21. jan. 2010 - 15:29Sölvi Tryggvason
Milljarðarnir sem fóru undir koddann
Í október 2008, þegar allt hrundi var 75% af seðlaforða Íslands kippt út úr bönkunum. Björgvin Sigurðsson, þáverandi viðskiptaráðherra upplýsti í viðtali við mig í Spjallinu á Skjá Einum að engu hefði munað að seðlaforði bankanna hefði klárast.
Eins og ég upplýsti hér á síðunni fyrir nokkru tóku einstaklingar allt að tugum milljóna út úr útibúum í pokum og töskum. Spurningin sem ekki hefur mikið verið spurt síðan er þessi: Hvar eru þessir peningar?
Traust almennings á bankakerfinu er ennþá í algjöru lágmarki og því var aldrei nema hluta þessara peninga skilað aftur inn í bankana.Undanfarið hef ég rætt við nokkra aðila sem stunda verslunar- og veitingarekstur á hverjum einasta degi og þeim ber saman um það að mun algengara sé að fólk borgi með peningum í stað korta nú en fyrir hrun. Einhver olíufyrirtækjanna hafa reiknað það út að nú sé um 30% verslunar í beinhörðum peningum, en var 20% fyrir hrun.
Sem betur fer er því greinilega eitthvað af þessum svakalegu fjármunum aftur komið aftur í umferð í hagkerfinu, því að þeir búa í það minnsta ekki til störf og verðmætasköpun undir koddum eða ofan í skúffum.
Það er gífurlega mikilvægt að reyna að endurvekja traust og hvetja fólk til að gera eitthvað við þessa peninga. Okkur veitir af öllu til þess að örva hagkerfið eins og staðan er.
28.ágú. 2010 - 13:38
Sölvi Tryggvason
Það er athyglisvert viðtal við Sigurð Einarsson í Fréttablaðinu í dag. Hann ber ekki ábyrgð á neinu að eigin sögn og sýnir ekki snefil af iðrun. Það er rétt hjá Sigurði að dómharka er hættuleg og að menn eru saklausir uns sekt er sönnuð. En hann getur ekki kvartað undan dómhörku í sama viðtali og hann gefur þjóðinni puttann.
26.ágú. 2010 - 07:00
Sölvi Tryggvason
Síðast þegar ég vissi störfuðu íslensk stjórnvöld fyrir íslensku þjóðina og voru kosin af meirihluta hennar. Nú ætla ég ekki að mæla á móti því að ýmiss árangur hefur náðst undanfarin misseri, en á sumum sviðum er ekki hægt að skilja framgöngu stjórnvalda.
24.ágú. 2010 - 07:00
Sölvi Tryggvason
Þegar hækkanir á vöruverði hrundu inn strax eftir hrun sýndu því flestir skilning. Gengið hefur hrunið og innfluttar vörur eru orðnar svo dýrar.
23.ágú. 2010 - 14:29
Sölvi Tryggvason
Ég er fylgjandi því að menn takist á. Ég er líka fylgjandi því að menn hlusti á sjónarmið annarra. Þess vegna vil ég bæta aðeins við pistil minn sem ég skrifaði hér fyrir helgi.
22.ágú. 2010 - 17:39
Sölvi Tryggvason
Það er virðingarvert að þingmaður Samfylkingarinnar hafi þorað að segja sinni eigin ríkisstjórn það sem allir aðrir hugsa.
18.ágú. 2010 - 11:32
Sölvi Tryggvason
Fréttin að morðinu í Hafnarfirði hefur skiljanlega vakið mikla athygli. Eins og oft áður síðustu misserin eru blaðamenn DV öflugir í sinni vinnu. Þar á bæ er unnið gott starf og blaðið hefur vaxið mjög eftir hrun.
16.ágú. 2010 - 12:38
Sölvi Tryggvason
,,Cash is King"
Sagði Lárus Welding þegar lausafé heimsins var að þurrkast upp eftir undirmálskrísuna í Bandaríkjunum. Þarna hitti hann naglann á höfuðið. Reiðufé er konungur nútímans. Hversu lengi reiðufé situr og fitnar sem miðpunktur alheims í kastalanum sínum er undir okkur öllum komið.
13.ágú. 2010 - 17:36
Sölvi Tryggvason
Það er stundum gott að skoða hvað er að gerast í heiminum áður en maður dregur of harkalegar ályktanir um ákvarðanir íslenskra stjórnvalda.
10.ágú. 2010 - 14:22
Sölvi Tryggvason
,,Bíddu viltu annað hrun?"
09.ágú. 2010 - 12:21
Sölvi Tryggvason
Ísland er einstakt land. Fólkið sem landið byggir er líka einstakt. Sumt er gott, annað slæmt. Um allan heim kvartar fólk undan stjórnvöldum hvers tíma og telur að aðrir gætu gert betur.
06.ágú. 2010 - 12:16
Sölvi Tryggvason
Í sumar hef ég unnið að bók um sögu Jónínu Benediktsdóttur. Þegar Jónína leitaði til mín vegna þessa verkefnis vissi ég strax að það yrði erfitt að segja nei.
04.ágú. 2010 - 16:13
Sölvi Tryggvason
02.ágú. 2010 - 11:44
Sölvi Tryggvason
Sá sem ekki lærir af fortíðinni er dæmdur til að endurtaka hana.
28.júl. 2010 - 13:48
Sölvi Tryggvason
Þurftum við staðfestingu á því að við getum ekki stýrt okkur sjálf og værum betur sett sem hérað í Noregi?
26.júl. 2010 - 17:28
Sölvi Tryggvason
Strax frá bankahruni var ljóst að ekkert myndi breytast á Íslandi.
22.júl. 2010 - 12:27
Sölvi Tryggvason
Ég sneri á mér ökklann í átján hundruðasta skipti á þriðjudagskvöldið. Það er ekki merkilegt. En það er merkilegt að ráfa um Reykjavík í leit að verkjalyfjum og bólgueyðandi að næturlagi. Þá kemur ýmislegt í ljós. Á höfuðborgarsvæðinu er ekki eitt apótek opið frá klukkan eitt eftir miðnætti til sjö á morgnana.
12.júl. 2010 - 07:00
Sölvi Tryggvason
,,What is your name for the coffee?"
06.júl. 2010 - 00:01
Sölvi Tryggvason
Nú er ég búinn að dvelja í Bandaríkjunum í mánuð. Það tók mig korter af dvöl í mekka neyslunnar til að átta mig á að hér hrundi efnahagskerfi heimsins.
28.maí 2010 - 15:21
Sölvi Tryggvason
Sigríður Benediktsdóttir er að slá gjörsamlega í gegn. Eftir að rannsóknarskýrslan kom út hefur hún talað á mannamáli um það sem gerðist í bönkunum og dregur ekkert undan.
27.maí 2010 - 19:12
Sölvi Tryggvason
Jón Gnarr sagði í umræðum oddvitanna í Reykjavík á Skjá Einum í gær að hann væri
,,ekki með ruslapoka á bakinu" og þess vegna ætti fólk að kjósa hann.