17. jan. 2010 - 08:00Sölvi Tryggvason

Heiðarleikinn kom úr cheerios pakka

Þegar minnst var á spillingu á Íslandi á árunum þegar allt gekk vel var jafnan vísað til alþjóðlegra úttekta sem sýndu að hér væri spilling sú minnsta í vestrænum heimi. Oftar en einu sinni og oftar en tvisvar tók ég viðtöl við ráðamenn sem vísuðu í þetta.

Það sem var hins vegar minna rætt um var áreiðanleiki þessarra mælinga á spillingu. Hvaðan komu þær? Jú stofnun nokkur sem heitir Transparency international mælir spillingu í heiminum og það voru úttektir hennar sem íslenskir ráðamenn voru alltaf að vísa í.

Nú er komið á daginn að þessar úttektir hefði allt eins verið hægt að fá í Cheerios pakka. Pappírinn sem í þær fór hefði betur nýst í annað!

Mælingarnar eru framkvæmdar þannig að listar þar sem spurt er um spillingu eru sendir á lykilmenn í embættismannakerfinu. Sem Transparency International kallar ,,experts“. Þessir svokölluðu sérfræðingar eiga síðan að tikka við það hve spilltir þeir sjálfir og þeirra kollegar eru. Ég ræddi þetta töluvert við Jón Baldvin Hannibalson fyrrverandi utanríkisráðherra þegar ég ræddi við hann í sumar. Jón hló mikið þegar hann talaði um þessa lista og sagði þá gjörsamlega tilgangslausa með öllu.

Í mynd Gunnars Sigurðssonar maybe I should have sem verður frumsýnd í næstu viku er fjallað um þetta fyrirbæri og Gunnar segir einum af talsmönnum stofunarinnar til syndanna.

Látum okkur þetta að kenningu verða. Það er ekki nóg að vísa í útlendinga til að þagga niður umræðu. Þar fylgir líka ýmislegt með þegar þú kaupir cheerios og cocoa puffs.

 




15.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

,,Þeir sem þola mig ekki verða svekktir"

Nú styttist óðum í að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis verði birt. Talsmenn nefndarinnar hafa látið í veðri vaka að skýrslan verði ansi svakaleg og mikill áfellisdómur yfir mörgum.
14.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

Mikilvægasta málið

Það er jákvætt að allir fjölmiðlarnir í landinu og fleiri en einn Alþingismaður séu byrjuð að skoða það sem ég hef bent á hér á síðunni ítrekað síðan í janúar.
13.mar. 2010 - 08:30 Sölvi Tryggvason

,,Hvers virði er 300 fermetra hús í Hlíðunum?"

Í yfirheyrslum saksóknara yfir Milestone mönnum eru þeir allir spurðir um hvernig fjárhagsstaða þeirra sé eftir hrunið.
12.mar. 2010 - 17:57 Sölvi Tryggvason

Ákvörðun forsetans breytti stöðunni

ég held að þessi ákvörðun forsetans hafi skapað ákveðna nýja stöðu,
segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra. Í Spjallinu síðasta miðvikudag viðurkenndi hún jafnframt að undanfarnir mánuðir hefðu tekið á innan raða
12.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

,,Það síðasta sem hann las á þessari jörðu"

Jón Óttar Ragnarsson er stórmerkilegur náungi. Hann er með doktorspróf í næringarfræði og stýrði næringarfræðideild Háskóla Íslands áður en hann stofnaði Stöð 2 fyrir rúmum tuttugu árum.
11.mar. 2010 - 12:32 Sölvi Tryggvason

Opin spurning til nýju bankanna

Í framhaldi af því sem ég hef skrifað hér um afskriftir á lánasöfnum nýju bankanna vil ég spyrja einfaldrar spurningar og beina henni til Landsbankans, Íslandsbanka og Arion banka.
11.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

Stoppaði ríkisstjórnarfund fyrir Spaugstofuna

Félagarnir Pálmi Gestsson og Örn Arnarsson voru fjörugir að vanda í Spjallinu á Skjá Einum. Þeir sögðu þar meðal annars sögu af því þegar Steingrímur Hermannsson, þáverandi forsætisráðherra stoppaði ríkisstjórnarfund til að leika í atriði með Spaugstofunni.
10.mar. 2010 - 13:37 Sölvi Tryggvason

Rifið í lóðin

Aðalgesturinn í Spjallinu á Skjá Einum í kvöld er hinn stórmerkilegi Jón Óttar Ragnarsson, en í þættinum verður einnig viðtal við félagana Arnar Grant og Ívar Guðmundsson.
10.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

,,Áttum bara helvítis helling af peningum"

Í yfirheyrslum sérstaks saksóknara yfir Milestone mönnum síðasta sumar var Karl Wernersson spurður um eigið fé sem kom inn í fjármögnun á Invik.
09.mar. 2010 - 19:08 Sölvi Tryggvason

,,Hot sex pills"

Hvað er í gangi? Rétt í þessu fékk ég póst með þessum skemmtilega titli: ,,Hot sex pills"
09.mar. 2010 - 07:00 Sölvi Tryggvason

Böðlar kerfisins

Ég hef skrifað hér um afskriftirnar sem þegar hafa átt sér stað í bankakerfinu og leita nú svara við því hvernig þessar afskriftir hafa verið nýttar.
08.mar. 2010 - 07:00 Sölvi Tryggvason

Þeir millifærðu hundrað sinnum á einni sekúndu

Það hefur mikið verið rætt um vinnubrögð bankanna og gegnsæi innan raða þeirra. Það er ljóst að eftir krísuna í bankakerfinu á Íslandi árið 2006 breyttist margt.
07.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

Stóra blekkingin

Nýju bankarnir tóku lánasöfnin um fasteigna- og bílalán yfir með miklum afskriftum.
06.mar. 2010 - 10:34 Sölvi Tryggvason

Sprengja á síðustu metrunum

Eitt af því sem kom inn á borð rannsóknarnefndar Alþingis á síðustu metrunum var mikið magn af gögnum um Milestone og Sjóvá og öll félög þeim tengd.
05.mar. 2010 - 07:20 Sölvi Tryggvason

Bjargvætturinn

Bjargvætturinn hefur stigið fram á sjónvarsviðið. Maðurinn sem getur bjargað Íslandi úr ógöngunum. Einar Karl Haraldsson.
04.mar. 2010 - 21:33 Sölvi Tryggvason

Kreppan í samhengi

Þorsteinn J. Vilhjálmsson og Vera Sölvadóttir hafa sett kreppuna í rétt samhengi í myndinni Burkina Faso 8600km.
04.mar. 2010 - 14:00 Sölvi Tryggvason

Ætluðu að selja öllum allt

Steingrímur Wernersson fór mikinn í fyrstu yfirheyrslunum hjá sérstökum saksóknara. Hann ræddi þar meðal annars um fjármögnunarfyrirtækið Avant:
04.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

Stærsta hrunið 3. hluti

Ísland er stjórnlaust. Ástæðan er einföld. Stjórnmálamenn eru orðnir svo vanir að stinga hvorn annan í bakið að þeir kunna ekki að vinna saman.
03.mar. 2010 - 13:49 Sölvi Tryggvason

Klæða af sér kreppuna

Félagarnir Kormákur og Skjöldur klæða af sér kreppuna. Manni líður eins og maður sé kominn fimmtíu ár aftur í tímann þegar maður gengur inn í verslun þeirra á Laugaveginum. Sjón er sögu ríkari:
03.mar. 2010 - 07:45 Sölvi Tryggvason

Fyrirgefðu fyrir ,,Fyrirgefðu"

Félagarnir Felix Bergsson og Gunni Helga fóru á kostum í Spjallinu á Skjá Einum. Þar var meðal annars sýndur bútur úr hinum ógleymanlega þætti ,,Fyrirgefðu," sem var á dagskrá Skjás Eins fyrir nokkrum árum síðan.

Sölvi Tryggvason
Netfangið er: solvi@skjarinn.is

Námsferill:  – Menntaskólinn við Sund útskrifast 1998 BA í sálfræði frá Háskóla Íslands 2003 Hagnýt Fjölmiðlafræði frá HÍ 2004 Er hálfnaður með MA nám í Blaða– og fréttamennsku frá HÍ

Starfsferill: Stöð2 – fréttamaður 2004 -2006. Lesari í morgunfréttum Stöðvar 2 og fréttum NFS -2005-2006. Einn af þáttastjórnendum Íslands í dag 2006-2008 Fréttir og Fréttaskýringar í DV sumarið 2009. Þáttastjórnandi Spjallsins með Sölva 2009.

Marta María
Marta María - 10.3.2010
Finnst ykkur þetta í lagi?
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 13.3.2010
Davíðssálmur númer 1
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 12.3.2010
Heit á Hótel Borg - Mynd vikunnar!
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 13.3.2010
Enn og aftur bullar Gylfi
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Bryndís Gyða Grímsdóttir - 10.3.2010
Smokey eyes: Þegar þú vilt vera extra mikil gyðja - MYNDBAND
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 11.3.2010
Díva mánaðarins - BrianX.com
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Opin spurning til nýju bankanna
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 10.3.2010
Hagsmunaárekstur eða vanhæfni?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Hvar eru afskriftirnar? - hvar er rannsóknin?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Stoppaði ríkisstjórnarfund fyrir Spaugstofuna
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
Rifið í lóðin
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Katrín Brynja Hermannsdóttir - 12.3.2010
Útbíuð í sýklum?
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 14.3.2010
Tuttugu þúsund verða að tvöhundruð þúsund
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 14.3.2010
Mikilvægasta málið
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 12.3.2010
Ákvörðun forsetans breytti stöðunni
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 11.3.2010
VBS fallinn ári eftir ríkisstyrk
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 12.3.2010
Hvað kosta íslenskar konur?
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit