13. ágú. 2012 - 13:38Björn Jón Bragason
Glæný heimildarmynd
Í samstarfi við Ingvar Hauk Guðmundsson kvikmyndagerðarmann hef ég útbúið litla heimildarmynd um horfin stórveldi í verslun við Laugaveginn og hvers vegna svo illa er komið fyrir verslun á þessu svæði, en um leið bendi ég á leiðir til úrbóta.
Í miðborg Reykjavíkur var löngum að finna dýrasta verslunar- og skrifstofuhúsnæði landsins, en nú er leigan aðeins brot af því sem hún er í Kringlunni og víðast hvar er leiga hærri á öðrum verslunarsvæðum í borgarlandinu.
Árið 1986 voru fjórar húsgagnaverslanir í miðborginni, átta leikfangaverslanir, fimm raftækjaverslanir, átta sportvöruverslanir og alls tuttugu skóbúðir, svo dæmi sé tekið. Núna er engin blómabúð lengur við Laugaveginn, engin hljómtækjaverslun og raunar engin raftækjaverslun, engin húsgagnaverslun, engin sportvöruverslun. Fyrir tuttugu árum voru fjórar snyrtivöruverslanir við götuna, nú er aðeins ein eftir. Og þegar mest var á áttunda áratugnum voru ellefu bankaútibú frá Austurstræti upp á Hlemm.
Heimildarmyndina má nálgast hér:
11.maí 2013 - 08:56
Björn Jón Bragason
Síðla árs 1984 geysaði langvinnt verkfall opinberra starfsmanna og lágu útsendingar ríkisútvarpsins og ríkissjónvarpsins niðri um hríð, en á þeim árum hafði ríkisvaldið einkaleyfi til reksturs ljósvakamiðla. Á sama tíma komu engin dagblöð út vegna vinnustöðvunar. Landið varð brátt fjölmiðlalaust. Einangrunin í þjóðfélaginu var meiri en við varð unað og þess ekki langt að bíða að framtakssamir menn hæfu rekstur útvarpsstöðva – þrátt fyrir einkaleyfi ríkisins til slíks rekstrar. Hinar frjálsu stöðvar fengu mikinn meðbyr og almenningur stóð með þeim.
24.apr. 2013 - 16:34
Björn Jón Bragason
Það er vel þekkt í stjórnmálum að orð og efndir fara ekki endilega alltaf saman. Líklega má þó ætla að flestir stjórnmálamenn séu trúir hugsjónum sínum og hafi vilja til að fylgja þeim stefnumálum sem þeir boða.
29.mar. 2013 - 16:20
Björn Jón Bragason
Í hausthefti tímaritsins Sögu árið 2011 birtist grein mín um einkavæðingu Búnaðarbankans, en greinin vakti allmikla athygli á sínum tíma. Hún fjallaði um kaup svokallaðs S-hóps á hlut ríkisins í Búnaðarbanka Íslands árið 2002.
27.feb. 2013 - 10:00
Björn Jón Bragason
Nína Sæmundsson var einn kunnasti listamaður Íslendinga á tuttugustu öld, þrátt fyrir að hún sé nú flestum gleymd. Líklega hafa þó fáir íslenskir myndlistarmenn náð viðlíka árangri og Nína
12.feb. 2013 - 11:00
Björn Jón Bragason
Svo sem kunnugt er af fréttum sigraði Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, í kosningum til stúdentaráðs Háskóla Íslands á dögunum með meiri mun en nokkurn tíman hefur sést, en alls hlaut Vaka 77 prósent atkvæða.
04.feb. 2013 - 11:20
Björn Jón Bragason
Jón Gnarr, borgarstjórinn í Reykjavík, lýsti því yfir fyrir fáeinum dögum að hann hygðist flytja skrifstofur sínar í Breiðholt frá og með 21. janúar og vera þar í þrjár vikur.
31.des. 2012 - 08:00
Björn Jón Bragason
Svo sem fram hefur komið í fréttum er Jón Gnarr og vinstrimeirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur í krossferð gegn helsta fararmáta borgarbúa, fjölskyldubílnum, sem borgarstjóri sagði nýlega að væri „stærsta vandamál Reykjavíkur“. Það lýsir út af fyrir sig veruleikafirringu að telja bíla vera stærsta vandamál borgarinnar en borgarstjórinn hefur nú bætt í og segir fjölskyldubílinn vera „lúxus“.
Það er nefnilega það.
02.des. 2012 - 17:54
Björn Jón Bragason
Þetta sama fólk krossar sig í heilagri vandlætingu yfir því hvað Reykjavík sé ljót, sér í lagi götur og bílastæði. Þetta á allt að vera svo miklu betra í „menningarborgum“ meginlands Evrópu, þangað sem borgarfulltrúarnir streyma stöðugt í skemmtiferðir á kostnað skattgreiðenda.
22.nóv. 2012 - 21:00
Björn Jón Bragason
Nú fyrir skemmstu kom á daginn að Gunnar Þ. Andersen misnotaði aðstöðu sína sem forstjóri Fjármálaeftirlitsins til að hnýsast í einkagögn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar alþingismanns, en gögnunum var komið til fjölmiðils fáeinum dögum eftir að þeirra var aflað í Landsbankanum. Í framhaldinu var Gunnar vitaskuld rekinn og kærður til lögreglu. Hann var í kjölfar rannsóknar ákærður fyrir brot á þagnarskyldu og brot í opinberu starfi. Trúnaður er lykilatriði í fjármálastarfsemi svo sem kunnugt er og það verður að teljast einsdæmi í hinum siðmenntaða heimi að forstjóri eftirlits með fjármálafyrirtækjum vegi að stoðum banka með jafnósvífnum hætti.
21.nóv. 2012 - 15:10
Björn Jón Bragason
Fyrir fáeinum dögum sendu Samtök kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg frá sér ályktun þar sem borgaryfirvöld voru hvött til þess að huga að skemmtiferðaskipalægi nærri gömlu höfninni.