26. jan. 2010 - 08:00Sölvi Tryggvason
Steingrímur tekur á sig skítinn
Það hefur verið ótrúlegt að fylgjast með því hve ójafnt álag er á ráðherrum ríkisstjórnarinnar í fjölmiðlum. Steingrímur J. Sigfússon hefur frá upphafi þurft að verja allt sem er óþægilegt. Hann hefur aftur og aftur mætt í viðtöl þegar manni finnst að einhver annar ætti að vera þar í hans stað. Allt frá upphafi stjórnarsamstarfsins. Skyldi nokkurn undra þó að þessi miklu baráttumaður sé orðin þreyttur af öllu álaginu.
Sem fjölmiðlamaður get ég vottað fyrir það að Steingrímur hefur aldrei skorast undan og þó að það sé brjálað að gera hjá honum er yfirleitt alltaf hægt að fá hann í viðtöl, jafnvel eftir að hann varð ráðherra. Því miður verður það sama ekki sagt um alla. Ég veit að flestir fjölmiðlamenn sem fjalla um stjórnmál myndu taka undir þetta með mér.
Sumir ráðherrar virka áberandi, af því að þeir eru duglegir að senda frá sér yfirlýsingar sem birtast í blöðum og netmiðlum og þeir mæta í tveggja spurninga viðtöl á tröppum stjórnarráðsins, eða kannski á skipulagða blaðamannafundi. En þegar kemur að því að setjast niður í ítarlegt viðtal þar sem þeir eru spurðir í þaula er alltaf eitthvað mikilvægara á dagskránni.
Með framgöngu sinni sýnir Steingrímur aftur og aftur mikið hugrekki, en hins vegar má deila um það hvort hann sé að gera taktísk mistök. Plottararnir sem bíða í bakherbergjum og fela sig eru eflaust fegnir að eiga að mann eins og Steingrím, sem alltaf tekur slaginn. Líka þegar það er erfitt.
12.mar. 2010 - 17:57
Sölvi Tryggvason
ég held að þessi ákvörðun forsetans hafi skapað ákveðna nýja stöðu,
segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra. Í Spjallinu síðasta miðvikudag viðurkenndi hún jafnframt að undanfarnir mánuðir hefðu tekið á innan raða
12.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Jón Óttar Ragnarsson er stórmerkilegur náungi. Hann er með doktorspróf í næringarfræði og stýrði næringarfræðideild Háskóla Íslands áður en hann stofnaði Stöð 2 fyrir rúmum tuttugu árum.
11.mar. 2010 - 12:32
Sölvi Tryggvason
Í framhaldi af því sem ég hef skrifað hér um afskriftir á lánasöfnum nýju bankanna vil ég spyrja einfaldrar spurningar og beina henni til Landsbankans, Íslandsbanka og Arion banka.
11.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Félagarnir Pálmi Gestsson og Örn Arnarsson voru fjörugir að vanda í Spjallinu á Skjá Einum. Þeir sögðu þar meðal annars sögu af því þegar Steingrímur Hermannsson, þáverandi forsætisráðherra stoppaði ríkisstjórnarfund til að leika í atriði með Spaugstofunni.
10.mar. 2010 - 13:37
Sölvi Tryggvason
Aðalgesturinn í Spjallinu á Skjá Einum í kvöld er hinn stórmerkilegi Jón Óttar Ragnarsson, en í þættinum verður einnig viðtal við félagana Arnar Grant og Ívar Guðmundsson.
10.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Í yfirheyrslum sérstaks saksóknara yfir Milestone mönnum síðasta sumar var Karl Wernersson spurður um eigið fé sem kom inn í fjármögnun á Invik.
09.mar. 2010 - 19:08
Sölvi Tryggvason
Hvað er í gangi? Rétt í þessu fékk ég póst með þessum skemmtilega titli:
,,Hot sex pills"
09.mar. 2010 - 07:00
Sölvi Tryggvason
Ég hef skrifað hér um afskriftirnar sem þegar hafa átt sér stað í bankakerfinu og leita nú svara við því hvernig þessar afskriftir hafa verið nýttar.
08.mar. 2010 - 07:00
Sölvi Tryggvason
Það hefur mikið verið rætt um vinnubrögð bankanna og gegnsæi innan raða þeirra. Það er ljóst að eftir krísuna í bankakerfinu á Íslandi árið 2006 breyttist margt.
07.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Nýju bankarnir tóku lánasöfnin um fasteigna- og bílalán yfir með miklum afskriftum.
06.mar. 2010 - 10:34
Sölvi Tryggvason
Eitt af því sem kom inn á borð rannsóknarnefndar Alþingis á síðustu metrunum var mikið magn af gögnum um Milestone og Sjóvá og öll félög þeim tengd.
05.mar. 2010 - 07:20
Sölvi Tryggvason
Bjargvætturinn hefur stigið fram á sjónvarsviðið. Maðurinn sem getur bjargað Íslandi úr ógöngunum. Einar Karl Haraldsson.
04.mar. 2010 - 21:33
Sölvi Tryggvason
Þorsteinn J. Vilhjálmsson og Vera Sölvadóttir hafa sett kreppuna í rétt samhengi í myndinni Burkina Faso 8600km.
04.mar. 2010 - 14:00
Sölvi Tryggvason
Steingrímur Wernersson fór mikinn í fyrstu yfirheyrslunum hjá sérstökum saksóknara. Hann ræddi þar meðal annars um fjármögnunarfyrirtækið Avant:
04.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Ísland er stjórnlaust. Ástæðan er einföld. Stjórnmálamenn eru orðnir svo vanir að stinga hvorn annan í bakið að þeir kunna ekki að vinna saman.
03.mar. 2010 - 13:49
Sölvi Tryggvason
Félagarnir Kormákur og Skjöldur klæða af sér kreppuna. Manni líður eins og maður sé kominn fimmtíu ár aftur í tímann þegar maður gengur inn í verslun þeirra á Laugaveginum. Sjón er sögu ríkari:
03.mar. 2010 - 07:45
Sölvi Tryggvason
Félagarnir Felix Bergsson og Gunni Helga fóru á kostum í Spjallinu á Skjá Einum. Þar var meðal annars sýndur bútur úr hinum ógleymanlega þætti
,,Fyrirgefðu," sem var á dagskrá Skjás Eins fyrir nokkrum árum síðan.
02.mar. 2010 - 21:00
Sölvi Tryggvason
Í Spjallinu á Skjá Einum annað kvöld sjáum við nótt í miðborg Reykjavíkur með augum lögreglumanna. Við vorum á vaktinni frá 11 til 7 um morguninn. Hér að neðan má sjá smá brot úr þættinum.
02.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Ég fékk gífurleg viðbrögð við grein minni hér á Pressunni í gær. Ég er afskaplega þakklátur fyrir það. Mér sýnist að stór hópur fólks sé búinn að fá nóg af því hugarfari sem hér ríkir. Mig langar að halda aðeins áfram.
01.mar. 2010 - 14:30
Sölvi Tryggvason
Fyrstu yfirheyrslur sérstaks saksóknara yfir Þór Sigfússyni enda á þessum fleygu orðum: