14. jan. 2010 - 15:28Sölvi Tryggvason

Jón Ásgeir var ekki kallaður fyrir rannsóknarnefndina

Rannsóknarnefnd Alþingis kallaði Jón Ásgeir Jóhannesson ekki til yfirheyrslu. Þetta hef ég fengið staðfest með öruggum hætti. Jón Ásgeir bað hins vegar um að fá að koma gögnum til nefndarinnar og við því var orðið. Þau gögn snúa einkum að yfirtökunni á Glitni.

Það verður mikið um þjóðnýtingu Glitnis og Icesave í skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Þetta byggi ég á samtölum við fólk sem var kallað fyrir nefndina og spurt í þaula út í þessi mál og eins heimildarmönnum sem þekkja vel til starfa nefndarinnar. Meðal annars lagði nefndin nokkra áherslu á að finna gögn um þjóðnýtinguna. Hvernig var verðmatið á Glitni ákveðið og hver tók þá ákvörðun? Eru til gögn um það? Hvaða gögn eru til um undirbúninginn að þjóðnýtingunni? Hvers vegna hættu stjórnvöld allt í einu við þjóðnýtinguna og hvenær var það ákveðið?

,,Ég hef setið tvívegis held 7 klukkutíma í törn. Sem var ansi mikil törn“ sagði Davíð Oddsson í viðtali við mig í lok september, þegar ég spurði hann hvort hann hefði verið kallaður fyrir nefndina. Hér að neðan má sjá þessi orð Davíðs á 21. mínútu í viðtalinu.

 

 



Það er ekki skrýtið að Davíð hafi þótt þetta vera törn, enda er ekki vitað til að nokkur maður hafi verið jafn lengi í yfirheyrslum hjá nefndinni. Lárus Welding, sem var bankastjóri Glitnis þegar yfirtakan átti sér stað, var kallaður til yfirheyrslu, en hún var öllu styttri en yfirheyrslurnar yfir Davíð, eða rétt um klukkustund.

Rannsóknarnefnd Alþingis kallaði fjölmiðlamenn líka fyrir. Samkvæmt öruggum heimildum mínum voru þessir meðal annars kallaðir fyrir nefndina: Jón Kaldal, ristjóri fréttablaðsins, Sigmundur Ernir Rúnarsson, fyrrverandi fréttastjóri Stöðvar 2, Óðinn Jónsson, fréttastjóri RÚV, Reynir Traustason, ritstjóri DV og Styrmir Gunnarsson fyrrverandi ritstjóri Moggans.

Ég hef áður sagt það hér að skýrslan verður áfellisdómur yfir stjórnmálamönnum og einhverjum bankamönnum, en því miður bind ég ekki allt of miklar vonir við fjölmiðlahlutann, þar sem margt þyrfti að koma fram. En vonum það besta.




14.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

Mikilvægasta málið

Það er jákvætt að allir fjölmiðlarnir í landinu og fleiri en einn Alþingismaður séu byrjuð að skoða það sem ég hef bent á hér á síðunni ítrekað síðan í janúar.
13.mar. 2010 - 08:30 Sölvi Tryggvason

,,Hvers virði er 300 fermetra hús í Hlíðunum?"

Í yfirheyrslum saksóknara yfir Milestone mönnum eru þeir allir spurðir um hvernig fjárhagsstaða þeirra sé eftir hrunið.
12.mar. 2010 - 17:57 Sölvi Tryggvason

Ákvörðun forsetans breytti stöðunni

ég held að þessi ákvörðun forsetans hafi skapað ákveðna nýja stöðu,
segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra. Í Spjallinu síðasta miðvikudag viðurkenndi hún jafnframt að undanfarnir mánuðir hefðu tekið á innan raða
12.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

,,Það síðasta sem hann las á þessari jörðu"

Jón Óttar Ragnarsson er stórmerkilegur náungi. Hann er með doktorspróf í næringarfræði og stýrði næringarfræðideild Háskóla Íslands áður en hann stofnaði Stöð 2 fyrir rúmum tuttugu árum.
11.mar. 2010 - 12:32 Sölvi Tryggvason

Opin spurning til nýju bankanna

Í framhaldi af því sem ég hef skrifað hér um afskriftir á lánasöfnum nýju bankanna vil ég spyrja einfaldrar spurningar og beina henni til Landsbankans, Íslandsbanka og Arion banka.
11.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

Stoppaði ríkisstjórnarfund fyrir Spaugstofuna

Félagarnir Pálmi Gestsson og Örn Arnarsson voru fjörugir að vanda í Spjallinu á Skjá Einum. Þeir sögðu þar meðal annars sögu af því þegar Steingrímur Hermannsson, þáverandi forsætisráðherra stoppaði ríkisstjórnarfund til að leika í atriði með Spaugstofunni.
10.mar. 2010 - 13:37 Sölvi Tryggvason

Rifið í lóðin

Aðalgesturinn í Spjallinu á Skjá Einum í kvöld er hinn stórmerkilegi Jón Óttar Ragnarsson, en í þættinum verður einnig viðtal við félagana Arnar Grant og Ívar Guðmundsson.
10.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

,,Áttum bara helvítis helling af peningum"

Í yfirheyrslum sérstaks saksóknara yfir Milestone mönnum síðasta sumar var Karl Wernersson spurður um eigið fé sem kom inn í fjármögnun á Invik.
09.mar. 2010 - 19:08 Sölvi Tryggvason

,,Hot sex pills"

Hvað er í gangi? Rétt í þessu fékk ég póst með þessum skemmtilega titli: ,,Hot sex pills"
09.mar. 2010 - 07:00 Sölvi Tryggvason

Böðlar kerfisins

Ég hef skrifað hér um afskriftirnar sem þegar hafa átt sér stað í bankakerfinu og leita nú svara við því hvernig þessar afskriftir hafa verið nýttar.
08.mar. 2010 - 07:00 Sölvi Tryggvason

Þeir millifærðu hundrað sinnum á einni sekúndu

Það hefur mikið verið rætt um vinnubrögð bankanna og gegnsæi innan raða þeirra. Það er ljóst að eftir krísuna í bankakerfinu á Íslandi árið 2006 breyttist margt.
07.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

Stóra blekkingin

Nýju bankarnir tóku lánasöfnin um fasteigna- og bílalán yfir með miklum afskriftum.
06.mar. 2010 - 10:34 Sölvi Tryggvason

Sprengja á síðustu metrunum

Eitt af því sem kom inn á borð rannsóknarnefndar Alþingis á síðustu metrunum var mikið magn af gögnum um Milestone og Sjóvá og öll félög þeim tengd.
05.mar. 2010 - 07:20 Sölvi Tryggvason

Bjargvætturinn

Bjargvætturinn hefur stigið fram á sjónvarsviðið. Maðurinn sem getur bjargað Íslandi úr ógöngunum. Einar Karl Haraldsson.
04.mar. 2010 - 21:33 Sölvi Tryggvason

Kreppan í samhengi

Þorsteinn J. Vilhjálmsson og Vera Sölvadóttir hafa sett kreppuna í rétt samhengi í myndinni Burkina Faso 8600km.
04.mar. 2010 - 14:00 Sölvi Tryggvason

Ætluðu að selja öllum allt

Steingrímur Wernersson fór mikinn í fyrstu yfirheyrslunum hjá sérstökum saksóknara. Hann ræddi þar meðal annars um fjármögnunarfyrirtækið Avant:
04.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

Stærsta hrunið 3. hluti

Ísland er stjórnlaust. Ástæðan er einföld. Stjórnmálamenn eru orðnir svo vanir að stinga hvorn annan í bakið að þeir kunna ekki að vinna saman.
03.mar. 2010 - 13:49 Sölvi Tryggvason

Klæða af sér kreppuna

Félagarnir Kormákur og Skjöldur klæða af sér kreppuna. Manni líður eins og maður sé kominn fimmtíu ár aftur í tímann þegar maður gengur inn í verslun þeirra á Laugaveginum. Sjón er sögu ríkari:
03.mar. 2010 - 07:45 Sölvi Tryggvason

Fyrirgefðu fyrir ,,Fyrirgefðu"

Félagarnir Felix Bergsson og Gunni Helga fóru á kostum í Spjallinu á Skjá Einum. Þar var meðal annars sýndur bútur úr hinum ógleymanlega þætti ,,Fyrirgefðu," sem var á dagskrá Skjás Eins fyrir nokkrum árum síðan.
02.mar. 2010 - 21:00 Sölvi Tryggvason

Nótt í miðbænum

Í Spjallinu á Skjá Einum annað kvöld sjáum við nótt í miðborg Reykjavíkur með augum lögreglumanna. Við vorum á vaktinni frá 11 til 7 um morguninn. Hér að neðan má sjá smá brot úr þættinum.

Sölvi Tryggvason
Netfangið er: solvi@skjarinn.is

Námsferill:  – Menntaskólinn við Sund útskrifast 1998 BA í sálfræði frá Háskóla Íslands 2003 Hagnýt Fjölmiðlafræði frá HÍ 2004 Er hálfnaður með MA nám í Blaða– og fréttamennsku frá HÍ

Starfsferill: Stöð2 – fréttamaður 2004 -2006. Lesari í morgunfréttum Stöðvar 2 og fréttum NFS -2005-2006. Einn af þáttastjórnendum Íslands í dag 2006-2008 Fréttir og Fréttaskýringar í DV sumarið 2009. Þáttastjórnandi Spjallsins með Sölva 2009.

Marta María
Marta María - 10.3.2010
Finnst ykkur þetta í lagi?
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 13.3.2010
Davíðssálmur númer 1
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
,,Áttum bara helvítis helling af peningum"
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 12.3.2010
Heit á Hótel Borg - Mynd vikunnar!
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 13.3.2010
Enn og aftur bullar Gylfi
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Bryndís Gyða Grímsdóttir - 10.3.2010
Smokey eyes: Þegar þú vilt vera extra mikil gyðja - MYNDBAND
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Opin spurning til nýju bankanna
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 11.3.2010
Díva mánaðarins - BrianX.com
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 10.3.2010
Hagsmunaárekstur eða vanhæfni?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Hvar eru afskriftirnar? - hvar er rannsóknin?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Stoppaði ríkisstjórnarfund fyrir Spaugstofuna
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
Rifið í lóðin
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Katrín Brynja Hermannsdóttir - 12.3.2010
Útbíuð í sýklum?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 14.3.2010
Mikilvægasta málið
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 12.3.2010
Ákvörðun forsetans breytti stöðunni
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 11.3.2010
VBS fallinn ári eftir ríkisstyrk
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 12.3.2010
Hvað kosta íslenskar konur?
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit