03. jan. 2011 - 09:45Ágústa Johnson
Fimm bestu leiðirnar til að losna við bumbuna
1. Hreyfðu þig oft og mikið
Það er enginn vafi á því að öll hreyfing gerir þér gott. Því meira sem þú hreyfir þig því fyrr muntu losna við fituna. Rannsóknir sýna að því harðar sem þú leggur að þér í æfingunum því meiri er brennslan. Ef þú vilt ná sem mestum árangri á sem skemmstum tíma skaltu hreyfa þig af krafti í 200 mínútur á viku og miða við að hjartslátturinn sé 80-95% af hámarki mestan tímann. Ef þú ert byrjandi, þá er betra að byrja með minna álagi og vinna sig smátt og smátt upp á við. Mundu: Öll hreyfing er góð. Það tekur tíma að byggja upp þrek og þol. Ekki gefast upp. Það skiptir mestu að byrja á því álagi sem hentar þér núna en ekki á því sem mun henta þér þegar þú ert komin/n í þitt besta form.
2. Lyftu lóðum
Ef þú ert ekki nú þegar farin/n að lyfta lóðum reglulega, þá er enginn betri tími til að byrja á því en einmitt núna. Fylgdu einföldu lyftingaæfingakerfi 2-3x í viku. Það styrkir og byggir upp vöðvamassann og eykur grunnbrennslu þína svo þú brennir fleiri hitaeiningum allan sólarhringinn.
3. Ekki eyða of miklum tíma í styrktaræfingar fyrir kviðinn (magaæfingar)
Það er vitanlega mikilvægt að styrkja kviðvöðvana eins og alla aðra vöðva líkamans með vel völdum, fjölbreyttum æfingum. En þú græðir ekki mikið á því að eyða aukaa tíma í kviðvöðvana í þeirri von að þú losnir þannig fyrr við kviðfituna. Þú nærð meiri árangri með því að nota tímann í alhliða styrktarþjálfun og þolþjálfun.
4. Gerðu nokkrar litlar breytingar á neysluvenjum þínum
Þú þekkir þetta; minnkaðu skammtana, minnkaðu sælgætisátið, snakkið, gosið og aðra fitandi óhollustu. Miðaðu við að fækka hitaeiningunum sem þú neytir um u.þ.b. 500 á dag. Það eru um 7.000 he. í 1 kg af líkamsfitu, svo það þýðir að þú munt losna við ½ kg af fitu á viku.
5. Borðaðu trefjaríkt fæði
Rannsóknir sem gerðar hafa verið sýndu að fólk sem neytti trefjaríkrar fæðu s.s. grófkorna brauðs, brúnna hrísgrjóna og heilhveitipasta, losnuðu við meiri kviðfitu en þeir sem neyttu trefjasnauðrar fæðu. Trefjar eru auk þess taldar stuðla að heilbrigðara hjarta og æðakerfi, bættri meltingu ofl.
Ef þig langar að komast í flott form og bæta heilsu þína og losna við aukakíló mæli ég með átaksnámskeiðunum í Hreyfingu sem hefjast 10. Jan.
31.mar. 2011 - 10:30
Ágústa Johnson
Ætlar þú að spóka þig í góða veðrinu í sumar í léttum fatnaði og sundfötum? Það er kominn tími til að hrista af sér vetrarhaminn og e.t.v. múffutoppana sem skaga yfir buxnastrenginn engum til ánægju.
11.mar. 2011 - 20:00
Ágústa Johnson
1. Tölurnar skipta máli
Hitaeining er hitaeining og það eru 7.000 hitaeiningar í einu kílói af líkamsfitu. Ef þú vilt losna við 1 kg á viku skaltu fækka hitaeiningum sem þú neytir á degi hverjum og auka hreyfingu sem svarar til hitaeiningasparnaðar samtals 1000 he á dag. Þannig geturðu losnað við 1kg á einni viku. En gættu þess að fækka hitaeiningum ekki um of því þá hægirðu á efnaskiptahraða líkamans og getur skemmt fyrir vöðva uppbyggingu í líkamanum sem eru nauðsynlegir til að brenna hámarks fjölda hitaeininga. Veldu góða fæðu og hafðu blöndu af próteinum, kolvetnum og hollri fitu í hverri máltíð til að tryggja heilsusamlega og vel samsetta næringu.
23.feb. 2011 - 20:00
Ágústa Johnson
Í þetta sinn ætla ég að nota þennan vettvang til að koma spennandi skilaboðum til þeirra sem hafa brennandi áhuga á líkamsþjálfun. Hreyfing leitar að hæfileikafólki til að þjálfa fyrir hóptímakennslu, þeim að kostnaðarlausu.
17.feb. 2011 - 15:00
Ágústa Johnson
1.Drekktu heitt kakó!
Ef súkkulaði er þinn veikleiki þá er sniðugt að í staðinn fyrir að gúffa í sig súkkulaði hlaðið fitu og sykri að útbúa heldur heitt kakó úr ósætu kakódufti. Hitaðu það með Fjörmjólk eða undanrennu og bættu e.t.v. út í 2 tsk af próteindufti með vanillubragði. Þú færð með þessu móti notalegan kakóbolla með andoxunarefnum og prótíni sem er saðsamt og gott fæði fyrir vöðvana þína.
14.feb. 2011 - 16:00
Ágústa Johnson
Margir átta sig ekki á að drykkir innihalda gjarnan mikið af hitaeiningum. Það getur verið auðvelt að minnka hitaeininga neyslu umtalsvert með því að breyta drykkjar venjum þínum og auðvelda þér að losna við óvelkomin aukakíló.
07.feb. 2011 - 10:00
Ágústa Johnson
Færustu næringarfræðingar heims geta ekki hjálpað þér að losna við aukakílóin ef þú ert ekki tilbúin/n til þess.
Hér eru 3 einföld ráð sem hjálpa þér að halda þér við efnið.
24.jan. 2011 - 14:00
Ágústa Johnson
Æfingar fyrir djúpvöðvana (e. core) í miðju líkamans eru geysilega mikilvægar og gegna stóru hlutverki í jafnvægi líkamans og líkamsstöðu. Hér eru 6 ástæður fyrir því að þú ættir að þjálfa djúpvöðvana reglulega.
18.jan. 2011 - 10:00
Ágústa Johnson
Margir eru talsvert ruglaðir í ríminu á öllum þeim upplýsingum og rangfærslum sem eru uppi um það hlutverk sem fita, prótein og kolvetni spila í heilsu manna og áhrif þeirra á fitusöfnun á líkamann. Hér eru nokkrar upplýsingar til glöggvunar á málinu.
06.jan. 2011 - 21:00
Ágústa Johnson
Ég fæ oft fyrirspurnir frá barnshafandi konum um hvað sé ráðlegt varðandi líkamsþjálfun á meðgöngu og fyrst eftir barnsburð. Hér eru svör við nokkrum helstu spurningum sem brenna á ófrískum konum um þjálfun á meðgöngu.
27.des. 2010 - 10:00
Ágústa Johnson
Jól og áramót er yndislegur tími. Það er skemmtilegt að undirbúa jólin, skreyta, baka, kveikja á kertum og skapa hátíðlega jólastemningu. Svo koma jólin og við borðum góðan mat, spilum saman, njótum frídaganna og eigum notalegar og góðar stundir með fjölskyldunni. Fullkomin sæla.
04.des. 2010 - 20:00
Ágústa Johnson
Við sem erum í heilsuræktargeiranum fáum iðulega spurningar í þessum dúr: „Viltu sýna mér æfingar til að losna við þessa lærafitu“, eða „ég þarf ekkert að fá mikið æfingaprógram, vil bara losna við magaskvapið“. Fólk vill gjarnan vita hvernig það getur losnað við fitu af ákveðnu svæði.
24.nóv. 2010 - 17:00
Ágústa Johnson
Langar þig að losa þig við nokkur aukakíló og vantar hugmyndir að hollu og hitaeiningasnauðu snarli til að narta í á milli mála? Hér koma fjórar fínar hugmyndir að hollu snakki. Hitaeiningainnihaldið er afar lágt svo þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að borða of mikið af því.
16.nóv. 2010 - 10:00
Ágústa Johnson
Þegar þú ert loksins að ná kroppnum í flott form eftir sumarfríið dettur desember inn og matur og freistingar eru allstaðar! Desember er orðinn einn allsherjar neyslumánuður og finnst mörgum nóg um.
09.nóv. 2010 - 15:30
Ágústa Johnson
Við vitum að fjölbreytt heilsusamlegt fæði er ákjósanlegt fyrir okkur, en það er oft á tíðum auðveldara að tala um en að koma því daglega á diskinn okkar í hraða nútímasamfélagsins.
02.nóv. 2010 - 14:00
Ágústa Johnson
Talið er að stór hluti fólks eyði allt að 56 klst. á viku sitjandi. Margir sitja löngum stundum fyrir framan tölvuna, eða hlamma sér í sófann fyrir framan sjónvarpið og fara þess á milli allra sinna ferða í bíl.
25.okt. 2010 - 10:00
Ágústa Johnson
Sumir þola ekki líkamsrækt og yrðu eflaust dauðfegnir ef þeir steyptust út í útbrotum við hverskyns æfingar svo þeir hefðu “löggilda” afsökun fyrir að sleppa heilsuræktinni án þess að viðurkenna hina raunverulegu ástæðu.
17.okt. 2010 - 11:14
Ágústa Johnson
Því meiri áhyggjur sem konur hafa af útlitinu, því minni andlega orku hafa þær fyrir aðra hluti t.d. erfið reikningsdæmi. Þetta kom fram í rannsókn sem prófessor Tomi-Ann Roberts, sálfræðingur við Colorado Háskóla birti í Journal of Personality and Social Psychology. Það hefur lengi verið ljóst að útlits- og æskudýrkun kvenna getur leitt til lágrar sjálfsmyndar, átröskunarsjúkdóma og annara vandamála.
12.okt. 2010 - 18:59
Ágústa Johnson
Ofþyngd og offita barna er vaxandi vandi á Íslandi og við því verður að bregðast með öllum tiltækum ráðum. Við getum öll haft áhrif. Við sjálf getum gert heilmikið til að snúa við þeirri þróun sem átt hefur sér stað á líkamsástandi fólks undanfarna tvo áratugi eða svo. Hvernig við kjósum að lifa okkar lífi hefur heilmikil áhrif á komandi kynslóðir. Við erum fyrirmyndir barna okkar og ef við stundum reglulega hreyfingu og viðhöfum hollar venjur á heimilum okkar leggjum við okkar að mörkum við að skila út í samfélagið heilbrigðum einstaklingum sem hafa tileinkað sér hollan lífsstíl sem góðar líkur eru á að haldist út allt lífið.
04.okt. 2010 - 12:00
Ágústa Johnson
Ísland er nú í 6. sæti yfir feitustu þjóðir heims samkvæmt nýrri skýrslu OECD sem birt var í síðustu viku. Hver hefði trúað þessu fyrir 20 árum? Offita er orðin útbreiddasta heilsufarsvandamál meðal iðnvæddra þjóða.