14. jan. 2010 - 07:55Sölvi Tryggvason

Stærsta leyndarmálið í bankakerfinu

Stærsta leyndarmálið í íslensku bankakerfi varðar peningana sem er búið að afskrifa af fasteignalánum í nýju bönkunum. Þegar lánasöfnin voru færð yfir voru þau keypt á eitthvað nálægt 30% af upphaflegu verði. Þetta er misjafnt á milli bankanna, en tölurnar eru þarna nærri. Inni í þessum lánasöfnum eru auðvitað lán sem ekki fást til baka nema að mjög litlu leyti, eins og lán til hlutabréfakaupa og fleira.

En stóra fréttin er að það er þegar búið að afskrifa mjög stóran hluta af fasteignalánunum á Íslandi. Fyrst var mér sagt þetta af einum lykilmanni í íslensku bankakerfi, svo öðrum og loks þeim þriðja. Þannig að ég fór að skoða þetta betur.

Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef aflað mér er búið að afskrifa að minnsta kosti 30% af öllum fasteignalánum á Íslandi. Það er að segja nýju bankarnir gera ekki ráð fyrir að fá nema 70% af andvirði lánanna til baka.Þá vaknar spurningin, af hverju er ekki búið að segja fólkinu í landinu þetta? Hvers vegna eru þúsundir manna látnar vakna með kvíðahnút á hverjum einasta morgni, af ótta við að missa húsnæðið sitt?

Jú, vegna þess að af sumum lánum mun ekkert afskrifast, en af öðrum mjög mikið. Ef það næst meira inn en áætlanir gera ráð fyrir, er svo spurning hvort kröfuhafarnir, sem nú eru að einhverju leyti eigendur nýju bankanna líti ekki svo á að þeir eigi heimtingu á peningunum, frekar en að hér verð fasteignalán afskrifuð í stórum stíl.

En það sem þetta segir okkur á hinn bóginn er að það er búið að búa til mjög mikið svigrúm til afskrifta og það geta bara verið tvær skýringar á því að stjórnvöld hafi ekki sagt frá því.

1) Þau eru bara ekki nógu vel inni í rekstri nýju bankanna. Ótrúlegt nokk hafa lykilmenn í bankakerfinu haldið þessu fram við mig

2) Þau þora því ekki, vegna þess að það er búið að halda því svo stíft fram að hér sé ekki hægt að afskrifa nema mjög lítið af lánum.

Það eitt er ljóst að svigrúmið er nógu mikið til þess að forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar geta komið fram og sagt: ,,Hér verður enginn borinn út á næstu mánuðum.“ Stjórnvöldum ber skylda til að gera það, þó ekki væri nema bara til að bjarga geðheilsu þúsunda Íslendinga.

Það tapa allir á því ef fólk verður látið missa íbúðirnar sínar, enda sér það hver sem er að bankarnir geta ekki hent 10 þúsund fasteignum út á markaðinn og þannig kolfellt hann. Hinn kosturinn er þá að þeir sitji á mannlausum fasteignum sem enginn borgar af og þá koma engir peningar í kassann. Hvort tveggja er galið plan!


14.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

Mikilvægasta málið

Það er jákvætt að allir fjölmiðlarnir í landinu og fleiri en einn Alþingismaður séu byrjuð að skoða það sem ég hef bent á hér á síðunni ítrekað síðan í janúar.
13.mar. 2010 - 08:30 Sölvi Tryggvason

,,Hvers virði er 300 fermetra hús í Hlíðunum?"

Í yfirheyrslum saksóknara yfir Milestone mönnum eru þeir allir spurðir um hvernig fjárhagsstaða þeirra sé eftir hrunið.
12.mar. 2010 - 17:57 Sölvi Tryggvason

Ákvörðun forsetans breytti stöðunni

ég held að þessi ákvörðun forsetans hafi skapað ákveðna nýja stöðu,
segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra. Í Spjallinu síðasta miðvikudag viðurkenndi hún jafnframt að undanfarnir mánuðir hefðu tekið á innan raða
12.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

,,Það síðasta sem hann las á þessari jörðu"

Jón Óttar Ragnarsson er stórmerkilegur náungi. Hann er með doktorspróf í næringarfræði og stýrði næringarfræðideild Háskóla Íslands áður en hann stofnaði Stöð 2 fyrir rúmum tuttugu árum.
11.mar. 2010 - 12:32 Sölvi Tryggvason

Opin spurning til nýju bankanna

Í framhaldi af því sem ég hef skrifað hér um afskriftir á lánasöfnum nýju bankanna vil ég spyrja einfaldrar spurningar og beina henni til Landsbankans, Íslandsbanka og Arion banka.
11.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

Stoppaði ríkisstjórnarfund fyrir Spaugstofuna

Félagarnir Pálmi Gestsson og Örn Arnarsson voru fjörugir að vanda í Spjallinu á Skjá Einum. Þeir sögðu þar meðal annars sögu af því þegar Steingrímur Hermannsson, þáverandi forsætisráðherra stoppaði ríkisstjórnarfund til að leika í atriði með Spaugstofunni.
10.mar. 2010 - 13:37 Sölvi Tryggvason

Rifið í lóðin

Aðalgesturinn í Spjallinu á Skjá Einum í kvöld er hinn stórmerkilegi Jón Óttar Ragnarsson, en í þættinum verður einnig viðtal við félagana Arnar Grant og Ívar Guðmundsson.
10.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

,,Áttum bara helvítis helling af peningum"

Í yfirheyrslum sérstaks saksóknara yfir Milestone mönnum síðasta sumar var Karl Wernersson spurður um eigið fé sem kom inn í fjármögnun á Invik.
09.mar. 2010 - 19:08 Sölvi Tryggvason

,,Hot sex pills"

Hvað er í gangi? Rétt í þessu fékk ég póst með þessum skemmtilega titli: ,,Hot sex pills"
09.mar. 2010 - 07:00 Sölvi Tryggvason

Böðlar kerfisins

Ég hef skrifað hér um afskriftirnar sem þegar hafa átt sér stað í bankakerfinu og leita nú svara við því hvernig þessar afskriftir hafa verið nýttar.
08.mar. 2010 - 07:00 Sölvi Tryggvason

Þeir millifærðu hundrað sinnum á einni sekúndu

Það hefur mikið verið rætt um vinnubrögð bankanna og gegnsæi innan raða þeirra. Það er ljóst að eftir krísuna í bankakerfinu á Íslandi árið 2006 breyttist margt.
07.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

Stóra blekkingin

Nýju bankarnir tóku lánasöfnin um fasteigna- og bílalán yfir með miklum afskriftum.
06.mar. 2010 - 10:34 Sölvi Tryggvason

Sprengja á síðustu metrunum

Eitt af því sem kom inn á borð rannsóknarnefndar Alþingis á síðustu metrunum var mikið magn af gögnum um Milestone og Sjóvá og öll félög þeim tengd.
05.mar. 2010 - 07:20 Sölvi Tryggvason

Bjargvætturinn

Bjargvætturinn hefur stigið fram á sjónvarsviðið. Maðurinn sem getur bjargað Íslandi úr ógöngunum. Einar Karl Haraldsson.
04.mar. 2010 - 21:33 Sölvi Tryggvason

Kreppan í samhengi

Þorsteinn J. Vilhjálmsson og Vera Sölvadóttir hafa sett kreppuna í rétt samhengi í myndinni Burkina Faso 8600km.
04.mar. 2010 - 14:00 Sölvi Tryggvason

Ætluðu að selja öllum allt

Steingrímur Wernersson fór mikinn í fyrstu yfirheyrslunum hjá sérstökum saksóknara. Hann ræddi þar meðal annars um fjármögnunarfyrirtækið Avant:
04.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

Stærsta hrunið 3. hluti

Ísland er stjórnlaust. Ástæðan er einföld. Stjórnmálamenn eru orðnir svo vanir að stinga hvorn annan í bakið að þeir kunna ekki að vinna saman.
03.mar. 2010 - 13:49 Sölvi Tryggvason

Klæða af sér kreppuna

Félagarnir Kormákur og Skjöldur klæða af sér kreppuna. Manni líður eins og maður sé kominn fimmtíu ár aftur í tímann þegar maður gengur inn í verslun þeirra á Laugaveginum. Sjón er sögu ríkari:
03.mar. 2010 - 07:45 Sölvi Tryggvason

Fyrirgefðu fyrir ,,Fyrirgefðu"

Félagarnir Felix Bergsson og Gunni Helga fóru á kostum í Spjallinu á Skjá Einum. Þar var meðal annars sýndur bútur úr hinum ógleymanlega þætti ,,Fyrirgefðu," sem var á dagskrá Skjás Eins fyrir nokkrum árum síðan.
02.mar. 2010 - 21:00 Sölvi Tryggvason

Nótt í miðbænum

Í Spjallinu á Skjá Einum annað kvöld sjáum við nótt í miðborg Reykjavíkur með augum lögreglumanna. Við vorum á vaktinni frá 11 til 7 um morguninn. Hér að neðan má sjá smá brot úr þættinum.

Sölvi Tryggvason
Netfangið er: solvi@skjarinn.is

Námsferill:  – Menntaskólinn við Sund útskrifast 1998 BA í sálfræði frá Háskóla Íslands 2003 Hagnýt Fjölmiðlafræði frá HÍ 2004 Er hálfnaður með MA nám í Blaða– og fréttamennsku frá HÍ

Starfsferill: Stöð2 – fréttamaður 2004 -2006. Lesari í morgunfréttum Stöðvar 2 og fréttum NFS -2005-2006. Einn af þáttastjórnendum Íslands í dag 2006-2008 Fréttir og Fréttaskýringar í DV sumarið 2009. Þáttastjórnandi Spjallsins með Sölva 2009.

Marta María
Marta María - 10.3.2010
Finnst ykkur þetta í lagi?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
,,Áttum bara helvítis helling af peningum"
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 13.3.2010
Davíðssálmur númer 1
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 12.3.2010
Heit á Hótel Borg - Mynd vikunnar!
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 13.3.2010
Enn og aftur bullar Gylfi
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 09.3.2010
Steingrímur afhjúpar bjánaskap
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Bryndís Gyða Grímsdóttir - 10.3.2010
Smokey eyes: Þegar þú vilt vera extra mikil gyðja - MYNDBAND
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 09.3.2010
,,Hot sex pills"
Ágústa Johnson
Ágústa Johnson - 09.3.2010
Ert þú „Allt eða ekkert” týpan?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Opin spurning til nýju bankanna
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 10.3.2010
Hagsmunaárekstur eða vanhæfni?
Gylfi Arnbjörnsson
Gylfi Arnbjörnsson - 09.3.2010
Getum við treyst brennuvarginum fyrir kyndlinum?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Hvar eru afskriftirnar? - hvar er rannsóknin?
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 11.3.2010
Díva mánaðarins - BrianX.com
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
Rifið í lóðin
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Stoppaði ríkisstjórnarfund fyrir Spaugstofuna
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Katrín Brynja Hermannsdóttir - 12.3.2010
Útbíuð í sýklum?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 12.3.2010
Ákvörðun forsetans breytti stöðunni
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit