27. jan. 2010 - 08:00Sölvi Tryggvason
Það sem þau óttast
Það er óheppilegt að rannsóknarskýrslan frestist enn. Afar óheppilegt.
Vonandi eru fyrir því góðar og gildar ástæður.
Rannsóknarnefnd Alþingis samkeyrði skuldastöðu stjornmála- embættis- og fjölmiðlamanna í öllu bankakerfinu. Með þeirri aðgerð er hægt að sjá öll lán í öllum bönkum og hvort eitthvað hafi verið afskrifað af lánum eftir bankahrun eða í aðdraganda þess. Nú er stóra spurningin hvort rannsóknarnefndin mun birta þessar upplýsingar, sem gætu orðið afskaplega áhugaverðar.
Það er ljóst að þó nokkrir stjórnmálamenn tóku há lán og sum í erlendri mynt. Þessi lán ruku upp eftir hrunið eins og hjá öðrum landsmönnum. En ráðherrar og alþingismenn þurftu á sama tíma að taka mikilvægar ákvarðanir og því vakna spurningar hvort einhverjir þeirra hafi verið vanhæfir vegna fjárhagslegrar stöðu sinnar.
Þessi samkeyrsla ætti líka að geta leitt fram í dagsljósið alla styrki sem einstakir stjórnmálamenn fengu í aðdraganda prófkjara. Þar hefur alls ekki allt komið fram ennþá og ljóst að einhverjir gætu þurft kvíðastillandi þangað til óvissunni léttir.
Það hvílir mikil ábyrgð á hinum nýju alþingismönnum sem eiga að skoða möguleg brot samherja sinna og kollega eftir að hafa farið yfir rannsóknarskýrsluna. Þeir þingmenn sem í þeirri nefnd eru eiga ekki auðvelt verkefni framundan og það verður fylgst náið með þeirra niðurstöðu.
13.mar. 2010 - 08:30
Sölvi Tryggvason
Í yfirheyrslum saksóknara yfir Milestone mönnum eru þeir allir spurðir um hvernig fjárhagsstaða þeirra sé eftir hrunið.
12.mar. 2010 - 17:57
Sölvi Tryggvason
ég held að þessi ákvörðun forsetans hafi skapað ákveðna nýja stöðu,
segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra. Í Spjallinu síðasta miðvikudag viðurkenndi hún jafnframt að undanfarnir mánuðir hefðu tekið á innan raða
12.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Jón Óttar Ragnarsson er stórmerkilegur náungi. Hann er með doktorspróf í næringarfræði og stýrði næringarfræðideild Háskóla Íslands áður en hann stofnaði Stöð 2 fyrir rúmum tuttugu árum.
11.mar. 2010 - 12:32
Sölvi Tryggvason
Í framhaldi af því sem ég hef skrifað hér um afskriftir á lánasöfnum nýju bankanna vil ég spyrja einfaldrar spurningar og beina henni til Landsbankans, Íslandsbanka og Arion banka.
11.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Félagarnir Pálmi Gestsson og Örn Arnarsson voru fjörugir að vanda í Spjallinu á Skjá Einum. Þeir sögðu þar meðal annars sögu af því þegar Steingrímur Hermannsson, þáverandi forsætisráðherra stoppaði ríkisstjórnarfund til að leika í atriði með Spaugstofunni.
10.mar. 2010 - 13:37
Sölvi Tryggvason
Aðalgesturinn í Spjallinu á Skjá Einum í kvöld er hinn stórmerkilegi Jón Óttar Ragnarsson, en í þættinum verður einnig viðtal við félagana Arnar Grant og Ívar Guðmundsson.
10.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Í yfirheyrslum sérstaks saksóknara yfir Milestone mönnum síðasta sumar var Karl Wernersson spurður um eigið fé sem kom inn í fjármögnun á Invik.
09.mar. 2010 - 19:08
Sölvi Tryggvason
Hvað er í gangi? Rétt í þessu fékk ég póst með þessum skemmtilega titli:
,,Hot sex pills"
09.mar. 2010 - 07:00
Sölvi Tryggvason
Ég hef skrifað hér um afskriftirnar sem þegar hafa átt sér stað í bankakerfinu og leita nú svara við því hvernig þessar afskriftir hafa verið nýttar.
08.mar. 2010 - 07:00
Sölvi Tryggvason
Það hefur mikið verið rætt um vinnubrögð bankanna og gegnsæi innan raða þeirra. Það er ljóst að eftir krísuna í bankakerfinu á Íslandi árið 2006 breyttist margt.
07.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Nýju bankarnir tóku lánasöfnin um fasteigna- og bílalán yfir með miklum afskriftum.
06.mar. 2010 - 10:34
Sölvi Tryggvason
Eitt af því sem kom inn á borð rannsóknarnefndar Alþingis á síðustu metrunum var mikið magn af gögnum um Milestone og Sjóvá og öll félög þeim tengd.
05.mar. 2010 - 07:20
Sölvi Tryggvason
Bjargvætturinn hefur stigið fram á sjónvarsviðið. Maðurinn sem getur bjargað Íslandi úr ógöngunum. Einar Karl Haraldsson.
04.mar. 2010 - 21:33
Sölvi Tryggvason
Þorsteinn J. Vilhjálmsson og Vera Sölvadóttir hafa sett kreppuna í rétt samhengi í myndinni Burkina Faso 8600km.
04.mar. 2010 - 14:00
Sölvi Tryggvason
Steingrímur Wernersson fór mikinn í fyrstu yfirheyrslunum hjá sérstökum saksóknara. Hann ræddi þar meðal annars um fjármögnunarfyrirtækið Avant:
04.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Ísland er stjórnlaust. Ástæðan er einföld. Stjórnmálamenn eru orðnir svo vanir að stinga hvorn annan í bakið að þeir kunna ekki að vinna saman.
03.mar. 2010 - 13:49
Sölvi Tryggvason
Félagarnir Kormákur og Skjöldur klæða af sér kreppuna. Manni líður eins og maður sé kominn fimmtíu ár aftur í tímann þegar maður gengur inn í verslun þeirra á Laugaveginum. Sjón er sögu ríkari:
03.mar. 2010 - 07:45
Sölvi Tryggvason
Félagarnir Felix Bergsson og Gunni Helga fóru á kostum í Spjallinu á Skjá Einum. Þar var meðal annars sýndur bútur úr hinum ógleymanlega þætti
,,Fyrirgefðu," sem var á dagskrá Skjás Eins fyrir nokkrum árum síðan.
02.mar. 2010 - 21:00
Sölvi Tryggvason
Í Spjallinu á Skjá Einum annað kvöld sjáum við nótt í miðborg Reykjavíkur með augum lögreglumanna. Við vorum á vaktinni frá 11 til 7 um morguninn. Hér að neðan má sjá smá brot úr þættinum.
02.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Ég fékk gífurleg viðbrögð við grein minni hér á Pressunni í gær. Ég er afskaplega þakklátur fyrir það. Mér sýnist að stór hópur fólks sé búinn að fá nóg af því hugarfari sem hér ríkir. Mig langar að halda aðeins áfram.