21. jún. 2010 - 20:00Bryndís Gyða Grímsdóttir
Að ná hárinu alveg ljósu
Þær stelpur sem eru með náttúrulega dökkt hár eða skollitað hár eins og ég og vilja lita það ljóst, hafa ábyggilega flestar komist að því að það getur tekið tíma og kostar pening. Oft er erfitt að ná því alveg ljósu og ná gula litnum úr hárinu.
Ég hef litað hárið á mér oft síðan ég byrjaði fyrir sirka 8 árum. Ég fæ mjög fljótt leið á flestu og þarf oft að gera smá breytingu og það gildir líka um hárið á mér. Ég hef oft verið búin að lita hárið alveg ljóst, svo breyti ég aftur og lita það dökkt. Svo eftir smá tíma er ég komin hring og vil aftur fá ljóst. Kannast einhver við þetta?
Þetta er auðvitað ekki sniðugt. Og núna hef ég verið ljóshærð í rúmlega ár, en það er fyrst núna sem ég hef náð því nánast alveg ljósu og náð gula litnum úr. Ég mun ekki breyta um hárlit á næstunni vegna þess að ég hreinlega má það ekki. En ég verð ábyggilega einhvern daginn dökkhærð aftur ef ég þekki mig rétt. En ég ætla að segja frá því hvernig ég náði því alveg ljósu og náði gula litnum nánast alveg úr.
Ég hafði heyrt af góðu sjampói sem er fljólublátt á litinn og á að taka gula litinn úr og lýsa hárið. Ég keypti nú aldrei þetta sjampó og hafði svona takmarkaða trú á því. Svo fór ég í litun um daginn og ég fór bara í rótarlitun og hárið varð rosalega ljóst í rótina en svo voru ennþá gulir lokkar í hárinu. Svo að ég ákvað að prófa bara og kaupa þetta sjampó.
Mér var bent á að sjampó sem heitir joico – color endure violet shampoo. Þetta sjampó er fjólublátt á litinn og það er litur í því.
Þú ferð bara í sturtu og setur sjampóið í. Láttu það til að byrja með bíða í svona 10 mínutur en það fer bara allt eftir litnum á hárinu þínu. Ef þú ætlar að nota þetta sjampó mæli ég með að þú farir til fagmanns og fáir hans álit á hversu lengi þú átt að láta sjampóið bíða í.
Þú þarft að passa að hafa það ekki of lengi í hárinu því þá getur það orðið grátt hreinlega.
Ég hafði það í fyrst í um10 mínútur og svo aftur í 10 mínútur og svo hef ég notað það einu sinni aftur í 5 mínútur og ég er komin með fallegan ljósan lit. Ekkert gult í hárinu lengur
Þetta svínvirkar! Mun betra en að þurfa endalaust að vera að lita. Sjampóið er líka ekki dýrt miðað við professional shampoo, kostaði að mig minnir um 3000 krónur :)
Það er hægt að fá svona sjampó á mörgum hárgreiðslustofum í Reykjavík.
Go blondes !
28.ágú. 2010 - 20:00
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Hér eru nokkrar heitar myndir úr myndatöku í sumar
26.ágú. 2010 - 20:00
Bryndís Gyða Grímsdóttir
17.ágú. 2010 - 20:00
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Hérna koma nokkrar myndir úr myndatöku hjá Arnoldi Björnssyni ljósmyndara sem ég fór í um daginn.
10.ágú. 2010 - 14:00
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Ég ásamt flottum hópi af skvísum og skemmtikröftum lék í sjónvarpsauglýsingu fyrir söngleikinn Buddy Holly. Það tókst allt mjög vel, flottur hópur og ég held að þetta verði rosalega skemmtilegt.
05.ágú. 2010 - 13:58
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Það að manneskja greinist með krabbamein er mikið áfall fyrir þann sem greinist, nánustu aðstandendur, ættingja, vini og. Það er mjög mikilvægt að bæði þeir sem eiga í baráttu við þennan sjúkdóm og þeir sem næst standa geti fengið andlegan stuðning í gegnum ferlið. Fólk þarf líka oft á tíðum endurhæfingu eftir stranga lyfja- og geislameðferð sem getur varað lengi, jafnvel mörg ár.
