30. jan. 2010 - 08:00Sölvi Tryggvason
Athyglissýki
Ég skrifaði hér á síðuna fyrir skömmu um sögu ungrar konu sem reyndi að fyrirfara sér, en var síðan send heim nokkrum klukkutímum eftir að hún kom á geðdeild. Hún hafði tekið svo mikið af lyfjum að margir hefðu ekki þolað það.
Lesandi síðunnar sendi mér merkilega ábendingu eftir þessa færslu. Árið 2000 spurði Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir þingmaður um sjálfsvíg á Alþingi og fékk þessi svör úr gögnum um heilbrigðismál:
“Á þessum árum voru 269 tilfelli sjálfsvígstilrauna skráð vegna lyfjaeitrunar eða að meðaltali um 90 á ári. Þegar lyfjaeitrun er skráð getur ástæða hennar verið mismunandi, svo sem sjálfsvígstilraun, ofnotkun lyfja eða áfengismisnotkun, ofskömmtun lyfja, „vekja athygli“, slys o.fl.”
Ég feitletraði orðin ,,vekja athygli,“ þar sem mér finnst þessi skýring með ólíkindum ósmekkleg. Takið líka eftir gæsalöppunum. Hvaða tilgangi þjóna þær þarna?
Þó að vissulega látist fólk ekki alltaf þegar það reynir sjálfsvíg er ekki þar með sagt að það sé að reyna að vekja á sér athygli. Þeim sem tekur lyf í þessu magni í algerri örvæntingu líður þannig að það verður að taka alvarlega. ALLTAF!
Það er löstur á velferðarríki að taka með þessum hætti á vandamálum ungs fólks sem líður svo illa að því langar ekki að lifa lengur. Það má ekki undir nokkrum kringumstæðum gerast að fólk sem reynir sjálfsvíg sé sent á götuna þegar búið er að koma því inn á spítala. Svoleiðis gerist ekki í mannúðlegu og almennilegu samfélagi.
12.mar. 2010 - 17:57
Sölvi Tryggvason
ég held að þessi ákvörðun forsetans hafi skapað ákveðna nýja stöðu,
segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra. Í Spjallinu síðasta miðvikudag viðurkenndi hún jafnframt að undanfarnir mánuðir hefðu tekið á innan raða
12.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Jón Óttar Ragnarsson er stórmerkilegur náungi. Hann er með doktorspróf í næringarfræði og stýrði næringarfræðideild Háskóla Íslands áður en hann stofnaði Stöð 2 fyrir rúmum tuttugu árum.
11.mar. 2010 - 12:32
Sölvi Tryggvason
Í framhaldi af því sem ég hef skrifað hér um afskriftir á lánasöfnum nýju bankanna vil ég spyrja einfaldrar spurningar og beina henni til Landsbankans, Íslandsbanka og Arion banka.
11.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Félagarnir Pálmi Gestsson og Örn Arnarsson voru fjörugir að vanda í Spjallinu á Skjá Einum. Þeir sögðu þar meðal annars sögu af því þegar Steingrímur Hermannsson, þáverandi forsætisráðherra stoppaði ríkisstjórnarfund til að leika í atriði með Spaugstofunni.
10.mar. 2010 - 13:37
Sölvi Tryggvason
Aðalgesturinn í Spjallinu á Skjá Einum í kvöld er hinn stórmerkilegi Jón Óttar Ragnarsson, en í þættinum verður einnig viðtal við félagana Arnar Grant og Ívar Guðmundsson.
10.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Í yfirheyrslum sérstaks saksóknara yfir Milestone mönnum síðasta sumar var Karl Wernersson spurður um eigið fé sem kom inn í fjármögnun á Invik.
09.mar. 2010 - 19:08
Sölvi Tryggvason
Hvað er í gangi? Rétt í þessu fékk ég póst með þessum skemmtilega titli:
,,Hot sex pills"
09.mar. 2010 - 07:00
Sölvi Tryggvason
Ég hef skrifað hér um afskriftirnar sem þegar hafa átt sér stað í bankakerfinu og leita nú svara við því hvernig þessar afskriftir hafa verið nýttar.
08.mar. 2010 - 07:00
Sölvi Tryggvason
Það hefur mikið verið rætt um vinnubrögð bankanna og gegnsæi innan raða þeirra. Það er ljóst að eftir krísuna í bankakerfinu á Íslandi árið 2006 breyttist margt.
07.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Nýju bankarnir tóku lánasöfnin um fasteigna- og bílalán yfir með miklum afskriftum.
06.mar. 2010 - 10:34
Sölvi Tryggvason
Eitt af því sem kom inn á borð rannsóknarnefndar Alþingis á síðustu metrunum var mikið magn af gögnum um Milestone og Sjóvá og öll félög þeim tengd.
05.mar. 2010 - 07:20
Sölvi Tryggvason
Bjargvætturinn hefur stigið fram á sjónvarsviðið. Maðurinn sem getur bjargað Íslandi úr ógöngunum. Einar Karl Haraldsson.
04.mar. 2010 - 21:33
Sölvi Tryggvason
Þorsteinn J. Vilhjálmsson og Vera Sölvadóttir hafa sett kreppuna í rétt samhengi í myndinni Burkina Faso 8600km.
04.mar. 2010 - 14:00
Sölvi Tryggvason
Steingrímur Wernersson fór mikinn í fyrstu yfirheyrslunum hjá sérstökum saksóknara. Hann ræddi þar meðal annars um fjármögnunarfyrirtækið Avant:
04.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Ísland er stjórnlaust. Ástæðan er einföld. Stjórnmálamenn eru orðnir svo vanir að stinga hvorn annan í bakið að þeir kunna ekki að vinna saman.
03.mar. 2010 - 13:49
Sölvi Tryggvason
Félagarnir Kormákur og Skjöldur klæða af sér kreppuna. Manni líður eins og maður sé kominn fimmtíu ár aftur í tímann þegar maður gengur inn í verslun þeirra á Laugaveginum. Sjón er sögu ríkari:
03.mar. 2010 - 07:45
Sölvi Tryggvason
Félagarnir Felix Bergsson og Gunni Helga fóru á kostum í Spjallinu á Skjá Einum. Þar var meðal annars sýndur bútur úr hinum ógleymanlega þætti
,,Fyrirgefðu," sem var á dagskrá Skjás Eins fyrir nokkrum árum síðan.
02.mar. 2010 - 21:00
Sölvi Tryggvason
Í Spjallinu á Skjá Einum annað kvöld sjáum við nótt í miðborg Reykjavíkur með augum lögreglumanna. Við vorum á vaktinni frá 11 til 7 um morguninn. Hér að neðan má sjá smá brot úr þættinum.
02.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Ég fékk gífurleg viðbrögð við grein minni hér á Pressunni í gær. Ég er afskaplega þakklátur fyrir það. Mér sýnist að stór hópur fólks sé búinn að fá nóg af því hugarfari sem hér ríkir. Mig langar að halda aðeins áfram.
01.mar. 2010 - 14:30
Sölvi Tryggvason
Fyrstu yfirheyrslur sérstaks saksóknara yfir Þór Sigfússyni enda á þessum fleygu orðum: