07. jan. 2010 - 21:30Sölvi Tryggvason

Brilljant frammistaða

Ég skrifa þennan pistil sem fjölmiðlamaður og Íslendingur, ekki sem liðsmaður eins eða neins, enda hef ég aldrei verið í liði í stjórnmálum.

Frammistaða Ólafs Ragnars Grímssonar á BBC var frábær. Spyrillinn, Jeremy Paxman er margverðlaunaður og þekktur fyrir að jarða viðmælendur. Frægastur er hann fyrir að hafa spurt Michael Howard, fyrrverandi innanríkisráðherra Breta, sömu spurningarinnar 14 sinnum í röð þegar hann reyndi að drepa málinu á dreif. Paxman byrjaði viðtalið við Ólaf með látum og ætlaði greinilega að hakka hann í sig. Það sem á eftir fór var á alla mælikvarða brilljant frammistaða viðmælandans. Hún var svo góð að spyrillinn neyddist til að gefa hressilega eftir. Ólafi tókst það sem engum öðrum íslenskum ráðamanni hefur tekist undanfarna 15 mánuði. Að koma fram á áberandi vettvangi í útlöndum og brillera fyrir hönd þjóðarinnar.

Svo held ég að spyrillinn hafi hjálpað málstað Ólafs með einstaklega einstrengingslegum inngangi sem stenst ekki skoðun. Setning hans í byrjun umfjöllunarinnar ,,the fate of part of the gaping hole in our public financis now rests on the decision of a country with the population the size of Wigan," er í einu orði sagt ömurleg. Icesave upphæðin er klink á mælikvarða Breta og óbilgirni þeirra í málinu er á engan hátt réttlætanleg.

Ég hef tekið ítarleg viðtöl við alla helstu ráðamenn Íslands eftir hrunið og Ólafur er erfiðastur viðureignar. Ólíkur Davíð Oddssyni og Ingibjörgu Sólrunu, sem bæði eru líka klók í viðtölum á sinn hátt. Þegar ég hafði lokið við að taka viðtal við Ólaf fyrr í haust var ég pínulítið óhress. Ég undirbjó mig gífurlega vel, en að viðtalinu loknu fannst mér að Ólafur hefði náð að taka stjórnina á lúmskan hátt. Hann beitir jafnan þeirri taktík að tala spyrla í kaf og hleypa þeim ekki að ef því er að skipta. Ég var ofurmeðvitaður um þetta og fór í viðtalið undir þeim formerkjum. Þrátt fyrir að þó nokkrir hafi haft samband við mig og verið sáttir við viðtalið var ég með einhver ónot í maganum.

Ég er ekki jafnósáttur eftir að hafa séð einn besta sjónvapsspyril Breta falla í nákvæmlega sömu gryfju. 

Óháð öllu öðru er engin leið að neita því að Ólafur Ragnar Grímsson er klókur viðmælandi og frammistaða hans í breska ríkissjónvarpinu var afbragð.

Ég ítreka það í tilefni af ömurlegum skotgrafarhernaðinum sem ríkir á Íslandi núna að þetta hefur ekkert með skoðanir mínar á ákvörðun hans að gera.

 





15.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

,,Þeir sem þola mig ekki verða svekktir"

Nú styttist óðum í að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis verði birt. Talsmenn nefndarinnar hafa látið í veðri vaka að skýrslan verði ansi svakaleg og mikill áfellisdómur yfir mörgum.
14.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

Mikilvægasta málið

Það er jákvætt að allir fjölmiðlarnir í landinu og fleiri en einn Alþingismaður séu byrjuð að skoða það sem ég hef bent á hér á síðunni ítrekað síðan í janúar.
13.mar. 2010 - 08:30 Sölvi Tryggvason

,,Hvers virði er 300 fermetra hús í Hlíðunum?"

Í yfirheyrslum saksóknara yfir Milestone mönnum eru þeir allir spurðir um hvernig fjárhagsstaða þeirra sé eftir hrunið.
12.mar. 2010 - 17:57 Sölvi Tryggvason

Ákvörðun forsetans breytti stöðunni

ég held að þessi ákvörðun forsetans hafi skapað ákveðna nýja stöðu,
segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra. Í Spjallinu síðasta miðvikudag viðurkenndi hún jafnframt að undanfarnir mánuðir hefðu tekið á innan raða
12.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

,,Það síðasta sem hann las á þessari jörðu"

Jón Óttar Ragnarsson er stórmerkilegur náungi. Hann er með doktorspróf í næringarfræði og stýrði næringarfræðideild Háskóla Íslands áður en hann stofnaði Stöð 2 fyrir rúmum tuttugu árum.
11.mar. 2010 - 12:32 Sölvi Tryggvason

Opin spurning til nýju bankanna

Í framhaldi af því sem ég hef skrifað hér um afskriftir á lánasöfnum nýju bankanna vil ég spyrja einfaldrar spurningar og beina henni til Landsbankans, Íslandsbanka og Arion banka.
11.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

Stoppaði ríkisstjórnarfund fyrir Spaugstofuna

Félagarnir Pálmi Gestsson og Örn Arnarsson voru fjörugir að vanda í Spjallinu á Skjá Einum. Þeir sögðu þar meðal annars sögu af því þegar Steingrímur Hermannsson, þáverandi forsætisráðherra stoppaði ríkisstjórnarfund til að leika í atriði með Spaugstofunni.
10.mar. 2010 - 13:37 Sölvi Tryggvason

Rifið í lóðin

Aðalgesturinn í Spjallinu á Skjá Einum í kvöld er hinn stórmerkilegi Jón Óttar Ragnarsson, en í þættinum verður einnig viðtal við félagana Arnar Grant og Ívar Guðmundsson.
10.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

,,Áttum bara helvítis helling af peningum"

Í yfirheyrslum sérstaks saksóknara yfir Milestone mönnum síðasta sumar var Karl Wernersson spurður um eigið fé sem kom inn í fjármögnun á Invik.
09.mar. 2010 - 19:08 Sölvi Tryggvason

,,Hot sex pills"

Hvað er í gangi? Rétt í þessu fékk ég póst með þessum skemmtilega titli: ,,Hot sex pills"
09.mar. 2010 - 07:00 Sölvi Tryggvason

Böðlar kerfisins

Ég hef skrifað hér um afskriftirnar sem þegar hafa átt sér stað í bankakerfinu og leita nú svara við því hvernig þessar afskriftir hafa verið nýttar.
08.mar. 2010 - 07:00 Sölvi Tryggvason

Þeir millifærðu hundrað sinnum á einni sekúndu

Það hefur mikið verið rætt um vinnubrögð bankanna og gegnsæi innan raða þeirra. Það er ljóst að eftir krísuna í bankakerfinu á Íslandi árið 2006 breyttist margt.
07.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

Stóra blekkingin

Nýju bankarnir tóku lánasöfnin um fasteigna- og bílalán yfir með miklum afskriftum.
06.mar. 2010 - 10:34 Sölvi Tryggvason

Sprengja á síðustu metrunum

Eitt af því sem kom inn á borð rannsóknarnefndar Alþingis á síðustu metrunum var mikið magn af gögnum um Milestone og Sjóvá og öll félög þeim tengd.
05.mar. 2010 - 07:20 Sölvi Tryggvason

Bjargvætturinn

Bjargvætturinn hefur stigið fram á sjónvarsviðið. Maðurinn sem getur bjargað Íslandi úr ógöngunum. Einar Karl Haraldsson.
04.mar. 2010 - 21:33 Sölvi Tryggvason

Kreppan í samhengi

Þorsteinn J. Vilhjálmsson og Vera Sölvadóttir hafa sett kreppuna í rétt samhengi í myndinni Burkina Faso 8600km.
04.mar. 2010 - 14:00 Sölvi Tryggvason

Ætluðu að selja öllum allt

Steingrímur Wernersson fór mikinn í fyrstu yfirheyrslunum hjá sérstökum saksóknara. Hann ræddi þar meðal annars um fjármögnunarfyrirtækið Avant:
04.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

Stærsta hrunið 3. hluti

Ísland er stjórnlaust. Ástæðan er einföld. Stjórnmálamenn eru orðnir svo vanir að stinga hvorn annan í bakið að þeir kunna ekki að vinna saman.
03.mar. 2010 - 13:49 Sölvi Tryggvason

Klæða af sér kreppuna

Félagarnir Kormákur og Skjöldur klæða af sér kreppuna. Manni líður eins og maður sé kominn fimmtíu ár aftur í tímann þegar maður gengur inn í verslun þeirra á Laugaveginum. Sjón er sögu ríkari:
03.mar. 2010 - 07:45 Sölvi Tryggvason

Fyrirgefðu fyrir ,,Fyrirgefðu"

Félagarnir Felix Bergsson og Gunni Helga fóru á kostum í Spjallinu á Skjá Einum. Þar var meðal annars sýndur bútur úr hinum ógleymanlega þætti ,,Fyrirgefðu," sem var á dagskrá Skjás Eins fyrir nokkrum árum síðan.

Sölvi Tryggvason
Netfangið er: solvi@skjarinn.is

Námsferill:  – Menntaskólinn við Sund útskrifast 1998 BA í sálfræði frá Háskóla Íslands 2003 Hagnýt Fjölmiðlafræði frá HÍ 2004 Er hálfnaður með MA nám í Blaða– og fréttamennsku frá HÍ

Starfsferill: Stöð2 – fréttamaður 2004 -2006. Lesari í morgunfréttum Stöðvar 2 og fréttum NFS -2005-2006. Einn af þáttastjórnendum Íslands í dag 2006-2008 Fréttir og Fréttaskýringar í DV sumarið 2009. Þáttastjórnandi Spjallsins með Sölva 2009.

Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 12.3.2010
Heit á Hótel Borg - Mynd vikunnar!
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 13.3.2010
Davíðssálmur númer 1
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 13.3.2010
Enn og aftur bullar Gylfi
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 15.3.2010
,,Þeir sem þola mig ekki verða svekktir"
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 15.3.2010
Skvísuvaktin - Elín Kristjáns
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 15.3.2010
Skussum bjargað – ráðdeildarsömum refsað
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 14.3.2010
Tuttugu þúsund verða að tvöhundruð þúsund
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 11.3.2010
Díva mánaðarins - BrianX.com
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Opin spurning til nýju bankanna
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Hvar eru afskriftirnar? - hvar er rannsóknin?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Stoppaði ríkisstjórnarfund fyrir Spaugstofuna
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Katrín Brynja Hermannsdóttir - 12.3.2010
Útbíuð í sýklum?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 14.3.2010
Mikilvægasta málið
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 12.3.2010
Ákvörðun forsetans breytti stöðunni
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 12.3.2010
Hvað kosta íslenskar konur?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 11.3.2010
VBS fallinn ári eftir ríkisstyrk
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 11.3.2010
Nú er okkur alveg sama
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit