09. feb. 2011 - 14:30Vignir Már Lýðsson
Egill Helgason hefur um árabil stjórnað umræðuþættinum Silfri Egils, fyrst á Skjá einum, svo á Stöð 2 og nú síðast á Ríkissjónvarpinu. Hefur hann hlotið fjölda verðlauna fyrir dagskrárgerð sína en þátturinn er einn sá ítarlegasti sem boðið er upp á í íslensku sjónvarpi í dag og tekur á málefnum líðandi stundar.
Ábyrgð Egils er mikil þegar kemur að upplýstri umræðu í samfélaginu enda fær hann til sín fjölda þjóðþekktra einstaklinga sem og aðra minna þekkta til að útskýra einstök atvik sem upp koma eða leggja mat á stöðuna sem uppi er á teningnum hverju sinni.
Samkvæmt lögum um Ríkisútvarpið ohf. ber stofnuninni að bjóða landsmönnum upp á fréttaskýringa- og aðra upplýsandi þætti en efni þáttanna skal vera í samræmi við kröfur almennings um gæði og fjölbreytni. Í lögunum stendur í 3. lið 3. gr. II. kafla:
„að framleiða og dreifa hvers konar útvarpsefni fyrir sjónvarp og hljóðvarp á sviði fréttamiðlunar, fræðslu, lista og afþreyingar. Efnið skal fullnægja eðlilegum kröfum almennings um gæði og fjölbreytni.“
Þá er Ríkisútvarpinu skylt að framleiða dagskrárefni sem snerta málefni lands og þjóðar sérstaklega
„og með þeim hætti tryggja hlutlæga upplýsingagjöf um íslenskt samfélag.“
Ekki verður lagt mat á það hér hvaða skilning lögin leggja í þessa lagagrein sé litið til orðsins hlutlægni en hitt má telja víst að þættir Egils Helgasonar, sem kenndir eru við fjársjóð útrásarvíkings, vekja upp áleitnar spurningar hvort ráðamönnum beri að gera nánari grein fyrir merkingu hennar.
Nýlega lagði Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fram fyrirspurn á Alþingi þar sem hann óskaði eftir lista yfir þátttakendur í þætti Egils. Töluverður dráttur hefur orðið á svörum frá Alþingi en það verður að teljast skrýtið þar sem þessar upplýsingar liggja þegar fyrir í tölvum safnadeildar Ríkisútvarpsins. Fyrir einskæra tilviljun hafði félagi minn fengið aðgang að þessum gögnum nokkrum dögum áður en Tryggvi Þór bar upp fyrirspurn sína en það tók okkur ekki nema um klukkustund að vinna verk sem Alþingi hefur látið dragast um marga daga.
Hér fyrir neðan má sjá ýmsa tölfræði úr þáttunum Silfri Egils sem Egill Helgason stýrir en frá hruninu 2008 hafa 363 einstaklingar litið við hjá Agli. Oftast hefur Sigrún Davíðsdóttir, blaðamaður Spegilsins Egils, komið í þáttinn eða alls 9 sinnum frá því í september sama ár.
Næst á eftir henni kemur Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, sem komið hefur alls sjö sinnum í þáttinn en jafnoft hefur Ólafur Arnarson, pistlahöfundur á Pressunni, komið.
Eftirtaldir hafa komið fimm sinnum eða oftar í þáttinn:
Sigrún Davíðsdóttir (9)
Lilja Mósesdóttir (7)
Ólafur Arnarson (7)
Gunnar Smári Egilsson (6)
Andri Geir Arinbjarnarson (6)
Benedikt Sigurðarson (6)
Bjarni Benediktsson (6)
Þór Saari (5)
Þorvaldur Gylfason (5)
Eiríkur Bergmann Einarsson (5)
Eva Joly (5)
Jón Baldvin Hannibalsson (5)
Marinó G. Njálsson (5)
Jóhann Hauksson (5)
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir (5)
Jóhannes Björn Lúðvíksson (5)
Agnes Bragadóttir (5)
Jón Daníelsson (5)
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (5)
Vilhjálmur Bjarnason (5)
Ef litið er á þá þátttakendur sem komið hafa tvisvar eða oftar í þáttinn kemur í ljós að rúm 64% þeirra voru karlar en 36% voru konur en femínistar hafa áður vakið máls á höllum hlut kvenna í þáttum Egils.
Gætir Egill nokkurrar hlutlægni þegar hann velur þingmenn í þáttinn en séu þeir flokkaðir eftir stjórnmálaflokkum skiptist fjöldi frá hverjum flokki svo til eftir fylgi flokkanna í síðustu kosningum.
Hins vegar vekur athygli að vegið hlutfall þingmanna Hreyfingarinnar eða þeirra sem áður skipuðu þingflokk Borgarahreyfingarinnar í þætti Egils er tvöfalt kosningafylgi flokksins.
Eins og fram hefur komið gaf Egill það upp að hann hyggðist kjósa Borgarahreyfinguna í Alþingiskosningunum 2009 og verður tíð gestakoma Þórs Saari (5), Margrétar Tryggvadóttur (4) og Birgittu Jónsdóttur (4), auk Þráins Bertelssonar (3) sem sagt hefur skilið við þremenningana, að teljast vafasöm.
Vegið hlutfall þingmanna í Silfri Egils
Fylgi flestra flokka er í kringum kosningafylgið í síðustu kosningum en fylgi Hreyfingarinnar (þá Borgarahreyfingarinnar) er tvöfalt kjörfylgi flokksins (7,2% vs. 14%).
Þegar þeir sem komið hafa tvisvar eða oftar í þáttinn hans Egils og falla undir flokkinn „álitsgjafar“, þ.e. eru hvorki þingmenn né sveitarstjórnarfulltrúar, og auk þess flokkaðir eftir uppgefnum eða ætluðum stjórnmálaskoðunum kemur í ljós að vegið hlutfall vinstri manna, þ.e. að teknu tilliti til fjölda heimsókna hvers og eins, er 73%, 25% flokkast til hægrimanna og 2% álitsgjafanna má raunverulega telja hlutlausa að mínu mati. Listinn er hér að neðan og dæmi hver fyrir sig ef sett er spurningamerki við þessar tölur en miðjumenn voru ýmist flokkaði til vinstri eða hægri enda er enginn hreinn miðjumaður til.
Vegið hlutfall álitgjafa eftir ætluðum stjórnmálaskoðunum
Flestir álitsgjafar Silfur Egils frá hruni til loka ársins 2010 eru meintir vinstri menn.
Af ofangreindu má ráða að þótt Egill reyni eftir fremsta megni að gæta hlutlægni með því að passa upp á fjölda þingmanna frá skilgreindum stjórnmálaflokkum, þá virðist hann nýta sér álitsgjafa sem líklegst myndu teljast til vinstri manna og klæðir þá í búning hlutlausra fræðimanna.
Hér er um huglægt mat mitt að ræða því þessir menn bera ekki merki tiltekinna stjórnmálaflokka í barmi sínum en mér þykir rétt að vekja athygli á málinu með pistli þessum. Heildarlistann frá hruni má nálgast í viðhenginu hér fyrir neðan.