11. jan. 2010 - 08:00Sölvi Tryggvason
Kolsvört rannsóknarskýrsla
Rannsóknarskýrsla Alþingis verður mikill áfellisdómur yfir stjórnmálamönnum OG bankamönnum. Þetta hef ég eftir afar traustum heimildum.
Skýrslan er komin í umbrot og verður tilbúin fyrir 1. febrúar og þannig væri í raun hægt að birta hana einhvern tíma seinni hlutann í janúar. Hins vegar er líklegt að Alþingi muni draga eitthvað að birta hana, þó væntanlega ekki nema einhverjar vikur í mesta lagi.
Allt síðasta haust ræddi ég við háttsett fólk í stjórnmálunum og fyrrverandi lykilmenn innan gömlu bankanna. Bankamennirnir sögðust margir vera tilbúnir í viðtal þegar skýrsla rannsóknarnefndarinnar kæmi út.
Þegar ég spurði: ,,hvers vegna ekki fyrr?,“ var svarið alltaf efnislega á sömu leið. ,,Þá verður viðsnúningur í umræðunni og spjótin munu fyrst og fremst beinast að stjórnmálamönnum og embættismannakerfinu.“
Einhverra hluta vegna virtust þeir allir sannfærðir um þetta. Að sama skapi virtust stjórnmálamennirnir sannfærðir um að skýrslan yrði fyrst og fremst áfellisdómur yfir stjórnendum og eigendum bankanna og í henni yrði ábyrgð þeirra loksins dregin að fullu fram.
Nú er ég búinn að reyna að komast til botns í þessu um skeið og samkvæmt öruggum heimildum sem ég hef aflað mér verður þetta ekkert annað hvort eða. Skýrslan verður svört og verður bæði þungur áfellisdómur yfir vinnubrögðum stjórnmálamanna og bankamanna.
Orð Páls Hreinssonar frá því í sumar um að engin nefnd hafi þurft að færa þjóð sinni jafn slæmar fréttir og rannsóknarnefndin eru engin tilviljun.
Ég vil hins vegar færa rök fyrir því að þetta séu ekki alls kostar slæmar fréttir fyrir þjóðina, eins og Páll segir, því að í þessu tilviki eru slæmar fréttir í raun góðar fréttir. Hvítþvottur og klapp á bakið væri verra en biksvört skýrsla.
Það sést kannski best á því að þjóðinni þykja það slæmar fréttir að ákveðnir menn hafi ekki verið kallaðir fyrir rannsóknarnefndina, sem flestum finnst að þar hefðu átt að vera. Það mun þó ekki þýða að skýrslan verði bara almennt orðað spjall.
Gleymum því ekki að rannsóknarnefndin samkeyrði meðal annars skuldastöðu stjornmála- embættis- og fjölmiðlamanna í öllu bankakerfinu. Þaðan og af fleiri stöðum er hægt að fá upplýsingar án yfirheyrslu.
28.ágú. 2010 - 13:38
Sölvi Tryggvason
Það er athyglisvert viðtal við Sigurð Einarsson í Fréttablaðinu í dag. Hann ber ekki ábyrgð á neinu að eigin sögn og sýnir ekki snefil af iðrun. Það er rétt hjá Sigurði að dómharka er hættuleg og að menn eru saklausir uns sekt er sönnuð. En hann getur ekki kvartað undan dómhörku í sama viðtali og hann gefur þjóðinni puttann.
26.ágú. 2010 - 07:00
Sölvi Tryggvason
Síðast þegar ég vissi störfuðu íslensk stjórnvöld fyrir íslensku þjóðina og voru kosin af meirihluta hennar. Nú ætla ég ekki að mæla á móti því að ýmiss árangur hefur náðst undanfarin misseri, en á sumum sviðum er ekki hægt að skilja framgöngu stjórnvalda.
24.ágú. 2010 - 07:00
Sölvi Tryggvason
Þegar hækkanir á vöruverði hrundu inn strax eftir hrun sýndu því flestir skilning. Gengið hefur hrunið og innfluttar vörur eru orðnar svo dýrar.
23.ágú. 2010 - 14:29
Sölvi Tryggvason
Ég er fylgjandi því að menn takist á. Ég er líka fylgjandi því að menn hlusti á sjónarmið annarra. Þess vegna vil ég bæta aðeins við pistil minn sem ég skrifaði hér fyrir helgi.
22.ágú. 2010 - 17:39
Sölvi Tryggvason
Það er virðingarvert að þingmaður Samfylkingarinnar hafi þorað að segja sinni eigin ríkisstjórn það sem allir aðrir hugsa.
18.ágú. 2010 - 11:32
Sölvi Tryggvason
Fréttin að morðinu í Hafnarfirði hefur skiljanlega vakið mikla athygli. Eins og oft áður síðustu misserin eru blaðamenn DV öflugir í sinni vinnu. Þar á bæ er unnið gott starf og blaðið hefur vaxið mjög eftir hrun.
16.ágú. 2010 - 12:38
Sölvi Tryggvason
,,Cash is King"
Sagði Lárus Welding þegar lausafé heimsins var að þurrkast upp eftir undirmálskrísuna í Bandaríkjunum. Þarna hitti hann naglann á höfuðið. Reiðufé er konungur nútímans. Hversu lengi reiðufé situr og fitnar sem miðpunktur alheims í kastalanum sínum er undir okkur öllum komið.
13.ágú. 2010 - 17:36
Sölvi Tryggvason
Það er stundum gott að skoða hvað er að gerast í heiminum áður en maður dregur of harkalegar ályktanir um ákvarðanir íslenskra stjórnvalda.
10.ágú. 2010 - 14:22
Sölvi Tryggvason
,,Bíddu viltu annað hrun?"
09.ágú. 2010 - 12:21
Sölvi Tryggvason
Ísland er einstakt land. Fólkið sem landið byggir er líka einstakt. Sumt er gott, annað slæmt. Um allan heim kvartar fólk undan stjórnvöldum hvers tíma og telur að aðrir gætu gert betur.
06.ágú. 2010 - 12:16
Sölvi Tryggvason
Í sumar hef ég unnið að bók um sögu Jónínu Benediktsdóttur. Þegar Jónína leitaði til mín vegna þessa verkefnis vissi ég strax að það yrði erfitt að segja nei.
04.ágú. 2010 - 16:13
Sölvi Tryggvason
02.ágú. 2010 - 11:44
Sölvi Tryggvason
Sá sem ekki lærir af fortíðinni er dæmdur til að endurtaka hana.
28.júl. 2010 - 13:48
Sölvi Tryggvason
Þurftum við staðfestingu á því að við getum ekki stýrt okkur sjálf og værum betur sett sem hérað í Noregi?
26.júl. 2010 - 17:28
Sölvi Tryggvason
Strax frá bankahruni var ljóst að ekkert myndi breytast á Íslandi.
22.júl. 2010 - 12:27
Sölvi Tryggvason
Ég sneri á mér ökklann í átján hundruðasta skipti á þriðjudagskvöldið. Það er ekki merkilegt. En það er merkilegt að ráfa um Reykjavík í leit að verkjalyfjum og bólgueyðandi að næturlagi. Þá kemur ýmislegt í ljós. Á höfuðborgarsvæðinu er ekki eitt apótek opið frá klukkan eitt eftir miðnætti til sjö á morgnana.
12.júl. 2010 - 07:00
Sölvi Tryggvason
,,What is your name for the coffee?"
06.júl. 2010 - 00:01
Sölvi Tryggvason
Nú er ég búinn að dvelja í Bandaríkjunum í mánuð. Það tók mig korter af dvöl í mekka neyslunnar til að átta mig á að hér hrundi efnahagskerfi heimsins.
28.maí 2010 - 15:21
Sölvi Tryggvason
Sigríður Benediktsdóttir er að slá gjörsamlega í gegn. Eftir að rannsóknarskýrslan kom út hefur hún talað á mannamáli um það sem gerðist í bönkunum og dregur ekkert undan.
27.maí 2010 - 19:12
Sölvi Tryggvason
Jón Gnarr sagði í umræðum oddvitanna í Reykjavík á Skjá Einum í gær að hann væri
,,ekki með ruslapoka á bakinu" og þess vegna ætti fólk að kjósa hann.