29. jan. 2010 - 08:00Sölvi Tryggvason
Össur vissi

Vignir Már Lýðsson
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra vissi um ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar um að hann myndi synja Icesave lögunum einum og hálfum sólarhring áður en hún var tekinn. Ólafur Ragnar átti tveggja klukkutíma fund með Össuri á Bessastöðum á sunnudeginum þarna á undan. Þetta var samkvæmt öruggum heimildum mínum lengsti einkafundurinn sem forsetinn átti þennan dag. Hinir voru með Jóhönnu Sigurðardóttur, Steingrími J. og Gylfa Magnsússyni og þeir voru allir styttri.
Hvorki á fundinum með Össuri né hinum tilkynnti Ólafur Ragnar beint hvað hann ætlaði að gera. Hins vegar voru orð hans bara túlkuð á einn veg af utanríkisráðherranum. Þannig lét Össur bæði Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrím J. vita eftir fundinn að Ólafur ætlaði að synja lögunum.
Ef einhver getur lesið Ólaf ætti það að vera Össur, sem hefur verið náinn bandamaður hans í áratugi. Á þessum örlagaríka sunnudegi hafði hann heila 2 klukkutíma til þess að lesa forsetann og færði skilaboðin svo beint til fjármálaráðherrans og forsætisráðherrans.
Þannig að þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi aldrei fengið það svart á hvítu fyrirfram að Ólafur myndi hafna lögunum, voru Össur, Steingrímur og Jóhanna öll búin undir það hver ákvörðun hans yrði í meira en sólarhring áður en hún var tekin.
16.mar. 2010 - 14:45
Sölvi Tryggvason
Það hefur ekki farið framhjá mörgum að í mars er átak til að vekja karlmenn til vitundar um hættuna á krabbameini.
16.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Það sem upp úr stendur eftir að hafa tekið upp störf lögreglunnar aðfaranótt sunnudags í miðbæ Reykjavíkur er mikið virðingarleysi fyrir störfum hennar.
15.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Nú styttist óðum í að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis verði birt. Talsmenn nefndarinnar hafa látið í veðri vaka að skýrslan verði ansi svakaleg og mikill áfellisdómur yfir mörgum.
14.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Það er jákvætt að allir fjölmiðlarnir í landinu og fleiri en einn Alþingismaður séu byrjuð að skoða það sem ég hef bent á hér á síðunni ítrekað síðan í janúar.
13.mar. 2010 - 08:30
Sölvi Tryggvason
Í yfirheyrslum saksóknara yfir Milestone mönnum eru þeir allir spurðir um hvernig fjárhagsstaða þeirra sé eftir hrunið.
12.mar. 2010 - 17:57
Sölvi Tryggvason
ég held að þessi ákvörðun forsetans hafi skapað ákveðna nýja stöðu,
segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra. Í Spjallinu síðasta miðvikudag viðurkenndi hún jafnframt að undanfarnir mánuðir hefðu tekið á innan raða
12.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Jón Óttar Ragnarsson er stórmerkilegur náungi. Hann er með doktorspróf í næringarfræði og stýrði næringarfræðideild Háskóla Íslands áður en hann stofnaði Stöð 2 fyrir rúmum tuttugu árum.
11.mar. 2010 - 12:32
Sölvi Tryggvason
Í framhaldi af því sem ég hef skrifað hér um afskriftir á lánasöfnum nýju bankanna vil ég spyrja einfaldrar spurningar og beina henni til Landsbankans, Íslandsbanka og Arion banka.
11.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Félagarnir Pálmi Gestsson og Örn Arnarsson voru fjörugir að vanda í Spjallinu á Skjá Einum. Þeir sögðu þar meðal annars sögu af því þegar Steingrímur Hermannsson, þáverandi forsætisráðherra stoppaði ríkisstjórnarfund til að leika í atriði með Spaugstofunni.
10.mar. 2010 - 13:37
Sölvi Tryggvason
Aðalgesturinn í Spjallinu á Skjá Einum í kvöld er hinn stórmerkilegi Jón Óttar Ragnarsson, en í þættinum verður einnig viðtal við félagana Arnar Grant og Ívar Guðmundsson.
10.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Í yfirheyrslum sérstaks saksóknara yfir Milestone mönnum síðasta sumar var Karl Wernersson spurður um eigið fé sem kom inn í fjármögnun á Invik.
09.mar. 2010 - 19:08
Sölvi Tryggvason
Hvað er í gangi? Rétt í þessu fékk ég póst með þessum skemmtilega titli:
,,Hot sex pills"
09.mar. 2010 - 07:00
Sölvi Tryggvason
Ég hef skrifað hér um afskriftirnar sem þegar hafa átt sér stað í bankakerfinu og leita nú svara við því hvernig þessar afskriftir hafa verið nýttar.
08.mar. 2010 - 07:00
Sölvi Tryggvason
Það hefur mikið verið rætt um vinnubrögð bankanna og gegnsæi innan raða þeirra. Það er ljóst að eftir krísuna í bankakerfinu á Íslandi árið 2006 breyttist margt.
07.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Nýju bankarnir tóku lánasöfnin um fasteigna- og bílalán yfir með miklum afskriftum.
06.mar. 2010 - 10:34
Sölvi Tryggvason
Eitt af því sem kom inn á borð rannsóknarnefndar Alþingis á síðustu metrunum var mikið magn af gögnum um Milestone og Sjóvá og öll félög þeim tengd.
05.mar. 2010 - 07:20
Sölvi Tryggvason
Bjargvætturinn hefur stigið fram á sjónvarsviðið. Maðurinn sem getur bjargað Íslandi úr ógöngunum. Einar Karl Haraldsson.
04.mar. 2010 - 21:33
Sölvi Tryggvason
Þorsteinn J. Vilhjálmsson og Vera Sölvadóttir hafa sett kreppuna í rétt samhengi í myndinni Burkina Faso 8600km.
04.mar. 2010 - 14:00
Sölvi Tryggvason
Steingrímur Wernersson fór mikinn í fyrstu yfirheyrslunum hjá sérstökum saksóknara. Hann ræddi þar meðal annars um fjármögnunarfyrirtækið Avant:
04.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Ísland er stjórnlaust. Ástæðan er einföld. Stjórnmálamenn eru orðnir svo vanir að stinga hvorn annan í bakið að þeir kunna ekki að vinna saman.