06. feb. 2010 - 17:15Björn Þorláksson

Hrikalegt fordæmi Arion-manna

Gerir Arion-banki sér ekki grein fyrir því að þjóðin vill að hreinsað verði til í viðskiptalífinu á Íslandi?

Hrun Moggans er dæmi um þetta. Fólk kaupir ekki blaðið vegna tengsla ritstjóranna við viðskiptalífið, tengsla þeirra við viðskiptalíf sem brást. Tengsla þeirra við viðskipta- og stjórnmálalíf sem ekki bara skuldsetti þjóðina upp í rjáfur heldur gerði okkur líka að glæpamönnum í huga umheimsins.

Gerir Arion-banki sér enga grein fyrir því að ákvörðunin um Haga er eins og blaut og grútskítug  tuska framan í andlit hins sauðsvarta almúga hér á landi? Gerir bankinn sér enga grein fyrir að grunur um sérfyrirgreiðslu og spillingu í Haga-málinu dugar einn og sér til þess (í því eldfima ástandi sem nú er hjá mörgu gjaldþrota fjölskyldufólki) að fólk stekkur upp í loft í stofunum heima, reiðir hnefa sína til himins og spyr í forundran: Mun virkilega ekkert breytast á þessu skeri eftir allt sem á undan er gengið? Er þá til einskis barist?

Bankastjórinn réttlætti ákvarðanir sínar þannig í viðtali í Kastljósinu að menn væru saklausir uns sekt þeirra sannaðist. Það er fræðilega rétt hjá honum en eigi að síður hártogun. Hinar blóðugu byrðar sem almenningur hefur orðið að taka á sig verða aðeins þolaðar ef ávinningurinn verður endurreisn og þar má ekki leika neinn vafi á framgangi réttlætisins. Fólk gengur ekki níðhokið til framtíðarinnar ef allir gömlu hrunkarlarnir fá að þrífast áfram óáreittir og halda sínu.

Bankastjóri Arion mætti velta því fyrir sér hvort þjóðin hljóti ekki að spyrja þessa dagana hvort hugsanlegt sé að Haga-forkólfarnir  viti ekki eitthvað um bankastjórann og hina Arion-mennina sem hafi orðið til þess að Hagar fái sérmeðferð. Hagar eru náttúrlega fræðilega saklausir þrátt fyrir slíkar dylgjur (uns sekt þeirra telst sönnuð) en hugmyndinni hefur eigi að síður verið komið fyrir og ekki var á bætandi í því spillingarandrúmslofti sem liggur yfir landinu okkar.

Verður Haga-afgreiðslan kannski hjá Arion ávísun á það sem koma skal?

Ef svo hlýtur að stefna í landauðn. Að aflokinni annarri byltingu.



16.mar. 2010 - 12:25 Björn Þorláksson

Sannleiksskýrslan mun enga svanga munna seðja...

Sannleiksskýrslan mun enga svanga munna seðja, Halldór Laxness sagði einhverju sinni að sannleikann forðuðust Íslendingar einsog heitan eldinn. Fátt hefur breyst til batnaðar í þjóðmálaumræðunni síðan. Jafnvel nú á krítískum örlagatíma ræða menn hismið fremur en kjarnann. Og skrumið er náskylt hisminu.

10.mar. 2010 - 11:50 Björn Þorláksson

Útlendingum á Íslandi send öflug skilaboð – hvað með alla hina?

Ég ætla í upphafi að varpa fram tveimur spurningum:

  1. Veldur tilviljun því að útlensk kona, nánar tiltekið suðuramerísk kona,  muni njóta þess vafasama heiðurs í seinni tíð að verða fyrst dæmd fyrir vændi hér á landi, eða ætti ég að segja hórmang?
09.mar. 2010 - 10:00 Björn Þorláksson

Hugsjónavoði Vinstri grænna

Hverju hefur búsáhaldabyltingin skilað? Ég er hugsi yfir ríkisstjórninni okkar. Hugsi yfir hinni sömu ríkisstjórn og ég studdi og fagnaði eftir fall ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, hrunstjórnarinnar svonefndu. 
20.feb. 2010 - 19:30 Björn Þorláksson

Af sóðaskap, einelti, sannleika og lygum

Margt má segja misgeðfellt um ástandið á Íslandi þessa dagana. Dugar þar að nefna kröpp kjör, atvinnuleysi, verðfall fasteigna, misskiptingu, óréttlæti og móralskt hrun hjá þjóðinni. En ekki er allt alslæmt. Vísbendingar eru um að nú sé að losna um stíflur sem áður tepptu frjálsar sálir. Að klakabönd séu að bresta.
14.feb. 2010 - 21:12 Björn Þorláksson

Góðir foreldrar fá aldrei gull

Nú standa yfir ólympíuleikar í Vancouver þar sem milljónir manna fylgjast með afreksfólki keppa í vetraríþróttum. Þrautseiga íþróttamannanna er aðdáunarverð. Þjálfun keppendanna hefur árum saman miðast við að þeir „toppi“ á þessum leikum. Hinir bestu komast á verðlaunapall og hinir albestu hampa gullinu. Það hlýtur að vera stórkoslegt að koma heim með gullmedalíu frá ólympíuleikunum. Gullið segir að maður hafi staðið sig betur en allir aðrir.
09.feb. 2010 - 23:02 Björn Þorláksson

Sólon svíkur hina stóru strákana

Það var skelfilegt að hlusta á Sólon Sigurðsson, fyrrum bankastjóra KB-banka, útskýra í samtali við Rúv hvers vegna hann hafði lánað Björgólfunum pening úr bankanum svo Björgólfsfeðgarnir gætu keypt Landsbankann!
03.feb. 2010 - 11:15 Björn Þorláksson

Verður dópsala hluti af ríkisrekstri?

Árið er 2012, segjum 3. febrúar. Ungur ógæfumaður er handtekinn í Leifsstöð með 300 grömm af kókaíni. Hann geymir efnin í rassinum á sér og er söluandvirðið metið á fimm milljónir króna. Hann gæti átt á von á fangelsisdómi en kókaínið verður ekki gert upptækt. Það er nefnilega 2012. Fátækt vex dag frá degi, félagsleg vandamál eru fjölmörg, heilbrigðiskerfið er að liðast í sundur og ríkið munar um sérhverja krónu.
24.jan. 2010 - 12:36 Björn Þorláksson

Fréttamenn ríkisins standi sig í stykkinu

Um helgina hafa landsbyggðarmenn bölsótast mikið yfir niðurskurði svæðisstöðva Ríkisútvarpsins sem eðlilegt er þegar dreifbýlið missir þjónustu. Enn eitt höggið er staðreynd og það er hundfúlt. Hitt virðist þó alveg  gleymast á hvers ábyrgð það er að staðan er eins og hún er. Það er ekki bara vondu körlunum fyrir sunnan að kenna. Sökin er líka okkar í héraði.
22.jan. 2010 - 21:16 Björn Þorláksson

Uppsagnirnar á Rúv fordæmisgefandi hjá ríkinu?

„Vaninn er eins og múrhúð sem situr utan á okkur, siðirnir halda okkur saman,“ er haft eftir Herbert Spencer heimspekingi. Víst er að vaninn er harður húsbóndi, vaninn segir sem dæmi mörgum sjónvarpsáhorfandanum að það verði  menningarslys að missa þulurnar í Ríkissjónvarpinu. Ríkisútvarpið mun með boðuðum niðurskurðaraðgerðum sínum ekki bara svipta tæpa þrjá tugi starfsmanna sinna atvinnunni heldur einnig svipta landsmenn margskonar þjónustu sem þeir hafa vanist, þulunum, gæðaefni í kastljósinu, landsbyggðarfréttaþjónustu ýmisskonar og er þá fátt eitt talið.

Björn Þorláksson

Björn er rithöfundur, skáld og blaðamaður sem hefur starfað við fréttamennsku hjá flestum stærri fjölmiðlum landsins um langt árabil. Þar má nefna DV, RÚV og nú síðast Stöð 2 2006-2009. Björn er höfundur fimm bóka, kvæntur og á fjögur börn.

Björn leggur nú stund á nám í þjóðfélagsfræðum hjá Háskólanum á Akureyri og skrifar auk þess fréttir fyrir Pressuna af Norðurlandi.

Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 12.3.2010
Heit á Hótel Borg - Mynd vikunnar!
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 13.3.2010
Davíðssálmur númer 1
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 15.3.2010
,,Þeir sem þola mig ekki verða svekktir"
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 13.3.2010
Enn og aftur bullar Gylfi
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 15.3.2010
Skvísuvaktin - Elín Kristjáns
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 15.3.2010
Skussum bjargað – ráðdeildarsömum refsað
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 14.3.2010
Tuttugu þúsund verða að tvöhundruð þúsund
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 16.3.2010
Meig utan í lögreglubíl í miðbænum
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Katrín Brynja Hermannsdóttir - 12.3.2010
Útbíuð í sýklum?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Hvar eru afskriftirnar? - hvar er rannsóknin?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 14.3.2010
Mikilvægasta málið
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 15.3.2010
Hugleiðingar vegna orða Jurshevskis
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 12.3.2010
Hvað kosta íslenskar konur?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 12.3.2010
Ákvörðun forsetans breytti stöðunni
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 16.3.2010
Fórnarlömb eða kúlulánakóngar?
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 16.3.2010
Skammastu þín Sigrún!
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Grunaður maður er ekki sekur
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit