13. júl. 2012 - 11:15Sigurður G. Guðjónsson
Til varnar Jóni Steinari Gunnlaugssyni
Reynir Traustason ritstjóri DV skrifaði leiðara í blað sitt 11. júlí sl. undir fyrirsögninni ,,Innvígður dómari“. Af lestri leiðarans og myndskreytingu með honum má sjá að hinn innvígði dómari er Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari.
Tilefni skrifa Reynis er sú staðreyndað Jón Steinar Gunnlaugsson hefur tilkynnt að hann muni láta af störfumsem dómari við Hæstarétt Íslands þegar hann hefur náð fullum 65 ára aldri síðar á þessu ári.
Samkvæmt 61. gr. stjórnarskrárinnar njóta dómarar við Hæstarétt Íslands þeirra kjara að geta látið af störfum þegar þeir hafa náð 65 á aldri án þess að laun þeirra skerðist.
Af leiðaranum má helst ráða, að ritstjórinn telji þessi stjórnarskrárvernduð starfskjör dómara við Hæstarétt Íslands hafa verið sniðin að hagsmunum flokkspólitískra gæðinga einkumtengdum Sjálfstæðisflokknum; manna eins og Jóns Steinars Gunnlaugssonar, sem sé vinur og spilafélagi Davíð Oddssonar fyrrum formanns Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra.
Ritstjóri DV virðist ekki gera sér grein fyrir því að 61. gr. stjórnarskrárinnar er ein þriggja greina 5. kafla hennar sem fjallar um skipan dómsvalds hér á landi. Ákvæðiðtryggir sjálfstæði dómara gagnvart öðrum handhöfum ríkisvaldsins og er eitt mikilvægasta ákvæði stjórnarskrárinnar. Án sjálfstæðra dómara er hætt við að vernd borgaranna gagnvart ofríki annarra handhafa ríkisvalds væri með öllu fyrir borð borin. Réttaröryggi borgarannamá aldrei vera háð stundarhagsmunum annarra handhafa ríkisvalds, hugmyndum misvitra stjórnmálamanna eða annarra aðila sem náð geta eyrum fjöldans með upphrópunum, aðdróttunum og dylgjum, eins og reyndin er með leiðara Reynis Traustasonar í DV 11. júlí sl.
Í leiðaranum víkur Reynir Traustason einnig að þekkingu Jóns Steinars Gunnlaugssonar á lögum og fullyrðirað hannhafi hvergi skarað fram úr og aðeins hlotið dómarastarf við Hæstarétt vegna tengsla við áhrifamenn í Sjálfstæðisflokknum. Reynir Traustason styður þessa staðhæfingu sína engum rökum.
Ég tel mig þekkja Jón Steinar Gunnlaugsson ágætlega, sem lögfræðing, lögmann og dómara; naut kennslu hans í lagadeild Háskóla Íslands, hef glímt við hann sem lögmann og orðið að þola harðar spurningar hans við málflutning fyrir Hæstarétti. Þessi kynni mín af Jóni Steinari Gunnlaugssyni gera það að verkum, að ég get fullyrt að þar fervandaður maðurog einn af hæfustu lögfræðingum landsins; lögfræðingursem nálagst úrlausn mála á forsendum lögfræðinnar en hvorki því sem hæfir pólitískum skoðunum vina hans né þjóðarsálinni hverju sinni. Slík vinnubrögð eru sjaldnast ávísun á vinsældir og aðdáun af hálfu þeirra sem lifa á innistæðulausu snakki, aðdróttunum og dylgjum.
26.maí 2013 - 20:53
Sigurður G. Guðjónsson
Hef verið að fylgjast með fjárfestingum í einkarekstri á Íslandi síðastliðin ár. Á þeim vettvangi eru lífeyrissjóðirnir ráðandi. Ekki virðist þó mikil glóra í mörgu sem þar er gert. Fjárfestingunni er stýrt gegnum sjóði sem stofnaðir eru um fjárfestingar almennt eða einstök verkefni.
22.maí 2013 - 16:55
Sigurður G. Guðjónsson
Að fenginni áminningu úrskurðarnefndar Lögmannafélags Íslands.
12.maí 2013 - 13:33
Sigurður G. Guðjónsson
Samkvæmt Pétri Blöndal í Silfri Egils, er geymdur eyrir glataður eyrir. Er þá ekki rétt fyrir alla innstæðueigendur í bankakerfinu að taka allt sitt út, enda engin ábyrgð á innstæðum af hálfu ríkissjóðs, þó svo að því sé haldið fram.
09.maí 2013 - 20:22
Sigurður G. Guðjónsson
Þverfaglegur og þverpólitískur samráðsvettvangur sem skipar einhvers konar vinnuhópa undir verkefnastjórn á að leggja fram tillögur í haust um meiri hagsæld fyrir íbúa þessa lands.
28.apr. 2013 - 11:44
Sigurður G. Guðjónsson
Sífelldur kuldi og Villi verðtrygging kominn á þing. Skuldavandi heimilanna verður ekki leystur af samstjórn B og D og verður sennilega ekki leystur af þessum flokkum fremur en öðrum.
23.apr. 2013 - 17:28
Sigurður G. Guðjónsson
Í Mogga dagsins er greint frá því að nokkur stór refsimál, sem embætti sérstaks saksóknara hefur höfðað gegn fyrrum bankastjórnendum verði tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun.
20.apr. 2013 - 14:49
Sigurður G. Guðjónsson
Er að lesa DV helgina 24. til 26. apríl 2009, þar sem fjallað er um kosningaloforð þeirra flokka sem buðu sig fram.
14.apr. 2013 - 16:40
Sigurður G. Guðjónsson
Ég hef lítilega fylgst með kosningabárattunni fyrir komandi kosningar til Alþingis 27. apríl n.k. Hef tekið eftir því að allir frambjóðendur vilja allt fyrir alla gera.
07.apr. 2013 - 22:30
Sigurður G. Guðjónsson
Björt framtíð hefur verið að kynna pólitísk stefnumál sín og hélt heljar mikið partý í dag, þar sem meðal annars var talið í og lag og Purple rain sungið.
06.apr. 2013 - 23:28
Sigurður G. Guðjónsson
Jóhanna Sigurðardóttir er að fara til Kína á kostnað skattgreiðenda. Eftir þá ferð fer Jóhanna Sigurðardóttir í eftirlaunaferðalag á kostnað skattgreiðenda. Þau eftirlaun sem Jóhanna Sigurðardóttir hlýtur eftir 35 ára slímsetu á Alþingi og sem ráðherra um tíma, m.a. forsætisráðherra sl. fjögur ár, eru ekki sú hungurlús sem almennir ellilífeyrisþegar búa við.
02.apr. 2013 - 12:39
Sigurður G. Guðjónsson
Hef verið að rifja upp sögu löggjafarstarfs á Íslandi. Mér sýnist það hafa aðallega verið fólgið í því að innleiða erlenda löggjöf svo sem Gulaþingslög hin norsku á þjóðveldistímanum - Grágás-.
31.mar. 2013 - 18:55
Sigurður G. Guðjónsson
Gamli Moggaritstjórinn, Styrmir Gunnarsson, vekur athygli á skrifum núverandi Moggaritstjóra, Davíðs Oddssonar, fyrrum seðlabankastjóra, utanríkisráherra og forsætisráðherra, í pistli sínum á vef Evrópuvaktarinnar í dag.
26.mar. 2013 - 12:32
Sigurður G. Guðjónsson
Verði úrslit kosninga til Alþingis með þeim hætti, sem nýjustu kannanir sýna er ljóst að forsætisráðherrann Sigmundur Gunnlaugsson kemur úr Norðausturkjördæmi.
24.mar. 2013 - 14:49
Sigurður G. Guðjónsson
Ég sé að fjölmiðlar eru uppfullir af umfjöllun um fjölmiðlunga sem ýmist eru að koma til starfa eða láta af störfum.
16.mar. 2013 - 14:22
Sigurður G. Guðjónsson
Í gær fékk ég senda kæru Lögmannstofunnar Lex á hendur mér vegna meintra brota á siðareglum lögmanna.
11.mar. 2013 - 14:22
Sigurður G. Guðjónsson
Var að hlusta á nýjan formann bændasamtakanna.
Hann vill auka útflutning landbúnaðarafurða en hindra innflutning landbúnaðarafurða.
09.mar. 2013 - 20:02
Sigurður G. Guðjónsson
Hef verið að skoða þá framboðslista sem komnir eru fram í kjördæmi mínu, Norðvesturkjördæmi.
02.mar. 2013 - 12:36
Sigurður G. Guðjónsson
Gott væri ef satt reyndist í komandi kosningum að VG fengi aðeins fimm þingmenn.
23.feb. 2013 - 10:21
Sigurður G. Guðjónsson
Ríkisverslun, sem hefur einkarétt til áfengissölu til neytenda, og ríkisbanki sem veitir okurlán og fer seint og illa eftir dómum Hæstaréttar um ólögmæt gengistryggð lán, eru meðal fyrirtækja sem nú birta auglýsingar um að viðskiptavinir þeirra séu ánægðastir viðskiptavina vínverslana annars vegar og fjármálafyrirtækja hins vegar.
08.feb. 2013 - 08:57
Sigurður G. Guðjónsson
Mogginn fagnar þessari niðurstöðu enda má segja að málið sé skilgetið afkvæmi blaðsins.
02.feb. 2013 - 20:17
Sigurður G. Guðjónsson
Samfylkingin hefur valið sér nýja forustusveit, Árna Pál Árnason og Katrínu Júlíusdóttur.
31.jan. 2013 - 21:17
Sigurður G. Guðjónsson
Mikið var það nú samt gott fyrir þjóðarhag að forsetinn, herra Ólafur Ragnar Grímsson, skyldi hafa kjark til þess.
15.jan. 2013 - 19:27
Sigurður G. Guðjónsson
Egill Helgason er nýkominn frá Bandaríkjunum og finnst gott úrval af vörum í búðum í því mikla landi. Líkir íslenskri verslun og vöruúrvali þeirra við það sem var í gamla Sovét. Egill er líka aðdáandi alls í Grikklandi.
10.jan. 2013 - 09:00
Sigurður G. Guðjónsson
DV hefur oft og tíðum fjallað um meint afbrot fjölda einstaklinga á umliðnum árum, gjaldþrot og afskriftir.
06.jan. 2013 - 18:54
Sigurður G. Guðjónsson
28. desember sl. kvað fjölskipaður dómur Héraðsdóms Reykjavíkur upp dóm í máli ákæruvaldsins gegn Lárusi Welding og Guðmundi Hjaltasyni, sem báðir eru fyrrum starfsmenn Glitnis banka hf. Lárus bankastjóri en Guðmundur framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs bankans.
06.des. 2012 - 22:33
Sigurður G. Guðjónsson
Ingi Freyr Vilhjálmsson blaðamaður á DV er einkennilega innréttuð persóna. Svo virðist sem hann velji alltaf verri eða versta kostinn í umfjöllun um menn og málefni sé þess nokkur möguleiki; að meiða og særa þá sem liggja vel við höggum hópsálanna hverju sinni eru hans ær og kýr; Ingi Freyr brigslar einstaklingum ítrekað um refsiverða háttsemi, og fær reglulega á baukinn hjá dómst
ólum, nú síðast í Hæstarétti í dag.
05.des. 2012 - 17:01
Sigurður G. Guðjónsson
Fyrrum fjármálaráðherra, Oddný G. Harðardóttir, hefur lýst yfir stuðningi við Guðbjart Hannesson, í komandi formannskjöri Samfylkingarinnar. Hið sama hefur Sigríður Ingibjörg þingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík gert.
01.des. 2012 - 13:05
Sigurður G. Guðjónsson
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráherra ræddi vanda Íbúðalánasjóðs á Alþingi í vikunni. Af orðum ráðherrans og þingmönnum sem tóku til máls mátti skilja að 200 milljarðar kynnu að lenda á skattgreiðendum, þar sem sjóðurinn væri fallít. Það er eitthvað um 60 milljörðum minna en lenti á þjóðinni við gjaldþrot Seðlabankans við efnahagshrunið í október 2008 þegar Jóhanna var félagsmálaráðherra.
18.nóv. 2012 - 12:00
Sigurður G. Guðjónsson
Fréttablaðið hefur breytt um útlit. Gamla þunga og gelda útlitið horfið í það minnsta af helgarblaði þess. Fréttablaðið minnir um margt á 24 stundir (ex Blaðið) sem ýtt var úr vör í byrjun maí 2005.
15.nóv. 2012 - 23:30
Sigurður G. Guðjónsson
Styrmir Gunnarsson fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins var í viðtali í Kastljósi Ríkisútvarpsins til að auglýsa nýja bók sína um Sjálfstæðisflokkinn og réttlæta þá pólitísku- og viðskiptalegu spillingu sem viðgekkst hér á landi stóran hluta starfsævi hans á blaðinu.