14. júl. 2009 - 23:41Sigurður G. Guðjónsson

Rannsókn einkavæðingar ríkisbankanna

Samkvæmt Eyjubloggi Egils Helgasonar frá 14. júlí vill hann að einkavæðing ríkisbankanna árið 2002 verði rannsökuð af rannsóknarnefnd Alþingis.

Ég er Agli hjartanlega sammála, enda hef ég lengi reynt að komast til botns í því bralli öllu saman.

Þess má þó geta hér, að Rendi (Sigurður Þórðarson fyrrum ríkisendurskoðandi) hefur gefið einkavæðingu ríkisbankanna heilbrigðisvottorð Ríkisendurskoðunar, eins og honum einum var lagið að gefa  þegar mál snertu forystu Sjálfstæðisflokksins. En eins og margoft hefur komið fram átti  Rendi bæði starfsframa og fjárhagslega áhyggjulaust ævikvöld undir Matthíasi Á. Mathiesen fyrrum leiðtoga sjálfstæðismanna í Hafnarfirði.

Í bloggfærslu Egils segir:

,,Fyrir nefndina yrðu kallaðir arkitektar einkavæðingarinnar, Davíð Oddsson, Halldór Ásgrímsson, Kjartan Gunnarsson, Baldur Guðlaugsson, Finnur Ingólfsson, Valgerður Sverrisdóttir, Geir Haarde, Hreinn Loftsson – og einnig Steingrímur Ari Arason sem sagði sig úr einkavæðingarnefnd með þeim orðum að hann hefði aldrei séð önnur eins vinnubrögð.Jú og líka Björgólfur Guðmundsson, Björgólfur Thor Björgólfsson, Ólafur Ólafsson og Sigurður Einarsson. Þessar yfirheyrslur ætti að senda út í beinni útsendingu í sjónvarpi. Í einkavæðingunni liggur upphafið að því sem síðar gekk yfir Ísland. Þar var verðmætum eignum almennings stýrt í hendurnar á fámennum klíkum vildarvina stjórnarflokkanna.Þeir voru ekki einu sinni borgunarmenn fyrir þessu, heldur fengu lánað í bönkunum sem verið var að einkavæða á þessum tíma.Blekkingin var algjör og það var logið að þjóðinni. Og reyndar er spurning hvort ekki þurfi líka að kanna hvort hægt sé að koma lögum yfir þá sem stóðu fyrir þessu svikabralli.“

Það sem vantar í bloggfærslu  Egils er, að stýrimaður einkavæðingar ríkisbankanna er gamall vildarvinur Sjálfstæðisflokksins. Sá heitir Ólafur Davíðsson. Hann fékk að launum þægilega innivinnu sem sendiherra í Þýskalandi með  tilheyrandi skattfríðindum.

Fáum Ólaf fyrir rannsóknarnefnd Alþingis; höfum yfirheyrsluna  opna og reynum þannig að upplýsa hvað fór fram í einkavæðingarnefnd undir hans stjórn.   Sigrún Davíðsdóttir gæti líka flutt þjóðinni pistla frá London af yfirheyrslum Ólafs.



27.jan. 2010 - 09:47 Sigurður G. Guðjónsson

Rannsóknarnefnd Alþingis

Frá blaðamannafundi Rannsóknarnefndar í vikunni. Rannsóknarnefnd Alþingis hefur enn á ný frestað því að skila Alþingi skýrslu um aðdraganda og orsakir hruns íslensku bankanna 2008 og tengda atburði. Formaður nefndarinnar hefur látið það eitt uppi um efni skýrslunnar að engir íslendingar hafi áður þurft að færa þjóðinni jafn slæmar fréttir og hann og meðnefndarmenn munu þurfa að gera þegar tvöþúsund síðna skýrslan kemur út.
06.jan. 2010 - 14:00 Sigurður G. Guðjónsson

Baldur og Konni á öndverðum meiði!

Í Staksteinum  ritstjórnar Morgunblaðsins þann 9. desember var mér og forsetanum líkt við Baldur og Konna. Ástæða þess var sú að ég hafði nokkru áður  látið þá skoðun mína í ljós opinberlega að forsetinn ætti að staðfesta svokölluð Icesavelög samþykkti Alþingi frumvarp fjármálráðherra þar um. Moggaritstjórnin tók þessi orð mín sem vísbendingu um afstöðu forsetans, sem talaði í gegnum mig til þjóðarinnar, eins og Baldur í gegnum brúðuna Konna forðum. 

12.des. 2009 - 20:00 Sigurður G. Guðjónsson

Að skreyta sig með stolnum fjöðrum

Prófessor Hannes er enn við sama heygarðshornið. Fyrir nokkru stal hann í bók sína um rithöfundinn Laxnes stórum köflum úr verkum skáldsins. Nú telur Hannes að ólögleg útvarpsstarfssemi hans og nokkurra annarra sjálfstæðismanna í upphafi níunda áratugar síðustu aldar hafi rutt einkareknu útvarpi hér á landi braut.
11.des. 2009 - 08:50 Sigurður G. Guðjónsson

Hafa skal það sem sannara reynist

Í pistli mínum hér á Pressunni í gær um danshöfundinn Hannes fór ég eftir gögnum frá setu minni í stjórn Glitnis og vék að Illuga Gunnarssyni núverandi þingmanni Sjálfstæðisflokksins og björgun sjóðs 9 hjá Glitni á kostnað ríkissjóðs.
10.des. 2009 - 09:25 Sigurður G. Guðjónsson

Danshöfundurinn Hannes

Það fór sem mig grunaði, að grein mín á Pressunni um Icesave kæmi til með að fara illa í Davíð Moggaritstjóra. Ég vissi líka að úr hans ranni  væri ekki að vænta efnislegrar andsvara. Efnislega umræða  er og hefur verið honum ofviða alla hans pólitísku tíð. Þennan vanmátt sinn hefur hann falið með spaugsyrðum í tíma og ótíma; nú hefur hann Staksteina Moggans, sem umfangs sín vegna kalla hvorki á mikið hand- né hugverk. Ég vissi líka að argi prófessorinn í Háskóla Íslands, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, mundi verja fóstra sinn Davíð og Flokkinn, sem fóstrað hefur þá lagsbræður lengi.
08.des. 2009 - 09:50 Sigurður G. Guðjónsson

Skuldin er arfleifð Sjálfstæðisflokksins

Sú spurning hlýtur að vakna hvort seðlabankastjórinn hafi með ákvörðunum sínum um stórfelldar lánveitingum til gjaldþrota bankakerfis gerst sekur um umboðssvik í skilningi 249. gr. almennra hegningarlaga.
14.nóv. 2009 - 19:23 Sigurður G. Guðjónsson

Jónas Kristjánsson - sjálfshólssaga blaðtæknis og kjaftakarls

Las  á dögunum bókina JÓNAS KRISTJÁNSSON FRJÁLS OG ÓHÁÐUR.  Vægast sagt  mjög sérstæð bók, enda skrifuð af skrítnum og sjálfhverfum fýr um hann sjálfan og hina óendanlegu snilld hans á öllum sviðum blaða- og  hestamennsku.
31.okt. 2009 - 09:50 Sigurður G. Guðjónsson

Var hringt úr viðskiptaráðuneytinu?

Fjölmiðlar hafa á umliðnum dögum flutt fréttir af því, að Hagar Bónusfjölskyldunnar séu við það að komast í eigu ríkisbankans, Nýja Kaupþings. Bankinn á líka að tapa alveg helling af núllum við þessa yfirtöku.
Bónusfjölskyldan er þekkt fyrir annað en að gefast upp og vonandi tekst henni að öngla saman þeim sjö milljörðum, sem að sögn þarf til að hún haldi Högum.
24.okt. 2009 - 11:41 Sigurður G. Guðjónsson

Viltu taka þátt í endurreisn atvinnulífsins?

Undir þessari fyrirsögn auglýsir samkeppniseftirlitið eftir lögfræðingi, viðskiptafræðingi eða hagfræðingi í Morgunblaðinu 24. október.  Samkvæmt auglýsingunni á sá sem verður ráðinn að bera ábyrgð á úrlausnum samkeppnismála á fjölbreyttum sviðum atvinnulífsins, greina og fylgjast með samkeppnisstöðu fyrirtækja á tilteknum mörkuðum.
19.okt. 2009 - 12:06 Sigurður G. Guðjónsson

Prúðuleikararnir

Skjöl Framkvæmdarnefndar um einkavæðingu varðandi sölu ríkisbankanna 2002 til 2003 eru  fyrir margar sakir fróðleg lesning. Fyrst og fremst  vegna þess að þau  opinbera hina miklu leiksýningu, sem einkavæðing bankanna var. Aðalleikarar skúespilsins var Framkvæmdanefnd um einkavæðingu, sem var listilega  stýrt af forsætisráðherra og utanríkisráðherra.
09.okt. 2009 - 08:30 Sigurður G. Guðjónsson

Davíð og pukrið

Leiðarahöfundur Morgunblaðsins er óánægður með pukrið og leyndina sem hvílt hefur yfir og hvílir enn yfir Icesave-samningnum.  Það er gott til þess að vita að Morgunblaðið vilji nú standa vörð um upplýsta umræðu í samfélaginu, það hefur ekki verið aðalsmerki þess hingað til.
28.ágú. 2009 - 07:22 Sigurður G. Guðjónsson

Aumingja Ísland

Félagsmálaráðherra var í Kastljósi ríkisins í gærkveldi. Ráðherrann endurtók þar orð sín úr morgunútvarpi ríkisins fyrr í þessari viku, að ekki kæmi til greina að leiðrétta húsnæðislán allra lántakenda  heldur aðeins þeirra, sem ekkert ættu og ekkert gætu borgað.
26.ágú. 2009 - 09:23 Sigurður G. Guðjónsson

Fyrirspurn til félagsmálaráðherra

Félagsmálaráðherra virðist með öllu ómeðvitaður um þann mikla vanda, sem almenningur er í  vegna húsnæðislána, hvort heldur þau eru verð- eða gengistryggð.
23.jún. 2009 - 16:58 Sigurður G. Guðjónsson

Hvað segir Ólafur Davíðsson?

Svavar Gestsson fyrrum ráðherra -nú sendiherra-  tilkynnti þjóðinni í byrjun þessa mánaðar að hann hefði náð samkomulagi um Icesave við bresk og hollensk stjórnvöld. Af viðtölum við Svavar í kjölfarið hefur helst mátt ráða að Icesave-samningurinn sé tær snilld, sem Alþingi eigi að samþykkja. Almenn umræða um samninginn sé óþörf. Sendiherrann afgreiðir gagnrýni lögfræðinga á samninginn sem draugasögur að sumri. Ekki liggur enn fyrir hvort Svavar er snúinn úr hinni diplómatísku útlegð líkt og Jón Baldvin Hannibalsson fyrrum ráðherra gerði fyrir nokkru.
16.jún. 2009 - 14:44 Sigurður G. Guðjónsson

Hjörðin

Samkvæmt fjölmiðlum hafa liðlega þúsund manns sameinast um þá kröfu á fésbókinni að Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari verði settur af.
13.jún. 2009 - 10:37 Sigurður G. Guðjónsson

She ain´t a Jol(l)y good fellow

Eva Joly norskættaður franskmenntaður lögfræðingur var á liðnum vetri  kostuð hingað til lands af Agli Helgasyni og fleirum til að spjalla um bankahrunið í Silfri Egils. Þjóðin heillaðist af málflutningi Joly, enda sagði hún að endurheimta  mætti  fjármuni, sem geymdir væru á fjarlægum eyjum og væru ávöxtur afbrota óheiðarlegra íslenskra bankamanna og útrásarvíkinga.

Sigurður G. Guðjónsson

Hæstaréttarlögmaður

Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 07.3.2010
Þegar mér stóð ekki
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 09.3.2010
Skvísukosningin hafin fyrir Miss febrúar!
Marta María
Marta María - 10.3.2010
Finnst ykkur þetta í lagi?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
,,Áttum bara helvítis helling af peningum"
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 09.3.2010
Steingrímur afhjúpar bjánaskap
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir - 09.3.2010
Þegar á reynir er ástin ekki sönn
Teitur Guðmundsson
Teitur Guðmundsson - 08.3.2010
Eitruð leikföng!
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 09.3.2010
,,Hot sex pills"
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 09.3.2010
Böðlar kerfisins
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 07.3.2010
Strákar, engan svona aumingjaskap!
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 07.3.2010
Ríkisstjórn án þjóðar
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 10.3.2010
Hagsmunaárekstur eða vanhæfni?
Magnús Geir Eyjólfsson
Magnús Geir Eyjólfsson - 08.3.2010
Ginningarfífl flokkanna
Gylfi Arnbjörnsson
Gylfi Arnbjörnsson - 09.3.2010
Getum við treyst brennuvarginum fyrir kyndlinum?
Ágústa Johnson
Ágústa Johnson - 09.3.2010
Ert þú „Allt eða ekkert” týpan?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 08.3.2010
Stjórnarkreppa
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Opin spurning til nýju bankanna
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
Rifið í lóðin
Róbert Trausti Árnason
Róbert Trausti Árnason - 08.3.2010
Hef ég misst af einhverju?
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit