24. jan. 2010 - 14:22Sölvi Tryggvason
Sigmund gamli Freud á einhverja bestu setningu sem ég hef heyrt.
,,Maðurinn er dýr í fötum“. Þessi setning hans kemur æ oftar upp í huga mér. Höfum hugfast að þetta er maðurinn sem fékk fólk til að segja frá innstu hugrenningum sínum trekk í trekk, þannig að á einhverju hefur hann byggt þetta. Þegar ég sá þessa
frétt í síðustu viku um að miðborg Moskvu hefði nánast stöðvast af því að það birtist klámmyndband á stóru auglýsingaskilti sannfærðist ég endanlega.
Við göfgum öll okkar verk og höfum búið til glassúrhúðað samfélag utan um frumhvatirnar, sem stýra hér um bil öllu því sem við gerum.
Í samfélagi stórborgar, þar sem allir keppast um að ná athygli fólks, sem er óheyrilega erfitt, stoppast allt bara vegna þess að það sjást myndir af tveimur manneskjum að eðla sig. Svona erum við einföld.
Maður getur lært ýmislegt af þessu sem fjölmiðlamaður. Gissur Sigurðsson fréttahaukur og snillingur sagði mér einu sinni þegar ég var að byrja sem fréttamaður að til þess að ná athygli fólks væri best að hafa
,,sex, drugs og rock and roll" í fréttinni. Að minnsta kosti eitt af þessu þrennu, en helst allt saman.
Í þau tvö skipti sem ég hef minnst á eiturlyf í fyrirsögnum hér, hafa færslurnar fengið óvenju mikla lesningu. Tilgáta Gissurar heldur enn!
Freud mótaði kenningar sínar í einhverju bældasta samfélagi sem um getur. Vínarborg um aldamótin 1900. Á yfirborðinu var allt slétt og fellt og enginn mátti vera öðruvísi. Undir niðri var annað uppi á tengingnum. Ósóminn fann sér farveg og blómstraði sem aldrei fyrr.
Þegar ég var í námi í sálfræði var mér kennt að Freud væri rugludallur. Ég er ekki sammála. Margt af því sem hann sagði er lygilega mikill sannleikur.
Það er hættulegt að bæla hvatir sínar. Þá verður bara sprenging þegar maður fær loksins útrás.
Einhver leiðinlegasti eiginleiki manna er hneykslunargirni. Margur heldur mig sig. Þeir sem hneykslast mest hafa eitthvað að fela. Hættum að hneykslast á öðrum. Sköfum af glassúrinn og segjum hlutina eins og þeir eru.