeirra. Annars var komið aftur að kvöldmat, fengum buffei, loksins var kjúklingur og ég gat loksins borðað eitthvað.
23.jan var svo lokadagurinn, þá var vaknað klukkan hálf 8, morgunmatur og rútuferð til annars bæjar þar sem við skiptum um hótel, stoppuðum á nokkrum stöðum á leiðinni, t.d. á stað þar sem við fengum nýkreistan appelsínudjús. Svo byrjaði æfing fyrir lokakvöldið. Það komu make-up artistar en ég málaði mig sjalf því að ég vil oftast gera það nema ég hafi einhvern sem er virkilega flinkur, eins og ég hef eina frábæra stelpu hér heima sem hefur málað mig stundum fyrir myndatökur. En ég gerði mitt make-up sjálf og það voru 4 stelpur sem fóru að gráta því þær voru svo rosalega óánægðar með make-up ið sem var sett á þær, ég gat hjálpað tveimur þvi að ég kláraði mig snemma svo ég þreif af þeim og gerði þær sætar og fínar svo að allir yrðu ánægðir.
Ég klikkaði á því að taka kortið mitt með út, tók bara peninga og átti þar að leiðiandi lítið eftir síðustu daganna svo stelpurnar byrjuðu að borga mér fyrir að ég málaði þær á morgnanna, málaði 4, svo ég græddi smá aukapening á þvi, ekki slæmt það.
En á lokakvöldinu komum við fram í síðkjólunum okkar, sundfötum sem við fengum eða sundbolum sem voru satt best að segja virkilega ljótir, appelsínugulir á litinn, við vorum ekki ánægðar með að þurfa að nota þá en ég reyndi að gera bara gott úr mínum, þýðir ekkert að velta sér upp úr svona. Við sýndum leðurjakka og pelsa, þjóðbúningana og í lokaatriðinu voru brúðarkjólar.
Sigurvegarar voru kynntir og ég vann Miss Photogenic, en áður hafði ég unnið bikinídæmið og andlitið. Lithuania vann Miss Civilization of the World. Svo voru bara myndatökur með okkur sem unnum titla og sæti og svo var eftirpartý. Ég fékk slatta af verðlaunum og verslaði líka slatta í Tyrklandi sem varð til þess að töskurnar þyngdust helling hjá mér á heimleiðinni en sem betur fer náði ég að tala mig út úr þvi að borga yfirvigtina.
Daginn eftir var dagurinn sem ég flaug til Danmerkur. Um morguninn bauð borgarstjórinn mér og 4 öðrum stelpum í mat, við komum inn á flottan stað þar sem við máttum panta það sem við vildum, þetta var fyrsti staðurinn alla þessa viku þar sem við komum inná stað sem það var eitthvað sem okkur fannst virkilega gott. Sem segir mér að við höfum bara ekki verið að fara a réttu staðina! Við fengum sérstakt tyrkneskt brauð sem er stærsta brauð sem ég hef séð, þetta var einskonar naanbrauð. Svo pantaði ég mer kebab kjúkling með naanbrauði, sem var vafinn inn í naanbrauð með bræddum osti. Þetta var svo góður matur og ég var svo sæl að við fengum loksins að kynnast góðum tyrknenskum mat. Það var indælt.
Ég og Miss Denmark flugum saman heim, fyrst til Istanbul og þaðan til DK. Á flugvellinum vorum við svo heppnar að það var góður maður sem bar allar töskurnar fyrir okkur í tjékk-inn og hjálpaði okkur með allt, þar sem margir Tyrkir skilja ekki ensku. Ég var svo í Danmörku í einn dag í myndatöku og ég skal sko alveg segja ykkur það að ég missti mig alveg á veitingastöðunum þar, fór beint á Starbucks og Burger king og fékk mér stóra whooper máltíð með Miss Denmark og við áttum sko ekki í vandræðum með að klára það. Svo ánægðar að fá venjulegan skyndibitamat. Flaug svo heim til Íslands.
Það var svo gott að koma heim í góða matinn. Þegar ég kom heim beið mín veisla með góðum mat og fínerí.
Núna er bara ein vika í að ég fari til Þýskalands í Top Model of the World, og allt að verða tilbúið fyrir hana. Ég er búin að fá prógram fyrir þá keppni og lýst mjög vel á hingað til. Fyrsta daginn byrjum við á að fara í myndatöku fyrir fréttastöðvarnar og blöðin og svo er það carnival. Það verður mjög strangt prógram alla daga, vakna snemma og seint að sofa. Miriam sem er Miss Slovakia verður líka í Top Model of the World. Við kynntumst vel í Tyrklandi og ætlum að reyna að fá að vera saman í herbergi. Ef ekki þá er líka bara gaman að vera með einhverjum nýjum.
Hérna er svo síðan hjá Top Model of the World. Getið séð keppendur og svoleiðis.