25. jan. 2010 - 17:20Sölvi Tryggvason
Hreiðar viðurkennir að hafa sjálfur borið ábyrgðina
Síðunni hefur borist svar frá Hreiðari Má Sigurðssyni vegna fyrirspurnar minnar til hans.
Spurning mín var eftirfarandi: Hver ákvað að millifæra sparifé fólksins á Mön til Íslands og hvers vegna?
Svar Hreiðars Más:
,,Ég sem forstjóri Kaupþings bar ábyrgð á þeirri ákvörðun að færa innstæður á Mön undir móðurfélagið á Íslandi. Alsiða er að bankar með starfsemi á Mön noti innstæður þar til að fjármagna móðurfélögin. Það var hins vegar að kröfu fjármálaeftirlitsins á Mön að innstæðurnar voru aftur færðar til Kaupthing Singer & Friedlander (KSF) í Lundúnum. Hefðu innstæðurnar verið áfram hjá móðurfélaginu á Íslandi væri fyrir löngu búið að gera að fullu upp við alla innstæðueignedur á Mön, líkt og gert var við alla innstæðueigendur Kaupþings banka hf. í Noregi, Finnlandi, Þýskalandi, Svíþjóð og víðar.
Eins og staðan er núna hefur öllum innstæðueigendum á Mön verið greiddar innstæðutryggingarupphæðin sem er 50 þúsund pund sem er að jafnvirði rúmlega 10 milljónum króna. Þeir sem áttu hærri innstæður hafa að auki þegar fengið greidd 40% innstæðna sinna. Áætlanir gera ráð fyrir að samtals munu innstæðueigendur fá á bilinu 90%-95% af innstæðum sínum til baka. Þetta er tafsamt ferli og má ætla að því ljúki árið 2012. Ég harma það að fjölmargir einstaklingar sem höfðu innstæður hjá KSF á Mön hafi lent í vandræðum og sumir munu jafnvel tapa 5-10% af innstæðum sínum. En held mig við þá skoðun mína að þetta er ekki svartasti bletturinn á íslenska bankahruninu eins og þú hélst fram."
15.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Nú styttist óðum í að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis verði birt. Talsmenn nefndarinnar hafa látið í veðri vaka að skýrslan verði ansi svakaleg og mikill áfellisdómur yfir mörgum.
14.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Það er jákvætt að allir fjölmiðlarnir í landinu og fleiri en einn Alþingismaður séu byrjuð að skoða það sem ég hef bent á hér á síðunni ítrekað síðan í janúar.
13.mar. 2010 - 08:30
Sölvi Tryggvason
Í yfirheyrslum saksóknara yfir Milestone mönnum eru þeir allir spurðir um hvernig fjárhagsstaða þeirra sé eftir hrunið.
12.mar. 2010 - 17:57
Sölvi Tryggvason
ég held að þessi ákvörðun forsetans hafi skapað ákveðna nýja stöðu,
segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra. Í Spjallinu síðasta miðvikudag viðurkenndi hún jafnframt að undanfarnir mánuðir hefðu tekið á innan raða
12.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Jón Óttar Ragnarsson er stórmerkilegur náungi. Hann er með doktorspróf í næringarfræði og stýrði næringarfræðideild Háskóla Íslands áður en hann stofnaði Stöð 2 fyrir rúmum tuttugu árum.
11.mar. 2010 - 12:32
Sölvi Tryggvason
Í framhaldi af því sem ég hef skrifað hér um afskriftir á lánasöfnum nýju bankanna vil ég spyrja einfaldrar spurningar og beina henni til Landsbankans, Íslandsbanka og Arion banka.
11.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Félagarnir Pálmi Gestsson og Örn Arnarsson voru fjörugir að vanda í Spjallinu á Skjá Einum. Þeir sögðu þar meðal annars sögu af því þegar Steingrímur Hermannsson, þáverandi forsætisráðherra stoppaði ríkisstjórnarfund til að leika í atriði með Spaugstofunni.
10.mar. 2010 - 13:37
Sölvi Tryggvason
Aðalgesturinn í Spjallinu á Skjá Einum í kvöld er hinn stórmerkilegi Jón Óttar Ragnarsson, en í þættinum verður einnig viðtal við félagana Arnar Grant og Ívar Guðmundsson.
10.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Í yfirheyrslum sérstaks saksóknara yfir Milestone mönnum síðasta sumar var Karl Wernersson spurður um eigið fé sem kom inn í fjármögnun á Invik.
09.mar. 2010 - 19:08
Sölvi Tryggvason
Hvað er í gangi? Rétt í þessu fékk ég póst með þessum skemmtilega titli:
,,Hot sex pills"
09.mar. 2010 - 07:00
Sölvi Tryggvason
Ég hef skrifað hér um afskriftirnar sem þegar hafa átt sér stað í bankakerfinu og leita nú svara við því hvernig þessar afskriftir hafa verið nýttar.
08.mar. 2010 - 07:00
Sölvi Tryggvason
Það hefur mikið verið rætt um vinnubrögð bankanna og gegnsæi innan raða þeirra. Það er ljóst að eftir krísuna í bankakerfinu á Íslandi árið 2006 breyttist margt.
07.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Nýju bankarnir tóku lánasöfnin um fasteigna- og bílalán yfir með miklum afskriftum.
06.mar. 2010 - 10:34
Sölvi Tryggvason
Eitt af því sem kom inn á borð rannsóknarnefndar Alþingis á síðustu metrunum var mikið magn af gögnum um Milestone og Sjóvá og öll félög þeim tengd.
05.mar. 2010 - 07:20
Sölvi Tryggvason
Bjargvætturinn hefur stigið fram á sjónvarsviðið. Maðurinn sem getur bjargað Íslandi úr ógöngunum. Einar Karl Haraldsson.
04.mar. 2010 - 21:33
Sölvi Tryggvason
Þorsteinn J. Vilhjálmsson og Vera Sölvadóttir hafa sett kreppuna í rétt samhengi í myndinni Burkina Faso 8600km.
04.mar. 2010 - 14:00
Sölvi Tryggvason
Steingrímur Wernersson fór mikinn í fyrstu yfirheyrslunum hjá sérstökum saksóknara. Hann ræddi þar meðal annars um fjármögnunarfyrirtækið Avant:
04.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Ísland er stjórnlaust. Ástæðan er einföld. Stjórnmálamenn eru orðnir svo vanir að stinga hvorn annan í bakið að þeir kunna ekki að vinna saman.
03.mar. 2010 - 13:49
Sölvi Tryggvason
Félagarnir Kormákur og Skjöldur klæða af sér kreppuna. Manni líður eins og maður sé kominn fimmtíu ár aftur í tímann þegar maður gengur inn í verslun þeirra á Laugaveginum. Sjón er sögu ríkari:
03.mar. 2010 - 07:45
Sölvi Tryggvason
Félagarnir Felix Bergsson og Gunni Helga fóru á kostum í Spjallinu á Skjá Einum. Þar var meðal annars sýndur bútur úr hinum ógleymanlega þætti
,,Fyrirgefðu," sem var á dagskrá Skjás Eins fyrir nokkrum árum síðan.