12. jan. 2010 - 08:00Sölvi Tryggvason
Ég skal lána ríkinu spariféð mitt á þessum kjörum
Vaxtakjörin sem Íslendingar höfðu samið um við Breta og Hollendinga voru á alla mælikvarða mjög há. Allir sem starfað hafa í fjármálaumhverfi gætu vottað fyrir það. Ég hef gengið á milli fjölda manna sem hafa unnið í banka- og fjármálaumhverfi í fleiri ár. Þeim ber öllum saman um að þetta séu mjög háir vextir. Veðin sem liggja að baki eru launaseðlar allra Íslendinga á næstu árum. Þetta eru tryggustu veð sem hægt er að fá. Samt eru vexirnir hærri en á lánum til venjulegs einstaklings á Evrusvæðinu.
Ég væri til í að lána spariféð mitt á þessum kjörum með svona veðum.
Það er óskiljanlegt hvernig nokkur getur leyft sér að halda því fram að þetta hafi verið góð kjör. Meira að segja borgarar með íslenskt ríkisfang fá betri kjör en þetta í breskum bönkum. Ég þekki Íslending sem fékk húsnæðislán upp á 4,25% í Bretlandi.
Bretar borguðu innistæðurnar á Icesave og lánuðu okkur fyrir því. Kjörin sem þeir fjármögnuðu greiðslur innistæðnanna á eru 1,75%. Á milli þeirra kjara og vaxtanna sem við áttum að greiða eru 3,75%. Þetta gat skiptir ekki öllu máli ef þú ert að borga af einu sjónvarpi eða þvottavél. En þegar þú ert að borga vexti af 700 MILLJÖRÐUM í sjö ár, skiptir þetta ÖLLU máli. Í raun er mjög líklegt að þetta sé mikilvægasti hluti Icesave samningsins.
Það hvort við borgum 5,5% vexti eða 3,5% svo dæmi sé tekið er munur upp á um það bil 15 milljarða á ári. Ef við höldum aðeins lengra þá geta 15 milljarðar á ári verið munurinn á góðu og lélegu heilbrigðiskerfi. Þessi upphæð breytir hins vegar engu á mælikvarða Breta. Hún er ekki einn tuttugu þúsundasti af þjóðarframleiðslu þeirra.
Það er því mjög erfitt að skilja hina ótrúlegu óbilgirni þeirra í samningunum. Það hlýtur að vera hægt að ná vöxtunum niður. Það er næsta skref í mesta klúðurmáli Íslandssögunnar.
14.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Það er jákvætt að allir fjölmiðlarnir í landinu og fleiri en einn Alþingismaður séu byrjuð að skoða það sem ég hef bent á hér á síðunni ítrekað síðan í janúar.
13.mar. 2010 - 08:30
Sölvi Tryggvason
Í yfirheyrslum saksóknara yfir Milestone mönnum eru þeir allir spurðir um hvernig fjárhagsstaða þeirra sé eftir hrunið.
12.mar. 2010 - 17:57
Sölvi Tryggvason
ég held að þessi ákvörðun forsetans hafi skapað ákveðna nýja stöðu,
segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra. Í Spjallinu síðasta miðvikudag viðurkenndi hún jafnframt að undanfarnir mánuðir hefðu tekið á innan raða
12.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Jón Óttar Ragnarsson er stórmerkilegur náungi. Hann er með doktorspróf í næringarfræði og stýrði næringarfræðideild Háskóla Íslands áður en hann stofnaði Stöð 2 fyrir rúmum tuttugu árum.
11.mar. 2010 - 12:32
Sölvi Tryggvason
Í framhaldi af því sem ég hef skrifað hér um afskriftir á lánasöfnum nýju bankanna vil ég spyrja einfaldrar spurningar og beina henni til Landsbankans, Íslandsbanka og Arion banka.
11.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Félagarnir Pálmi Gestsson og Örn Arnarsson voru fjörugir að vanda í Spjallinu á Skjá Einum. Þeir sögðu þar meðal annars sögu af því þegar Steingrímur Hermannsson, þáverandi forsætisráðherra stoppaði ríkisstjórnarfund til að leika í atriði með Spaugstofunni.
10.mar. 2010 - 13:37
Sölvi Tryggvason
Aðalgesturinn í Spjallinu á Skjá Einum í kvöld er hinn stórmerkilegi Jón Óttar Ragnarsson, en í þættinum verður einnig viðtal við félagana Arnar Grant og Ívar Guðmundsson.
10.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Í yfirheyrslum sérstaks saksóknara yfir Milestone mönnum síðasta sumar var Karl Wernersson spurður um eigið fé sem kom inn í fjármögnun á Invik.
09.mar. 2010 - 19:08
Sölvi Tryggvason
Hvað er í gangi? Rétt í þessu fékk ég póst með þessum skemmtilega titli:
,,Hot sex pills"
09.mar. 2010 - 07:00
Sölvi Tryggvason
Ég hef skrifað hér um afskriftirnar sem þegar hafa átt sér stað í bankakerfinu og leita nú svara við því hvernig þessar afskriftir hafa verið nýttar.
08.mar. 2010 - 07:00
Sölvi Tryggvason
Það hefur mikið verið rætt um vinnubrögð bankanna og gegnsæi innan raða þeirra. Það er ljóst að eftir krísuna í bankakerfinu á Íslandi árið 2006 breyttist margt.
07.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Nýju bankarnir tóku lánasöfnin um fasteigna- og bílalán yfir með miklum afskriftum.
06.mar. 2010 - 10:34
Sölvi Tryggvason
Eitt af því sem kom inn á borð rannsóknarnefndar Alþingis á síðustu metrunum var mikið magn af gögnum um Milestone og Sjóvá og öll félög þeim tengd.
05.mar. 2010 - 07:20
Sölvi Tryggvason
Bjargvætturinn hefur stigið fram á sjónvarsviðið. Maðurinn sem getur bjargað Íslandi úr ógöngunum. Einar Karl Haraldsson.
04.mar. 2010 - 21:33
Sölvi Tryggvason
Þorsteinn J. Vilhjálmsson og Vera Sölvadóttir hafa sett kreppuna í rétt samhengi í myndinni Burkina Faso 8600km.
04.mar. 2010 - 14:00
Sölvi Tryggvason
Steingrímur Wernersson fór mikinn í fyrstu yfirheyrslunum hjá sérstökum saksóknara. Hann ræddi þar meðal annars um fjármögnunarfyrirtækið Avant:
04.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Ísland er stjórnlaust. Ástæðan er einföld. Stjórnmálamenn eru orðnir svo vanir að stinga hvorn annan í bakið að þeir kunna ekki að vinna saman.
03.mar. 2010 - 13:49
Sölvi Tryggvason
Félagarnir Kormákur og Skjöldur klæða af sér kreppuna. Manni líður eins og maður sé kominn fimmtíu ár aftur í tímann þegar maður gengur inn í verslun þeirra á Laugaveginum. Sjón er sögu ríkari:
03.mar. 2010 - 07:45
Sölvi Tryggvason
Félagarnir Felix Bergsson og Gunni Helga fóru á kostum í Spjallinu á Skjá Einum. Þar var meðal annars sýndur bútur úr hinum ógleymanlega þætti
,,Fyrirgefðu," sem var á dagskrá Skjás Eins fyrir nokkrum árum síðan.
02.mar. 2010 - 21:00
Sölvi Tryggvason
Í Spjallinu á Skjá Einum annað kvöld sjáum við nótt í miðborg Reykjavíkur með augum lögreglumanna. Við vorum á vaktinni frá 11 til 7 um morguninn. Hér að neðan má sjá smá brot úr þættinum.