21. feb. 2012 - 17:30Björn Jón Bragason
Vitnið Gunnar Þ. Andersen
Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, er mjög til umræðu þessa dagana. Gunnar starfaði áður fyrr erlendis og var um skeið forstjóri dótturfyrirtækis Hafskips hf. í Bandaríkjunum, Cosmos Shipping Co. Gunnari var sagt upp störfum þar vegna megnrar óreiðu í rekstri Cosmos. Í kjölfar uppsagnarinnar gerðist hann einn heimildarmanna Helgarpóstsins, en í því blaði birtust sumarið 1985 greinar sem voru uppfullar af rangfærslum um rekstur Hafskips.
Eftir gjaldþrot Hafskips í desembermánuði 1985 voru fjölmargir fyrrverandi starfsmenn félagsins og dótturfélaga þess kallaðir til yfirheyrslu. Meðal annars var efnt til réttarhalds í skiptarétti Reykjavíkur á hótelherbergi í New York, þar sem Gunnar Þ. Andersen var yfirheyrður. Frammi fyrir skiptaráðendum staðhæfði hann meðal annars að stjórnendur Hafskips hefðu staðið að „tvöfaldri skýrslugerð“, annarri fyrir stjórnendur Hafskips, en hinni fyrir stjórn félagsins og Útvegsbankann, viðskiptabanka félagsins. Aldrei kom neitt fram undir rekstri málsins fyrir dómstólum sem studdi þessar alvarlegu ásakanir og öllum ákæruefnum þar að lútandi var vísað frá dómi, en fullyrðingar Gunnars um tvöfalda skýrslugerð voru ekki studdar gögnum og engin önnur vitni báru að viðhöfð hefði verið tvöföld skýrslugerð.
Í skýrslu þeirri sem borgarfógetar skiptaréttar Reykjavíkur sendu ríkissaksóknara um gjaldþrotamálefni Hafskips var meðal annars vísað til framburðar Gunnars Þ. Andersen þess efnis að Sigurþór Ch. Guðmundsson, aðalbókari félagsins, hefði tjáð honum að stjórnendur Hafskips væru „önnum kafnir við að laga þessar tölur“, en þar mun hafa verið átt við upplýsingar úr bókhaldi Hafskips. Sigurþór hafnaði því að hafa látið þvílík ummæli falla og aldrei kom neitt fram sem studdi þessar ásakanir Gunnars.
Rangur framburður Gunnars Þ. Andersen fyrir skiptarétti Reykjavíkur virðist hafa ráðið mestu um það að fimm fyrrverandi starfsmenn Hafskips og löggiltur endurskoðandi félagsins voru hnepptir í gæsluvarðhald að ósekju, en einn núverandi dómara við Hæstarétt Íslands hefur nefnt að gæsluvarðhaldið yfir Hafskipsmönnum sé svartur blettur á íslensku réttarkerfi.
17.jún. 2013 - 13:56
Björn Jón Bragason
Dans og skemmtanir almennings hafa frá miðöldum verið þyrnir í augum stjórnlyndra afla hér á landi. Um miðja tólftu öld bannaði Jón Ögmundsson biskup allan dans og rímnasöng og um sex hundruð árum síðar sendi Danakonungur klerkinn Ludvig Harboe til landsins í þeim tilgangi að siða þjóðina til. Að mati hinna alvitru stjórnarherra hefðu dans og skemmtanir ekkert annað í för með sér en ólifnað alþýðunnar.
11.jún. 2013 - 09:00
Björn Jón Bragason
Fyrir fáeinum vikum var kynnt skýrsla nefndar sem falið var að gera úttekt á stjórnkerfi og stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. Í skýrslunni er meðal annars harðlega gagnrýnt hvernig borgarstjórinn í Reykjavík sinnir ekki starfi sínu líkt og honum ber að gera samkvæmt 55. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Fyrir að sinna ekki starfi sínu þiggur borgarstjórinn um fimmtán milljónir króna á ári úr sameiginlegum sjóðum borgarbúa.
05.jún. 2013 - 10:51
Björn Jón Bragason
Á kynningarfundi um aðalskipulagið á dögunum, nefndi einn borgarfulltrúinn að „of mikið pláss“ færi undir hafnarmannvirki og götur og í ofanálag vildi hann flugvöllinn burt. Það er illa komið fyrir stjórnmálunum í borginni ef nauðsynleg samgöngumannvirki eru álitin „þvælast fyrir“. Öflugt atvinnulíf fær ekki þrifist nema með góðum samgöngum. Hún er ekki glæsileg framtíðarsýnin sem að mestu leyti byggir á innantómu orðagjálfri en ekki því hvernig raunverulega eigi að skapa skilyrði öflugs atvinnurekstrar. Samgöngur eru þar lykilatriði.
11.maí 2013 - 08:56
Björn Jón Bragason
Síðla árs 1984 geysaði langvinnt verkfall opinberra starfsmanna og lágu útsendingar ríkisútvarpsins og ríkissjónvarpsins niðri um hríð, en á þeim árum hafði ríkisvaldið einkaleyfi til reksturs ljósvakamiðla. Á sama tíma komu engin dagblöð út vegna vinnustöðvunar. Landið varð brátt fjölmiðlalaust. Einangrunin í þjóðfélaginu var meiri en við varð unað og þess ekki langt að bíða að framtakssamir menn hæfu rekstur útvarpsstöðva – þrátt fyrir einkaleyfi ríkisins til slíks rekstrar. Hinar frjálsu stöðvar fengu mikinn meðbyr og almenningur stóð með þeim.
24.apr. 2013 - 16:34
Björn Jón Bragason
Það er vel þekkt í stjórnmálum að orð og efndir fara ekki endilega alltaf saman. Líklega má þó ætla að flestir stjórnmálamenn séu trúir hugsjónum sínum og hafi vilja til að fylgja þeim stefnumálum sem þeir boða.
29.mar. 2013 - 16:20
Björn Jón Bragason
Í hausthefti tímaritsins Sögu árið 2011 birtist grein mín um einkavæðingu Búnaðarbankans, en greinin vakti allmikla athygli á sínum tíma. Hún fjallaði um kaup svokallaðs S-hóps á hlut ríkisins í Búnaðarbanka Íslands árið 2002.
27.feb. 2013 - 10:00
Björn Jón Bragason
Nína Sæmundsson var einn kunnasti listamaður Íslendinga á tuttugustu öld, þrátt fyrir að hún sé nú flestum gleymd. Líklega hafa þó fáir íslenskir myndlistarmenn náð viðlíka árangri og Nína
12.feb. 2013 - 11:00
Björn Jón Bragason
Svo sem kunnugt er af fréttum sigraði Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, í kosningum til stúdentaráðs Háskóla Íslands á dögunum með meiri mun en nokkurn tíman hefur sést, en alls hlaut Vaka 77 prósent atkvæða.
04.feb. 2013 - 11:20
Björn Jón Bragason
Jón Gnarr, borgarstjórinn í Reykjavík, lýsti því yfir fyrir fáeinum dögum að hann hygðist flytja skrifstofur sínar í Breiðholt frá og með 21. janúar og vera þar í þrjár vikur.
31.des. 2012 - 08:00
Björn Jón Bragason
Svo sem fram hefur komið í fréttum er Jón Gnarr og vinstrimeirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur í krossferð gegn helsta fararmáta borgarbúa, fjölskyldubílnum, sem borgarstjóri sagði nýlega að væri „stærsta vandamál Reykjavíkur“. Það lýsir út af fyrir sig veruleikafirringu að telja bíla vera stærsta vandamál borgarinnar en borgarstjórinn hefur nú bætt í og segir fjölskyldubílinn vera „lúxus“.
Það er nefnilega það.