28. jan. 2010 - 08:00Sölvi Tryggvason

Áhættufíklar tæmdu sjóðina

Almennt

Það hefur töluvert mikið verið fjallað um bótasjóðina í Sjóvá, sem voru tæmdir til að nota í fjárfestingar. Tryggingafélög eru áhugaverð fyrir stóra fjárfesta einmitt af þessum sökum. Þar er hægt að komast í mikið lausafé. Af nákvæmlega sömu ástæðu höfðu öll íslensku fjárfestingafélögin og bankarnir afskaplega mikinn áhuga á lífeyrissjóðum þegar allt var á fullri siglingu. Þá var ekki hægt að kaupa, en þá mátti fá til að fjárfesta. Nóg af lausafé sem hefur safnast saman í áratugi.

Tryggingafélögin stóru eru fleiri en bara Sjóvá. En eins og Sjóvá tengjast bæði VÍS og TM fjárfestum og bönkum. Þar voru líka stórir bótasjóðir. Til mín hafa komið menn sem þekkja tryggingabransann inn og út og sagst óttast mjög að búið sé að vaða í sjóðina þar líka. Einn þeirra sagði mér frá bótasjóði Sjóvá meira en mánuði áður en það mál komst í fréttir. Þess vegna verð ég að trúa honum þegar hann segir nú: ,,Sölvi, þessir menn leituðu upp lausafé eins og hrægammar. Þegar þú horfir á það hvaða aðilar tengdust hinum tryggingafélögunum kemstu bara að einni niðurstöðu. Bótasjóðirnir þar eru líka tómir. Mark my words, þetta á eftir að koma fram.“

Það er skelfilegt til þess að hugsa að peningar sem hafa safnast saman af pottþéttum greiðendum í áratugi endi á báli brunaglaðra áhættufíkla. Peningarnir eru einmitt til staðar vegna þess að trygglyndir greiðendur hafa tamið sér þveröfugt hugarfar. Að fara að lögum og standa alltaf við sínar skuldbindingar.

Til þess að gera hreint fyrir sínum dyrum ættu yfirmenn VÍS og TM að gefa upp stöðuna á sínum bótasjóðum. Með þeim hætti þyrfti almenningur ekki að óttast að örorkubætur framtíðarinnar hafi farið á risastóran ruslahaug peninganna sem brunnu. Þessir peningar voru ekki loft og fóru ekki til himna. Þeir voru til í raun og veru og urðu til með ábyrgri hegðun fólks sem hefur alltaf haldið samfélaginu hér uppi. Stóra millistéttin sem alltaf stendur við sitt og mun greiða skuldirnar sem áhættufíklarnir söfnuðu upp á rugluðu trippi.




16.mar. 2010 - 14:45 Sölvi Tryggvason

Mottu á forsetann!

Það hefur ekki farið framhjá mörgum að í mars er átak til að vekja karlmenn til vitundar um hættuna á krabbameini.
16.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

Meig utan í lögreglubíl í miðbænum

Það sem upp úr stendur eftir að hafa tekið upp störf lögreglunnar aðfaranótt sunnudags í miðbæ Reykjavíkur er mikið virðingarleysi fyrir störfum hennar.
15.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

,,Þeir sem þola mig ekki verða svekktir"

Nú styttist óðum í að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis verði birt. Talsmenn nefndarinnar hafa látið í veðri vaka að skýrslan verði ansi svakaleg og mikill áfellisdómur yfir mörgum.
14.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

Mikilvægasta málið

Það er jákvætt að allir fjölmiðlarnir í landinu og fleiri en einn Alþingismaður séu byrjuð að skoða það sem ég hef bent á hér á síðunni ítrekað síðan í janúar.
13.mar. 2010 - 08:30 Sölvi Tryggvason

,,Hvers virði er 300 fermetra hús í Hlíðunum?"

Í yfirheyrslum saksóknara yfir Milestone mönnum eru þeir allir spurðir um hvernig fjárhagsstaða þeirra sé eftir hrunið.
12.mar. 2010 - 17:57 Sölvi Tryggvason

Ákvörðun forsetans breytti stöðunni

ég held að þessi ákvörðun forsetans hafi skapað ákveðna nýja stöðu,
segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra. Í Spjallinu síðasta miðvikudag viðurkenndi hún jafnframt að undanfarnir mánuðir hefðu tekið á innan raða
12.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

,,Það síðasta sem hann las á þessari jörðu"

Jón Óttar Ragnarsson er stórmerkilegur náungi. Hann er með doktorspróf í næringarfræði og stýrði næringarfræðideild Háskóla Íslands áður en hann stofnaði Stöð 2 fyrir rúmum tuttugu árum.
11.mar. 2010 - 12:32 Sölvi Tryggvason

Opin spurning til nýju bankanna

Í framhaldi af því sem ég hef skrifað hér um afskriftir á lánasöfnum nýju bankanna vil ég spyrja einfaldrar spurningar og beina henni til Landsbankans, Íslandsbanka og Arion banka.
11.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

Stoppaði ríkisstjórnarfund fyrir Spaugstofuna

Félagarnir Pálmi Gestsson og Örn Arnarsson voru fjörugir að vanda í Spjallinu á Skjá Einum. Þeir sögðu þar meðal annars sögu af því þegar Steingrímur Hermannsson, þáverandi forsætisráðherra stoppaði ríkisstjórnarfund til að leika í atriði með Spaugstofunni.
10.mar. 2010 - 13:37 Sölvi Tryggvason

Rifið í lóðin

Aðalgesturinn í Spjallinu á Skjá Einum í kvöld er hinn stórmerkilegi Jón Óttar Ragnarsson, en í þættinum verður einnig viðtal við félagana Arnar Grant og Ívar Guðmundsson.
10.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

,,Áttum bara helvítis helling af peningum"

Í yfirheyrslum sérstaks saksóknara yfir Milestone mönnum síðasta sumar var Karl Wernersson spurður um eigið fé sem kom inn í fjármögnun á Invik.
09.mar. 2010 - 19:08 Sölvi Tryggvason

,,Hot sex pills"

Hvað er í gangi? Rétt í þessu fékk ég póst með þessum skemmtilega titli: ,,Hot sex pills"
09.mar. 2010 - 07:00 Sölvi Tryggvason

Böðlar kerfisins

Ég hef skrifað hér um afskriftirnar sem þegar hafa átt sér stað í bankakerfinu og leita nú svara við því hvernig þessar afskriftir hafa verið nýttar.
08.mar. 2010 - 07:00 Sölvi Tryggvason

Þeir millifærðu hundrað sinnum á einni sekúndu

Það hefur mikið verið rætt um vinnubrögð bankanna og gegnsæi innan raða þeirra. Það er ljóst að eftir krísuna í bankakerfinu á Íslandi árið 2006 breyttist margt.
07.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

Stóra blekkingin

Nýju bankarnir tóku lánasöfnin um fasteigna- og bílalán yfir með miklum afskriftum.
06.mar. 2010 - 10:34 Sölvi Tryggvason

Sprengja á síðustu metrunum

Eitt af því sem kom inn á borð rannsóknarnefndar Alþingis á síðustu metrunum var mikið magn af gögnum um Milestone og Sjóvá og öll félög þeim tengd.
05.mar. 2010 - 07:20 Sölvi Tryggvason

Bjargvætturinn

Bjargvætturinn hefur stigið fram á sjónvarsviðið. Maðurinn sem getur bjargað Íslandi úr ógöngunum. Einar Karl Haraldsson.
04.mar. 2010 - 21:33 Sölvi Tryggvason

Kreppan í samhengi

Þorsteinn J. Vilhjálmsson og Vera Sölvadóttir hafa sett kreppuna í rétt samhengi í myndinni Burkina Faso 8600km.
04.mar. 2010 - 14:00 Sölvi Tryggvason

Ætluðu að selja öllum allt

Steingrímur Wernersson fór mikinn í fyrstu yfirheyrslunum hjá sérstökum saksóknara. Hann ræddi þar meðal annars um fjármögnunarfyrirtækið Avant:
04.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

Stærsta hrunið 3. hluti

Ísland er stjórnlaust. Ástæðan er einföld. Stjórnmálamenn eru orðnir svo vanir að stinga hvorn annan í bakið að þeir kunna ekki að vinna saman.

Sölvi Tryggvason
Netfangið er: solvi@skjarinn.is

Námsferill:  – Menntaskólinn við Sund útskrifast 1998 BA í sálfræði frá Háskóla Íslands 2003 Hagnýt Fjölmiðlafræði frá HÍ 2004 Er hálfnaður með MA nám í Blaða– og fréttamennsku frá HÍ

Starfsferill: Stöð2 – fréttamaður 2004 -2006. Lesari í morgunfréttum Stöðvar 2 og fréttum NFS -2005-2006. Einn af þáttastjórnendum Íslands í dag 2006-2008 Fréttir og Fréttaskýringar í DV sumarið 2009. Þáttastjórnandi Spjallsins með Sölva 2009.

Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 12.3.2010
Heit á Hótel Borg - Mynd vikunnar!
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 13.3.2010
Davíðssálmur númer 1
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 15.3.2010
,,Þeir sem þola mig ekki verða svekktir"
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 13.3.2010
Enn og aftur bullar Gylfi
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 15.3.2010
Skvísuvaktin - Elín Kristjáns
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 15.3.2010
Skussum bjargað – ráðdeildarsömum refsað
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 14.3.2010
Tuttugu þúsund verða að tvöhundruð þúsund
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 16.3.2010
Meig utan í lögreglubíl í miðbænum
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Katrín Brynja Hermannsdóttir - 12.3.2010
Útbíuð í sýklum?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Hvar eru afskriftirnar? - hvar er rannsóknin?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 14.3.2010
Mikilvægasta málið
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 15.3.2010
Hugleiðingar vegna orða Jurshevskis
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 12.3.2010
Hvað kosta íslenskar konur?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 12.3.2010
Ákvörðun forsetans breytti stöðunni
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 16.3.2010
Fórnarlömb eða kúlulánakóngar?
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 16.3.2010
Skammastu þín Sigrún!
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Grunaður maður er ekki sekur
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit