Sölvi Tryggvason
24. jan. 2010 - 09:00Sölvi Tryggvason

Skotið úr línubyssum á lögreglumenn í miðbæ Reykjavíkur

Vignir Már Lýðsson

Af því að ég hef verið að rifja upp hina örlagaríku daga þegar bylting varð á Íslandi fyrir ári, langar mig að birta póst sem lögreglumaður sem var á staðnum sendi mér. Hann sendi mér þennan póst eftir að ég hafði sagt frá upplifun minni af dögunum þegar mótmælin við Austurvöll stóðu sem hæst.

Hér er frásögn hans:

,,Það er mat margra lögreglumanna að eignaspjöll og látlausar árásir á lögreglumenn þessa daga hafi verið leyft að ganga allt of lengi og allt of langt. Ég stóð vaktina þessa daga og kom fyrst niður eftir þegar að fólk hafði umkringt Alþingi og lamdi á rúður með ýmsum áhöldum. Við smátt og smátt náðum að ýta fólki frá húsinu og inn í miðjan garðinn. Það var ótrúlega súrrealískt að standa þarna og horfa á ungt fólk allt niður í 16-17 ára, klætt í fín merkjaföt, brosandi útað eyrum þegar það skvetti úr súrmjólkurfernum yfir höfuð lögreglumanna. Allskyns mjólkurvörum sem það keypti af Jóni Ásgeiri í Austurstræti.

Mikill minnihluti fólksins var "venjulegt" fólk, fólk sem manni fannst "eðlilegt" að væri statt á Austurvelli til þess að nýta sér tjáningarfrelsið sitt og lýsa vanþóknun sinni á algeru gjaldþroti stjórnmálamanna. Fólk sem maður fann til samkenndar við. Ég er alls ekki að segja að ungt fólk eigi ekki að mótmæla né hafi til þess þroska. Ég er eingöngu að segja að upplifun mín (staðfest af mörgum félaga minna) var sú að mikið af unga fólkinu þarna var eingöngu komið til þess að djöflast í lögreglunni.


Hvernig er hægt að biðja lögreglumenn um að bíða og bíða og horfa upp á endalaus lögbrot fólks sem mætir til þess að svala annarlegum hvötum sínum? Fyrir laun sem eru í engu samræmi við líkamlegt og andlegt álag starfsins. Það er skoðun margra að lögreglan hefði átt að grípa mun fyrr inn í þessa atburðarás og að stjórnendur lögreglunnar hafi í raun og veru ekki þorað að taka ákvarðanir fyrr en raun bar vitni. Sú aðgerð að fólk stillti sér upp fyrir framan lögregluna til að verja hana staðfestir þetta mat mitt og annarra lögreglumanna. Meirihluti fólksins gekk alltof langt gagnvart lögreglunni, og lögreglan brást ekki við því.

Það er aldrei fallegt að sjá lögreglu beita valdi. En það er algerlega kristaltært að lögreglan stofnar ekki til átaka í óeirðum. Hún er mætt á svæðið til að ljúka átökunum. Oftast er það gert með beitingu valds. Annað er ekki hægt. Það var prófað að leyfa mótmælendum (aðallega fólki sem var að gera eitthvað annað en að mótmæla) að ganga berserksgang gegn bæði lifandi fólki (lögreglumönnum) og dauðum hlutum (t.d. Oslóartréinu) og það gekk sífellt lengra og lengra og endaði með saur- og grjótkasti eins og frægt er orðið. M.a. var tvívegis skotið úr stórum línubyssum eins og finnast í bátum að hópi lögreglumanna fyrir framan Alþingi síðustu nóttina. Aðgerðaleysi lögreglunnar gerði því ekkert annað en að stigmagna framgöngu óeirðaseggja. Með því að grípa fyrr inn í hefði klárlega mátt koma í veg fyrir einhver meiðsli."




28.ágú. 2010 - 13:38 Sölvi Tryggvason

Sigurður Einarsson, þú getur víst sagt sorrý!

Það er athyglisvert viðtal við Sigurð Einarsson í Fréttablaðinu í dag. Hann ber ekki ábyrgð á neinu að eigin sögn og sýnir ekki snefil af iðrun. Það er rétt hjá Sigurði að dómharka er hættuleg og að menn eru saklausir uns sekt er sönnuð. En hann getur ekki kvartað undan dómhörku í sama viðtali og hann gefur þjóðinni puttann.
26.ágú. 2010 - 07:00 Sölvi Tryggvason

Er ég Deutche Bank?

Síðast þegar ég vissi störfuðu íslensk stjórnvöld fyrir íslensku þjóðina og voru kosin af meirihluta hennar. Nú ætla ég ekki að mæla á móti því að ýmiss árangur hefur náðst undanfarin misseri, en á sumum sviðum er ekki hægt að skilja framgöngu stjórnvalda.
24.ágú. 2010 - 07:00 Sölvi Tryggvason

Níðst á neytendum

Þegar hækkanir á vöruverði hrundu inn strax eftir hrun sýndu því flestir skilning. Gengið hefur hrunið og innfluttar vörur eru orðnar svo dýrar.
23.ágú. 2010 - 14:29 Sölvi Tryggvason

Áfram DV

Ég er fylgjandi því að menn takist á. Ég er líka fylgjandi því að menn hlusti á sjónarmið annarra. Þess vegna vil ég bæta aðeins við pistil minn sem ég skrifaði hér fyrir helgi.
22.ágú. 2010 - 17:39 Sölvi Tryggvason

Skurðstofa ríkisins

Það er virðingarvert að þingmaður Samfylkingarinnar hafi þorað að segja sinni eigin ríkisstjórn það sem allir aðrir hugsa.
18.ágú. 2010 - 11:32 Sölvi Tryggvason

Mannorðsmorð

Fréttin að morðinu í Hafnarfirði hefur skiljanlega vakið mikla athygli. Eins og oft áður síðustu misserin eru blaðamenn DV öflugir í sinni vinnu. Þar á bæ er unnið gott starf og blaðið hefur vaxið mjög eftir hrun.
16.ágú. 2010 - 12:38 Sölvi Tryggvason

Logandi hræddir leigupennar og seðlasálir

,,Cash is King"

Sagði Lárus Welding þegar lausafé heimsins var að þurrkast upp eftir undirmálskrísuna í Bandaríkjunum. Þarna hitti hann naglann á höfuðið. Reiðufé er konungur nútímans. Hversu lengi reiðufé situr og fitnar sem miðpunktur alheims í kastalanum sínum er undir okkur öllum komið.

13.ágú. 2010 - 17:36 Sölvi Tryggvason

Hákarl ráðinn sem ráðgjafi ríkisstjórnar

Það er stundum gott að skoða hvað er að gerast í heiminum áður en maður dregur of harkalegar ályktanir um ákvarðanir íslenskra stjórnvalda.
10.ágú. 2010 - 14:22 Sölvi Tryggvason

Talað með rassinum

,,Bíddu viltu annað hrun?"
09.ágú. 2010 - 12:21 Sölvi Tryggvason

Þrjátíu þúsund forsætisráðherrar

Ísland er einstakt land. Fólkið sem landið byggir er líka einstakt. Sumt er gott, annað slæmt. Um allan heim kvartar fólk undan stjórnvöldum hvers tíma og telur að aðrir gætu gert betur.
06.ágú. 2010 - 12:16 Sölvi Tryggvason

Jónína Ben!

Í sumar hef ég unnið að bók um sögu Jónínu Benediktsdóttur. Þegar Jónína leitaði til mín vegna þessa verkefnis vissi ég strax að það yrði erfitt að segja nei.
04.ágú. 2010 - 16:13 Sölvi Tryggvason

Já kórinn galar og hégóminn hlustar


02.ágú. 2010 - 11:44 Sölvi Tryggvason

Óttanum rústað

Sá sem ekki lærir af fortíðinni er dæmdur til að endurtaka hana.
28.júl. 2010 - 13:48 Sölvi Tryggvason

Með buxurnar niður um sig

Þurftum við staðfestingu á því að við getum ekki stýrt okkur sjálf og værum betur sett sem hérað í Noregi?
26.júl. 2010 - 17:28 Sölvi Tryggvason

Martröð þeirra er draumur okkar

Strax frá bankahruni var ljóst að ekkert myndi breytast á Íslandi.
22.júl. 2010 - 12:27 Sölvi Tryggvason

Bólgueyðandi dorritos snakk

Ég sneri á mér ökklann í átján hundruðasta skipti á þriðjudagskvöldið. Það er ekki merkilegt. En það er merkilegt að ráfa um Reykjavík í leit að verkjalyfjum og bólgueyðandi að næturlagi. Þá kemur ýmislegt í ljós. Á höfuðborgarsvæðinu er ekki eitt apótek opið frá klukkan eitt eftir miðnætti til sjö á morgnana.
12.júl. 2010 - 07:00 Sölvi Tryggvason

Bandaríski Draumurinn

,,What is your name for the coffee?"
06.júl. 2010 - 00:01 Sölvi Tryggvason

Hraunbitarnir

Nú er ég búinn að dvelja í Bandaríkjunum í mánuð. Það tók mig korter af dvöl í mekka neyslunnar til að átta mig á að hér hrundi efnahagskerfi heimsins.
28.maí 2010 - 15:21 Sölvi Tryggvason

Byssukúlufólkið og B-myndin sem sökkti Íslandi

Sigríður Benediktsdóttir er að slá gjörsamlega í gegn. Eftir að rannsóknarskýrslan kom út hefur hún talað á mannamáli um það sem gerðist í bönkunum og dregur ekkert undan.
27.maí 2010 - 19:12 Sölvi Tryggvason

,,Ekki með ruslapoka á bakinu"

Jón Gnarr sagði í umræðum oddvitanna í Reykjavík á Skjá Einum í gær að hann væri ,,ekki með ruslapoka á bakinu" og þess vegna ætti fólk að kjósa hann.

Sölvi Tryggvason
Netfangið er: solvi@skjarinn.is

Námsferill:  – Menntaskólinn við Sund útskrifast 1998 BA í sálfræði frá Háskóla Íslands 2003 Hagnýt Fjölmiðlafræði frá HÍ 2004 Er hálfnaður með MA nám í Blaða– og fréttamennsku frá HÍ

Starfsferill: Stöð2 – fréttamaður 2004 -2006. Lesari í morgunfréttum Stöðvar 2 og fréttum NFS -2005-2006. Einn af þáttastjórnendum Íslands í dag 2006-2008 Fréttir og Fréttaskýringar í DV sumarið 2009. Þáttastjórnandi Spjallsins með Sölva 2009.

Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 29.8.2010
Viðbjóðurinn blasir allstaðar við
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 29.8.2010
Opið bréf til Hæstaréttar
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 30.8.2010
Bestu kylfingar Íslands frá upphafi
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 29.8.2010
Móeiður í keppni Samúels
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 31.8.2010
Sjálftökuliðið færist í aukana
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 01.9.2010
Björk litla í Samúel fyrir aldarfjórðungi
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 31.8.2010
Kemur tæplega á óvart
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 30.8.2010
ESB - undanþágur
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 01.9.2010
Er Hæstiréttur bara gúmmístimpill?
Ester Ósk Hilmarsdóttir
Ester Ósk Hilmarsdóttir - 01.9.2010
Kannt þú að vera góður gestur?
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 31.8.2010
Að læra að elska - eða bara elska
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 01.9.2010
Of margir háskólar?
Björg Magnúsdóttir
Björg Magnúsdóttir - 02.9.2010
DV, þú stöðvar mig ekki!
Jón Magnússon
Jón Magnússon - 30.8.2010
Hvað kostar kílóvattstundin?
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir - 30.8.2010
Verjum menntun
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 29.8.2010
Venesúela, Kúba... Ísland?
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 02.9.2010
Trúverðugleikinn fer líka
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit