15. nóv. 2010 - 11:00Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Við erum kristin þjóð

Í því umróti sem við Íslendingar höfum gengið í gegnum undanfarin misseri er eðlilegt að þess sé krafist að burðarásar í íslensku samfélagi skoði það sem til betri vegar má færa í starfi og leik. Þar er þjóðkirkjan ekki undanskilin.

Kirkjan, líkt og margir aðrir hefur farið í gegnum erfiða tíma og verið er að endurmeta ýmsa þætti starfsins eins og fram kom á Kirkjuþingi nú helgina. Í ljósi sögunnar er það ekkert nýtt. Frá upphafi hefur kristni tekið breytingum, oftast nær í takti við breytingar á þjóðfélaginu og viðhorfum kristinna manna.
 
Þótt þjóðkirkjan kunni að liggja vel við höggi tímabundið má það ekki leiða til þess að öfl andsnúin kirkjunni og kristninni nýti tækifærið og umbylti þeim grunni sem kristnin er fyrir íslenskt samfélag. Þar með talið góðu og óeigingjörnu samstarfi kirkjunnar og skólanna í landinu. Menning okkar og saga einkennast og mótast mjög af kristni. Því er vandséð, hvernig brýr verða byggðar milli fortíðar og nútíðar ef ungt fólk nýtur ekki leiðsagnar, sem byggist á þeim trúarbrögðum sem langflestir Íslendingar játa. Það útilokar hins vegar alls ekki að önnur trúarbrögð komi við sögu í skólastarfi.
 
Þessi áhersla kemur fram bæði í löggjöf og aðalnámsskrá grunnskóla  en samkvæmt henni gegna kristin fræði þýðingarmiklu hlutverki og eru einn mikilvægasti þáttur trúarbragðakennslunnar.
 
Vissulega er mikilvægt að við eflum þekkingu og skilning skólabarna á öðrum trúarbrögðum. Það er sjálfsagt og eðlilegt og ég vona að það sé óumdeilt. Við eigum að kynnast fleiri trúarbrögðum en kristni og ekki síður hefðum annarra menningarsvæða.
 
Það má hins vegar ekki verða til þess, að við afneitum því sem við erum og þeirri sögulegu, trúarlegu og siðferðilegu þróun sem hefur mótað okkur sem þjóð, tungu okkar og menningu.
 
Við verðum að gera greinarmun á fræðslu og trúboði. Það er hlutverk kirkjunnar að standa að fermingarfræðslu, enda er hún ekki hluti af skilgreindu skóladagatali né skólaskyldu. Engu að síður geta foreldar, nemendur og kirkjan hér eftir sem hingað til óskað eftir heimild skólastjóra til að senda barn í fermingarfræðsluferðir. Skólastjóra er heimilt að veita slíkt orlof. Kristni setur raunar mark sitt á skólastarf og þjóðlíf allt með ýmsum hætti, til dæmis er gefið frí í skólum á kristnum hátíðum eins og jólum og páskum.  Ætla ég að vona, að menn fari nú ekki amast við því.
 
Við eigum ekki að vera feimin að játa að við séum kristin. Með því erum við síður en svo að hnýta í önnur trúarbrögð. Við eigum að halda hér uppi öflugri trúarbragðafræðslu, kenna börnunum okkar að þekkja og virða önnur trúarbrögð og aðra menningu en þau eru alin upp við. En að sjálfsögðu verður þungi trúarbragðafræðuslunnar áfram á kristin fræði, hvaða þýðingu þau hafa fyrir okkur og okkar samfélag. 
 
Samstarf skólanna og kirkjunnar hefur verið afar farsælt og verður vonandi engin grundvallarbreyting þar á. Við eigum að treysta skólastjórnendum og kirkjunni í þeim efnum.  Samtalið milli skóla og kirkju verður að halda áfram. Vona ég að það samtal verði ekki rofið á forsendum “nýrra stjórnmála”. Það er ekki besta leiðin. Hvað þá sú skynsamasta.
 
Ýmsir kunna nú að spyrja, hvað er kaþólikkinn að vilja upp á dekk?  Sem kristin kona er mér ekki sama að menn misnoti óróann og stefnuleysið í samfélaginu til að veikja enn frekar okkar þjóðfélagslegu undirstöður.  Kirkjan er hluti af þeim undirstöðum. Hvort sem mönnum líkar það betur eða verr. Hana verðum við að styðja. Mér er ekki sama um þjóðkirkjuna þótt ég sé meðlimur í öðrum söfnuði.  Hún hefur haft mikla þýðingu fyrir þjóðina í gegnum tíðina og mun halda því áfram.

Gefum þjóðkirkjunni það svigrúm, sem hún þarf til að gera upp sín mál.  Ég vona svo sannarlega og veit, að kirkjan með sinni öflugu sveit manna og kvenna mun koma sterkari út úr þeirri endurskoðun, okkur öllum til heilla.




 




09.mar. 2012 - 09:00 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Framhald viðræðna

Það er skondið að fylgjast með því þegar fólk talar fyrir því að klára aðildarviðræður við Evrópusambandið og fjölga þar með valkostum og tækifærum fyrir fólkið í landinu þá bregst ekki að sumir andstæðingar viðræðna æða beint í vopnabúrið. Þöggunar- og háðsglósutækið með göddum á báðum endum er þá gjarnan valið.
06.mar. 2012 - 17:30 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Flott hjá Framsókn

Ég geri mér grein fyrir því að Framsóknarflokknum er ekki endilega greiði gerður með því að sjálfstæðismaður hæli honum. Engu að síður fær Framsókn prik fyrir að hafa efnt til málþings um hugsanlega upptöku Kanadadollars. Það er að mínu mati þýðingarmikið að bjóða upp á vel undirbúna og upplýsta umræðu en ekki síður valkosti sem þjóðin getur vegið og metið. Hún er nefnilega fullfær um að velja sjálf ef hún fær til þess tækifæri. Það eru hins vegar ekki allir sem vilja veita henni þessi tækifæri. Umfjöllunin sem slík undirstrikar mikilvægi þess að um framtíð íslenskrar gjaldmiðilsstefnu verði rætt af festu og raunsæi.
27.jan. 2012 - 09:20 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Tími hinna breiðu spjóta

„Þau tíðkast nú hin breiðu spjótin“, mælti Atli Ásmundsson þegar Þorbjörn öxnamegin lagði til hans með fjaðraspjótinu í Grettissögu. Nú beinast þau meðal annars að forseta Alþingis.  Skammast er út í forseta þingsins, Ástu Ragnheiði,  fyrir að hafa leyft sér að taka tillögu Bjarna Benediktssonar á dagskrá þingsins. En hvað átti forseti að gera eftir að hafa fengið lögfræðiálit um að tillagan væri þingtæk? Átti forseti þingins að sitja á tillögunni og koma í veg fyrir að þingið fengi tækifæri til að tjá vilja sinn? Ef svo er, þá skulu menn segja það hreint út.
18.nóv. 2011 - 09:20 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Ballið er byrjað

Það er alltaf merkilegt að ganga um Laugardalshöllina þegar landsfundur Sjálfstæðisflokksins er í gangi. Þeir sem upplifað hafa landsfundina okkar vita að erfitt er að lýsa hvernig andrúmsloftið og stemningin er hverju sinni. Og hún er gríðarleg. Ekki bara vegna formannskjörs.
10.nóv. 2011 - 14:00 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Tryggja þarf aðra þyrlu

Frá því í júlí hefur legið fyrir að Landhelgisgæslan þurfi að leita eftir þyrlu til leigu á fyrstu mánuðum næsta árs meðan TF-LÍF fer í umfangsmikla skoðun í janúar. Tryggja verður að tvær þyrlur verði jafnan tiltækar á landinu. En ekki hvað.
30.sep. 2011 - 19:00 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Ljóstýra

Það er kannski verið að bera í bakkafullan lækinn að ræða launa- og starfsumhverfi lögreglunnar miðað við furðulegt framlag ýmissa stjórnmálamanna til málanna að undanförnu. Því skal þó haldið til haga að það er fagnaðarefni að fjármálaráðherra ræði nú við lögreglumenn og ætli sér að skipa hóp sem ráði fljótt og vel fram úr þessum hremmingum sem launa- og starfsumhverfi lögreglunnar er komið í. Þetta er brýnt og mikilvægt skref og vona ég  innilega að hugur fylgi máli hjá ráðherranum.  Og hann fái til þess stuðning frá öðrum ráðherrum í ríkisstjórninni.
10.sep. 2011 - 11:30 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Kvikmyndastöðin Ísland

Það var mikið að menntamálaráðherra setti loks málefni Kvikmyndaskólans í forgang. Þetta mál er réttilega að verða að einhverju allsherjarklúðri eins og kom fram í þinginu í vikunni. 
09.júl. 2011 - 19:00 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Deilur í ríkisstjórn! Ja, hérna hér

Las í Fréttablaðinu í morgun að deilur væru innan ríkisstjórnar um hvernig standa eigi að framkvæmdum við nýtt og löngu tímabært fangelsi.  Deilurnar sem slíkar eru ekki fréttnæmar  né að það sé nýtt að framkvæmdum seinki vegna þeirra. Hitt er fréttnæmt að fangelsisframkvæmdirnar bætast nú í tafasarp ríkisstjórnarinnar. Ætlar þetta fólk ekki að koma sér saman um nokkurn skapaðan hlut?
07.jún. 2011 - 13:30 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Svartur dagur

Í dag hefjast réttarhöldin fyrir Landsdómi yfir Geir H. Haarde. Þetta er eflaust þungbær dagur fyrir Geir og fjölskyldu hans. Hann er það fyrir okkur vini hans.
01.jún. 2011 - 14:00 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Forvarnir frekar en forsjárhyggju

Það er margs konar rétttrúnaður í gangi í samfélaginu og vei þeim sem ekki eru sömu skoðunar og þeir sem hafa höndlað hina „einu réttu“ skoðun. Þetta birtist í stórum sem smáum málum.
11.mar. 2011 - 12:00 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Keppni í kommúnisma

Það er ekki laust við að maður spyrji sig hvar maður sé og hvenær, þegar horft er til ákvarðana og yfirlýsinga ríkisstjórnarinnar og stjórnarþingmanna undanfarið. Afturhaldið, forsjárhyggjan og daður við stjórnmálastefnu sem maður vonaði að hefði verið gerð útræk meðal siðaðra þjóða, er meðal þess sem stingur í augun. 
02.mar. 2011 - 21:00 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Segjum já við staðgöngumæðrun

 Hún er þrjósk, vinkona mín hún Ragnheiður Elín Árnadóttir. Í tæp þrjú ár hefur hún rætt og skrifað um mikilvægi þess að heimila staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni. Nú loksins er umræðan komin á dagskrá í samfélaginu og það er óskandi að sú umræða verði leidd til enda.
18.feb. 2011 - 09:30 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Vitlaus spurning

Mér var það á í þinginu í gær að bera upp vitlausa spurningu til Jóhönnu Sigurðardóttur. Ég skil bara ekki í sjálfri mér að hafa ekki áttað mig á því. Hvað þá að vera haldin þeim ranghugmyndum að ríkisstjórnin fari eftir tillögum þverpólitískrar nefndar sem hún skipar.
27.jan. 2011 - 12:00 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Ábyrgðarleysi vinstri stjórnar

Eitt af forgangsmálum ríkisstjórnarinnar var að koma stjórnlagaþingi á laggirnar. Um það hefur forsætisráðherra látið falla margarhástemmdar yfirlýsingar. Fyrst stjórnlagaþing er svona mikilvægt og brýnt er ábyrgð stjórnvalda á kosningaklúðrinu sem tefur þingið að sjálfsögðu mikil. Niðurstöðu Hæstaréttar ber að taka alvarlega en ekki af þeirri léttúð sem einkennt hefur málflutning margra stjórnarliða.
22.des. 2010 - 20:30 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Að standa vörð um gæði

Hún er sanngjörn krafan um að Háskóli Íslands fái að hækka skrásetningargjöld. Hún á heldur ekki að koma fólki á óvart þegar ætlast er til að Háskóli Íslands taki inn í skólann hátt í 1000 fleiri nemendur   en hann fær greitt fyrir. Það þýðir einfaldlega, ef ekkert er að gert, að menntamálayfirvöld ætli skólanum að slaka á gæðum.  
26.nóv. 2010 - 13:01 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Þjakaðir ráðherrar – og þó!

Eftir langt og strangt þref tókst á árunum 2005-2008 að koma árlegum framkvæmdum í samgöngumálum á suðvesturhorninu uppí tuttugu prósent, sem hlutfall af öllum nýjum framkvæmdum í samgöngumálum landsins. Ég og fleiri þingmenn vonuðumst reyndar eftir að með tíð og tíma gæti þetta hlutfall farið eitthvað stighækkandi, sem hlýtur að teljast eðlilegt í því ljósi að á þessu svæði býr drjúgur meirihluti landsmanna eða um 70%.
24.nóv. 2010 - 14:30 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Engan hringlandahátt

Aðildarumsókn Íslands að ESB er nú í ákveðnum farvegi þótt nokkuð langt sé í land að niðurstaða viðræðna liggi fyrir. Líklega nokkur ár. Samninganefndin sem ræðir við ESB er skipuð hæfum einstaklingum með víðtæka reynslu sem skynja þá ábyrgð sem á þeim hvílir; að gæta íslenskra hagsmuna í hvívetna. Ákveðnir málaflokkar verða eðlilega fyrirferðarmestir og erfiðastir í þeim viðræðum og eru sjávarútvegs- og landbúnaðarmálin þar efst á blaði. Skiptir miklu að þetta tímafreka ferli verði opið og aðgengilegt almenningi og að náið samráð verði haft við Alþingi Íslendinga.
05.nóv. 2010 - 16:20 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Skatttekjur hraktar til norrænna skattaparadísa

Skattkerfið hefur í tíð núverandi ríkisstjórnar  verið flækt og gert óhagkvæmt. Afleiðingin er sú að það dregur úr fjárfestingu og þar með hagvexti. Skattkerfið hefur verið fært áratugi aftur í tímann.
03.nóv. 2010 - 18:00 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Hvetjum fyrirtækin

Í nýlegri könnun Capacent meðal 400 stærstu fyrirtækja landsins telja 80% stjórnenda aðstæður í efnahagslífinu slæmar en 20% að þær séu hvorki góðar né slæmar.   Enginn telur horfurnar góðar.  Miðað við niðurstöður könnunarinnar er erfiður vetur framundan ef ekki rætist fljótlega úr málum.



Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Alþingismaður og fv. ráðherra.
Gréta Ingþórsdóttir
Gréta Ingþórsdóttir - 16.5.2012
Lífið er dásamlegt – í minningu barns
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 18.5.2012
Einmana súkkulaðikaka- UPPSKRIFT
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 17.5.2012
Hvað skyldi Guðmundur Andri skrifa núna? Og Illugi?
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 17.5.2012
Hversu svöng erum við í raun?
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Aðsend grein
Aðsend grein - 23.5.2012
Maltölsprósentuvirðing
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 22.5.2012
Rútínurask
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 18.5.2012
Lýðræðislegt ofbeldi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 22.5.2012
Golf í Vestmannaeyjum
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2012
Rússagrýlan
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 22.5.2012
Marx og Lenín í útgerð á Íslandi?
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 16.5.2012
Við getum fækkað umferðarslysum
Fannar Karvel
Fannar Karvel - 22.5.2012
Basic hnébeygja eða hvað...
Gunnar I. Birgisson
Gunnar I. Birgisson - 23.5.2012
Yfirlýsing
Fleiri pressupennar