27. jan. 2010 - 09:47Sigurður G. Guðjónsson

Rannsóknarnefnd Alþingis

Frá blaðamannafundi Rannsóknarnefndar í vikunni.

Frá blaðamannafundi Rannsóknarnefndar í vikunni. Mynd: Maggi

Rannsóknarnefnd Alþingis hefur enn á ný frestað því að skila Alþingi skýrslu um aðdraganda og orsakir hruns íslensku bankanna 2008 og tengda atburði. Formaður nefndarinnar hefur látið það eitt uppi um efni skýrslunnar að engir íslendingar hafi áður þurft að færa þjóðinni jafn slæmar fréttir og hann og meðnefndarmenn munu þurfa að gera þegar tvöþúsund síðna skýrslan kemur út.

Hinn karlnefndarmaðurinn lét svo þau orð falla á blaðamannafundi í vikunni að hann væri gráti næst við nefndarstarfið tíu til tólf tíma á dag og vildi að þjóðin fengi þriggja daga frí til að lesa skýrsluna eftir útkomu hennar.

Konan í nefndinni hefur ekkert tjáð sig í fjölmiðlum hér á landi. Vék hins vegar einhverjum almennum orðum að fjármálaeftirlitinu íslenska í skólablaði vestur í Bandaríkjunum, þar sem hún er kennari. Einhver vakti athygli formanns nefndarinnar á orðum konunnar og velti því upp við hann, hvort konan kynni að vera vanhæf til frekari rannsóknarstarfa. Nefndarformaður taldi svo ekki vera samkvæmt stjórnsýslulögum.

Enginn veit við hverja nefndin hefur talað á grundvelli 6. gr. laga um nefndina. Engar fréttir hafa borist af því að nefndin hafi beitt rannsóknarúrræðum 7. gr. sömu laga. Kannski var beiting rannsóknarúrræða óþörf, því allir hafa verið fúsir til samvinnu og komið fyrir nefndina til spjalls við nefndarmenn – sagt þeim hvað þeir teldu orsakir bankahrunsins. Vera má líka að einhverjir hafi komið með gögn með sér. Hver veit?

Um nefndarstarfið og starfsmenn hennar er ekkert vitað annað en að meðal starfsmanna nefndarinnar var fyrrum starfsmaður fjárfestingarsjóðs og kúlulánþegi. Sú fékk fyrir skömmu starf forstöðumanns bankasýslu ríkisins.

Kúlulán nefndarstarfsmannsins fyrrverandi skiptir kannski engu fyrir hrunið fremur en önnur slík lán, sem veitt voru starfsmönnum viðskiptabankanna og velunnurum þeirra.

Sé skýrsla nefndarinnar í raun og veru tilbúin að efni til, þarf væntanlega að senda hana til allra þeirra sem komið hafa fyrir nefndina og eru með einum eða öðrum hætti taldir hafa orsakað bankahrunið með athöfnum sínum eða athafnaleysi sbr. 13. gr. og 3. mgr. 14. gr. laganna. Hér koma til álita stjórn og bankastjórn Seðlabanka Íslands, Fjármálaeftirlitið og stjórn þess, ráðherrar, ráðuneytisstjórar og aðrir embættismenn í stjórnsýslu ríkisins, stjórnendur og stjórnir viðskiptabanka, fjárfestingarbanka, sparisjóða, fjárfestingafélaga, endurskoðendur, lögmenn og svo mætti lengi telja.

Hefur kannski enginn þessara aðila komið fyrir nefndina?

Þeir, sem nefndin telur í skýrslu sinni, hafa með athöfnum sínum eða athafnaleysi orsakað bankahrunið eiga rétt á því að fá aðgang að öllum gögnum sem þá varða og skýrslan byggir á áður en skýrslan verður birt til að neyta andmælaréttar síns. Annað verklag af hálfu nefndarinnar felur í sér brot á andmælarétti. Brot gegn andmælarétti leiðir jafnan til þessi í stjórnsýslurétti að ákvörðun stjórnvalds telst ógild.

Dugar mánuður til andmæla, ef skýrslan er jafn svört og orð nefndarformannsins í fjölmiðlum hafa gefið  til kynna, eða verður útgáfu hennar frestað á nýjan leik í næsta mánuði?

Bið Alþingis eftir skýrslunni heldur því áfram. Það er kannski líka best fyrir þjóðina að Alþingi bíði sem lengst eftir skýrslunni, því geta þess til meðferðar hennar svo sómi verði af fyrir þing og þjóð, er engin.




29.feb. 2012 - 21:30 Sigurður G. Guðjónsson

Að falsa eða falsa ekki eiginfjárhlutfall

Ég sé í aðsendum pistlum og greinum í blöðum að ég má ekki tjá mig um málefni forstjóra Fjármálaeftirlitsins, þar sem ég var í stjórn Glitnis banka hf., þegar hann rúllaði, og hef síðan tekið að mér störf verjanda fyrir ýmsa þá sem Fjármálaeftirlitið undir forsæti Gunnars Andersen hefur kært til embættis sérstaks saksóknara.
20.jan. 2012 - 15:02 Sigurður G. Guðjónsson

Hvar eru siðareglur Samtaka fjárfesta?

Vilhjálmur Bjarnason hagsmunagæslumaður verðtryggingar skulda heimilanna skrifar grein í Mogga í gær, fremur ómerkilega eins og vonlegt er þegar hann á hlut að máli.
02.jan. 2012 - 14:31 Sigurður G. Guðjónsson

Afsakið, meðan ég æli

Þegar Jón Ásgeir Jóhannesson var sakfelldur fyrir örlítið brot af sakargiftum í margfrægu Baugsmáli á sínum tíma var mikið gert úr því í Morgunblaðinu – og víðar – að 3 mánaða skilorðsbundin refsing væri stórkostlegt áfall og að afbrotamaðurinn mætti ekki sitja í stjórn eða vera framkvæmdastjóri hlutafélags næstu þrjú árin.
01.des. 2011 - 10:00 Sigurður G. Guðjónsson

Vísindamanni svarað

Guttormur Helgi Jóhannesson málvísindamaður birti greinina ,,Truflun“ í Fréttablaðinu 30. nóvember  s.l. Greinin er til varnar Gunnari Andersen - Ameríkumanninum í Fjármálaeftirlitinu. 
28.nóv. 2011 - 15:50 Sigurður G. Guðjónsson

Það á að reka Gunnar Andersen úr starfi forstjóra FME

Gunnar Andersen, forstjóri FME. Kastljós fjallaði á dögunum um starfshætti Gunnars Andersen hjá Landsbanka Íslands hf., þegar bankinn var ríkisbanki fyrir og eftir síðustu aldamót. Ég tók þátt í þessari umræðu og setti fram þá skoðun mína að Gunnar Andersen væri vanhæfur til að stýra Fjármálaeftirlitinu. Þessa skoðun mína byggi ég á gögnum, sem ég hef undir höndum,  og sýna hvernig Gunnar, að yfirlögðu ráði braut gegn bankalöggjöfinni í störfum sínum fyrir bankann.
13.apr. 2011 - 16:15 Sigurður G. Guðjónsson

Til efnahags- og viðskiptaráðherra

Efnahags- og viðskiptaráðherra hefur sagt í viðtölum m.a. á Bylgjunni, að  efni lög nr. 151/2010 sé í  fullu samræmi við dóma Hæstaréttar Íslands í málunum nr. 92/2010 og 153/2010 frá 16. júní og í máli nr. 471/2010 frá  16. september 2010 um ólögmætu gengislánin. Þetta er rangt.
03.apr. 2011 - 21:43 Sigurður G. Guðjónsson

Siðleg lögleysa

Alþingi samþykkti þann 22. desember 2010 lög nr. 151/2010. Þegar efnahags- og viðskiptaráðherra boðaði setningu laga þessara á blaðamannafundi 16. september 2010 kom fram  að  ráðherrann vildi með þeim tryggja jafnræði og sanngirni í uppgjöri þeirra lána sem fjármálafyrirtækin höfðu gengistryggt með ólögmætum hætti.
17.sep. 2010 - 14:20 Sigurður G. Guðjónsson

Vaxtaflón

Þegar ég hlýddi  á boðskap efnahags- og viðskiptaráðherra á blaðamannafundi í gær rifjaðist upp fyrir mér, að Sverrir Hermannsson fyrrum Landsbankastjóri notaði einu sinni orðið vaxtaflón um viðskiptaráðherra, sem vildi hafa áhrif á vaxtaákvarðanir Landsbankans.
29.ágú. 2010 - 17:46 Sigurður G. Guðjónsson

Opið bréf til Hæstaréttar

Hæstiréttur mun á næstunni kveða upp dóm um vexti þeirra gengistryggðu lána, sem rétturinn dæmdi ólögmæt í tveimur dómum sínum þann 16. júní sl. Þeir dómar vöktu von um betri tíð þeirra sem á síðustu þremur árum hafa séð eignir sínar brenna á báli verðbólgunnar.
23.jún. 2010 - 08:00 Sigurður G. Guðjónsson

Samráðsfundur fjármálafyrirtækja

Þau dæmdu gengistrygginguna ólöglega. Það var létt yfir íslenskum skuldurum á þjóðhátíðardaginn, 17. júní.  Hæstiréttur Íslands hafði daginn áður kveðið upp eina fimm dóma, sem allir skiptu þá miklu. Í tveimur dómum dæmdi rétturinn gengistryggingu höfuðstóls  svokallaðra bílasamninga ólögmæta. Rétturinn hróflaði að öðru leyti ekki við efni bílasamninganna, enda ekki gerð krafa um það af hálfu þeirra fjármálafyrirtækja, sem hlut áttu að máli.
16.jún. 2010 - 09:48 Sigurður G. Guðjónsson

Hvorugkyns ákvæði stjórnarskrárinnar

Mér er ekki  ljóst hvers vegna lýðveldið Ísland þarf nýja stjórnarskrá að halda. Gildandi stjórnarskrá hefur sýnt sig að dugað við ýmsar og oft og tíðum erfiðar aðstæður í samfélaginu – nú síðast í búsáhaldabyltinguna í byrjun árs 2009.
13.jún. 2010 - 21:55 Sigurður G. Guðjónsson

,,Deep discount loans“

Bankarnir, sem Fjármálaeftirlitið kom á laggirnar í kjölfar bankahrunsins 2008, auglýsa í sífellu lausnir til að létta skuldabyrði  húsnæðislána. Skuldavandi heimilanna er ærinn og hefur aukist jafnt og þétt frá hruni bankakerfisins þrátt fyrir margítrekuð loforð um hina svokölluðu ,,Skjaldborg um heimilin“.
16.maí 2010 - 09:36 Sigurður G. Guðjónsson

Enn klikka fjölmiðlar!

Árni Tómasson, formaður Skilanefndar Glitnis. Í liðinni viku var mikið af fréttum frá slitastjórnum og skilanefndum viðskiptabankanna föllnu - ekki þó af launakjörum slitastjórna- og skilanefndamanna sjálfra eða kostnað við rekstur þessar nýju viðskiptablokka, sem soga til sín í vinnu vini og vandamenn án auglýsinga og eftirlits af hálfu nokkurs opinbers aðila, hvað þá kröfuhafa, enda fátt um fundi með þeim nema til að hafna kröfum.
08.maí 2010 - 11:10 Sigurður G. Guðjónsson

,,að sefa óánægju almennings.“

Jóhanna og Steingrímur, eða kannski frekar Steingrímur og Jóhanna, því Steingrímur, Indriði Þorláksson  og Vinstri grænir, þó fáir og margklofnir séu, ráða nú öllu sem þeir vilja - því miður fyrir land og þjóð.  Við sem kusum Samfylkinguna berum á þessu ábyrgð.
07.maí 2010 - 10:01 Sigurður G. Guðjónsson

Hver eru skilyrði gæsluvarðhalds?

Það var fjör og mikil gleði meðal  fjölmiðlamanna sem stóðu  í hóp fyrir utan skrifstofu sérstaks saksóknara að Laugavegi í gær; bankamenn höfðu verið handteknir; réttlætinu hafði verið fullnægt. Svo kom í ljós að hinir handteknu voru engir venjulegir bankamenn heldur fyrrum forstjórar Kaupþings banka þeir Hreiðar Már Sigurðsson og Magnús Guðmundsson.
26.apr. 2010 - 09:20 Sigurður G. Guðjónsson

Stefnubreyting Péturs Blöndal

Pétur Blöndal þingmaður Sjálfstæðisflokksins fer jafnan mikinn í morgunútvarpi Bylgjunnar í viku hverri um þau mál sem efst eru á baug. Nú um stundir eiga hug Péturs þingmanns  hvers kyns lög til að hemja græðgina, sem flokksbræður hans ýmsir og hann sjálfur urðu  berir að eftir síðustu aldamót sérstaklega.
25.apr. 2010 - 10:30 Sigurður G. Guðjónsson

Tillaga að siðareglu fyrir Framsókn

Framsóknarmenn eru að fjalla um tillögur að siðareglum. Hef ekki séð þær, enda ekki innanbúðarmaður í Framsókn. Þegar  horft er til afrekaskrár Framsóknarflokksins  frá því hann fyrst  komst  til valda á millistríðsárunum má greina ákveðna bresti  hjá sumum flokksmönnum.
18.apr. 2010 - 10:10 Sigurður G. Guðjónsson

Hvaða siðareglu braut Þorgerður Katrín?

Ekkert var ólöglegt við þessi viðskipti af hálfu eiginmanns Þorgerðar Katrínar. Viðskiptin fóru fram fyrir opnum tjöldum á grundvelli réttarreglna sem Alþingi hafði sett.  Mér er því  spurn hvaða siðareglur braut Þorgerður Katrín. Finn hana ekki í boðorðunum tíu eða öðrum siðareglum kristinnar trúar.
17.apr. 2010 - 17:00 Sigurður G. Guðjónsson

Afglapinn í Hádegismóum

Rannsóknarskýrslan er uppfull af upplýsingum um afglöp  höfuðsmiðs bankakerfisins, Davíðs Oddssonar, sem setti Seðlabanka Íslands á hausinn árið 2008 og þjóðnýtti Glitni við þriðja mann án þess að skoða afleiðingar þess. Afglöp Davíðs Oddssonar í stóli seðlabankastjóra hafa þegar kostað íslenska ríkið, fjölskyldur og fyrirtæki meira  en Icesave.
14.mar. 2010 - 19:36 Sigurður G. Guðjónsson

Tuttugu þúsund verða að tvöhundruð þúsund

Mogginn veitti mér þann óvænta heiður að prýða forsíðu laugardagsblaðsins – tilefnið, kaup mín á kröfu Skeljungs á hendur þrotabúi Fons. Það skal upplýst hér að þessa liðlega 200 þúsund króna kröfu  Skeljungs keypti ég á tuttugu þúsund krónur.

Sigurður G. Guðjónsson

Hæstaréttarlögmaður

Gréta Ingþórsdóttir
Gréta Ingþórsdóttir - 16.5.2012
Lífið er dásamlegt – í minningu barns
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 18.5.2012
Einmana súkkulaðikaka- UPPSKRIFT
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 17.5.2012
Hvað skyldi Guðmundur Andri skrifa núna? Og Illugi?
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 17.5.2012
Hversu svöng erum við í raun?
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Aðsend grein
Aðsend grein - 23.5.2012
Maltölsprósentuvirðing
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 22.5.2012
Rútínurask
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 18.5.2012
Lýðræðislegt ofbeldi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 22.5.2012
Golf í Vestmannaeyjum
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2012
Rússagrýlan
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 22.5.2012
Marx og Lenín í útgerð á Íslandi?
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 16.5.2012
Við getum fækkað umferðarslysum
Fannar Karvel
Fannar Karvel - 22.5.2012
Basic hnébeygja eða hvað...
Gunnar I. Birgisson
Gunnar I. Birgisson - 23.5.2012
Yfirlýsing
Fleiri pressupennar