30.júl. 2010 - 17:27
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Mér fannst þetta frekar spennandi þar sem ég hef aldrei áður fundið neina þekkta manneskju sem mér hefur fundist vera lík mér, þrátt fyrir að hafa gert tilraun til þess þegar ''tvífaravikan'' á facebook var í gangi hér fyrr um árið.
23.júl. 2010 - 13:45
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Ekki hefur mikið verið rætt um fegurðarsamkeppnir barna á Íslandi enda tíðkast þær ekki hér á landi. Ég held að ekki yrði vel tekið í það ef einhver myndi ákveða að halda þessháttar keppni. Ég man að ég sá fyrst umfjöllun um þetta í þætti sem var sýndur á MTV fyrir nokkrum árum.
21.júl. 2010 - 16:44
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Í allri umræðunni sem hefur skapast um allskonar kynhneigðir, kynleiðréttingu og kynjaskipt hitt og þetta, fer ég ávallt að hugsa til stelpu sem ég eitt sinn þekkti, nefnilega sjálfrar mín. Já, mikið rétt. Þegar ég var smákrakki langaði mig ekkert heitar en að vera strákur!
15.júl. 2010 - 18:00
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Þessi kaka hefur verið í uppáhaldi hjá mér síðan ég smakkaði hana fyrst. Ég mæli eindregið með henni. fyrir þá sem finnst kaffi gott - eða það sem er með kaffibragði, þá er þessi kaka tilvalin.
12.júl. 2010 - 10:00
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Í nútímasamfélagi heyrum við oft orðin hommi, lesbía, samkynhneigð, já og tranny. Sem betur fer hefur mönnum og konum sem hafa barist fyrir réttindum samkynhneigðra og tvíkynhneigðra tekist ágætlega til og í dag þykir það ekki fínt að tala niðrandi um „gay“ fólk.
09.júl. 2010 - 14:00
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Hæð og þyngd uppáhaldsstjörnunnar þinnar er klárlega eitthvað sem flestum stelpum finnst spennandi að vita.
02.júl. 2010 - 17:00
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Hérna fáiði smá sneak peak úr skemmtilegu verkefni sem ég ásamt fullt af góðu og hæfileikaríku fólki á sínum sviðum erum að taka þátt í.
29.jún. 2010 - 10:04
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Í tilefni þess að í dag er dagur hvatningarátaksins „Til fyrirmyndar“ vil ég skrifa opinbert bréf til þeirra sem mér finnst hafa verið til fyrirmyndar á síðustu árum og ég sjálf hef haft reynslu af.
27.jún. 2010 - 15:40
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Ég hef mikið verið að hugsa um lífið og tilveruna undanfarna daga og þær misjöfnu myndir sem lífið getur tekið á sig. Ég hef áttað mig á því hversu gott heilbrigt fólk hefur það.
24.jún. 2010 - 21:00
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Það hefur verið svo frábært veður hérna á klakanum okkar að ég stenst ekki mátið að henda hér inn uppskrift af mínum uppáhalds sumardrykk so far !
23.jún. 2010 - 16:00
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Hvort sem það er sumar, vetur, vor eða haust þá er alltaf gaman að gleðja þá sem manni þykir vænt um. Kærasta/kærustu, eiginmenn/eiginkonur eða þann sem maður er að deita.
20.jún. 2010 - 15:10
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Hérna er uppskrift af heimagerðri andlitsgrímu. Það eru til ýmsar uppskriftir af andlitsgrímum, misgóðar. Þetta er náttúruleg aðferð. Þetta er sniðug aðferð, ef þú átt ekki mikinn pening en langar samt að gefa andlitinu góða nærandi meðferð.
18.jún. 2010 - 17:00
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Mér finnst ekki vera mikil umræða um þetta í okkar samfélagi, en þetta er að verða æ algengara og mér finnst eins og fólk sé oft hrætt um að tala um þetta, eða jafnvel skammast sín fyrir þetta?
16.jún. 2010 - 20:30
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Fékk spurningu um daginn um hvernig maður gerir svona ljóst undir augun, einskonar highlighter undir augun.