04. feb. 2010 - 08:00Sölvi Tryggvason
Milljarðarnir sem mygla
Þriðja ráðleggng til yfirvalda á Íslandi: KOMIÐ PENINGUNUM Í UMFERÐ. TIL ÞESS ERU ÞEIR!
Stjórnmálamenn hafa mikið talað um að á Íslandi séu ekki til neinir peningar núna. Það er ekkert skrýtið, enda er mikill niðurskurður í gangi hjá hinu opinbera. Það er hins vegar rangt að hér séu ekki til neinir peningar. Það er bara ekkert gert til að koma þeim í umferð og láta þá vinna fyrir okkur. Erlendir fjárfestar eiga milljarða ofan á milljarða sem þeir vilja ekki fara með úr landi og skipta í Evrur á genginu 300. Þeir eru að bíða eftir möguleikanum á að gera eitthvað við þessa peninga hér á landi. MP banki liggur með tugi milljarða inni í Seðlabanka, sem enginn notar. Svona mætti lengi halda áfram. Þessir peningar bíða inni í bönkum og gagnast engum, jafnvel þó að eigendurnir vilji endilega gera eitthvað með þá.
Ofan á þetta má svo ekki gleyma því að í október 2008, þegar allt
hrundi var 75% af seðlaforða Íslands kippt út úr bönkunum. Ekki nema hluti þessa hefur skilað sér aftur. Út um allan bæ eru peningar
undir koddum og í peningaskápum. Það verður að reyna að endurvekja
traust og hvetja fólk til að gera eitthvað við þessa peninga.
Það hljómar ótrúlega en ég hef aftur og aftur hitt tengiliði við erlenda og innlenda fjárfesta sem segja nákvæmlega sömu söguna: ,,Það vantar ekki peninga, heldur verkefni og fyrst og fremst vilja stjórnvalda til að koma hlutunum af stað á ný.“
Það er alvarlegt mál þegar atvinnuleysi er jafn mikið og nú er að stjórnvöld skuli ekki gera allt sem þau geta til að liðka fyrir því að þessum peningum verði komið í umferð. Nú þarf hverja krónu í umferð í hagkerfinu. Þannig kýlum við Ísland aftur í gang árið 2010.
15.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Nú styttist óðum í að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis verði birt. Talsmenn nefndarinnar hafa látið í veðri vaka að skýrslan verði ansi svakaleg og mikill áfellisdómur yfir mörgum.
14.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Það er jákvætt að allir fjölmiðlarnir í landinu og fleiri en einn Alþingismaður séu byrjuð að skoða það sem ég hef bent á hér á síðunni ítrekað síðan í janúar.
13.mar. 2010 - 08:30
Sölvi Tryggvason
Í yfirheyrslum saksóknara yfir Milestone mönnum eru þeir allir spurðir um hvernig fjárhagsstaða þeirra sé eftir hrunið.
12.mar. 2010 - 17:57
Sölvi Tryggvason
ég held að þessi ákvörðun forsetans hafi skapað ákveðna nýja stöðu,
segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra. Í Spjallinu síðasta miðvikudag viðurkenndi hún jafnframt að undanfarnir mánuðir hefðu tekið á innan raða
12.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Jón Óttar Ragnarsson er stórmerkilegur náungi. Hann er með doktorspróf í næringarfræði og stýrði næringarfræðideild Háskóla Íslands áður en hann stofnaði Stöð 2 fyrir rúmum tuttugu árum.
11.mar. 2010 - 12:32
Sölvi Tryggvason
Í framhaldi af því sem ég hef skrifað hér um afskriftir á lánasöfnum nýju bankanna vil ég spyrja einfaldrar spurningar og beina henni til Landsbankans, Íslandsbanka og Arion banka.
11.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Félagarnir Pálmi Gestsson og Örn Arnarsson voru fjörugir að vanda í Spjallinu á Skjá Einum. Þeir sögðu þar meðal annars sögu af því þegar Steingrímur Hermannsson, þáverandi forsætisráðherra stoppaði ríkisstjórnarfund til að leika í atriði með Spaugstofunni.
10.mar. 2010 - 13:37
Sölvi Tryggvason
Aðalgesturinn í Spjallinu á Skjá Einum í kvöld er hinn stórmerkilegi Jón Óttar Ragnarsson, en í þættinum verður einnig viðtal við félagana Arnar Grant og Ívar Guðmundsson.
10.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Í yfirheyrslum sérstaks saksóknara yfir Milestone mönnum síðasta sumar var Karl Wernersson spurður um eigið fé sem kom inn í fjármögnun á Invik.
09.mar. 2010 - 19:08
Sölvi Tryggvason
Hvað er í gangi? Rétt í þessu fékk ég póst með þessum skemmtilega titli:
,,Hot sex pills"
09.mar. 2010 - 07:00
Sölvi Tryggvason
Ég hef skrifað hér um afskriftirnar sem þegar hafa átt sér stað í bankakerfinu og leita nú svara við því hvernig þessar afskriftir hafa verið nýttar.
08.mar. 2010 - 07:00
Sölvi Tryggvason
Það hefur mikið verið rætt um vinnubrögð bankanna og gegnsæi innan raða þeirra. Það er ljóst að eftir krísuna í bankakerfinu á Íslandi árið 2006 breyttist margt.
07.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Nýju bankarnir tóku lánasöfnin um fasteigna- og bílalán yfir með miklum afskriftum.
06.mar. 2010 - 10:34
Sölvi Tryggvason
Eitt af því sem kom inn á borð rannsóknarnefndar Alþingis á síðustu metrunum var mikið magn af gögnum um Milestone og Sjóvá og öll félög þeim tengd.
05.mar. 2010 - 07:20
Sölvi Tryggvason
Bjargvætturinn hefur stigið fram á sjónvarsviðið. Maðurinn sem getur bjargað Íslandi úr ógöngunum. Einar Karl Haraldsson.
04.mar. 2010 - 21:33
Sölvi Tryggvason
Þorsteinn J. Vilhjálmsson og Vera Sölvadóttir hafa sett kreppuna í rétt samhengi í myndinni Burkina Faso 8600km.
04.mar. 2010 - 14:00
Sölvi Tryggvason
Steingrímur Wernersson fór mikinn í fyrstu yfirheyrslunum hjá sérstökum saksóknara. Hann ræddi þar meðal annars um fjármögnunarfyrirtækið Avant:
04.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Ísland er stjórnlaust. Ástæðan er einföld. Stjórnmálamenn eru orðnir svo vanir að stinga hvorn annan í bakið að þeir kunna ekki að vinna saman.
03.mar. 2010 - 13:49
Sölvi Tryggvason
Félagarnir Kormákur og Skjöldur klæða af sér kreppuna. Manni líður eins og maður sé kominn fimmtíu ár aftur í tímann þegar maður gengur inn í verslun þeirra á Laugaveginum. Sjón er sögu ríkari:
03.mar. 2010 - 07:45
Sölvi Tryggvason
Félagarnir Felix Bergsson og Gunni Helga fóru á kostum í Spjallinu á Skjá Einum. Þar var meðal annars sýndur bútur úr hinum ógleymanlega þætti
,,Fyrirgefðu," sem var á dagskrá Skjás Eins fyrir nokkrum árum síðan.