19. jan. 2010 - 08:00Sölvi Tryggvason
Íslenskt barn frétti af skilnaði pabba síns á Facebook
Ég sagði í gær frá frétt varðandi vandamál í samböndum vegna facebook. Öllu stærri frétt af feisbókinni er hins vegar saga íslensks sálfræðings sem vinnur með fólki alla daga. Dagsönn.
Íslenskt barn frétti af skilnaði pabba síns í gegnum facebook. Barnið vissi ekki betur en að allt væri í stakasta lagi á milli pabba síns og fósturmömmu og þegar það var einn daginn í tölvunni. Eins og allir vita er fólk á facebook á öllum aldri. Allt frá ungum krökkum upp í gamalmenni. Barninu brá heldur betur í brún þegar það loggaði sig inn á feisbókina og kíkti á síðuna hjá pabba. Þar var glænýr status: ,,xxxxx.... is now single.“
Pabbinn hafði sem sagt ákveðið að skilja, en facebook og tölvuheimurinn var settur í forgang fram yfir barnið, sem frétti af skilnaðinum í gegnum ráf sitt á feisbókinni. Í mínum huga sínir þetta svart á hvítu hve mikil firring getur skapast í kringum þetta annars magnaða fyrirbæri, sem tröllríður nú samfélaginu. Ég spái því hér með að þetta sé aðeins toppurinn á ísjakanum. Við eigum eftir að fá mikið af svona fréttum árið 2010.
11.mar. 2010 - 12:32
Sölvi Tryggvason
Í framhaldi af því sem ég hef skrifað hér um afskriftir á lánasöfnum nýju bankanna vil ég spyrja einfaldrar spurningar og beina henni til Landsbankans, Íslandsbanka og Arion banka.
11.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Félagarnir Pálmi Gestsson og Örn Arnarsson voru fjörugir að vanda í Spjallinu á Skjá Einum. Þeir sögðu þar meðal annars sögu af því þegar Steingrímur Hermannsson, þáverandi forsætisráðherra stoppaði ríkisstjórnarfund til að leika í atriði með Spaugstofunni.
10.mar. 2010 - 13:37
Sölvi Tryggvason
Aðalgesturinn í Spjallinu á Skjá Einum í kvöld er hinn stórmerkilegi Jón Óttar Ragnarsson, en í þættinum verður einnig viðtal við félagana Arnar Grant og Ívar Guðmundsson.
10.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Í yfirheyrslum sérstaks saksóknara yfir Milestone mönnum síðasta sumar var Karl Wernersson spurður um eigið fé sem kom inn í fjármögnun á Invik.
09.mar. 2010 - 19:08
Sölvi Tryggvason
Hvað er í gangi? Rétt í þessu fékk ég póst með þessum skemmtilega titli:
,,Hot sex pills"
09.mar. 2010 - 07:00
Sölvi Tryggvason
Ég hef skrifað hér um afskriftirnar sem þegar hafa átt sér stað í bankakerfinu og leita nú svara við því hvernig þessar afskriftir hafa verið nýttar.
08.mar. 2010 - 07:00
Sölvi Tryggvason
Það hefur mikið verið rætt um vinnubrögð bankanna og gegnsæi innan raða þeirra. Það er ljóst að eftir krísuna í bankakerfinu á Íslandi árið 2006 breyttist margt.
07.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Nýju bankarnir tóku lánasöfnin um fasteigna- og bílalán yfir með miklum afskriftum.
06.mar. 2010 - 10:34
Sölvi Tryggvason
Eitt af því sem kom inn á borð rannsóknarnefndar Alþingis á síðustu metrunum var mikið magn af gögnum um Milestone og Sjóvá og öll félög þeim tengd.
05.mar. 2010 - 07:20
Sölvi Tryggvason
Bjargvætturinn hefur stigið fram á sjónvarsviðið. Maðurinn sem getur bjargað Íslandi úr ógöngunum. Einar Karl Haraldsson.
04.mar. 2010 - 21:33
Sölvi Tryggvason
Þorsteinn J. Vilhjálmsson og Vera Sölvadóttir hafa sett kreppuna í rétt samhengi í myndinni Burkina Faso 8600km.
04.mar. 2010 - 14:00
Sölvi Tryggvason
Steingrímur Wernersson fór mikinn í fyrstu yfirheyrslunum hjá sérstökum saksóknara. Hann ræddi þar meðal annars um fjármögnunarfyrirtækið Avant:
04.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Ísland er stjórnlaust. Ástæðan er einföld. Stjórnmálamenn eru orðnir svo vanir að stinga hvorn annan í bakið að þeir kunna ekki að vinna saman.
03.mar. 2010 - 13:49
Sölvi Tryggvason
Félagarnir Kormákur og Skjöldur klæða af sér kreppuna. Manni líður eins og maður sé kominn fimmtíu ár aftur í tímann þegar maður gengur inn í verslun þeirra á Laugaveginum. Sjón er sögu ríkari:
03.mar. 2010 - 07:45
Sölvi Tryggvason
Félagarnir Felix Bergsson og Gunni Helga fóru á kostum í Spjallinu á Skjá Einum. Þar var meðal annars sýndur bútur úr hinum ógleymanlega þætti
,,Fyrirgefðu," sem var á dagskrá Skjás Eins fyrir nokkrum árum síðan.
02.mar. 2010 - 21:00
Sölvi Tryggvason
Í Spjallinu á Skjá Einum annað kvöld sjáum við nótt í miðborg Reykjavíkur með augum lögreglumanna. Við vorum á vaktinni frá 11 til 7 um morguninn. Hér að neðan má sjá smá brot úr þættinum.
02.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Ég fékk gífurleg viðbrögð við grein minni hér á Pressunni í gær. Ég er afskaplega þakklátur fyrir það. Mér sýnist að stór hópur fólks sé búinn að fá nóg af því hugarfari sem hér ríkir. Mig langar að halda aðeins áfram.
01.mar. 2010 - 14:30
Sölvi Tryggvason
Fyrstu yfirheyrslur sérstaks saksóknara yfir Þór Sigfússyni enda á þessum fleygu orðum:
01.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Gildismatið á Íslandi er ónýtt. Handónýtt. Það snýst allt um peninga. Jafnvel meira en árið 2007, sem allir horfa nú til með hneykslunar. Ætlum við ekkert að læra? Hefur einhver orðið hungurmorða á Íslandi? Eru margir í þeirri stöðu að hafa ekki þak yfir höfuðið? Vantar einhvern klæði?
28.feb. 2010 - 16:24
Sölvi Tryggvason
Elínu Hirst var sagt upp störfum á RÚV fyrir mánuði síðan eftir áralangt starf í fréttastjórn, fréttalestri og þáttagerð. Hún tekur uppsögn sinni af yfirvegun og reisn, en játar að henni hafi sárnað við tíðindin.